8. febrúar
dagsetning
(Endurbeint frá 8 Febrúar)
Jan – Febrúar – Mar | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||
2024 Allir dagar |
8. febrúar er 39. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 326 dagar (327 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1570 - Jarðskjálfti sem talinn er hafa verið 8,3 á Richter reið yfir Concepción í Chile.
- 1587 - María Stúart Skotadrottning var hálshöggvin í Fotheringhay-kastala í Englandi fyrir meinta þátttöku í morðtilræði gegn frænku sinni, Elísabetu 1..
- 1601 - Robert Devereux, jarl af Essex, gerði misheppnaða tilraun til uppreisnar gegn Elísabetu 1.
- 1610 - Kaþólska bandalagið í Þýskalandi ákvað að koma upp her undir stjórn Maximilíans af Bæjaralandi.
- 1622 - Jakob 1. leysti breska þingið upp.
- 1666 - Tyrkjasoldán lét handtaka Shabbetaï Zevi.
- 1692 - Læknir í Salem í Massachusetts í Bandaríkjunum lýsti því yfir að þrjár táningsstúlkur væru andsetnar af djöflinum og markaði þannig upphaf galdraofsókna í þorpinu.
- 1696 - Óveður gerði á norður- og vesturlandi og urðu fimmtán manns úti. Frá þessu segir í Hestsannál.
- 1696 - Pétur mikli varð einn keisari Rússlands við lát hálfbróður síns, Ívans 5..
- 1724 - Pétur mikli Rússakeisari gerði konu sína, Katrínu, að meðstjórnanda sínum.
- 1826 - Bernardino Rivadavia varð fyrsti forseti Argentínu.
- 1861 - Suðurríkjasambandið var stofnað í Bandaríkjunum.
- 1904 - Stríð Rússlands og Japans hófst.
- 1924 - Nevada varð fyrsta fylki Bandaríkjanna til að taka mann af lífi með gasi.
- 1925 - Halaveðrið. Tveir togarar fórust á Halamiðum, Leifur heppni og Robertson. Með þeim fórust 68 menn. Einnig fórst vélbátur með sex mönnum. Fimm manns urðu úti.
- 1935 - Enskur togari strandaði við Svalvogahamra á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og fórst áhöfnin öll, 14 menn.
- 1943 - Síðari heimsstyrjöldin: Rauði herinn náði borginni Kúrsk á sitt vald.
- 1949 - Mindszenty kardináli í Ungverjalandi var dæmdur fyrir landráð.
- 1959 - Nýfundnalandsveðrið: Íslenski togarinn Júlí fórst á Nýfundnalandsmiðum.
- 1971 - NASDAQ-hlutabréfamarkaðurinn hóf starfsemi.
- 1980 - Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen tók við völdum og sat í þrjú ár.
- 1984 - Vetrarólympíuleikarnir 1984 hófust í Sarajevó.
- 1989 - Boeing 707 þota fórst á Asóreyjum. 144 létu lífið.
- 1992 - Vetrarólympíuleikarnir voru settir í Albertville í Frakklandi.
- 1996 - Docklands-sprengjan sprakk í London og markaði endalok vopnahlés IRA.
- 1996 - Bill Clinton undirritaði ný bandarísk fjarskiptalög.
- 2002 - Opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna fór fram í Salt Lake City.
- 2005 - Ísrael og Palestína samþykktu vopnahlé.
- 2005 - Kortaþjónustan Google Maps hóf göngu sína.
- 2006 - Fuglaflensutilfelli voru staðfest í Ítalíu, Grikklandi og Búlgaríu.
- 2007 - Palestínsku hreyfingarnar Hamas og Fatah sammæltust um samsteypustjórn.
- 2007 - Bandaríska fyrirsætan Anna Nicole Smith fannst látin vegna ofneyslu lyfja á hótelherbergi í Hollywood.
- 2010 - Geimskutlan Endeavour var send til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
- 2012 - Verne Global, fyrsta „græna“ gagnaverið í heiminum, var tekið í notkun á Ásbrú. Það var jafnframt fyrsta atvinnuskapandi verkefnið sem fór af stað á Suðurnesjum eftir Bankahrunið.
- 2020 – Þingkosningar fóru fram á Írlandi. Lýðveldisflokkurinn Sinn Féin vann í fyrsta sinn flest atkvæði af öllum flokkum.
Fædd
breyta- 412 - Próklos, grískur heimspekingur (d. 485).
- 1191 - Jaroslav 2. af Rússlandi (d. 1246).
- 1291 - Alfons 4., konungur Portúgals (d. 1357).
- 1591 - Giovanni Francesco Barbieri, ítalskur málari (d. 1666).
- 1649 - Gabriel Daniel, franskur sagnaritari (d. 1728).
- 1700 - Daniel Bernoulli, svissneskur eðlis- og stærðfræðingur (d. 1782).
- 1820 - William Tecumseh Sherman, bandarískur herforingi (d. 1891).
- 1828 - Jules Verne, franskur rithöfundur (d. 1905).
- 1834 - Dmitri Mendelejev, rússneskur efnafræðingur (d. 1907).
- 1851 - Kate Chopin, bandarískur rithöfundur (d. 1904).
- 1877 - Guðrún Jónasson, bæjarfulltrúi og verslunareigandi (d. 1958).
- 1883 - Joseph Schumpeter, austurrískur hagfræðingur (d. 1950).
- 1892 - Ralph Chubb, breskt skáld og listamaður (d. 1960).
- 1898 - Þorbjörg Dýrleif Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur og rithöfundur (d. 1984).
- 1902 - Georgij Malenkov, sovéskur stjórnmálamaður (d. 1988).
- 1905 - Preguinho, brasilískur knattspyrnumaður (d. 1979).
- 1911 - Elizabeth Bishop, bandarískt ljóðskáld (d. 1979).
- 1911 - Big Joe Turner, bandarískur söngvari (d. 1985).
- 1915 - Takeshi Kamo, japanskur knattspyrnumaður (d. 2004).
- 1925 - Jack Lemmon, bandarískur leikari (d. 2001).
- 1931 - James Dean, bandarískur leikari (d. 1955).
- 1932 - John Williams, bandarískt kvikmyndatónskáld.
- 1941 - Nick Nolte, bandarískur leikari.
- 1945 - Kinza Clodumar, forseti Nárú.
- 1955 - John Grisham, bandarískur rithöfundur.
- 1959 - Mauricio Macri, argentínskur stjórnmálamaður.
- 1961 - Vince Neil, bandarískur tónlistarmaður (Mötley Crüe)
- 1963 - Jóhann Hjartarson, íslenskur skákmaður.
- 1966 - Hristo Stoichkov, búlgarskur knattspyrnumaður.
- 1974 - Seth Green, bandarískur leikari.
- 1977 - Dave Farrell, bandarískur tónlistarmaður (Linkin Park).
- 1977 - Sverre Andreas Jakobsson, íslenskur handknattleiksmaður.
- 1977 - Daniel Sanabria, paragvæskur knattspyrnumaður.
- 1979 - Josh Keaton, bandarískur leikari.
- 1981 - Sebastian Preiß, þýskur handknattleiksmaður.
- 1983 - Olga Syahputra, indónesískur leikari (d. 2015).
- 1995 - Hjörtur Hermannsson, íslenskur knattspyrnumaður.
- 1995 - Joshua Kimmich, þýskur knattspyrnumaður.
Dáin
breyta- 1296 - Przemysł 2., konungur Póllands (f. 1257).
- 1587 - María Skotadrottning (f. 1542).
- 1709 - Giuseppe Torelli, ítalskt tónskáld (f. 1658).
- 1725 - Pétur mikli, Rússakeisari (f. 1672).
- 1743 - Jón Árnason, Skálholtsbiskup (f. 1665).
- 1749 - Jan van Huysum, hollenskur listmálari (f. 1682).
- 1849 - France Prešeren, slóvenskt tónskáld (f. 1800).
- 1886 - Samuel Kleinschmidt, grænlenskur trúboði (f. 1814).
- 1910 - Hans Jæger, bandarískur rithöfundur og stjórnmálamaður (f. 1854).
- 1921 - Pjotr Kropotkin, rússneskur anarkisti (f. 1842).
- 1957 - John von Neumann, ungverskur eðlis- og stærðfræðingur (f. 1903).
- 1960 - John L. Austin, breskur heimspekingur (f. 1911).
- 1973 - Steinþór Guðmundsson, íslenskur kennari og stjórnmálamaður (f. 1890).
- 1983 - Sigurður Þórarinsson, íslenskur jarðfræðingur (f. 1912).
- 1998 - Halldór Laxness, íslenskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1902).
- 1999 - Iris Murdoch, breskur rithöfundur (f. 1919).
- 2001 - Ivo Caprino, norskur kvikmyndagerðarmaður (f. 1920).
- 2007 - Anna Nicole Smith, bandarísk fyrirsæta (f. 1967).
- 2017 - Ólöf Nordal, íslensk stjórnmálakona (f. 1966).