16. febrúar
dagsetning
Jan – Febrúar – Mar | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||
2024 Allir dagar |
16. febrúar er 47. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 318 dagar (319 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1318 - Sænsku hertogarnir Eiríkur og Valdimar, bræður Birgis Magnússonar konungs, létust í kastalanum Nyköpingshus, þar sem bróðir þeirra hafði varpað þeim í dýflissu. Ekki er ljóst hvort þeir dóu úr hungri eða voru drepnir.
- 1646 - Orrustan við Torrington var síðasta stórorrusta ensku borgarastyrjaldarinnar.
- 1742 - Spencer Compton, jarl af Wilmington, varð forsætisráðherra Bretlands.
- 1899 - Knattspyrnufélag Reykjavíkur var stofnað.
- 1918 - Litháen lýsti yfir sjálfstæði frá Rússlandi og Þýskalandi.
- 1920 - Hæstiréttur Íslands kom saman í fyrsta sinn.
- 1923 - Howard Carter opnaði gröf Tútankamons.
- 1927 - Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, var stofnaður.
- 1937 - Wallace H. Carothers fékk einkaleyfi á næloni.
- 1958 - Íslenska fyrirtækið Véltækni hf. var stofnað.
- 1968 - Neyðarlínan 911 tekin í notkun í Bandaríkjunum.
- 1970 - 102 létust þegar farþegaflugvél fórst við Santo Domingo í Dóminíska lýðveldinu.
- 1976 - Nokkur vestræn ríki lýstu stuðningi við stjórn MPLA í Angóla.
- 1978 - Fyrsta upplýsingatöflukerfið, CBBS, var sett upp í Chicago.
- 1983 - Minnst 75 létust í Öskudagskjarreldunum í Ástralíu.
- 1985 - Ísrael hóf brottkvaðningu herliðs frá Líbanon.
- 1986 - Sovéska farþegaskipið Mikhail Lermontov sökk í Marlborough-sundum við Nýja Sjáland.
- 1987 - Réttarhöld yfir John Demjanjuk hófust í Jerúsalem, en hann var sakaður um grimmdarverk í fangabúðunum í Treblinka. Ekkert sannaðist á hann.
- 1992 - Ísraelsk árásarþyrla myrti leiðtoga Hezbollah í Líbanon, Abbas al-Musawi, og son hans.
- 1994 - 207 létust og 2000 slösuðust þegar jarðskjálfti reið yfir Lampung á Súmötru.
- 1998 - 202 létust þegar China Airlines flug 676 hrapaði á íbúabyggð við Chiang Kai-shek-flugvöll á Taívan.
- 1999 - Kúrdískir skæruliðar hertóku nokkur sendiráð í Evrópu eftir að einn af foringjum þeirra, Abdullah Öcalan, var handtekinn af Tyrkjum.
- 2005 - Kýótóbókunin tók gildi eftir undirskrift Rússlands, án stuðnings Bandaríkjanna og Ástralíu.
- 2011 - Flutningaskipið Goðafoss strandaði í Ytre Hvaler-þjóðgarðinum skammt undan Fredrikstad við Noregsstrendur.
- 2014 - 13 suðurkóreskir ferðamenn létust í sprengjuárás á rútu í Kaíró.
- 2015 - Egyptalandsher hóf loftárásir á ISIS í Líbýu í hefndarskyni fyrir morð á kristnum Egyptum.
- 2017 - Sprengjuárásin í Sehwan 2017: 80 létust í sjálfsmorðssprengjuárás á helgistað súfista í Pakistan.
Fædd
breyta- 1497 - Philipp Melanchthon, þýskur húmanisti og siðbótarmaður (d. 1560).
- 1636 - Shubael Dummer, amerískur predikari (d. 1692).
- 1761 - Charles Pichegru, franskur herforingi (d. 1806).
- 1822 - Francis Galton, breskur mannfræðingur (d. 1911).
- 1826 - Julia Grant, forsetafrú Bandaríkjanna (d. 1902).
- 1834 - Ernst Haeckel, þýskur náttúruvísindamaður og heimspekingur (d. 1919).
- 1847 - Kinnaird lávarður, breskur knattspyrnumaður (d. 1923).
- 1848 - Octave Mirbeau, franskur rithöfundur (d. 1917).
- 1889 - Kristinn Pétursson, íslenskur blikksmiður (d. 1965).
- 1921 - Hua Guofeng, kínverskur stjórnmálamaður (d. 2008).
- 1935 - Sonny Bono, söngvari og þingmaður á Bandaríkjaþingi (d. 1998).
- 1941 - Kim Jong-il, norðurkóreskur leiðtogi (d. 2011).
- 1958 - Ice-T, bandarískur söngvari og leikari.
- 1958 - Nobutoshi Kaneda, japanskur knattspyrnumaður.
- 1959 - John McEnroe, bandarískur tennisleikari.
- 1960 - Pete Willis, enskur gítaristi (Def Leppard).
- 1961 - Andy Taylor, enskur tónlistarmaður (Duran Duran).
- 1963 - Dave Lombardo, kúbverskur trommari (Slayer).
- 1964 - Bebeto, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1972 - Taylor Hawkins, bandarískur tónlistarmaður (Foo Fighters).
- 1978 - Vala Flosadóttir, íslenskur stangastökkvari.
- 1979 - Valentino Rossi, ítalskur ökuþór.
- 1983 - Agyness Deyn, ensk fyrirsæta.
- 1989 - Mu Kanazaki, japanskur knattspyrnumaður.
- 1990 - The Weeknd, kanadískur söngvari.
Dáin
breyta- 1279 - Alfons 3., konungur Portúgals (f. 1210).
- 1899 - Félix Faure, forseti Frakklands (f. 1841).
- 1907 - Giosuè Carducci, ítalskt skáld og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1835).
- 1917 - Octave Mirbeau, franskur rithöfundur (f. 1848).
- 1932 - Ferdinand Buisson, franskur stjórnmálamaður og handhafi friðarverðlauna Nóbels (f. 1841).
- 1934 - Roberto Ferruzzi, ítalskur listmálari (f. 1853).
- 1980 - Erich Hückel, þýskir eðlis- og enfafræðingur (f. 1895).
- 1992 - Jânio Quadros, brasilískur stjórnmálamaður (f. 1917).
- 1997 - Alvis Vitolinš, lettneskur skákmeistari (f. 1946).
- 2016 - Boutros Boutros-Ghali, aðalritari Sameinuðu þjóðanna (f. 1922).
- 2017 - Alan Aldridge, breskur myndlistarmaður (f. 1943).