5. febrúar
dagsetning
Jan – Febrúar – Mar | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||
2024 Allir dagar |
5. febrúar er 36. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 329 dagar (330 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 839 - Aðalúlfur af Wessex tók við konungdómi í Englandi eftir lát Egberts.
- 1045 - Go-Reizei varð Japanskeisari eftir afsögn Go-Suzaku.
- 1136 - Stefán Englandskonungur lét Kumbaraland undir yfirráð Davíðs 1. Skotakonungs.
- 1597 - 26 kristnir menn dóu píslarvættisdauða í Nagasaki í Japan. Japanir höfðu bannað allar kristnar trúarhreyfingar ári áður.
- 1649 - Karl 2. var hylltur sem konungur Skotlands in absentia.
- 1661 - Kangxi tók við sem keisari í Kína við lát Shunzhi.
- 1782 - Spánverjar náðu eynni Menorca úr höndum Breta.
- 1864 - Orrustan við Dybbøl: Christian de Meza hörfaði með danska herinn frá Danavirki til Dybbøl.
- 1908 - Bakarasveinafélag Íslands var stofnað í húsinu við Þingholtsstræti 9.
- 1936 - Charlie Chaplin sendi frá sér síðustu þöglu kvikmyndina, Nútímann (Modern Times).
- 1940 - Katyn-fjöldamorðin voru framin í Katyn-skógi, skammt frá Smolensk.
- 1967 - Snorri Hjartarson hlaut Silfurhestinn, bókmenntaverðlaun dagblaðanna, er hann var veittur í fyrsta sinn.
- 1971 - Apollo 14 lenti á tunglinu.
- 1978 - Ingemar Stenmark varð heimsmeistari í svigi og stórsvigi í Garmisch-Partenkirchen, Þýskalandi.
- 1984 - Snjódýpt í Reykjavík mældist 43 sentimetrar og hafði ekki verið meiri snjór þar í rúma þrjá áratugi.
- 1987 - Sojús TM-2 var skotið á loft með tveimur geimförum sem áttu að dvelja langan tíma í geimstöðinni Mír.
- 1988 - Jóhann Hjartarson skákmaður sigraði Viktor Kortsnoj í undankeppni einvígis um um réttinn til að skora á heimsmeistarann í skák.
- 1991 - Dómstóll í Michigan bannaði lækninum Jack Kevorkian að aðstoða fólk við að fremja sjálfsmorð.
- 1993 - Belgía varð sambandsríki.
- 1994 - Keflavík, Njarðvík og Hafnir samþykktu í kosningum að sameinast í eitt sveitarfélag sem síðar hlaut nafnið Reykjanesbær.
- 1995 - 42 cm há stytta af Maríu frá Međugorje í Civitavecchia á Ítalíu hóf að gráta blóði.
- 1997 - Stóru bankarnir þrír í Sviss, Credit Suisse, Swiss Bank Corporation og UBS, kynntu stofnun 71 milljóna dala sjóðs handa fólki sem lifði helförina af.
- 1997 - Bandarísku fjárfestingarbankarnir Morgan Stanley og Dean Witter Reynolds sameinuðust.
- 2001 - Tom Cruise og Nicole Kidman tilkynntu að þau væru skilin.
- 2004 - Skeljatínsluslysið í Moracambe-flóa: Yfir 20 kínverskir farandverkamenn drukknuðu í aðfallinu í Morecambe-flóa á Englandi.
- 2006 - Kveikt var í sendiráði Danmerkur í Beirút.
- 2007 - Bandaríski geimfarinn Lisa M. Nowak var handtekin fyrir mannrán og morðtilraun.
- 2020 – Öldungadeild Bandaríkjaþings kaus að sýkna Donald Trump Bandaríkjaforseta af ákæru um valdníðslu fyrir landsdómi Bandaríkjanna.
- 2021 - Borgarastyrjöldin í Líbíu: Samkomulag náðist á fundi í Genf um starfandi forseta og forsætisráðherra fram að næstu kosningum.
- 2022 - Fellibylurinn Batsirai olli dauða 123 manna á Madagaskar.
Fædd
breyta- 1804 - Johan Ludvig Runeberg, finnskt ljóðskáld (d. 1877).
- 1808 - Carl Spitzweg, þýskur málari (d. 1885).
- 1810 - Ole Bull, norskur fiðluleikari (d. 1880).
- 1889 - Ísleifur Sesselíus Konráðsson, íslenskur myndlistarmaður (d. 1972).
- 1900 - Adlai Stevenson II, bandarískur stjórnmálamaður (d. 1965).
- 1910 - Francisco Varallo, argentinskur knattspyrnumaður (d. 2010).
- 1911 - Jussi Björling, sænskur tenór (d. 1960).
- 1923 - Friðjón Þórðarson, alþingismaður og ráðherra (d. 2009).
- 1932 - Hiroaki Sato, japanskur knattspyrnumaður (d. 1988).
- 1940 - Jónas Kristjánsson, íslenskur ritstjóri (d. 2018).
- 1946 - Charlotte Rampling, ensk leikkona.
- 1947 - Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands.
- 1947 - Edu Coimbra, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1950 - Kristján Frímann Kristjánsson, íslenskur myndlistarmaður.
- 1960 - Iwona Chmielewska, pólskur rithöfundur.
- 1963 - Goran Jurić, króatískur knattspyrnumaður.
- 1964 - Laura Linney, bandarísk leikkona.
- 1964 - Duff McKagan, bandarískur tónlistarmaður (Guns N’ Roses).
- 1965 - Gheorghe Hagi, rúmenskur knattspyrnumaður.
- 1969 - Bobby Brown, bandarískur söngvari.
- 1969 - Michael Sheen, velskur leikari.
- 1972 - María Danadrottning.
- 1974 - Giovanni van Bronckhorst, hollenskur knattspyrnumaður.
- 1977 - Ben Ainslie, breskur siglingamaður.
- 1979 - Mirko Hrgović, bosnískur knattspyrnumaður.
- 1984 - Carlos Tevez, argentískur knattspyrnumaður.
- 1985 - Cristiano Ronaldo, portúgalskur knattspyrnumaður.
- 1987 - Darren Criss, bandarískur leikari.
- 1990 - Ásta Guðrún Helgadóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1992 - Neymar da Silva Santos Júnior, brasilískur knattspyrnumaður.
Dáin
breyta- 1634 - Albrecht von Wallenstein, tékkneskur hershöfðingi, myrtur (f. 1583).
- 1959 - Sigrún Sigurhjartardóttir, íslensk húsfreyja (f. 1888).
- 1970 - Eduard Fraenkel, þýsk-enskur fornfræðingur (f. 1888).
- 2002 - Oscar Reutersvärd, sænskur listamaður (f. 1915).
- 2005 - Gnassingbe Eyadema, forseti Tógó (f. 1937).
- 2009 - Albert Barillé, franskur teiknimyndahöfundur (f. 1920).
- 2014 - Carlos Borges, úrúgvæskur knattspyrnumaður (f. 1932).
- 2020 - Kirk Douglas, bandarískur leikari (f. 1916).
- 2021 - Christopher Plummer, kanadískur leikari (f. 1929).
- 2023 - Pervez Musharraf, forseti Pakistans (f. 1943).