20. júlí
dagsetning
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2024 Allir dagar |
20. júlí er 201. dagur ársins (202. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 164 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 514 - Hormídas varð páfi.
- 1031 - Hinrik 1. varð konungur Frakklands.
- 1198 - Bein Þorláks Þórhallssonar biskups voru tekin upp og lögð í skrín í Skálholti.
- 1221 - Bygging dómkirkjunnar í Burgos í Kastilíu hófst.
- 1304 - Játvarður 1. Englandskonungur vann fjögurra mánaða umsátur um Stirling-kastala í Skotlandi.
- 1394 - Björn Einarsson í Vatnsfirði reið að Núpi í Dýrafirði með 90 manna lið, þar á meðal Vigfús Ívarsson hirðstjóra og Þorstein Eyjólfsson lögmann, og tókust þar sættir með honum og Þórði Sigmundssyni á Núpi í deilum þeirra.
- 1402 - Orrustan við Ankara: Tímúr sigraði soldán Ottómana, Bajesíð 1., og tók hann höndum.
- 1433 - Teitur Gunnlaugsson, Þorvarður Loftsson og Árni Einarsson Dalskeggur fóru að Jóni Gerrekssyni Skálholtsbiskupi, drekktu honum í Brúará og drápu sveina hans.
- 1572 - Friðrik 2. Danakonungur gekk að eiga frænku sína, Soffíu af Mecklenburg.
- 1627 - Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum lést eftir 56 ár í embætti. Hann var dugmikill og sat lengur í embætti biskups en nokkur annar.
- 1783 - Eldmessa Jóns Steingrímssonar var sungin á Kirkjubæjarklaustri. Stöðvaðist þá framrás hraunsins skammt þaðan frá og var það þakkað trúarhita prestsins.
- 1798 - Þeir fáu menn sem sótt höfðu Alþingi fóru heim frá Þingvöllum vegna slæms aðbúnaðar. Þar með lauk þinghaldi á Þingvöllum.
- 1934 - Starfsstúlknafélagið Sókn var stofnað sem stéttarfélag starfsstúlkna á sjúkrahúsum.
- 1946 - Áætlunarbifreið hvolfdi og kom upp eldur í henni við Gljúfurá í Borgarfirði. Um borð voru 22 farþegar og slösuðust fimmtán þeirra, en enginn alvarlega og allir komust frá borði, en bíllinn brann til ösku.
- 1947 - Ólafur krónprins Noregs (síðar konungur) afhjúpaði styttu af Snorra Sturlusyni á Snorrahátíð í Reykholti í Borgarfirði.
- 1968 - Opnuð var vatnsleiðsla sem lögð var til Vestmannaeyja frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum.
- 1968 - Ólympíuleikar þroskaheftra voru haldnir í fyrsta sinn í Chicago.
- 1969 - Appolló 11 lenti giftusamlega á Tunglinu.
- 1973 - Stofnfundur Flugleiða hf var haldinn og sameinuðust Flugfélag Íslands og Loftleiðir þá í eitt félag. Sameiningin gekk í gildi þann 1. ágúst.
- 1973 - Frakkar tóku aftur upp kjarnorkusprengingar í tilraunaskyni á Mururóa þrátt fyrir mótmæli Ástralíu og Nýja Sjálands.
- 1974 - Tyrkir gerðu innrás í Kýpur.
- 1976 - Lendingarfar Viking 1 lenti á Mars.
- 1982 - Tvær sprengjur á vegum IRA sprungu í London með þeim afleiðingum að átta hermenn létust og 47 manns særðust.
- 1983 - Herlög voru afnumin í Póllandi og pólitískum föngum var sleppt.
- 1985 - Forseti Suður-Afríku, P. W. Botha, lýsti yfir neyðarástandi vegna vaxandi óeirða.
- 1989 - Hvalveiðum Íslendinga lauk um sinn er síðasti hvalurinn var veiddur samkvæmt vísindaáætlun.
- 1989 - Aung San Suu Kyi var hneppt í stofufangelsi í Mjanmar.
- 1999 - Mercury-verkefnið: Lendingarfarinu Liberty Bell 7 var bjargað af hafsbotni.
- 1999 - Kínversk stjórnvöld bönnuðu Falun Gong-hreyfinguna.
- 2001 - Gríðarleg mótmæli áttu sér stað þegar fundur 8 helstu iðnríkja heims hófst í Genúa á Ítalíu. Einn mótmælandi, Carlo Giuliani, var skotinn til bana af lögreglumanni.
- 2011 - Sameinuðu þjóðirnar lýstu yfir hungursneyð í Sómalíu.
- 2011 - Goran Hadžić var handtekinn í Serbíu. Hann var sá síðasti af 161 sem Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn fyrir fyrrverandi Júgóslavíu handtók fyrir glæpi gegn mannkyni.
- 2012 - Skotárásin í Aurora: 12 létust og 58 særðust þegar maður hóf skothríð í kvikmyndahúsi í Aurora í Kóloradó þar sem kvikmyndin The Dark Knight Rises var sýnd.
- 2015 - Bandaríkin og Kúba endurreistu stjórnmálasamband og bundu enda á 54 ára illdeilur sín á milli.
- 2015 - Sprengjutilræðið í Suruç: 33 létu lífið í sprengjutilræði í Suruç í Tyrklandi.
Fædd
breyta- 1822 - Gregor Mendel, þýskur vísindamaður, faðir erfðafræðinnar (d. 1884).
- 1864 - Erik Axel Karlfeldt, sænskt ljóðskáld og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1931).
- 1885 - Hallgrímur Benediktsson, íslenskur athafnamaður (d. 1954).
- 1893 - Jón Kjartansson, íslenskur stjórnmálamaður (d. 1962).
- 1894 - Stefán Jóhann Stefánsson, íslenskur stjórmálamaður (d. 1980).
- 1907 - Jakob Benediktsson, forstöðumaður Orðabókar Háskólans (d. 1999).
- 1919 - Edmund Hillary, nýsjálenskur fjallgöngumaður og landkönnuður (d. 2008).
- 1925 - Jacques Delors, franskur stjórnmálamaður.
- 1932 - Paik Nam-june, suðurkóreskur listamaður, oft talinn upphafsmaður svokallaðrar myndbandslistar (d. 2006).
- 1938 - Diana Rigg, ensk leikkona (d. 2020).
- 1947 - Carlos Santana, mexíkósk-bandarískur gítarleikari.
- 1948 - Muse Watson, bandarískur leikari.
- 1950 - Brian Pilkington, ensk-íslenskur myndlistarmaður.
- 1955 - Egidio Miragoli, ítalskur biskup.
- 1958 - Billy Mays, bandarískur leikari (d. 2009).
- 1962 - Carlos Alazraqui, bandarískur leikari.
- 1964 - Bernd Schneider, þýskur ökuþór.
- 1964 - Chris Cornell, bandarískur trommuleikari (d. 2017).
- 1966 - Enrique Peña Nieto, forseti Mexíkó.
- 1967 - Magnús Gylfason, íslenskur knattspyrnuþjálfari.
- 1973 - Hákon, krónprins Noregs.
- 1977 - Alessandro Santos, japanskur knattspyrnumaður.
- 1980 - Gisele Bündchen, brasilísk fyrirsæta.
- 1980 - Sturla Ásgeirsson, íslenskur handknattleiksmaður.
- 1986 - Osric Chau, kanadískur leikari.
- 1990 - Oddur Grétarsson, íslenskur handknattleiksmaður.
- 1990 - Lars Unnerstall, þýskur knattspyrnumaður.
Dáin
breyta- 985 - Bónifasíus 7. páfi.
- 1031 - Róbert 2., konungur Frakklands (f. 972).
- 1156 - Toba Japanskeisari (f. 1103).
- 1358 - Albert 2., hertogi af Austurríki.
- 1398 - Roger Mortimer, jarl af March, ríkiserfingi Englands (f. 1374).
- 1433 - Jón Gerreksson Skálholtsbiskup.
- 1447 - Gozewijn Comhaer Skálholtsbiskup (f. um 1375).
- 1454 - Jóhann 2., konungur Kastilíu (f. 1405).
- 1524 - Claude af Bretagne, drottning Frakklands og hertogaynja af Bretagne (f. 1499).
- 1605 - Fjodor 2. Rússakeisari (f. 1589).
- 1609 - Federico Zuccari, ítalskur listamaður (f. 1542).
- 1616 - Aodh Mór Ó Néill, jarl af Tyrone (f. um 1540).
- 1627 - Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup (f. um 1541).
- 1866 - Georg Friedrich Bernhard Riemann, þýskur stærðfræðingur (f. 1826).
- 1881 - Theodor Bergk, þýskur fornfræðingur (f. 1812).
- 1903 - Leó 13. páfi (f. 1810).
- 1930 - Klemens Jónsson, landritari og ráðherra (f. 1862).
- 1937 - Guglielmo Marconi, ítalskur eðlisfræðingur sem fann upp aðferð til þráðlausra fjarskipta (f. 1874).
- 1949 - Sveinn Ólafsson, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1863).
- 1951 – Abdullah 1. Jórdaníukonungur (f. 1882).
- 1952 - Dr. Jón Stefánsson, íslenskur fræðimaður (f. 1862).
- 1963 - Magnús Björnsson á Syðra-Hóli, íslenskur alþýðufræðimaður, rithöfundur og bóndi (f. 1889).
- 1993 - Finnur Jónsson, íslenskur myndlistarmaður (f. 1892).
- 2007 - Tammy Faye Bakker, bandarískur sjónvarpsprédikari (f. 1942).
- 2010 - Benedikt Gröndal, íslenskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forsætisráðherra (f. 1924).
- 2017 - Chester Bennington, bandarískur tónlistarmaður (f. 1976).