Kristinn Pétursson
blikksmiður, iðnrekandi og íþróttamaður
Kristinn Pétursson[1] (16. febrúar 1889 – 5. maí 1965) var reykvískur blikksmiður, iðnrekandi og íþróttamaður.
Ævi og störf
breytaKristinn starfrækti með Bjarna bróður sínum blikksmiðju og umfangsmikla stáltunnugerð í Vesturbæ Reykjavíkur,sem faðir þeirra Pétur Jónsson stofnaði 1883.
Þeir bræður voru á meðal stofnenda íþróttafélaganna ÍR og KR,[2] einnig tóku þeir mikinn þátt í félagsmálum með frímúrurum og bindindishreyfingunni.
Kristinn var fjölhæfur íþróttamaður á sínum yngri árum sérstaklega í frjálsum íþróttum[3] knattspyrnu og glímu. Hann var bakvörður í fyrsta kappliði KR gegn Fram í vígsluleik Melavallar 1911 og tók þátt í fyrsta Íslandsmótinu 1912.
Heimildir
breyta- ↑ Pétursson Frjáls Verslun 20.árgangur 1960, bls. 25-26.
- ↑ Fótboltafélags Reykjavíkur Vísir 10. mars 1939, bls. 5.
- ↑ PéturssonMorgunblaðið 15. júni 1979, bls.40,41,42.