1961
ár
(Endurbeint frá Júlí 1961)
Árið 1961 (MCMLXI í rómverskum tölum)
Árþúsund: | 2. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Á Íslandi
breyta- 29. janúar - Körfuknattleikssamband Íslands var stofnað.
- 4. febrúar - Verslunarbankinn hóf starfsemi.
- 5. maí - Öryrkjabandalag Íslands var stofnað.
- 7. maí - Keflavíkurganga á vegum hernámsandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
- 1. júlí - Listasafn ASÍ var stofnað.
- 18. júlí - Varðberg, félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, var stofnað.
- 22. október - Bjarni Benediktsson var kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins.
- 6. október - Háskólabíó hóf starfsemi.
- 26. október - Eldgos hófst í Öskju.
- 3. nóvember - Skemmtistaðurinn Glaumbær opnaði.
- 25. nóvember - Vesturbæjarlaug opnaði.
- Seðlabanki Íslands var stofnaður.
- Leikhópurinn Gríma var stofnaður.
Fædd
- 1. janúar - Georg Guðni Hauksson, myndlistamaður (d. 2011)
- 28. janúar - Arnaldur Indriðason, rithöfundur.
- 4. apríl - Gyrðir Elíasson, rithöfundur.
- 9. maí - Rannveig Rist, verkfræðingur og forstjóri ÍSAL.
- 24. júní - Alma Möller, landlæknir.
- 13. desember - Guðmundur Torfason, knattspyrnumaður.
Dáin
- 16. janúar - Jóhannes Áskelsson, íslenskur jarðfræðingur (f. 1902).
Erlendis
breyta- 3. janúar - Dwight Eisenhower tilkynnti að Bandaríkin hafi slitið öll samskipti við Kúbu.
- 17. janúar - Patrice Lumumba, fyrsti lýðræðislega kjörni forsætisráðherra Lýðveldisins Kongó, var ráðinn af dögum.
- 20. janúar - John F. Kennedy tók við embætti forseta Bandaríkjanna.
- 4. febrúar - Portúgalar hófu nýlendustríð sitt í Angóla.
- 11. febrúar - Réttaröldin yfir Adolf Eichmann hófust í Jerúsalem.
- 26. febrúar - Hassan II tók við krúnunni í Marokkó.
- 1. mars - Fyrstu kosningarnar voru haldnar í Úganda.
- 15. mars - Suður-Afríka sagði sig úr Breska samveldinu.
- 12. apríl - Sovétmaðurinn Júríj Gagarín fór fyrstur manna út í geim.
- 17. apríl - Kalda stríðið: Innrásin í Svínaflóa á Kúbu hófst.
- 27. apríl - Sierra Leone hlaut sjálfstæði frá Bretum.
- 29. apríl - Alþjóðlegi náttúruverndarsjóðurinn var stofnaður.
- Júlí - Amnesty International var stofnað.
- 19. júlí - Þjóðfrelsisfylking sandínista í Níkaragva var stofnuð.
- 13. ágúst - Bygging Berlínarmúrsins hófst, sem markaði upphafið að 28 ára aðskilnaði Vestur- og Austur-Berlínar.
- 17. september - Adnan Menderes, fyrrum forsætisráðherra Tyrklands, var hengdur.
- 5. október - Sameinaða Arabalýðveldið, sambandsríki Egyptalands og Sýrlands, var lagt niður.
- 12. október - Dauðarefsing var afnumin á Nýja-Sjálandi.
- 26. október - Rómarsáttmáli um vernd listflytjenda, framleiðenda hljóðrita og útvarpsstofnana var gerður.
- 9. desember - Tanganjika (síðar Tansanía) hlaut sjálfstæði.
- 11. desember - Fyrstu bandarísku herþyrlurnar komu til Saigon og mörkuðu þannig upphaf Víetnamstríðsins.
- 11. desember - Adolf Eichmann var dæmdur sekur um stríðsglæpi.
- 15. desember - Ísraelskur stríðsglæpadómstóll dæmdr Adolf Eichmann til dauða fyrir þátttökuna í helförinni.
- 17. desember - Indland réðst inn í Góa.
- 19. desember -
- Portúgalar samþykktu að láta Góa af hendi til Indverja.
- Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna var stofnuð.
Fædd
- 8. febrúar - Vince Neil, bandarískur tónlistarmaður (Mötley Crüe)
- 3. apríl - Eddie Murphy, bandarískur leikari og grínisti.
- 15. apríl - Carol W. Greider, bandarískur sameindalíffræðingur og nóbelsverðlaunahafi.
- 6. maí - George Clooney, bandarískur leikari.
- 13. maí - Denis Rodman, bandarískur körfuknattleiksmaður og leikari.
- 14. júní - Boy George - enskur söngvari.
- 1. júlí - Díana, prinsessa af Wales (d. 1997)
- 1. júlí - Carl Lewis, bandarískur íþróttamaður.
- 30. júlí - Laurence Fishburne, bandarískur leikari.
- 4. ágúst - Barack Obama, Bandaríkjaforseti.
- 8. ágúst - The Edge, írskur gítarleikari, meðlimur írsku hljómsveitarinnar U2.
- 9. ágúst - John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
- 29. september - Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu.
- 19. nóvember - Meg Ryan, bandarísk leikkona.
- 27. desember - Guido Westerwelle, þýskur stjórnmálamaður.
- 30. desember - Ben Johnson, kanadískur íþróttamaður.
Dáin
- 26. febrúar - Mohammed V, konungur Marokkó.
- 26. febrúar - Alberto Galateo, argentínskur knattspyrnumaður (f. 1912)
- 3. mars - Paul Wittgenstein, austurrískur píanóleikari.
- 25. mars - Arthur Drewry, enskur forseti FIFA (f. 1891).
- 13. maí - Gary Cooper, bandarískur leikari (f. 1901).
- 6. júní - Carl Jung, svissneskur sálfræðingur (f. 1875).
- 2. júlí - Ernest Miller Hemingway, bandarískur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1899).
- 18. september - Dag Hammarskjöld, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna og handahafi friðarverðlauna Nóbels.
- 30. október - Luigi Einaudi, ítalskur hagfræðingur (f. 1874)