Dag Hammarskjöld
Dag Hjalmar Agne Carl Hammarskjöld (29. júlí 1905 – 18. september 1961) var sænskur erindreki, hagfræðingur og rithöfundur sem gegndi stöðu annars aðalritara Sameinuðu þjóðanna frá apríl 1953 til dauða síns í flugslysi í september 1961. Hammarskjöld var 47 ára þegar hann var útnefndur og því sá yngsti sem hafði gegnt stöðu aðalritara. Auk þess er hann einn af aðeins fjórum sem hafa hlotið Nóbelsverðlaun eftir dauða sinn[1] og eini aðalritari Sameinuðu þjóðanna sem hefur látist í embætti. Hann lést þegar Douglas DC-6-flugvél hans brotlenti á leið í friðarumræður í Kongódeilunni. Hammarskjöld er jafnan nefndur sem annar tveggja bestu aðalritara Sameinuðu þjóðanna ásamt Kofi Annan[2] og útnefning hans í embættið hefur þótt eitt mesta happ stofnunarinnar.[3] John F. Kennedy Bandaríkjaforseti kallaði Hammarskjöld „mesta stjórnskörung okkar aldar.“[4]
Dag Hammarskjöld | |
---|---|
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna | |
Í embætti 10. apríl 1953 – 18. september 1961 | |
Forveri | Trygve Lie |
Eftirmaður | U Thant |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. júlí 1905 Jönköping, Svíþjóð, sænsk-norska sambandinu |
Látinn | 18. september 1961 (56 ára) Ndola, Norður-Ródesíu |
Þjóðerni | Sænskur |
Foreldrar | Hjalmar Hammarskjöld og Agnes Almquist |
Háskóli | Uppsalaháskóli, Stokkhólmsháskóli |
Atvinna | Hagfræðingur, ríkiserindreki |
Undirskrift |
Deilt hefur verið um hvort dauði Hammarskjölds hafi í raun verið slys. Í skýrslu sem skilað var til allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna árið 2017 var ályktað að Hammarskjöld hafi verið myrtur.[5]
Tenglar
breyta- „Alþjóðlegi samningasnillingurinn Dag Hammarskjöld“. Vikan. 26. september 1957. bls. 6.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Nobel Prize Facts“.
- ↑ „Next U.N. secretary general - The Japan Times“.
- ↑ „How Not to Select the Best UN Secretary-General“. 28. október 2015.
- ↑ Linnér S (2007). „Dag Hammarskjöld and the Congo crisis, 1960–61“ (PDF). Uppsala University. bls. Page 28. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 5. apríl 2012.
- ↑ Telja að Hammarskjöld hafi verið myrtur. mbl.is, 26. september 2017. Sótt 20. desember 2017.
Fyrirrennari: Trygve Lie |
|
Eftirmaður: U Thant |