Júríj Gagarín
Júrí Alexejevítsj Gagarín (rússneska: Юрий Алексеевич Гагарин; 9. mars 1934 – 27. mars 1968) var rússneskur geimfari og hvort tveggja fyrsti maðurinn sem fór út í geiminn 12. apríl 1961 og fyrsti maðurinn til að komast á sporbraut um jörðu.
Júrí Gagarín | |
![]() Júrí í Svíþjóð. | |
Fædd(ur) | Júrí Alexejevítsj Gagarín 9. mars 1934 Klushino, Rússlandi (þá Sovétríkjunum) |
---|---|
Látin(n) | 27. mars 1968 (34 ára) Novosyolovo, Rússlandi (þá Sovétríkjunum) Flugslys við æfingu |
Tími í geimnum | 1 klukkustund og 48 mínútur |
Verkefni | Vostok 1 |
Undirskrift | ![]() |
Hann lærði flug samhliða vélvirkjun og var herflugmaður á orrustuflugvélum. 1960 var hann valinn ásamt 20 öðrum til að taka þátt í Vostok-áætluninni. Eftir strangt þjálfunarferli var hann valinn til að verða fyrsti maðurinn í geimnum. Valið stóð milli hans og German Títov sem varð síðan annar maðurinn í geimnum.
12. apríl 1961 fór Gagarín út í geiminn með Vostok 1.[1] Samkvæmt fjölmiðlum á hann að hafa sagt þegar hann var kominn á braut um jörðu, „Ég sé engan guð hérna uppi.“
Gagarín lést í flugslysi þegar MiG-15 orrustuflugvél sem hann stýrði hrapaði.
MyndagalleríBreyta
Frímerki, Aserbaídsjan, 2001
- ↑ Wilson, Jim (13. apríl 2011). „Yuri Gagarin: First Man in Space“ (enska). NASA. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. apríl 2013.