Laurence Fishburne

bandarískur leikari

Laurence John Fishburne III (fæddur 30. júlí 1961) er bandarískur leikari, leikritahöfundur, leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sín í The Matrix-myndunum, What's Love Got to Do with It og CSI: Crime Scene Investigation.

Laurence Fishburne
Laurence Fishburne
Laurence Fishburne
Upplýsingar
FæddurLaurence John Fishburne III
30. júlí 1961 (1961-07-30) (63 ára)
Ár virkur1981 -
Helstu hlutverk
Raymond Langton í CSI: Crime Scene Investigation
Ike Turner í What's Love Got to Do With It
Morpheus í The Matrix

Einkalíf

breyta

Fishburne fæddist í Augusta í Georgíu.[1]Foreldrar hans skildu þegar hann var ungur og flutti hann með móður sinni til Brooklyn í New York þar sem hann ólst upp. Sá hann föður sinn einu sinni í mánuði.[2][3] Útskrifaðist hann frá Lincoln Square Academy í New York, sem lokaði á níunda áratugnum.

Fishburne giftist leikkonunni Hajnu Moss árið 1985 í Eþíópíu. Saman eiga þau tvö börn: Langston og Montana. Fishburne og Moss skildu um miðjan tíunda áratuginn. Fishburne er núna giftur Gina Torres, sem hann giftist árið 2002. Eiga þau saman eitt barn, Delilah, fædda 2007, og búa í New Rochelle í New York.[4] Einnig á hann heimili í New York-borg í Castle Village hlutanum af Washington Heights á Manhattan.[5]

Þann 24. febrúar 2007 var Fishburne heiðraður með Harvard Foundation's Artist of the Year-verðlaununum við hina árlegu sýningu Cultural Rhythms. Fékk hann þessa virðingu sem leikari og skemmtikraftur en einnig fyrir vinnu sína til hjálparmála. Fishburne er UNICEF sendiherra.[6] Bæjarstórinn í borginni Cambridge í Massachusetts gaf honum lykilinni að borginni og lýsti 24. febrúar sem „Laurence Fishburne-degi“ í borginni.

Í maí 2009 kom Fishburne fram á sviði við National Memorial Day-tónleikana við Mall in Washington, D.C.[7]

Ferill

breyta

Leikhús

breyta

Á níunda áratugnum kom hann fram í leikritum á borð við Short Eyes (1984) og Loose Ends (1987). Bæði voru þau sýnd við Second Stage Theatre í New York-borg.

Árið 1991 vann hann Tony-verðlaunin fyrir framkomu sína í leikriti Augusts Wilson Two Trains Running

Árið 2006 lék hann á móti Angelu Bassett í Pasadena Playhouse uppfærslunni á leikriti August Wilson Fences.[8]

Í apríl 2008 sneri Fishburne aftur á leiksvið við Broadway-sýningunar Thurgood, sem er nýtt leikrit eftir George Stevens, Jr. og leikstýrt af Leonard Foglia. Thurgood var frumsýnt við Booth Theatre þann 30. apríl 2008.[9] Vann hann Drama Desk Award fyrir bestu einleiksýningu.

Sjónvarp

breyta

Fishburne byrjaði að leika tólf ára þegar hann fékk fyrsta starfið árið 1973 sem Joshua Hall í sápuóperunni, One Life to Live. Fishburne var með aukahlutverk sem Cowboy Curtis með persónu Paul Reubens, Pee Wee Herman, í barnaseríunni Pee-wee's Playhouse. Einnig kom hann fram í MASH-þættinum „The Tooth Shall Set You Free“ sem Corporal Dorsey.

Þann 18. ágúst 2008 var greint frá því að Fishburne myndi ganga til liðs við CSI: Crime Scene Investigation eftir að William Petersen myndi yfirgefa þáttinn.[10] Fishburne gekk til liðs við þáttinn í níunda þætti 9. þáttaraðar sem háskólaprófessor og fyrrverandi meinafræðingur.[11] Persónan var kynnt til sögunnar sem ráðgjafi í „19 Down“, sem síðan gengur til liðs við CSI liðið í „One to Go“. Samkvæmt viðtölum við framleiðundur þegar tilkynningin var gefin út, persóna hans hefur það einkenni að geta séð sjálfan sig í raðmorðingjum, staðreynd sem persónan mun ekki láta vita af en það er eitthvað sem ýtir hann áfram til þess að skilja af hverju ákveðnir glæpamenn verða svona ofbeldisfullir. Fishburne var einnig spurður og sagði hann vera í sæluvímu yfir því að ganga til liðs við þáttinn og ánægður með að fá að leika svona flókna persónu. Varð hann einn af aðalleikurum þáttaraðarinnar í þættinum sem var frumsýndur 22. janúar 2009. Yfirgaf hann þáttinn í lok elleftu þáttaraðarinnar árið 2011.

Kvikmyndir

breyta

Fyrsta kvikmyndahlutverk Fishburne var árið 1975 í Cornbread, Earl and Me. Árið 1976 þá fékk hann aukahlutverk í kvikmynd Francis Ford Coppola, Apocalypse Now, þar sem hann lék hinn sautján ára sjómann nefndur ‚Mr. Clean‘. Framleiðsla myndarinnar hófst í mars 1976 þegar hann var aðeins fjórtán ára en hann hafði logið til um aldur til þess að fá hlutverkið. Þar sem upptökur tóku svo langan tíma að var hann orðinn sautján ára þegar þeim lauk.

Á fyrrihluta níunda áratugarins var Fishburne með lítið hlutverk í mynd Stevens Spielberg The Color Purple. Árið 1987 þá lék hann í þriðju Nightmare On Elm Street-myndinni sem einn af sjúkraliðunum á spítalanum. Þar að auki lék Fishburne persónuna Dap í mynd Spikes Lee School Daze (1988). Framkoma hans í myndinni var vel tekið en persónan var lýsing af afrískum-amerískum stúdent við HBCU.

Árið 1990 lék hann Jimmy Jump í King of New York og árið 1991 lék Fishburne í Boyz N The Hood. Árið 1993 fékk hann sína fyrst tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt sem Ike Turner í What's Love Got to Do with It. Árið 1997 lék Fishburne í vísindahrollvekjunni Event Horizon ásamt Sam Neill. Nú er Fishburne þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Morpheus í vísindasögumyndinni The Matrix.

Fishburne endurtók hlutverk sitt sem Morpheus í tveimur framhaldsmyndum af Matrix, The Matrix Reloaded og The Matrix Revolutions. Hann lék á móti Tom Cruise í Mission: Impossible III.

Tónlistarmyndbönd

breyta

Kom fram stuttlega sem sjúkrabörumaður í tónlistamyndbandi fyrir hljómsveitina The Spooks, í laginu „Things I've Seen“ (2000).

Kvikmyndir og sjónvarp

breyta
Kvikmyndir
Ár Kvikmynd Hlutverk Athugasemd
1972 If You Give a Dance, You Gotta Pay the Band Fish Sjónvarpsmynd
1973-1976 One Life to Live Dr. Joshua „Josh“ Hall Sjónvarpssería
1975 Cornbread, Earl and Me Wilford Robinson sem Laurence Fishburne III
1979 Fast Break Götubarn sem Laurence Fishburne III
1979 Apocalypse Now Tyrone „Clean“ Miller sem Larry Fishburne
1980 The Six O'Clock Follies Robby Robinson Sjónvarpssería
1980 Willie & Phil Wilson sem Laurence Fishburne III
1980 A Rumor of War Lightbulb sem Larry Fishburne
1982 Death Wish II Cutter sem Laurence Fishburne III
1983 I Take These Men Hank Johnson Sjónvarpsmynd
Larry Fishburne
1983 For Us the Living: The Medgar Evers Story Jimbo Collins Sjónvarpsmynd
sem Larry Fishburne
1993 Rumble Fish Midget sem Larry Fishburne
1984 The Cotton Club Bumpy Rhodes sem Larry Fishburne
1985 The Color Purple Swain sem Larry Fishburne
1986 Quicksilver Vodoo sem Larry Fishburne
1986 Band of the Hand Cream sem Larry Fishburne
1987 A Nightmare on Elm Street: Dream Warriors Max sem Larry Fishburne
1987 Gardens of Stone Sgt. Flanagan sem Larry Fishburne
1987 Cherry 2000 Glu Glu lögfræðingur sem Larry Fishburne
1988 School Daze Dap
1988 Red Heat Lt. Charlie Stobbs sem Larry Fishburne
1990 King of New York Jimmy Jump sem Larry Fishburne
1990 Cadence Roosevelt Stokes sem Larry Fishburne
1990 Decoration Day Michael Waring, DOD Man Sjónvarpsmynd
1991 Class Action Nick Holbrook sem Larry Fishburne
1991 Boyz n the Hood Furious Styles sem Larry Fishburne
1992 Deep Cover Russell Stevens Jr. / John Hull sem Larry Fishburne
1993 What's Love Got to Do with It Ike Turner, Sr.
1993 Searching for Bobby Fischer Vinnie
1995 Higher Learning Prófessor Maurice Phipps
1995 Bad Company Nelson Crowe / Kynnir
1995 Just Cause Fógetinn Tanny Brown
1995 The Tuskegee Airmen Hannibal Lee Sjónvarpsmynd
1995 Othello Othello
1996 Before Your Eyes Kynnir Sjónvarpsmynd
1996 Fled Charles Piper
1997 Miss Evers' Boys Caleb Humphries Sjónvarpsmynd
1997 Event Horizon Kapteinn Miller
1997 Hoodlum Bumpy Johnson
1998 Always Outnumbered Socrates Fortlow Sjónvarpsmynd
1999 The Matrix Morpheus
2000 Once in the Life 20 / 20 Mike
2001 Osmosis Jones Thrax Talaði inn á
2003 Biker Boyz Smoke
2003 The Matrix Reloaded Morpheus
2003 Enter the Matrix Morpheus Tölvuleikur
Talaði inn á
2003 Decoded: The Making of „The Matrix Reloaded“ Hann sjálfur Sjónvarpsmynd
2003 Mystic River Sgt. Whitey Powers
2003 The Matrix Revolutions Morpheus
2005 Assault on Precinct 13 Marion Bishop
2005 The Matrix Online Morpheus Tölvuleikur
Talaði inn á
2005 Kiss Kiss Bang Bang Bear in Genaros Beer Commerical óskráður á lista
Talaði inn á
2005 True Crime: New York City Isaiah Reed Tölvuleikur
Talaði inn á
2006 Akeelah and the Bee Dr. Larabee
2006 Mission: Impossible III Theodore Brassel
2006 Five Fingers Ahmat
2006 Bobby Edward
2007 Teenage Mutant Ninja Turtles Kynnir Talaði inn á
2007 Fantastic Four: Rise of the Silver Surfer The Silver Surfer Talaði inn á
2007 The Death and Life of Bobby Z Tad Gruzsa
2008 21 Cole Williams
2008 Tortured Archie Green
2008 Days of Wrath ónefnt hlutverk
2009 Black Water Transit Jack
2009 Armored Baines
2009 CSI: Crime Scene Investigation – Deadly Intent Raymond „Ray“ Langston Tölvuleikur
í eftirvinnslu
2009 CR: Enter the Matrix Morpheus Tölvuleikur
2010 Predators Noland
2011 Contagion Dr. Ellis Cheever Kvikmyndatökur í gangi
2011 4Chosen Ralph Menar Í frumvinnslu
Sjónvarp
Ár Titill Hlutverk Athugasemd
1981 Trapper John, M.D. Hobie Þáttur: Finders Keepers
sem Larry Fishburne
1982 MASH Undirliðsþjálfinn Dorsey Þáttur: The Tooth Shall Set You Free
sem Larry Fishburne
1982 Strike Force F.T. Þáttur: Humiliation
sem Larry Fishburne
1986 Hill Street Blues Maurice Haynes Þáttur: Look Homeward, Ninja
1986 Miami Vice Fangavörðurinn Keller Þáttur: Walk-Alone
1986-1987 Pee-wee's Playhouse Cowboy Curtis 3 þættir
1987 Spenser: For Hire David Mukende Þáttur: Personal Demons
1989 The Equalizer Casey Taylor Þáttur: Race Traitors
1991 The American Experience Martin Delany Þáttur: The Massachusetts 54th Colored Infantry
1993 Tribeca Martin Þáttur: The Box
2008- til dags CSI: Crime Scene Investigation Dr. Raymond Langston 62 þættir
2009 CSI: Miami Dr. Raymond Langston Þáttur: Bone Voyage
2009 CSI: NY Dr. Raymond Langston Þáttur: Hammer Down

Framleiðandi

breyta
  • TriBeCa (1993)
  • Hoodlum (1997)
  • Once in the Life (2000)
  • Akeelah and the Bee (2006)

Handritshöfundur

breyta
  • Once in the Life (2000)

Leikstjóri

breyta
  • Once in the Life (2000)

Verðlaun og tilnefningar

breyta

Óskarsverðlaunin

Academy of Science Fiction, Fantasy & Horror Films

  • 2000: Tilnefndur sem besti aukaleikari fyrir The Matrix

Acapulco Black-kvikmyndahátíðin

  • 1998: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Hoodlum

BET-verðlaunin

  • 2004: Tilnefndur sem besti leikari

Black Movie-verðlaunin

Black Reel-verðlaunin

Blockbuster Entertainment-verðlaunin

  • 2000: Verðlaun sem besti aukaleikari fyrir The Matrix

Boston Society of Film Critics-verðlaunin

CableACE-verðlaunin

Chicago International-verðlaunin

  • 2000: Career Achievement-verðlaunin

Emmy-verðlaunin

  • 1997: Verðlaun sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Miss Ever's Boys
  • 1997: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Miss Ever's Boys
  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir The Tuskegee Airmen
  • 1993: Verðlaun sem besti gestaleikari í dramaseríu fyrir Tribeca

Golden Globe-verðlaunin

  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Tuskegee Airmen

Hollywood-kvikmyndahátíðin

  • 2006: Verðlaun sem besti leikhópur fyrir Bobby

Image-verðlaunin

Independent Spirit-verðlaunin

  • 1993: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Cover Lead

MTV Movie-verðlaunin

PGA-verðlaunin

Phoenix-kvikmyndahátíðin

  • 2006: Copper Wing Tribute-verðlaunin

Satellite-verðlaunin

  • 1999: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Always Outnumbered

Screen Actors Guild-verðlaunin

  • 2007: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir Bobby
  • 2004: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir Mystic River
  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Tuskegee Airmen

ShoWest Convention USA

  • 2008: Verðlaun sem besti leikhópur fyrir 21
  • 2006: Distinguished Decade of Achievement in Film

Tilvísanir

breyta
  1. Laurence Fishburne (Skoðað 8. apríl 2008).
  2. Laurence Fishburne: Biography Geymt 6 febrúar 2010 í Wayback Machine (Skoðað 31. janúar 2007).
  3. Laurence Fishburne: Flying Fish Geymt 7 júní 2007 í Wayback Machine (Skoðað 24. maí 2007).
  4. Biography of Lawrence Fishburne (Skoðað 19. maí 2008).
  5. New York Daily News Geymt 4 febrúar 2009 í Wayback Machine 7. mars 2008 (Skoðað 8. apríl 2008).
  6. Harvard Foundation names UNICEF Ambassador Laurence Fishburne 2007 Artist of the Year Geymt 27 september 2007 í Wayback Machine 20. febrúar 2007 (Skoðað 25. febrúar 2007).
  7. http://www.pbs.org/memorialdayconcert/concert/performers.html
  8. Fences Geymt 4 janúar 2007 í Wayback Machine (Skoðað 1. febrúar 2007).
  9. Laurence Fishburne is 'Thurgood' on Broadway Spring 2008 24. október 2007 (Skoðað 8. apríl 2008).
  10. „Laurence Fishburne & John Malkovich Investigated For 'CSI' Role“ á Starpulse Entertainment News Blog Geymt 7 mars 2012 í Wayback Machine.
  11. „Laurence Fishburne joins CSI“ Geymt 31 ágúst 2008 í Wayback Machine.

Heimildir

breyta

Tenglar

breyta