21. ágúst
dagsetning
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
2024 Allir dagar |
21. ágúst er 233. dagur ársins (234. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 132 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 672 - Kōbun Japanskeisari framdi sjálfsmorð og frændi hans, Temmu, tók við embættinu.
- 1011 - Njáll Þorgeirsson og heimilisfólk hans á Bergþórshvoli í Landeyjum var brennt inni í hefndarskyni af Flosa Þórðarsyni og mönnum hans. Kári Sölmundarson komst lífs af úr brennunni.
- 1157 - Sancho 3. og Ferdínand 2., synir Alfons 7. Kastilíukonungs, skiptu ríkinu á milli sín við lát hans.
- 1238 - Örlygsstaðabardagi átti sér stað í Skagafirði.
- 1400 - Owain Glyndŵr var lýstur prins af Wales af fylgismönnum sínum og hóf árásir á virki Englendinga í Norðaustur-Wales.
- 1439 - Eiríkur af Pommern var settur af embætti í Svíþjóð.
- 1604 - Fyrstu íbúarnir komu til Gautaborgar.
- 1642 - Enska borgarastyrjöldin: Fyrsta orrustan við Lostwithiel.
- 1680 - Púeblóuppreisnin: Púeblóindíánar hertóku Santa Fe.
- 1791 – Haítíska byltingin braust út.
- 1797 - Sveinn Pálsson gekk á Heklu í annað sinn.
- 1810 - Sænska þingið kaus franska marskálkinn Jean-Baptiste Bernadotte (síðar Karl 14. Jóhann) krónprins Svíþjóðar.
- 1821 - Jarviseyja var uppgötvuð af breska skipinu Eliza Francis í eigu Jarvis-bræðra.
- 1897 - Þýski efnafræðingurinn Felix Hoffmann bjó til heróín í fyrsta sinn. Fyrr í sama mánuði hafði honum tekist að búa til aspirín í stöðugu formi og fékk einkaleyfi á því en umdeilt er þó hvort hann var fyrstur til þess.
- 1905 - Lagning ritsíma til Íslands og símalínu frá Austfjörðum til Akureyrar og Reykjavíkur var samþykkt á Alþingi.
- 1932 - Vígð var 170 metra löng brú á Þverá í Rangárvallasýslu að viðstöddu fjölmenni.
- 1942 - Vélbáturinn Skaftfellingur með sjö manna áhöfn bjargaði 52 Þjóðverjum af sökkvandi kafbát undan Bretlandsströndum.
- 1958 - Friðrik Ólafsson, skákmaður, varð stórmeistari, 24 ára gamall.
- 1971 - Fyrsta Alþjóðlega fornsagnaþingið var haldið í Edinborg í Skotlandi.
- 1973 - Ásgeir Sigurvinsson, átján ára gamall knattspyrnumaður úr Vestmannaeyjum, hóf atvinnumannsferil sinn með belgíska liðinu Standard Liege.
- 1984 - Hálf milljón manna mótmælti stjórn Ferdinand Marcos í Manila á Filippseyjum.
- 1986 - Nyosslysið varð í Kamerún. Mikið magn koltvísýrings gaus úr vatninu með þeim afleiðingum að 2000 manns létust í allt að 25 km fjarlægð.
- 1988 - Stuðlabergsdrangur var reistur í Skagafirði til minningar um Örlygsstaðabardaga er 750 ár voru liðin frá atburðinum.
- 1988 - Hundruðir létu lífið í jarðskjálfta við landamæri Nepals og Indlands.
- 1990 - Fyrsta borgarastyrjöldin í Líberíu: Nágrannaríkin Gambía, Gínea, Gana, Nígería og Síerra Leóne sendu friðargæslulið til Líberíu.
- 1991 - Lettland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 1992 - Umsátrið um Ruby Ridge hófst í Idaho í Bandaríkjunum.
- 1993 - NASA missti sambandið við könnunarfarið Mars Observer þremur dögum áður en það átti að fara á braut um Mars.
- 1996 - Fyrrum forseti Suður-Afríku, F. W. de Klerk, baðst formlega afsökunar á glæpum stjórnarinnar á Apartheid-tímanum.
- 1997 - Þriðja breiðskífa Oasis, Be Here Now, kom út.
- 1998 - Ferjufyrirtækið Scandlines varð til við sameiningu ferjudeildar dönsku járnbrautanna og þýsks ferjufyrirtækis.
- 2003 - Ísraelsher myrti næstráðanda Hamassamtakanna, Ismail Abu Shanab, í hefndarskyni fyrir sprengjutilræðið tveimur dögum fyrr.
- 2008 - Hanna Birna Kristjánsdóttir tók við af Ólafi F. Magnússyni sem borgarstjóri Reykjavíkur.
- 2010 - Sporvagnalínan Spårväg City var opnuð í Stokkhólmi.
- 2013 - 1.429 létust þegar Sýrlandsher gerði efnavopnaárás á borgina Ghouta.
- 2017 - Sólmyrkvi sást frá Bandaríkjunum.
- 2019 - Skógareldarnir í Amasón 2019: Brasilíska geimferðastofnunin sagði frá metfjölda skógarelda í Amasónfrumskóginum.
- 2019 - Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér til að forðast vantraust.
Fædd
breyta- 1165 - Filippus 2. Frakkakonungur (d. 1223).
- 1765 - Vilhjálmur 4. Bretakonungur (d. 1837).
- 1789 - Augustin Louis Cauchy, franskur stærðfræðingur (d. 1857).
- 1818 - Sigríður Bogadóttir, íslenskt leikskáld (d. 1903).
- 1821 - Louis Vuitton, franskur tískuhönnuður (d. 1892).
- 1862 - Emilio Salgari, ítalskur rithöfundur (d. 1911).
- 1864 - Þorleifur Jónsson, íslenskur stjórnmálamaður (d. 1956).
- 1923 - Shimon Peres, ísraelskur stjórnmálamaður, forsætisráðherra og forseti Ísraels (d. 2016).
- 1930 - Margrét af Snowdon bresk prinsessa og samkvæmisljón (d. 2002).
- 1938 - Kenny Rogers, bandarískur sveitasöngvari (d. 2020).
- 1940 - Sigríður Eyþórsdóttir, íslensk leikkona (d. 2016).
- 1946 - Norio Yoshimizu, japanskur knattspyrnumaður.
- 1947 - Mary Simon, landstjóri Kanada.
- 1949 - Theódór Júlíusson, íslenskur leikari.
- 1951 - Sigurður Á. Friðþjófsson, íslenskur rithöfundur.
- 1961 - Stephen Hillenburg, bandarískur kvikari (d. 2018).
- 1964 - Logi Már Einarsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1967 - Serj Tankian, söngvari System of a Down.
- 1973 - Sergey Brin, einn af stofnendum Google.
- 1979 - Joel Griffiths, ástralskur knattspyrnumaður.
- 1981 - Silvio Spann, knattspyrnumaður frá Trínidad og Tóbagó.
- 1986 - Usain Bolt, jamaískur spretthlaupari.
- 1988 - Robert Lewandowski, pólskur knattspyrnumaður.
- 1989 - Hayden Panettiere, bandarisk leikkona.
- 1991 - Kristján Pétur Andrésson, íslenskur körfuknattleiksmaður.
Dáin
breyta- 1157 - Alfons 7., konungur Kastilíu (f. 1105).
- 1614 - Erzsébet Báthory, ungversk greifynja og fjöldamorðingi (f. 1560).
- 1720 - Þórður Jónsson, íslenskur prestur (f. 1672).
- 1762 - Lafði Mary Wortley Montagu, enskur rithöfundur (f. 1689).
- 1913 - Steingrímur Thorsteinsson, íslenskur skólastjóri (f. 1831).
- 1931 - Þórður Tómasson, skáld og þýðandi (f. 1871).
- 1940 - Lev Trotskíj, rússneskur stjórnmálamaður (f. 1879).
- 1943 - Henrik Pontoppidan, danskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1857).
- 1964 - Palmiro Togliatti, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1893).
- 1989 - Hörður Tulinius, íslenskur körfuknattleiksmaður (f. 1936).
- 2005 - Robert Moog, hönnuður Moog-tóngervilsins (f. 1934).
- 2018 - Stefán Karl Stefánsson, íslenskur leikari (f. 1975).