21. maí
dagsetning
Apr – Maí – Jún | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2024 Allir dagar |
21. maí er 141. dagur ársins (142. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 224 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1481 - Hans konungur tók við af föður sínum Kristjáni 1. sem konungur Danmerkur og Noregs.
- 1502 - Portúgalski sæfarinn João da Nova uppgötvaði Sankti Helenu.
- 1674 - Jóhann Sobieski var kjörinn konungur Pólsk-litháíska samveldisins.
- 1871 - Franskar hersveitir réðust inn í Parísarkommúnuna og götubardagar hófust.
- 1904 - Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) var stofnað í París.
- 1927 - Charles Lindbergh lenti flugvél sinni á Le Bourget-flugvelli við París og varð þar með fyrstur til að fljúga einn yfir Atlantshaf.
- 1929 - Stofnuð var fyrsta kvennastúka á Íslandi innan Oddfellowreglunnar.
- 1972 - Laszlo Toth réðist með meitli á höggmynd Michelangelos, Pietá, í Péturskirkjunni í Róm.
- 1977 - Straumsvíkurganga gegn bandarískri hersetu var haldin af Samtökum herstöðvaandstæðinga.
- 1979 - Miklar verðhækkanir á bensíni urðu til þess að bifreiðaeigendur á Íslandi mótmæltu og þeyttu flautur í tvær mínútur.
- 1980 - Kvikmyndin Star Wars: The Empire Strikes Back var frumsýnd í Bandaríkjunum.
- 1981 - François Mitterrand varð forseti Frakklands.
- 1982 - Falklandseyjastríðið: Bretar gengu á land á Falklandseyjum.
- 1983 - Safn Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, Ásmundarsafn, var formlega opnað við Sigtún í Reykjavík.
- 1990 - Kasmírdeilan: Indverskar öryggissveitir skutu á syrgjendur í útför múslimaleiðtoga og drápu 47.
- 1991 - Rajiv Gandhi, fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, beið bana í sjálfsmorðsárás.
- 1991 - Borgarastyrjöldin í Eþíópíu: Mengistu Haile Mariam, einræðisherra í Eþíópíu, flúði til Simbabve með fjölskyldu sinni.
- 1994 - Í grein í Lesbók Morgunblaðsins lagði Sturla Friðriksson til að Íslendingar veldu holtasóley sem þjóðarblóm.
- 1994 - Ítalski fyrrum ráðherrann Giulio Andreotti var sakaður um mafíutengsl af dómstól í Palermó.
- 1995 - Jóhannes Páll 2. páfi tók Jan Sarkander í dýrlinga tölu í Olomouc í Tékklandi.
- 1996 - Nær 1000 manns fórust þegar ferjan Bukoba sökk í Viktoríuvatni.
- 1996 - Borgarastyrjöldin í Alsír: Sjö munkar úr Atlasklaustrinu í Alsír voru myrtir.
- 1997 - Björn Ólafsson, Einar Stefánsson og Hallgrímur Magnússon urðu fyrstir Íslendinga til að stíga á tind Everestfjalls.
- 1998 - Suharto sagði af sér sem forseti Indónesíu eftir 32 ára valdatíma í kjölfar uppþotanna í Djakarta.
- 1999 - Kvikmyndin Notting Hill var frumsýnd í Bretlandi.
- 2003 - Jarðskjálfti, 6,7 á Richter með upptök við Boumerdès, skók Alsír. 2300 létust.
- 2005 - Grikkland sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2005 í fyrsta sinn í Kíev með laginu „My Number One“.
- 2005 - Hæsti rússíbani heims, Kingda Ka, var opnaður í skemmtigarðinum Six Flags Great Adventure í New Jersey.
- 2006 - Svartfellingar samþykktu aðskilnað frá Serbíu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- 2007 - Breski klipparinn Cutty Sark skemmdist mikið í eldi.
- 2011 - Eldgos í Grímsvötnum hófst um klukkan sjö að kvöldi.
- 2013 - Bandaríska knattspyrnuliðið New York City FC var stofnað.
- 2017 - Donald Trump Bandaríkjaforseti fór í opinbera heimsókn til Sádí-Arabíu og Ísrael.
- 2020 – Fellibylurinn Ampan kom á land á Indlandi og Bangladess þar sem hann olli dauða 100 manna og hrakti 4 milljónir frá heimilum sínum.
- 2020 – Bandaríkin lýstu því yfir að þau drægju sig úr Samningi um opna lofthelgi vegna samningsbrota Rússa.
Fædd
breyta- 1471 - Albrecht Dürer, þýskur listamaður (d. 1528).
- 1527 - Filippus 2. Spánarkonungur (d. 1598).
- 1688 - Alexander Pope, enskt skáld (d. 1744).
- 1763 - Joseph Fouché, franskur stjórnmálamaður (d. 1820).
- 1765 - Ísleifur Einarsson, íslenskur sýslumaður (d. 1836).
- 1775 - Lucien Bonaparte, franskur stjórnmálamaður og fræðimaður (d. 1840).
- 1785 - August Immanuel Bekker, þýskur fornfræðingur (d. 1871).
- 1799 - Mary Anning, breskur steingervingasafnari og steingervingafræðingur (d. 1847).
- 1843 - Louis Renault, franskur lögfræðingur (d. 1916).
- 1843 - Charles Albert Gobat, svissneskur lögfræðingur (d. 1914).
- 1851 - Léon Bourgeois, franskur stjórnmálamaður og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1925).
- 1895 - Lázaro Cárdenas, forseti Mexíkó (d. 1970).
- 1916 - Harold Robbins, bandarískur rithöfundur (d. 1997).
- 1920 - John Chadwick, enskur fornfræðingur (d. 1998).
- 1921 - Andrei Sakharov, rússneskur vísindamaður og handhafi friðarverðlauna Nóbels (d. 1989).
- 1944 - Mary Robinson, forseti Írlands.
- 1945 - Helgi M. Bergs, íslenskur hagfræðingur (d. 2017).
- 1945 - Elísabet Gunnarsdóttir, íslenskur framhaldsskólakennari.
- 1951 - Al Franken, bandarískur stjórnmálamaður.
- 1952 - Herra T, bandarískur leikari og hörkutól.
- 1952 - Hallmar Sigurðsson, íslenskur leikari.
- 1955 - Sergej Shojgú, rússneskur stjórnmálamaður.
- 1960 - Jeffrey Dahmer, bandarískur raðmorðingi (d. 1994).
- 1962 - Uwe Rahn, þýskur knattspyrnumaður.
- 1970 - Rade Bogdanović, serbneskur knattspyrnumaður.
- 1975 - Juuso Pykälistö, finnskur rallökumaður.
- 1979 - Hideo Hashimoto, japanskur knattspyrnumaður.
- 1987 - Masato Morishige, japanskur knattspyrnumaður.
- 1992 - Shoma Doi, japanskur knattspyrnumaður.
- 1998 - Ari Ólafsson, íslenskur söngvari.
Dáin
breyta- 987 - Loðvík 5. Frakklandskonungur (f. 967).
- 1254 - Konráð 4. Þýskalandskonungur (f. 1228).
- 1481 - Kristján 1. Danakonungur (f. 1426).
- 1639 - Tommaso Campanella, ítalskt skáld (f. 1568).
- 1865 - Christian Jürgensen Thomsen, danskur fornleifafræðingur og safnamaður (f. 1788).
- 1916 - Skúli Thoroddsen, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1859).
- 1920 - Venustiano Carranza, forseti Mexíkó (f. 1859).
- 1929 - Archibald Primrose, jarl af Rosebery, breskur stjórnmálamaður (f. 1847).
- 1938 - Einar H. Kvaran, íslenskur rithöfundur og þýðandi (f. 1859).
- 1949 - Klaus Mann, þýskur rithöfundur (f. 1906).
- 1965 - Hugh Marwick, orkneyskur málfræðingur (f. 1881).
- 1988 - Sammy Davis, Sr., bandarískur dansari og leikari (f. 1900).
- 1991 - Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands (f. 1944).
- 1994 - Giovanni Goria, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1943).
- 2000 - Barbara Cartland, enskur rithöfundur (f. 1901).
- 2000 - Sir John Gielgud, breskur leikari (f. 1904).