8. apríl
dagsetning
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | ||||
2024 Allir dagar |
8. apríl er 98. dagur ársins (99. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 267 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 217 - Caracalla var myrtur af hermönnum sínum við Edessa. Foringi Pretóríuvarðarins, Marcus Opellius Macrinus, lýsti sig keisara.
- 1571 - Guðbrandur Þorláksson var vígður biskup á Hólum, 29 ára gamall. Hann gegndi embættinu í 56 ár.
- 1609 - Shimazu Yoshihiro hóf að leggja Ryūkyū-eyjar undir lénið Satsuma í Japan.
- 1663 - Theatre Royal, Drury Lane opnaði með nýrri uppfærslu á Gamansama liðsforingjanum eftir John Fletcher.
- 1703 - Manntal var tekið á Íslandi um þetta leyti ársins. Þetta manntal var fyrsta manntal heims sem náði til heillar þjóðar.
- 1742 - Óratorían Messías eftir Georg Friedrich Händel var frumflutt í Dyflinni á Írlandi.
- 1783 - Krímkanatið var innlimað í Rússneska keisaradæmið.
- 1838 - Áætlunarsiglingar með gufuskipum hófust á milli Bristol í Englandi og New York í Bandaríkjunum. Það var gufuskipið Great Western sem fór fyrstu ferðina.
- 1898 - Kristján konungur 9. varð áttræður og var af því tilefni haldin stórveisla í Reykjavík samkvæmt Árbókum Reykjavíkur.
- 1924 - Sharia-dómstólar eru bannaðir í Tyrklandi sem hluti af umbótum stjórnar Kemal Atatürk.
- 1947 - Síðustu bandarísku hermennirnir sem staðsettir voru á Íslandi í Síðari heimsstyrjöld yfirgáfu landið með herflutningaskipinu Edmund B. Alexander.
- 1957 - 49 punda stórlax veiddist í þorskanet við Grímsey. Þetta var stærsti lax sem menn vissu til að veiðst hefði við Ísland.
- 1970 - 79 létust í gassprengingu í neðanjarðarlestarkerfi Ósaka í Japan.
- 1977 - Fyrsta hljómplata bresku hljómsveitarinnar The Clash kom út.
- 1978 - Leikskólinn Furugrund hóf starfsemi í Kópavogi.
- 1989 - Bónus opnaði fyrstu verslun sína við Skútuvog í Reykjavík.
- 1990 - Fyrsti þáttur Tvídranga (Twin Peaks) var sendur út á ABC í Bandaríkjunum.
- 1990 - Birendra af Nepal aflétti banni við stjórnarandstöðuflokkum í Nepal eftir mikil mótmæli.
- 1991 - Gítarleikari norsku svartmálmshljómsveitarinnar Mayhem, Øystein Aarseth, kom að söngvara hljómsveitarinnar Per Yngve Ohlin sem hafði framið sjálfsmorð. Aarseth tók ljósmynd af líkinu sem var notuð á umslag bootleg-plötunnar Dawn of the Black Hearts fjórum árum síðar.
- 1994 - Lýðveldið Makedónía gerist aðili að Sameinuðu þjóðunum.
- 1994 - Dómsdagur Michelangelos á endavegg Sixtínsku kapellunnar í Vatíkaninu var sýndur almenningi eftir 10 ára viðgerðir.
- 1994 - Kurt Cobain, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar Nirvana, fannst látinn á heimili sínu.
- 1995 - Alþingiskosningar voru haldnar á Íslandi.
- 1999 - Bill Gates varð ríkasti einstaklingur heims vegna mikilla hækkana á hlutabréfum í Microsoft.
- 2004 - Átökin í Darfúr: Ríkisstjórn Súdan gerði vopnahléssamkomulag við tvo skæruliðahópa.
- 2010 - Bandaríkin og Rússland endurnýjuðu START-samninginn um fækkun kjarnavopna.
- 2018 - Borgarastyrjöldin í Sýrlandi: 70 voru sagðir hafa látist eftir saríngasárás á bæinn Douma.
- 2020 – Sádi-Arabía og bandamenn þeirra lýstu yfir einhliða vopnahléi í borgarastyrjöldinni í Jemen.
Fædd
breyta- 563 f.Kr. - Gautama Búdda, trúarleiðtogi (d. 483 f.Kr.).
- 1320 - Pétur 2. Portúgalskonungur (d. 1367).
- 1588 - Thomas Hobbes, enskur heimspekingur (d. 1679).
- 1605 - Filippus 4. konungur Spánar og Portúgals (d. 1665).
- 1794 - Helgi G. Thordersen, íslenskur biskup (d. 1867).
- 1818 - Kristján 9. Danakonungur (d. 1906).
- 1836 - Oddur V. Gíslason, íslenskur prestur (d. 1911).
- 1850 - Jóhannes Guðmundsson Nordal, íslenskur athafnamaður (d. 1946).
- 1859 - Edmund Husserl, þýskur heimspekingur (d. 1938).
- 1892 - Mary Pickford, kanadísk leikkona (d. 1979).
- 1912 - Sonja Henie, norskur listskautari (d. 1969).
- 1919 - Ian Smith, fyrrum forsætisráðherra Ródesíu (d. 2007).
- 1929 - Erlendur Jónsson, íslenskur rithöfundur.
- 1938 - Kofi Annan, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna (d. 2018).
- 1941 - Vivienne Westwood, enskur fatahönnuður (d. 2022).
- 1944 - Masanobu Izumi, japanskur knattspyrnumaður.
- 1947 - Larry Norman, bandarískur tónlistarmaður (d. 2008).
- 1950 - Nobuo Fujishima, japanskur knattspyrnumaður.
- 1951 - Geir H. Haarde, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1955 - Kazuyoshi Nakamura, japanskur knattspyrnumaður.
- 1962 - Izzy Stradlin, bandarískur tónlistarmaður.
- 1963 - Julian Lennon, breskur tónlistarmaður.
- 1968 - Patricia Arquette, bandarísk leikkona.
- 1972 - Piotr Świerczewski, pólskur knattspyrnumaður.
- 1975 - Stefán Pálsson, íslenskur sagnfræðingur.
Dáin
breyta- 217 - Caracalla, Rómarkeisari (f. 186).
- 1364 - Jóhann 2. Frakkakonungur (f. 1319).
- 1492 - Lorenzo de Medici, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1449).
- 1608 - Þórður Guðmundsson, íslenskur lögmaður (f. 1524).
- 1697 - Niels Juel, danskur flotaforingi (f. 1629).
- 1879 - Anthony Panizzi, ítalskur lögfræðingur og bókavörður (f. 1797).
- 1909 - V.U. Hammershaimb, færeyskur málvísindamaður (f. 1819).
- 1931 - Erik Axel Karlfeldt, sænskt ljóðskáld og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1864).
- 1973 - Pablo Picasso, spænskur myndlistarmaður (f. 1881).
- 1973 - E.R. Dodds, breskur fornfræðingur (f. 1893).
- 1975 - Brynjólfur Jóhannesson, íslenskur leikari (f. 1897).
- 1977 - Stefania Turkewich, úkraínskt tónskáld (f. 1898).
- 2009 – Haraldur Bessason, íslenskur fræðimaður og rithöfundur (f. 1931)
- 2010 - Malcolm McLaren, breskur tónlistarmaður og umboðsmaður (f. 1946).
- 2013 – Margrét Thatcher, forsætisráðherra Bretlands (f. 1925).
- 2018 - Chuck McCann, bandarískur leikari (f. 1934).