Sundlaugar og laugar á Íslandi

(Endurbeint frá Sundlaugar á Íslandi)

Íslenskar sundlaugar eru 163 talsins.[1]

Saga sundlauga á Íslandi

breyta

Vitað er um þrettán laugar sem notaðar voru til forna og um fjórar eru enn nothæfar.[2] Snorralaug í Reykholti er ein af þeim laugum sem enn eru nothæfar, og hún er einnig sú fyrsta sem getið er.[3] Árið 1821 var fyrst haldið sundnámskeið[4] og árið 1884 var fyrsta sundfélag Íslands stofnað[5] en það bar nafnið Sundfélag Reykjavíkur.

Fyrsta steypta sundlaugin á Íslandi var gerð í Laugardal við Reykjavík árið 1908 þar sem heitu vatni úr Þvottalaugunum var veitt í laugina og köldu úr Gvendarbrunnum.[6] Í eftir árið 1930 fjölgar byggingu sundlauga á Íslandi mikið, og á árunum 1931-1940 og 1941-1950 voru 44 sundlaugar byggðar.[7]

Konum er almennt heimilað að vera í bikini í sundlaugum á Íslandi[8] (að Bláa lóninu undanskildu[9]) en þrátt fyrir það hefur konum hefur verið vísað úr laugum fyrir að bera brjóst sín.[10][11]

Listi yfir sundlaugar á Íslandi

breyta

Í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu

breyta

Flestar sundlaugar eru staðsettar í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu og þar af rekur Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur sjö.[12] Einnig var baðhús í Reykjavík, en í því var ekki sundlaug heldur aðeins aðstaða til líkamsþvottar þangað til að húsið var rifið árið 1967.

Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd
  Ásvallalaug Vallarhverfi í Hafnarfirði www.sundlaug.is Geymt 15 júlí 2013 í Wayback Machine Ásvallalaug    
Sundlaug sem opnaði í Vallarhverfi þann 6. september 2008.[13][14] Er hún stærsta sundlaug Íslands.
  Lágafellslaug Lækjarhlið 1a, 270 Mosfellsbæ www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Mosfellsbær - Íþróttamiðstöðvar    
Sundlaug staðsett í íþróttamiðstöðinni að Lágafelli, í Lækjarhlíð, Mosfellsbæ. Þar er 25 metra sundlaug og 3 heitir pottar, tveir venjulegir og einn nuddpottur. Einnig er vaðlaug og þrjár rennibrautir. Hún er einnig nefnd Sundlaugin Lækjarhlíð.
  Salalaug Versölum 3, Kópavogi www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine Salalaug Geymt 25 apríl 2024 í Wayback Machine    
Sundlaug í Versölum, Kópavogi. Hún er einnig nefnd Sundlaugin Versölum, Íþróttamiðstöðin Versalir og Íþróttafélagið Gerpla.
  Ylströnd Nauthólsvík www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Ylströndin er náttúruleg strönd í Nauthólsvík sem tekin var í notkun sumarið 2000 og búið er að veita heitu vatni í tvo heita potta og í sjóinn. Lónið sem myndast er um 1.500 til 4.000 [15] eftir því hvort það sé flóð eða fjara. Fluttur var skeljasandur á ströndina, en þar var áður sjóbaðstaður en nú koma um 120.000 gestir ár hvert. Einning nefnd Ylströndin Nauthólsvík.
  Íþróttamiðstöðin Mýrin Við Skólabraut www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Íþróttamiðstöðin Mýrin er íþróttamiðstöð sem inniheldur sundlaug, og liggur við Skólabraut. Í bygginunni er að finna heita potta og kennslusundlaug. Hofsstaðaskóli og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ nýtir húsið íþróttakennslu, og sundlaugin er aðalega kennslusundlaug þar sem nemendur Hofsstaðaskóla sækja skólasund.
  Sundlaug Álftaness Bjarnastöðum, Álftanesi www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Álftanes    
Sundlaug í Íþróttamiðstöð Álftaness við Bjarnastaði á Álftanesi
  Sundlaugin Varmá Mosfellsbæ www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine Mosfellsbær - Íþróttamiðstöðvar    
Sundlaugin Varmá er í Mosfellsbæ.
  Suðurbæjarlaug Hringbraut 77, Hafnarfirði www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine Suðurbæjarlaug    
Suðurbæjarlaug er sundlaug á Hringbraut 77 í Hafnarfirði.
  Sundhöll Hafnarfjarðar Herjólfsgötu 10 í Hafnarfirði www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine Sundhöll Hafnarfjarðar    
Sundlaug við Herjólfsgötu 10 í Hafnafirði sem státar af bæði inni- og útilaug. Innilaugin er um 25 metrar að lengd og 8.7 metrar í breidd og um 3.2m djúp. Útilaugin er 25 metra hituð laug.
  Ásgarðslaug Íþróttamiðstöðinni Ásgarði, Garðabæ www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Ásgarðslaug    
Sundlaugin í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði, en þar fyrirfinnst sundlaug, gufubað; íþróttasalir og þreksalur.
Sundlaug Kópavogs Borgarholtsbraut 17, Kópavogi www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Sundlaug Kópavogs Geymt 25 maí 2024 í Wayback Machine    
Sundlaug í Kópavogi.
  Seltjarnarneslaug Suðurströnd, Seltjarnarnesi www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Sundlaug á Suðurströnd á Seltjarnarnesi, en vatn hennar kemur úr nálægri borholu og er vatnið afar steinefnaríkt. Laugin er vinsæl hjá þeim sem þjást af exemi þar sem þeir telja margir hverjir að vatnið þurrki húðina minna en vatn í öðrum sundlaugum.
  Loftleiðalaug Hótel Loftleiðum, Reykjavík www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Lítil sundlaug hjá Hótel Loftleiðum.
  Klébergslaug/Kjalarneslaug Kjalarnesi, Grundarhverfi, 116 Reykjavík www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Klébergslaug    
Sundlaug með útilaug, gufubaði, heitum pottum, sólbekkjum og íþróttaaðstöðu[16].
  Grafarvogslaug Dalhús 2, Reykjavík www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Grafarvogslaug    
Sundlaug við Dalhús 2 í Reykjavík byggð árið 1998.[17] Fyrsta skóflustungan var tekin þann 13. desember 1996 og fyrsti hluti laugarinnar opnaður fyrir almenningi þann 3. maí 1998.[17] Eftir það hefur byggst smátt og smátt við laugina, en lokið var við innilaug og nuddpott haustið 1998 og eimbað 1999.[17]
  Breiðholtslaug Íþróttahúsinu Austurbergi, Austurbergi 3, Reykjavík www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Breiðholtslaug    
Sundlaug í Íþróttahúsinu Austurbergi með 4 búningsklefum fyrir sund, þremur gufuböðum og fjórum heitum pottum.[18] Er á staðnum innanhússsundlaug sem er um tólf og hálfur metri að lengd og átta í breidd, byggð árið 1977. Einnig er 25 metra löng og 12,5 metra breið útisundlaug byggð árið 1981. [18]
  Árbæjarlaug Fylkisveg 9 í Rekjavík heimasíða www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Árbæjarlaug    
Sundlaug með tveimur búningsklefum, einu eimbaði og tveimur sauna. Það er innilaug byggð árið 1994 og útilaug 25 metrar á lengd og 12 metrar á breidd, sem byggð var 1994.[19] Úti eru 5 heitir pottar og ein vaðlaug.
  Laugardalslaug Sundlaugarvegi 30[20] í Reykjavík heimasíða www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Laugardalslaug    
Stór sundhöll með þremur laugum og fjórum búningsklefum.[20] Ein upphituð útilaug (50 metrar á lengd og 22 á breidd) með átta brautum með um 28°C hita; ein innilaug frá árinu 1968[20] sem er 50 metrar á breidd og 25 metrar á lengd með tíu brautum og svo ein innilaug með fjórum brautum. Við hlið 50 metra útilaugarinnar er 30 metra laug sem er heitari en sú 50 metra. Einnig eru sex heitir pottar,[20] eimbað, nuddpottar, ljósabekkir og 86 metra löng vatnsrennibraut.
  Sundhöll Reykjavíkur Við Barónstíg[21], 101 Reykjavík heimasíða www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Sundhöll Reykjavíkur    
Í Sundhöll Reykjavíkur eða Sundhöllinni, eins og hún er stundum kölluð, er 25 metra löng og 10 metra breið innisundlaug með fjórum brautum byggð árið 1937. Þar eru heitir pottar, vatnsnudd og bekkir.[21]
  Vesturbæjarlaug Við Hofsvallagötu heimasíða www.sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Vesturbæjarlaug    
Í húsnæðinu eru fjórir heitir pottar utan dyra, þar af einn með nuddi. Það eru tvær saunur fyrir hvort kynið.

Á Reykjanesskaga

breyta

Sundlaugar á Reykjanesskaga eru:

Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd
Bláa lónið Grindarvíkurvegi 5, Svartsengi, 240 Grindavík sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Reykjanes Geymt 9 júní 2008 í Wayback Machine, opinber heimasíða    
Íslenskt lón á Reykjanesskaganum sem affallsvatn frá Hitaveitu Suðurnesja myndar. Samnefnt hlutafélagsfyrirtæki stofnað 1992 sér um rekstur baðaðstöðunnar og selur vörur tengdar henni.
  Sundlaugin í Garði Garðbraut 94 í Garði sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Íþróttamiðstöðin í Garði    
Sundlaug í Garði
  Sundlaugin í Grindavík Austurvegi 1, 240 Grindavík sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Grindavík - Íþróttamiðstöðin    
Sundlaug í Grindavík
  Sundlaugin í Njarðvík Norðurstíg 2, Grundarveg, Njarðvík, Reykjanesbæ sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Reykjanesbær - Íþróttamannvirki    
Sundlaug í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur í Njarðvík. Hún hefur 16 metra útilaug, heita potta og gufu.
  Sundmiðstöðin Keflavík Sunnubraut 31, 230 Keflavík, Reykjanesbæ sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Reykjanesbær - Íþróttamannvirki    
Sundlaug með vatnsleikjagarði, 50 metra innilaug, 25 metra útilaug, heitum pottum og gufuaðstöðu. Einnig nefnd Vatnaveröld í Reykjanesbæ.
  Sundlaugin í Sandgerði Skólastræti 7 í Sandgerði sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Íþróttamiðstöðin í Sandgerði    
Sundlaug sem er í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur í Njarðvík með 25 metra útilaug, heitum pottum, tækjasal og gufu.
  Sundlaugin í Vogum Hafnargötu 17, 190 Vogum sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Vogar - Íþróttamiðstöð    
Sundlaug í Vogum.

Á Vesturlandi

breyta
Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd
  Bjarnalaug Akranes sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Akranes[óvirkur tengill]    
Ein af tveimur sundlaugum á Akranesi; 12,5 metra innilaug með heitum potti. Notuð sem kennslulaug fyrir Brekkubæjarskóla, ungbarnasund og sundskóla.
  Hlaðir í Hvalfirði Hlöðum, Hvalfjörður sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Útilaug, heitur pottur og gufubað. Einnig Sundlaug á Hlöðum.
  Hreppslaug Laugabúð, við mynni Skorradals, Hvalfjörður sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Útisundlaug með þremur heitum pottum. Opin á sumrin, en lokuð á veturna (þó tekið sé á móti hópum). Eigandi er Ungmennafélagið Íslendingur og sundlaugin er 25×8 metrar og 4 til 1,2 metra djúp.[22]
  Sundlaugin í Borgarnesi Þorsteinsgötu, Borgarnesi sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Laugin er 25m löng og 12,5m breið útilaug, 3 rennibrautir, barnavaðlaug, tveir heitir pottar, 12,5m löng og 8m breið innilaug og eimbað beint úr Deildartunguhver.
  Íþróttamiðstöðin Varmalandi Varmalandi, Borgarfirði sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Borgarb. Geymt 21 mars 2008 í Wayback Machine    
Sundlaug rétt hjá Baulu (í um 5 km fjarlægð). Hún er 25 metra löng og 12,5 metra breið með heitum potti.
  Jaðarsbakkalaug Við langasandinn á Ákranesi sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, akranes[óvirkur tengill]    
Ein af tveimur sundlaugum á Akranesi, þessi er 25 metra löng útisundlaug ásamt fimm heitum pottum, sánu og vatnsrennibraut.
  Kleppjárnsreykir Kleppjárnsreykjaskóla, Kleppjárnsreykjum, Reykholtsdal, Borgarfjarðarsveit, 311 Borgarnesi sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Akranes[óvirkur tengill]    
Þar er útilaug.
  Snorralaug Reykholti, Borgarfirði sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Gömul laug sem getið er í Landnámu og í Sturlunga sögu og oft tengt við Snorra Sturluson.
  Sundlaugin á Húsafelli Borgarbraut, Húsafelli, 350 Grundarfirði sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine    
Upphaflega byggð 1965 en síðan hafa miklar endurbætur orðið, sundlaugarnar eru tvær sem og heitir pottar og einnig er þarna vatnsrennibraut.
  Sundlaugin Grundarfirði Borgarbraut, 350 Grundarfirði, 340 Stykkishólmi sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Grundarfj.[óvirkur tengill]    
  Sundlaug Stykkishólms Íþróttamiðstöð Stykkishólmsbæjar, Borgarbraut 4, 340 Stykkishólmi sundlaugar.is Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine, Stykkish.[óvirkur tengill]    
Laug sem er 25 metra löng og 12 metra breið, 57 metra vatnsrennibraut (önnur lengsta rennibraut landsins). Í lauginni er vatn sem kemur úr borholu við Hofstaði.

Á Vestfjörðum

breyta
Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd

 

Nauteyrarlaug Nauteyri, Ísafjarðardjúpi Sundlaugar    
Lítil útilaug.

 

Sundlaugin á Drangsnesi Drangsnes, Kaldrananeshreppi, Strandasýslu Sundlaugar, Drangsnes    
Nýlega byggð 12,5 metra löng útisundlaug sem tekin var í notkn árið 2005. Einnig er heitur pottur, gufubað og krakkapollur.

 

Gvendarlaug í Bjarnarfirði Á Klúku í Bjarnarfirði, IS-510 Hólmavík Sundlaugar, Vestfirðir    
Gömul 25 metra útisundlaug sem nefnd er eftir nátturulegum heitum potti (Gvendarlaug hins góða) sem nefnd er eftir Guðmundi góða.

 

Sundlaugin á Hólmavík Hólmavík Sundlaugar, Hólmavík    
25 metra sundlaug tekin í notkun þanng 17. júní 2004. Við hana eru tveir heitir pottar og barnavaðlaug, en einnig er gufubað innandyra.

 

Reykjanes í Ísafjarðardjúpi Súðavíkurhreppi Sundlaugar, Reykjanes    
50×12,5 metra útisundlaug, hituð með sjálfrennandi vatni.

 

Pollurinn í Tálknafirði Tálknafirði Sundlaugar, Vesturbyggð - Heitar laugar    
Sundlaug á Tálknafirði.

 

Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði Við grunnskólann á Tálknafirði, utan við bæinn Sundlaugar, Vesturbyggð - Íþróttamiðstöðvar    
25 metra útilaug, pottar, rennibraut og laug sem hægt er að vaða í.

 

Sundlaugin á Suðureyri Á Suðureyrartúni á Suðureyri Sundlaugar, Sudureyrarlaug    
16 metra laug og 2 heitir pottar. Eina útisundlaugin á norðanverðum Vestfjörðum.

 

Bylta íþróttamiðstöð Bíldudal Hafnarbraut 3, Bíldudal 465 Sundlaugar    
Heitur pottur og gufubað.

 

Sundlaugin í Laugarnesi, Birkimel Laugarnesi við Hagavaðal, Birkimel, Vesturbyggð Sundlaugar, Hveravefsíðan    
Laugin er sennilega byggð um 1948 og sundkennsla þar hófst árið 1949. Aðstaða við laugina var bætt af Félögum í Ungmennafélagi Barðastrandar, og var nýrri búningsaðstöðu komið upp. Einnig þekkt sem Sundlaugin Birkimel eða Sundlaugin á Birkimel.

 

Sundlaug Patreksfjarðar Íþróttamiðstöðinni Brattahlíð við Aðalstræti 64, Patreksfirði Sundlaugar    
Sundlaug á Patreksfirði.

 

Íþróttamiðstöðin Árbær Höfðastíg 1, 415 Bolungarvík Sundlaugar, Bolungarvík    
8×16,66 metra inni sundlaug, og úti eru tveir heitir pottar og lítil vaðlaug á útisvæðinu.[23]

 

Krossneslaug Höfðastíg 1, 524 Norðurfjörður Sundlaugar    
Lítil útisundlaug rétt við fjöruborðið sem liggur við norðanverðan Norðurfjörð.[24]

Í Ísafjarðarbæ

breyta

Laugar í Ísafjarðarbæ:

Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd

 

Sundhöllin á Ísafirði Austurvegi 9 Sundlaugar, Hveravefsíðan    
Elsta sundlaug Ísafjarðarbæjar, tekin í notkun árið 1945. Innisundlaug með heitum potti og gufubaði.

 

Sundlaugin á Flateyri Flateyri Sundlaugar    
Innisundlaug, heitur pottur og gufubað.

 

Sundlaugin á Þingeyri Þingeyri við Þingeyrarodda Sundlaugar    
Innisundlaug, heitur pottur og gufubað. Nýjasta laug í Ísafjarðarbæ.

 

Sundlaugin á Suðureyri Suðureyri, Suðureyrartúni Sundlaugar    
Eina útisundlaugin á norðanverðum Vestfjörðum. 16 metra laug, 2 heitir pottar og krakkalaug.

Á Norðurlandi

breyta
Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd

 

Glerárlaug Höfðahlíð, 603 Akureyri Sundlaugar    
Innisundlaug og heitir pottar.

 

Grenivíkurlaug Grenivíkurskóli, 610 Grenivík Sundlaugar    
Sundlaugin er 16,67m á lengd. Stór heitur pottur, vaðlaug og kaldur pottur.

 

Lundur í Öxarfirði Öxarfjörður, 671 Kópasker Sundlaugar    
Góð sundlaug fyrir alla aldurshópa, þar er einnig heitur pottur.

 

Sólgarðar í Fljótum Grunnskólinn að Sólgörðum, 570 Fljótum Sundlaugar    
Lítil útisundlaug og heitur pottur.

 

Sundhöll Siglufjarðar Hvanneyrarbraut 52, 580 Siglufirði Sundlaugar    
Innisundlaug og útipottur.

 

Sundlaug Akureyrar Skólastíg, 600 Akureyri Sundlaugar    
Tvær 25m útilaugar, rennibrautir, 5 heitir pottar, barnalaug, eimbað og kalt ker.

 

Sundlaug Húsavíkur Laugarbrekku 2, 640 Húsavík Sundlaugar    
Útisundlaug, þrír heitir pottar, tvær rennibrautir.

 

Sundlaug Þórshafnar Langanesvegi 18b, 680 Þórshöfn Sundlaugar    
Sundlaug, tveir heitir pottar, kalt kar og kröftugt gufubað.

 

Sundlaugin á Dalvík Svarfaðarbraut 34, 620 Dalvík Sundlaugar    
25m útisundlaug, heitir pottar, barna- og hvíldarlaug, vatnsrennibraut og eimbað.

 

Sundlaugin á Hofsósi Suðurbraut, 565 Hofsósi Sundlaugar    
Útilaug 25×10.5m og er laugin 0,8 metra – 1,8 metra djúp. Laugin er glæsileg og útsýnið þaðan frábært yfir til Drangey.

 

Sundlaugin á Raufarhöfn Skólabraut, 675 Raufarhöfn Sundlaugar    
Sundlaugin á Raufarhöfn er innilaug sem er staðsett við hlið tjaldsvæðisins. Þar er gufubað, líkamsræktarsalur og íþróttasalur einnig.

 

Sundlaugin á Sauðárkróki Skagfirðingabraut, 550 Sauðárkrókur Sundlaugar    
Útilaug er 25x8m og 0,9 – 2,7 metrar á dýpt. Þar eru eru tveir heitir pottar, annar er 39°C og hinn er 41°C. Einnig er þar kalt ker.

 

Sundlaugin á Skagaströnd Einbúastíg 6, 545 Skagaströnd Sundlaugar    
Sundlaugin er 6 x 12 m útilaug. Þar er líka pottur með útsýnisvegg.

 

Sundlaugin Blönduósi Melabraut 2, 540 Blönduósi Sundlaugar    
Sundlaugin er útilaug sem er 25 metra löng og 8,5 metra breið. Á svæðinu eru einnig tveir heitir pottar, gufa, vaðlaug og ísbað. Þar eru einnig tvær stórar rennibrautir og mikið af leiktækjum og leikföngum fyrir yngri kynslóðina.

 

Sundlaugin Hvammstanga Hlíðarvegi, 530 Hvammstanga Sundlaugar    
25m x 11m útilaug með fjórum brautum, heitur pottur með vatnsnuddi, vaðlaug, gufubað, barnapottur og rennibraut.

 

Sundlaugin Illugastöðum Illugastöðum, Fnjóskadal Sundlaugar    
Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar.

 

Sundlaugin í Grímsey 611 Grímsey Sundlaugar    
Lítil innilaug, heitur pottur og gufubað.

 

Sundlaugin í Hrísey Austurvegi 5.630 Hrísey Sundlaugar    
Lítil útisundlaug, heitur pottur og barnalaug.

 

Sundlaugin í Ólafsfirði Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði Sundlaugar    
Við Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Ólafsfirði er sundlaug 8 x25 metrar, 2 heitir pottar 38° og 40°heitir og er annar m/nuddi. Fosslaug og barnalaug eru vinsælar og síðast en ekki síst rennibrautirnar tvær.

 

Sundlaugin í Varmahlíð 560 Varmahlíð Sundlaugar    
Sundlaugin er tvískipt útilaug. Annars vegar er 12,5 x 25 metra laug og hins vegar 12,5 m x 8 m „barnalaug“. Í þeirri síðarnefndu er vatnið haft heitara en í stærri lauginni og þar er lítil rennibraut. Nýtur hún mikilla vinsælda meðal fjölskyldufólks. Einnig er heitur pottur við laugarnar.

 

Sundlaugin Laugum Kjarna, 650 Laugum Sundlaugar    
Um er að ræða glæsilega 12×25 m laug með tveimur heitum pottum og vaðlaug.

 

Þelamerkurlaug Þelamörk, Laugalandi, Hörgárbyggð Sundlaugar    
25m útilaug og heitir pottar.

Á Austurlandi

breyta
Mynd Nafn Staðsetning Heimasíða Mynd Mynd

 

Selárdalslaug Selárdalur Sundlaugar    
Útilaug 3.5 km frá þjóðvegi, 2 heitir pottar og barnalaug.

Á Suðurlandi

breyta

Á Hálendinu

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. Gangverk Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine- fréttabréf Verkís hf á bls. 4 „Sundlaugar“
  2. Gangverk Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine- fréttabréf Verkís hf á bls. 4 „Landnámsöld“
  3. Læknablaðið- Heitar laugar á Íslandi til forna
  4. Gangverk Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine- fréttabréf Verkís hf á bls. 4 „Upphaf sundkennslu“
  5. Gangverk Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine- fréttabréf Verkís hf á bls. 4 „Fyrsta sundfélagið“
  6. Gangverk Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine- fréttabréf Verkís hf á bls. 5 „Steypar laugar“
  7. Gangverk Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine- fréttabréf Verkís hf á bls. 5 „Mikil fjölgun“
  8. mbl.is: Íslenskar konur mega bera brjóstin
  9. mbl.is: Ber brjóst bönnuð í lóninu, í lagi á ylströndinni
  10. mbl.is: Bannað að bera brjóstin í Hveró
  11. mbl.is: Hefð fyrir berum brjóstum í Hveró
  12. Sundlaugar
  13. „Ásvallalaug á www.sundlaug.is“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. júlí 2013. Sótt 11. júlí 2013.
  14. Heimasíða Hafnarfjarðar
  15. Nauthólsvík Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine á www.www.sundlaugar.is
  16. Visit Reykjavík Kjalarneslaug
  17. 17,0 17,1 17,2 Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi[óvirkur tengill] Almennar upplýsingar
  18. 18,0 18,1 Íþróttamiðstöðin Austurbergi- lýsing mannvirkis
  19. Árbæjarlaug Geymt 22 febrúar 2006 í Wayback Machine- lýsing mannvirkis
  20. 20,0 20,1 20,2 20,3 Laugardalslaug Geymt 2 mars 2005 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni- lýsing mannvirkis
  21. 21,0 21,1 Sundhöll Reykjavíkur Geymt 22 febrúar 2006 í Wayback Machine- lýsing mannvirkis
  22. Hot springs Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine Skorradalur
  23. Bolungarvík Íþróttir og tómstundir
  24. Vestfirðir

Tenglar

breyta