Fermetri
mælieining á flatarmál
Fermetri er SI-mælieingin flatarmáls, táknuð með m². (Stundum er skammstöfunin fm notuð, sem er einnig tákn femtometra.) Einn fermetri jafngildir tvívíðum fleti sem er einn metri á lengd og einn metri á breidd með 90° horn. Einn fermetri samsvarar:
- 0,000001 ferkílómetri (km²)
- 10.000 fersentimetrar (cm²)
- 0,0001 hektari
- 10,763911 ferfet
- 1.550,0031 fertommur