Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2014
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2014 var haldið í Brasilíu dagana 12. júní til 13. júlí 2014. Heimsmeistaramótið var það 20. í röðinni en það eru haldin á fjögurra ára fresti. Þetta var í annað skiptið sem keppnin var haldin í Brasilíu en heimsmeistaramótið fór einnig fram þar í landi árið 1950. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu var nálægt því að komast á mótið en tapaði í umspili fyrir Króatíu með 1 marks mun.
Val á gestgjöfum
breytaÁrið 2003 tilkynnti FIFA að keppnin 2014 skyldi fara fram í Suður-Ameríku, það yrði jafnframt í fyrsta sinn í sögunni sem mótið yrði haldið utan Evrópu tvö skipti í röð. Aðildarlönd suður-ameríska knattspyrnusambandsins, CONMEBOL, ákváðu á fundi sínum árið 2004 að lýsa stuðningi við framboð Brasilíu sem var formlega skilað inn á árinu 2006. Þrátt fyrir samþykktina íhuguðu knattspyrnuyfirvöld í Argentínu að bjóða í keppnina og Kólumbíumenn gengu skrefi lengra og skiluðu inn umsókn. Vorið 2007 hættu Kólumbíumenn við og varð Brasilía því sjálfkjörin í hlutverk gestgjafa.
Þátttökulið
breyta32 þjóðir mættu til leiks frá sex heimsálfum.
Knattspyrnuvellir
breytaRio de Janeiro, RJ |
---|
Estádio do Maracanã |
Sætafjöldi: 76.935[1] |
Belo Horizonte, MG |
Estádio Mineirão |
Sætafjöldi: 62.547 |
Salvador, BA |
Arena Fonte Nova |
Sætafjöldi: 56.000[2] |
Cuiabá, MT |
Arena Pantanal |
Sætafjöldi: 42.968 (endurbyggður) |
Fortaleza, CE |
---|
Estádio Castelão |
Sætafjöldi: 64.846[3] |
Porto Alegre, RS |
Estádio Beira-Rio |
Sætafjöldi: 51.300[4] (endurbyggður) |
Recife, PE |
Arena Pernambuco |
Sætafjöldi: 46.154 |
Curitiba, PR |
Arena da Baixada |
Sætafjöldi: 43.900 (uppfærður) |
Brasilía, DF | São Paulo, SP |
---|---|
Estádio Nacional Mané Garrincha[5] | Arena de São Paulo |
Sætafjöldi: 70.042[6] | Sætafjöldi: 68.000 (nýr leikvangur) |
Manaus, AM | Natal, RN |
Arena Amazônia | Arena das Dunas |
Sætafjöldi: 42.374 (endurbyggður) |
Sætafjöldi: 42.086 (endurbyggður) |
Keppnin
breytaRiðlakeppnin
breytaKeppt var í átta riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit.
A riðill
breytaKróatar komust yfir í opnunarleiknum gegn heimamönnum en brasilíska liðinu tókst að snúa leiknum sér í vil með 3:1 sigri. Í næstu umferð tók við tilþrifalítið markalaust jafntefli gegn Mexíkó sem náði öðru sætinu á eftir Brasilíu. Kamerún lauk keppni án stiga.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 2 | 1 | 0 | 7 | 2 | +5 | 7 | |
2 | Mexíkó | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 1 | +3 | 7 | |
3 | Króatía | 3 | 1 | 0 | 2 | 6 | 6 | 0 | 3 | |
4 | Kamerún | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 9 | -8 | 0 |
12. júní 2014 | |||
Brasilía | 3-1 | Króatía | Arena de São Paulo, São Paulo Áhorfendur: 62.103 Dómari: Yuichi Nishimura |
Neymar 29, 71, Oscar 90+1 | Marcelo 12 (sjálfsm.) |
13. júní 2014 | |||
Mexíkó | 1-0 | Kamerún | Arena das Dunas, Natal Áhorfendur: 39.216 Dómari: Wilmar Roldán |
Peralta 61 |
17. júní 2014 | |||
Brasilía | 0-0 | Mexíkó | Estádio Castelão, Fortaleza Áhorfendur: 60.342 Dómari: Cüneyt Çakır |
18. júní 2014 | |||
Kamerún | 0-4 | Króatía | Arena da Amazônia, Manaus Áhorfendur: 39.982 Dómari: Pedro Proença |
Olić 11, Perišić 48, Mandžukić 61, 73 |
23. júní 2014 | |||
Kamerún | 1-4 | Brasilía | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasília Áhorfendur: 69.112 Dómari: Jonas Eriksson |
Matip 26 | Neymar 17, 35, Fred 49, Fernandinho 84 |
23. júní 2014 | |||
Króatía | 1-3 | Mexíkó | Itaipava Arena Pernambuco, Recife Áhorfendur: 41.212 Dómari: Ravshan Irmatov |
Perišić 87 | Márquez 72, Guardado 75, Hernández 82 |
B riðill
breytaEnn eitt heimsmeistaramótið í röð mistókst meisturunum frá fyrri keppni að komast upp úr riðlakeppninni þegar Spánverjar sátu eftir með þrjú stig, fyrir sigur á Áströlum sem töpuðu öllum sínum leikjum. Hollendingar voru funheitir og luku keppni með fullt hús stiga og Síle náði öðru sæti eftir 2:0 sigur á heimsmeisturunum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Holland | 3 | 3 | 0 | 0 | 10 | 3 | +7 | 9 | |
2 | Síle | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 3 | +2 | 6 | |
3 | Spánn | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 7 | -3 | 3 | |
4 | Ástralía | 3 | 0 | 0 | 3 | 3 | 9 | -6 | 0 |
13. júní 2014 | |||
Spánn | 1-5 | Holland | Itaipava Arena Fonte Nova, Salvador Áhorfendur: 48.173 Dómari: Nicola Rizzoli |
Alonso 27 | Van Persie 44, 72, Robben 53, 80, De Vrij 80 |
13. júní 2014 | |||
Síle | 3-1 | Ástralía | Arena Pantanal, Cuiabá Áhorfendur: 40.275 Dómari: Noumandiez Doué |
Sánchez 12, Valdivia 14, Beausejour 90+2 | Cahill 35 |
18. júní 2014 | |||
Ástralía | 2-3 | Holland | Arena Pantanal, Cuiabá Áhorfendur: 40.275 Dómari: Noumandiez Doué |
Cahill 21, Jedinak 54 | Robben 58, Van Persie 58, Depay 68 |
18. júní 2014 | |||
Spánn | 0-2 | Síle | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 74.101 Dómari: Mark Geiger |
Vargas 20, Aránguiz 43 |
23. júní 2014 | |||
Ástralía | 0-3 | Spánn | Arena da Baixada, Curitiba Áhorfendur: 39.375 Dómari: Nawaf Shukralla |
Villa 36, Torres 69, Mata 82 |
23. júní 2014 | |||
Holland | 2-0 | Síle | Arena de São Paulo, São Paulo Áhorfendur: 62.996 Dómari: Bakary Gassama |
Fer 77, Depay 90+2 |
C riðill
breytaÞað blés ekki byrlega fyrir Grikkjum sem töpuðu 3:0 fyrir Kólumbíu í fyrsta leik. Kólumbíska liðið endaði hins vegar á að vinna alla leiki sína. Japan sat rækilega á botninum með aðeins eitt stig eftir jafntefli við Grikki. Fílabeinsströndinni dugði því jafntefli í lokaleiknum gegn gríska liðinu og sú virtist ætla að verða raunin allt fram í þriðju múnútu uppbótartíma þegar Samaras skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu og Afríkumennirnir sátu eftir með sárt ennið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Kólumbía | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 2 | +7 | 9 | |
2 | Grikkland | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 4 | -2 | 4 | |
3 | Fílabeinsströndin | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 5 | -q | 3 | |
4 | Japan | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 6 | -4 | 1 |
14. júní 2014 | |||
Kólumbía | 3-0 | Grikkland | Estádio Mineirão, Belo Horizonte Áhorfendur: 57.174 Dómari: Mark Geiger |
Armero 5, Gutiérrez 58, Rodríguez 90+3 |
14. júní 2014 | |||
Fílabeinsströndin | 2-1 | Japan | Itaipava Arena Pernambuco, Recife Áhorfendur: 40.267 Dómari: Enrique Osses |
Bony 64, Gervinho 66 | Honda 16 |
19. júní 2014 | |||
Kólumbía | 2-1 | Fílabeinsströndin | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasília Áhorfendur: 68.748 Dómari: Howard Webb |
Rodríguez 64, Quintero 70 | Gervinho 73 |
19. júní 2014 | |||
Japan | 0-0 | Grikkland | Arena das Dunas, Natal Áhorfendur: 39.485 Dómari: Joel Aguilar |
24. júní 2014 | |||
Japan | 1-4 | Kólumbía | Arena Pantanal, Cuiabá Áhorfendur: 40.340 Dómari: Pedro Proença |
Okazaki 45+1 | Cuadrado 17, Martínez 55, 82, Rodríguez 90 |
24. júní 2014 | |||
Grikkland | 2-1 | Fílabeinsströndin | Estádio Castelão, Fortaleza Áhorfendur: 59.095 Dómari: Carlos Vera |
Samaris 42, Samaras 90+3 | Bony 74 |
D riðill
breytaÚrslitin í D-riðli komu flestum á óvart. Kosta Ríka sem talið var lakasta liðið nældi sér í toppsætið með því að skella Úrúgvæ og Ítölum. Í lokaleiknum gerði liðið jafntefli við England og reyndist það eina stig Englendinga í keppninni. Úrúgvæ og Ítalía mættust í hreinum úrslitaleik um annað sætið þar sem Suður-Ameríkumennirnir urðu að sækja sigur. Það tókst en úrslitin reyndust dýrkeypt því þeirra helsti leikmaður, Luis Suárez, varð uppvís að því að bíta mótherja í leiknum og hlaut langt keppnisbann.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Kosta Ríka | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 1 | +3 | 7 | |
2 | Úrúgvæ | 3 | 2 | 0 | 1 | 4 | 4 | 0 | 6 | |
3 | Ítalía | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 3 | -1 | 3 | |
4 | England | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 4 | -2 | 1 |
14. júní 2014 | |||
Úrúgvæ | 1-3 | Kosta Ríka | Estádio Castelão, Fortaleza Áhorfendur: 58.679 Dómari: Felix Brych |
Cavani 24 | Campbell 54, Duarte 57, Ureña 84 |
14. júní 2014 | |||
England | 1-2 | Ítalía | Arena da Amazônia, Manaus Áhorfendur: 39.800 Dómari: Björn Kuipers |
Sturridge 37 | Marchisio 35, Balotelli 50 |
20. júní 2014 | |||
Úrúgvæ | 2-1 | England | Arena de São Paulo, São Paulo Áhorfendur: 62.575 Dómari: Carlos Velasco Carballo |
Suárez 39, 85 | Rooney 75 |
20. júní 2014 | |||
Ítalía | 0-1 | Kosta Ríka | Itaipava Arena Pernambuco, Recife Áhorfendur: 40.285 Dómari: Enrique Osses |
Ruiz 44 |
24. júní 2014 | |||
Ítalía | 0-1 | Úrúgvæ | Estádio Mineirão, Natal Áhorfendur: 39.706 Dómari: Marco Rodríguez |
Godín 81 |
24. júní 2014 | |||
Kosta Ríka | 0-0 | England | Estádio Mineirão, Belo Horizonte Áhorfendur: 57.823 Dómari: Djamel Haimoudi |
E riðill
breytaHondúras tapaði öllum þremur leikjum sínum í E-riðli á meðan Frakkar unnu tvo fyrstu leikina og dugði því markalaust jafntefli í lokaleiknum gegn Ekvador til að gulltryggja toppsætið. Ekvador hefði hins vegar þurft á sigri að halda og Svisslendingar tóku seinna sætið í 16-liða úrslitunum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Frakkland | 3 | 2 | 1 | 0 | 8 | 2 | +6 | 7 | |
2 | Sviss | 3 | 2 | 0 | 1 | 7 | 6 | +1 | 6 | |
3 | Ekvador | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 3 | 0 | 4 | |
4 | Hondúras | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 8 | -7 | 0 |
15. júní 2014 | |||
Sviss | 2-1 | Ekvador | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasília Áhorfendur: 68.351 Dómari: Ravshan Irmatov |
Mehmedi 48, Seferovic 90+3 | E. Valencia 22 |
15. júní 2014 | |||
Frakkland | 3-0 | Hondúras | Estádio Beira-Rio, Porto Alegre Áhorfendur: 43.012 Dómari: Sandro Ricci |
Benzema 45, 72, Valladares 48 (sjálfsm.) |
20. júní 2014 | |||
Sviss | 2-5 | Frakkland | Itaipava Arena Fonte Nova, Salvador Áhorfendur: 51.003 Dómari: Björn Kuipers |
Džemaili 81, Xhaka 87 | Giroud 17, Matuidi 18, Valbuena 40, Benzema 67, Sissoko 73 |
20. júní 2014 | |||
Hondúras | 1-2 | Ekvador | Arena da Baixada, Curitiba Áhorfendur: 39.224 Dómari: Ben Williams |
Costly 31 | E. Valencia 34, 65 |
25. júní 2014 | |||
Hondúras | 0-3 | Sviss | Arena da Amazônia, Manaus Áhorfendur: 40.322 Dómari: Néstor Pitana |
Shaqiri 6, 31, 71 |
25. júní 2014 | |||
Ekvador | 0-0 | Frakkland | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 73.749 Dómari: Noumandiez Doué |
F riðill
breytaBosníumenn skoruðu fljótasta sjálfsmark í sögu HM, eftir tvær mínútur og níu sekúndur í tapleik gegn Argentínu. Argentínska liðið vann alla sína leiki en sigurmarkið gegn Írönum kom þó ekki fyrr en í uppbótartíma. Hinn eiginlegi úrslitaleikur um annað sætið var á milli Nígeríu og Bosníu í annarri umferðinni þar sem Afríkumennirnir unnu góðan sigur.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Argentína | 3 | 3 | 0 | 0 | 6 | 3 | +3 | 9 | |
2 | Nígería | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 3 | 0 | 4 | |
3 | Bosnía | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 4 | 0 | 3 | |
4 | Íran | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 4 | -3 | 1 |
13. júní 2014 | |||
Argentína | 2-1 | Bosnía | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 74.738 Dómari: Joel Aguilar |
Kolašinac 3 (sjálfsm.), Messi 65 | Ibišević 85 |
16. júní 2014 | |||
Íran | 0-0 | Nígería | Arena da Baixada, Curitiba Áhorfendur: 39.081 Dómari: Carlos Vera |
21. júní 2014 | |||
Argentína | 1-0 | Íran | Estádio Mineirão, Belo Horizonte Áhorfendur: 57.698 Dómari: Milorad Mažić |
Messi 90+1 |
21. júní 2014 | |||
Nígería | 1-0 | Bosnía | Arena Pantanal, Cuiabá Áhorfendur: 40.499 Dómari: Peter O'Leary |
Odemwingie 29 |
25. júní 2014 | |||
Nígería | 2-3 | Argentína | Estádio Beira-Rio, Porto Alegre Áhorfendur: 43.285 Dómari: Nicola Rizzoli |
Musa 4, 47 | Messi 3, 45+1, Rojo 50 |
25. júní 2014 | |||
Íran | 1-3 | Bosnía | Itaipava Arena Fonte Nova, Salvador Áhorfendur: 48.011 Dómari: Carlos Velasco Carballo |
Ghoochannejhad 82 | Džeko 23, Pjanić 59, Vršajević 83 |
G riðill
breytaBúist var við hörkuviðureign milli Þýskalands og Portúgal í fyrsta leik en annað kom á daginn. Þjóðverjar unnu auðveldlega 4:0 þar sem Thomas Müller skoraði þrennu. Þessi skellur gerði það að verkum að jafntefli við Bandaríkin í næstu umferð setti Portúgali nær örugglega úr leik. Aron Jóhannsson kom inná fyrir bandaríska liðið í sigurleik á móti Gana í fyrstu umferð. Bandaríkjamenn fylgdu Þjóðverjum áfram en frammistaða Gana og Portúgal olli miklum vonbrigðum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Þýskaland | 3 | 2 | 1 | 0 | 7 | 2 | +5 | 7 | |
2 | Bandaríkin | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 0 | 4 | |
3 | Portúgal | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 7 | -3 | 4 | |
4 | Gana | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 | 6 | -2 | 1 |
16. júní 2014 | |||
Þýskaland | 4-0 | Portúgal | Itaipava Arena Fonte Nova, Salvador Áhorfendur: 51.081 Dómari: Milorad Mažić |
Müller 12, 45+1, 78, Hummels 32 |
16. júní 2014 | |||
Bandaríkin | 2-1 | Gana | Arena das Dunas, Natal Áhorfendur: 39.760 Dómari: Jonas Eriksson |
Dempsey 1, Brooks 86 | A. Ayew 82 |
21. júní 2014 | |||
Þýskaland | 2-2 | Gana | Estádio Castelão, Fortaleza Áhorfendur: 59.621 Dómari: Sandro Ricci |
Götze 51, Klose 71 | A. Ayew 54, Gyan 63 |
22. júní 2014 | |||
Bandaríkin | 2-2 | Portúgal | Arena da Amazônia, Manaus Áhorfendur: 40.123 Dómari: Néstor Pitana |
Jones 64, Dempsey 81 | Nani 5, Varela 90+5 |
26. júní 2014 | |||
Bandaríkin | 0-1 | Þýskaland | Itaipava Arena Pernambuco, Recife Áhorfendur: 41.876 Dómari: Ravshan Irmatov |
Müller 55 |
26. júní 2014 | |||
Portúgal | 2-1 | Gana | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasília Áhorfendur: 67.540 Dómari: Nawaf Shukralla |
Boye 31 (sjálfsm.), Ronaldo 80 | Gyan 57 |
H riðill
breytaBelgar þurftu ekki nema fjögur mörk til að landa þremur sigrum og fullu húsi stiga í H-riðlinum. Suður-Kórea náði aðeins einu stigi, í jafntefli á móti Rússum. Það reyndist þeim síðarnefndu dýrkeypti og Alsír hirti seinna sætið í útsláttarkeppninni.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Belgía | 3 | 3 | 0 | 0 | 4 | 1 | +3 | 9 | |
2 | Alsír | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 | 5 | +1 | 4 | |
3 | Rússland | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
4 | Suður-Kórea | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 | 6 | -3 | 1 |
17. júní 2014 | |||
Belgía | 2-1 | Alsír | Estádio Mineirão, Belo Horizonte Áhorfendur: 56.800 Dómari: Marco Rodríguez |
Fellaini 70, Mertens 80 | Feghouli 25 |
17. júní 2014 | |||
Rússland | 1-1 | Suður-Kórea | Arena Pantanal, Cuiabá Áhorfendur: 37.603 Dómari: Néstor Pitana |
Kerzhakov 74 | Lee Keun-ho 68 |
22. júní 2014 | |||
Belgía | 1-0 | Rússland | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 73.819 Dómari: Felix Brych |
Origi 88 |
22. júní 2014 | |||
Suður-Kórea | 2-4 | Alsír | Estádio Beira-Rio, Porto Alegre Áhorfendur: 42.732 Dómari: Wilmar Roldán |
Son Heung-min 50, Koo Ja-cheol 72 | Slimani 26, Halliche 28, Djabou 38, Brahimi 62 |
26. júní 2014 | |||
Suður-Kórea | 0-1 | Belgía | Arena de São Paulo, São Paulo Áhorfendur: 61.397 Dómari: Ben Williams |
Vertonghen 78 |
26. júní 2014 | |||
Alsír | 1-1 | Rússland | Arena da Baixada, Curitiba Áhorfendur: 39.311 Dómari: Cüneyt Çakır |
Slimani 60 | Kokorin 6 |
Útsláttarkeppni
breyta16. liða úrslit
breytaBrasilía þurfti vítakeppni til að komast í fjórðungsúrslitin eftir leik við Síle sem var í járnum allan tímann. Lið Úrúgvæ var slegið út af laginu eftir langt keppnisbann Luis Suárez eftir lokaleik riðlakeppninnar. Kólumbíska liðið var mun sterkara í leik liðanna og James Rodríguez skoraði glæsimark sem valið var mark mótsins. Mexíkó virtist loksins ætla að komast í fjórðungsúrslit þar sem liðið leiddi gegn Hollendingum þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en tvö hollensk mörk í lokin sneru dæminu við. Grikkir náðu að jafna í uppbótartíma gegn spútnikliði Kosta Ríka en máttu sætta sig við tap í vítaspyrnukeppni. Frakkar brutu ísinn gegn Nígeríu eftir slæm mistök markvarðar andstæðinganna og gulltryggðu sigur sinn í blálokin. Þjóðverjar og Alsíringar höfðu mæst í minnisstæðri viðureign á HM 1982, þá vann Alsír en Þjóðverjar komu fram hefndum eftir framlengingu að þessu sinni. Argentína mátti hafa mikið fyrir því að leggja Svisslendinga að velli. Þeir síðarnefndu vörðust stíft og voru nærri búnir að knýja fram vítaspyrnukeppni í blálokin en skot þeirra small í stönginni. Tim Howard, markvörður Bandaríkjanna, setti nýtt met í sögu úrslitakeppni HM þegar hann varð fimmtán skot gegn Belgum, en það dugði liði hans þó ekki til að komast áfram.
28. júní 2014 | |||
Brasilía | 1-1 (4-3 e.vítake.) | Síle | Estádio Mineirão, Belo Horizonte Áhorfendur: 57.714 Dómari: Howard Webb, Englandi |
David Luiz 18 | Sánchez 32 |
28. júní 2014 | |||
Kólumbía | 2-0 | Úrúgvæ | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 73.804 Dómari: Björn Kuipers, Hollandi |
Rodríguez 28, 50 |
29. júní 2014 | |||
Holland | 2-1 | Mexíkó | Estádio Castelão, Fortaleza Áhorfendur: 58.817 Dómari: Pedro Proença, Portúgal |
Sneijder 88, Huntelaar 90+4 (vítasp.) | Dos Santos 48 |
29. júní 2014 | |||
Kosta Ríka | 1-1 (6-4 e.vítake.) | Grikkland | Itaipava Arena Pernambuco, Recife Áhorfendur: 41.242 Dómari: Ben Williams, Ástralíu |
Ruiz 52 | Papastathopoulos 90+1 |
30. júní 2014 | |||
Nígería | 2-0 | Frakkland | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasilíu Áhorfendur: 67.882 Dómari: Mark Geiger, Bandaríkjunum |
Pogba 79, Yobo 90+2 (sjálfsm.) |
30. júní 2014 | |||
Þýskaland | 2-1 (e.framl.) | Alsír | Estádio Beira-Rio, Porto Alegre Áhorfendur: 43.063 Dómari: Sandro Ricci, Brasilíu |
Schürrle 92, Özil 120 | Djabou 120+1 |
1. júlí 2014 | |||
Argentína | 1-0 (e.framl.) | Sviss | Arena Corinthians, São Paulo Áhorfendur: 63.255 Dómari: Jonas Eriksson, Svíþjóð |
Di María 110 |
1. júlí 2014 | |||
Belgía | 2-1 (e.framl.) | Bandaríkin | Itaipava Arena Fonte Nova, Salvador Áhorfendur: 51.227 Dómari: Djamel Haimoudi, Alsír |
De Bruyne 93, Lukaku 105 | Green 107 |
Fjórðungsúrslit
breytaArgentínumenn, Brasilíumenn og Þjóðverjar unnu sínar viðureignir í fjórðungsúrslitum, í öllum tilvikum eftir að hafa komist yfir snemma leiks. Það varpaði þó skugga á sigur heimamanna að Neymar meiddist illa og gat ekki keppt meira á mótinu. Hollendingar þurftu vítaspyrnukeppni til að vinna sigur á spútnikliði Kosta Ríka.
4. júlí 2014 | |||
Frakkland | 0-1 | Þýskaland | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 74.240 Dómari: Néstor Pitana, Argentínu |
Hummels 13 |
4. júlí 2014 | |||
Brasilía | 2-1 | Kólumbía | Estádio Castelão, Fortaleza Áhorfendur: 60.342 Dómari: Carlos Velasco Carballo, Spáni |
Thiago Silva 7, David Luiz 69 | Rodríguez 80 (vítasp.) |
5. júlí 2014 | |||
Argentína | 1-0 | Belgía | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasilía Áhorfendur: 68.551 Dómari: Nicola Rizzoli, Ítalíu |
Higuaín 8 |
5. júlí 2014 | |||
Holland | 0-0 (4-3 e.vítake.) | Kosta Ríka | Itaipava Arena Fonte Nova, Salvador Áhorfendur: 51.179 Dómari: Ravshan Irmatov, Úsbekistan |
Undanúrslit
breytaFjarvera Neymars vegna meiðsla sló brasilíska landsliðið gjörsamlega út af laginu og hrunið varð algjört á móti sterku þýsku liði. Lokastaðan, 1:7, reyndist stærsta tap Brasilíu frá árinu 1920. Í hinum undanúrslitaleiknum unnu Argentínumenn sigur á Hollendingum í vítaspyrnukeppni.
8. júlí 2014 | |||
Þýskaland | 7-1 | Brasilía | Estádio Mineirão, Belo Horizonte Áhorfendur: 58.141 Dómari: Marco Antonio Rodríguez, Mexíkó |
Müller 11, Klose 23, Kroos 24, 26, Khedira 29,Schürrle 69, 79 | Oscar 90 |
9. júlí 2014 | |||
Argentína | 0-0 (4-2 e.vítake.) | Holland | Arena Corinthians, São Paulo Áhorfendur: 63.267 Dómari: Cüneyt Çakır, Tyrklandi |
Bronsleikur
breytaHrakfarir Brasilíumanna eftir undanúrslitin héldu áfram í leiknum um þriðja sætið. Vængbrotið lið heimamanna tapaði 3:0 og fékk því í allt fjórtán mörk á sig í keppninni, meira en nokkurt annað gestalið í sögunni. Vítaspyrnumark Robin van Persie á upphafsmínútunum kom honum í fjögur mörk.
12. júlí 2014 | |||
Holland | 3-0 | Brasilía | Estádio Nacional Mané Garrincha, Brasilía Áhorfendur: 68.034 Dómari: Djamel Haimoudi, Alsír |
Van Persie 3, Blind 17, Wijnaldum 90+1 |
Úrslitaleikur
breytaÞýskaland og Argentína mættust í þriðja sinn í úrslitum, sem var met. Áður höfðu þjóðirnar mæst á HM 1986 og HM 1990. Eftir markalaust jafntefli í venjulegum leiktíma þurfti að grípa til framlengingar þar sem Mario Götze skoraði eina markið e. 113 mínútur. Þjóðverjar urðu þar með fyrsta Evrópuþjóðin til að verða heimsmeistari í keppni sem fram fór á vesturhveli.
13. júlí 2014 | |||
Þýskaland | 1-0 (e.framl.) | Argentína | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 74.738 Dómari: Nicola Rizzoli, Ítalíu |
Götze 113 |
Markahæstu leikmenn
breytaJames Rodríguez hreppti gullskó FIFA, fyrstur Kólumbíumanna, með sex mörk skoruð. Alls voru 171 mark skorað af 121 leikmanni, þar af voru fimm sjálfsmörk.
- 6 mörk
- 5 mörk
- 4 mörk
Sjá einnig
breytaHeimildir
breyta- ↑ „Estadio do Maracana - Rio De Janeiro“. fifa.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 21 október 2013. Sótt 2. júní 2013.
- ↑ „Arena Fonte Nova - Salvador Stadium“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. október 2013. Sótt 19. júní 2013.
- ↑ „Estadio Castelao - Fortaleza“. Afrit af upprunalegu geymt þann 21. október 2013. Sótt 19. júní 2013.
- ↑ „Site oficial do Sport Club Internacional - Projeto Gigante Para Sempre“. Internacional.com.br. Afrit af upprunalegu geymt þann 7 apríl 2014. Sótt 25. maí 2013.
- ↑ „Estádio Nacional Mané Garrincha“. FIFA.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 23. október 2013. Sótt 14 de junho de 2013.
- ↑ Fifa admite adotar nome Mané Garrincha em estádio de Brasília na Copa