Kólumbíska karlalandsliðið í knattspyrnu
Kólumbíska karlalandsliðið í knattspyrnu (spænska: Selección de fútbol de Colombia) er fulltrúi Kólumbíu í alþjóðlegum knattspyrnumótum karla og stjórnast það af Kólumbíska knattspyrnusambandinu. Þeir er meðlimir í CONMEBOL. Liðið er kallað "Los Cafeteros" vegna kaffiframleiðslunnar í sínu landi.
Íþróttasamband | Federación Colombiana de Fútbol (Kólumbíska knattspyrnusambandið) | ||
---|---|---|---|
Álfusamband | CONMEBOL | ||
Þjálfari | Néstor Lorenzo | ||
Fyrirliði | David Ospina | ||
Leikvangur | Estadio Metropolitano Roberto Meléndez, Barranquilla | ||
FIFA sæti Hæst Lægst | 14 (15. febrúar 2024) 3 ((júní 2016- ágúst 2016)) 54 (júní 2011) | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
1-3 gegn Mexíkó 10. febrúar 1938 | |||
Stærsti sigur | |||
6–0 gegn Bahrain 26. mars 2015 | |||
Mesta tap | |||
9-0 gegn Brasilíu 24. mars 1957 | |||
Heimsmeistaramót | |||
Keppnir | 6 (fyrst árið 1964) | ||
Besti árangur | 8. liða úrslit 2014 | ||
Copa America | |||
Keppnir | 21 (fyrst árið 1945) | ||
Besti árangur | Meistarar 2001 |
Frá miðjum níunda áratug síðustu aldar hefur landsliðið verið tákn um að berjast gegn neikvæðum mannorði landsins. Þetta hefur gert íþróttina vinsæla og gert landsliðið merki um þjóðernishyggju, stolt og ástríðu fyrir marga Kólumbíumenn um allan heim. Kólumbía er þekkt fyrir að vera með ástríðufullan aðdáendahóp.
Kólumbía átti sitt sterkasta tímabil á tíunda áratugnum. Samkeppni frá 1993 leiddi til 5-0 sigus gegn Argentínu . Markvörður þeirra René Higuita varð frægur fyrir sporðdrekahöggið gegn Englandi á Wembley Stadium 1995. Stjörnur frá liði Kólumbíumanna á þessum árum voru meðal annara Carlos Valderrama og Faustino Asprilla. Á þessum tíma tóku Kólumbíumenn þátt í heimsmeistarakeppninni 1990, 1994 og 1998, enn náðu aðeins í aðra umferð mótsins árið 1990. Í kjölfar morðsins á Andrés Escobar eftir heimsmeistarakeppnina 1994 dofnaði lið Kólumbíu seinni hluta tíunda áratugarins. Þeir voru meistarar Copa América 2001 sem þeir stóðu fyrir og settu nýtt Copa América met þar sem þeir höfðu ekki fengið nein mörk og unnu allan leikina sína.
Keppnir
breytaÁr | Gestgjafar | Árangur |
---|---|---|
1945 | Síle | 5. sæti |
1946 | Argentína | Tóku ekki þátt |
1947 | Ekvador | 8. liða úrslit |
1949 | Úrúgvæ | 8. liða úrslit |
1957 | Perú | 5. sæti |
1963 | Bólivía | 8. liða úrslit |
1967 | Úrúgvæ | Tóku ekki þátt |
1975 | Suður-Ameríka | Silfur |
1979 | Suður-Ameríka | Riðlakeppni |
1983 | Suður-Ameríka | Riðlakeppni |
1967 | Síle | Brons |
1989 | Brasilía | Riðlakeppni |
1991 | Síle | 4. sæti |
Copa America 1993 | Ekvador | Brons |
Copa America 1995 | Úrúgvæ | Brons |
Copa America 1997 | Bólivía | 8. liða Úrslit |
Copa America 1999 | Paragvæ | 8. liða Úrslit |
2001 | Kólumbía | Gull |
2004 | Perú | 4. sæti |
2007 | Venesúela | Riðlakeppni |
Copa America 2011 | Argentína | 8. liða úrslit |
Copa America 2015 | Síle | 8. liða Úrslit |
Copa America 2016 | USA | Brons |
Copa America 2019 | Brasilía | 8. liða úrslit |
Ár | Gestgjafar | Árangur |
---|---|---|
1962 | Síle | Riðlakeppni |
1990 | Ítalía | 16. liða úrslit |
1994 | Bandaríkin | Riðlakeppni |
1998 | Frakkland | Riðlakeppni |
2002 | Suður-Kórea & Japan | Riðlakeppni |
2014 | Brasilía | 8. liða úrslit |
2018 | Rússland | 16. liða úrslit |
2022 | Katar | Tóku ekki þát |