Keisaraliljur
Keisara- eða vepjuliljur (fræðiheiti: Fritillaria) er ættkvísl evrasískra[1], norðurafrískra og norðuramerískra jurta í liljuættinni[1].
Keisaraliljur | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||
Synonymy
|
Það eru um 100 tegundir laukplantna í liljuættinni[2],innfæddar í tempruðum svæðum á norður hveli, sérstaklega á Miðjarðarhafssvæðinu, Suðvestur-Asíu, og vesturhluta Norður-Ameríku. Fræðiheitið er dregið af latínu fyrir teningabikar (fritillus), og vísar líklega til teningamynsturs blóma margra tegundanna. [3]
Lýsing
breytaVepjuliljur eru náskyldar liljum (Lilium) og líkjast þeim mikið; td með blöðótta stöngla. Þær hafa oft með stór, lútandi, bjöllulaga blóm, stök eða fá saman á stöngulendum[2]. Litur og mynstur er oft óvenjuleg og mikill meirihluti er vorblómstrandi. Hæð er frá tæplega 10 sm upp í yfir 1m. Ákveðnar tegundir hafa blóm með óviðkunnanlegri lykt. Lyktin af Fritillaria imperialis hefur verið sögð frekar vond, meðan F. agrestis, mun minna á hundaskít. Á hinn bóginn hefur F. striata sætan ilm[4].
Nytjar
breytaFlestar vepjulilur innihalda eitraða alkalíóða eins og imperialin; sumar gætu verið banvænar ef væru innbyrtar í allnokkru magni. Sumar þeirra fæla í burt smá nagdýr með lyktinni og er Keisarakróna þekktust fyrir þetta.
Laukar F. affinis, F. atropurpurea og F. biflora eru ætir[5] ef rétt meðhöndlaðir.
Laukar F. pudica og F. camschatcensis er ætir hráir eða eldaðir. Þeir voru víða étnir af innfæddum við norðvesturströnd Kyrrahafsins.[6]
Fritillaria extrakt er notuð í hefðbundnum kínverskum grasalækningum undir nafninu chuan bei mu, og á latínu, bulbus fritillariae cirrhosae. Tegundir eins og F. cirrhosa og F. verticillata eru notaðar í hóstasaft. Þær eru skráðar sem chuān bèi (kínverska: 川貝) eða zhè bèi (kínverska: 浙貝), og eru oft í formúlum blandaðar við extrakt af loquat (Eriobotrya japonica).
Aðal nöfn jurta og réttra tegunda skráðar á "Chinese Pharmacopoeia & National Standards" eru eftirfarandi:[7]
- 川贝母ChuānBèiMǔ BULBUS FRITILLARIAE CIRRHOSAE:
- Flokkaðar eftir lögun/ útliti :松贝 Songbei, 青贝 Qingbei , 炉贝, Ræktað form.
- Flokkaðar eftir tegundum:川贝母 Fritillaria cirrhosa D.Don, 暗紫贝母 Fritillaria unibracteata Hsiao et K.C.Hsia, 甘肃贝母 Fritillaria przewalskii Maxim, 梭砂贝母 Fritillaria delavayi Franch, 太白贝母 Fritillaria taipaiensis P.Y. Li, 瓦布贝母 Fritillaria unibracteata Hsiao et K. C. Hsia var. wabuensis(S. Y. Tang et S. C. Yueh)Z. D. Liu,S. Wang et S. C. Chen
- 浙贝母 ZhèBèiMǔ BULBUS FRITILLARIAE THUNBERGII :浙贝母 Fritillaria thunbergii Miq.
- 伊贝母 YīBèiMǔ BULBUS FRITILLARIAE PALLIDIFLORAE : 新疆贝母Fritillaria walujewii Regel or 伊犁贝母Fritillaria pallidiflora Schrenk
- 湖北贝母 HúBěiBèiMǔ BULBUS FRITILARIAE HUPEHENSIS: 湖北贝母 Fritillaria hupehensis Hsiao et K.C.Hsia
- 平贝母 PingBèiMǔ BULBUS FRITILLARIAE USSURIENSIS : 平贝母 Fritillaria ussuriensis Maxim.
Fritillaria verticillata-laukar eru líka seldir sem bèi mǔ or, í Kampō, baimo (Kínverska/Kanji: 貝母, Katakana: バイモ).
Hinar einkennandi og oft óvenjulega litar vepjuliljur eru gjarnan notaðar sem einkennisblóm. F. meleagris (Vepjulilja) er héraðsblóm Oxfordskíris í Bretlandi, og héraðsblóm Upplands í Svíþjóð, þar sem hún er þekkt sem kungsängslilja[7] („konungsengislilja“). Í Króatíu er þessi tegund þekkt sem kockavica, og skákborðsmynstur blómanna gæti hafa gefið hugmyndina að šahovnica-mynstrinu á skjaldarmerkinu. F. camschatcensis er einkennisblóm Ishikawa-héraðs og Obihiro-borgar í Japan. Japanska nafnið kuroyuri (クロユリ), þýðir „dökk lilja“. F. tenella er einkennisblóm Giardino Botanico Alpino di Pietra Corva, grasagarðs á Ítalíu.
Ræktun
breytaYfirleitt þurfa þær rakan og frjósaman en ekki blautan jarðveg. Margar tegundir vaxa undir trjágróðri í heimkynnum sínum. Lauka ætti helst að kaupa nýja. Hér eru upptaldar nokkrar tegundir sem eru sagðar ekki kröfuharðar á jarðvegsgerð eða staðsetningu:
Smáar, að 30 sm
F. graeca F. hermonis F. kurdica F. pudica
Meðalstórar, 30 sm – 60 sm
F. acmopetala F. elwesii F. latkiensis F. meleagris F. messanensis F. pontica F. pyrenaica F. whittallii
hávaxnar, yfir 60 sm
F. camschatcensis F. eduardii F. imperialis F. pallidiflora F. persica F. raddeana F. thunbergii F. uva-vulpis
Vistfræði
breytaBjöllutegundin liljubjalla (Lilioceris lilii) nærist á vepjuliljum og getur verið plága í görðum. Hún er upphaflega frá Evrasíu en hefur breiðst út um Norður-Ameríku.
Tegundir
breytaListi yfir samþykktar tegundir
breyta- Samþykktar tegundir[1]
Mynd | Íslenskt nafn | Vísindanafn | Athugasemd | Uppruni |
---|---|---|---|---|
Spjátrulilja | Fritillaria acmopetala Boiss. | norðvestur Tyrkland, Kýpur, Líbanon, Ísrael | ||
Erlulilja | Fritillaria affinis (Schult. & Schult.f.) Sealy | syn. F. lanceolata Pursh. | vestur USA + Bresku Kólumbíu | |
Fritillaria agrestis Greene | Kalifornía | |||
Finkulilja | Fritillaria alburyana Rix | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria alfredae Post | Tyrkland, Sýrland, Líbanon | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria amabilis Koidz. | Japan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria amana R. Wallis & R. B. Wallis | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria anhuiensis S.C.Chen & S.F.Yin | Kína | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria ariana (Losinsk. & Vved.) Rix | Íran, Afghanistan, Mið Asía | ||
[[File: |120px]] | Spóalilja | Fritillaria assyriaca Baker | Íran, Írak, Tyrkland | |
[[File: |120px]] | Fritillaria atrolineata Bakhshi Khan. | Íran | ||
Fritillaria atropurpurea Nutt. | vestur og mið USA | |||
Þiðurlilja | Fritillaria aurea Schott | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria ayakoana Maruy. & Naruh. | Honshu í Japan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria baskilensis Behcet | Tyrkland | ||
Fritillaria biflora Lindl. | Baja Kalifornía, Kalifornía | |||
[[File: |120px]] | Stelkalilja | Fritillaria bithynica Baker | Tyrkland, Aegean eyjar | |
Fritillaria brandegeei Eastw. | Kalifornía | |||
Fritillaria bucharica Regel | Afghanistan, Tajikistan, Uzbekistan | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria byfieldii Özhatay & Rix | Denizli hérað í Tyrklandi | ||
Krummalilja | Fritillaria camschatcensis (L.) Ker Gawl. | Japan, austast í Rússlandi, Alaska, Breska Kólumbía, Washington, Oregon | ||
Fritillaria carica Rix | Tyrkland, Aegean eyjar | |||
Uglulilja | Fritillaria caucasica Adams | Kákasus, Íran, Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria chitralensis (auct.) B.Mathew | Pakistan, Afghanistan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria chlorantha Hausskn. & Bornm. | Íran | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria chlororhabdota Bakhshi Khan. | Íran | ||
Rjúpulilja | Fritillaria cirrhosa D.Don | Kína, Himalaja, Myanmar | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria collina Adam | Kákasus, Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria conica Boiss. | Grikkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria crassicaulis S.C.Chen | Sichuan, Yunnan | ||
Skarfalilja | Fritillaria crassifolia Boiss. & A. Huet | Íran, Írak, Tyrkland, Sýrland, Líbanon | ||
Fritillaria dagana Turcz. ex Trautv. | Síbería, Mongólía | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria dajinensis S.C.Chen | Sichuan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria davidii Franch. | Sichuan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria davisii Turrill | Grikkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria delavayi Franch. | Kína, Sikkim | ||
Fritillaria drenovskii Degen & Stoj. | Grikkland, Búlgaría | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria dzhabavae A.P.Khokhr. | Kákasus | ||
Fritillaria eastwoodiae R.M.Macfarl. | Oregon, Kalifornía | |||
Fritillaria eduardii Regel | Mið Asía | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria ehrhartii Boiss. & Orph. | Grísku eyjarnar | ||
Fritillaria elwesii Boiss. | Tyrkland | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria epirotica Turrill ex Rix | Grikkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria euboeica Rix | Evvoia (Euboea) eyja i Grikklandi | ||
Fritillaria falcata (Jeps.) D.E.Beetle | San Benito Co í Kaliforníu | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria ferganensis Losinsk. | syn. af Fritillaria walujewii Regel | Kazakhstan, Uzbekistan | |
[[File: |120px]] | Fritillaria fleischeriana Steud. & Hochst. ex Schult. & Schult. f. | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria forbesii Baker | Mugla hérað í Tyrklandi | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria frankiorum R. Wallis & R. B. Wallis | Tyrkland, Sýrlandi | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria fusca Turrill | Tíbet | ||
Fritillaria gentneri Gilkey | Oregon | |||
Lævirkjalilja | Fritillaria gibbosa Boiss. | Kákasus, Íran, Afghanistan, Pakistan, Turkmenistan | ||
Fritillaria glauca Greene | Óregon, Kalifornía | |||
Fritillaria graeca Boiss. & Spruner | Grikkland, Balkan | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria grandiflora Grossh. | Kákasus | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria gussichiae (Degen & Dörfl.) Rix | Grikkland, Balkan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria hermonis Fenzl ex Klatt | Sýrland, Líbanon | ||
Keisarakróna | Fritillaria imperialis L. | Tyrkland, Írak, Íran, Afghanistan, Pakistan, Himalajafjöll | ||
Spætulilja | Fritillaria involucrata All. All. | Frakkland, Ítalía | ||
Fritillaria japonica Miq. | Honshu í Japan | |||
Fritillaria kaiensis Naruh. | Honshu í Japan | |||
Skottulilja | Fritillaria karelinii Fischer ex D.Don | Xinjiang, Mið Asía | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria kittaniae Sorger | Antólíu hérað í Tyrklandi | ||
Fritillaria koidzumiana Ohwi | Íran | |||
Fritillaria kotschyana Herb. | Íran | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria kurdica Boiss. & Noë | Íran, Írak, Tyrkland, Kákasus | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria lagodechiana Kharkev. | Kákasus | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria latakiensis Rix | Tyrkland, Sýrland | ||
Spörvalilja | Fritillaria latifolia Willd. | Kákasus, Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria legionensis Llamas & J.Andrés | Spánn | ||
Gæsalilja | Fritillaria liliacea Lindl. | Kalifornía | ||
Hegralilja | Fritillaria lusitanica Wikstr. | Spánn, Portúgal | ||
Fritillaria macedonica Bornm. | Albanía, Makedónía | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria macrocarpa Coss. ex Batt. | Marokkó | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria maximowiczii Freyn | Austast í Rússlandi, Kína, Zabaykalsky Krai | ||
Vepjulilja | Fritillaria meleagris L. | Evrasía frá Bretlandi til Altay Krai | ||
Fritillaria meleagroides Patrin ex Schult.f. | Evrasía frá Búlgaríu til Xinjiang | |||
Meisulilja | Fritillaria messanensis Raf. | Grikkland, Ítalía, Balkan | ||
Lundalilja | Fritillaria michailovskyi Fomin | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria micrantha A.Heller | Kalifornía | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria milasensis Teksen & Aytaç | Mugla hérað í Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria minima Rix | Tyrkland | ||
Fritillaria minuta Boiss. & Noë | Tyrkland, Íran | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria monantha Migo | Kína | ||
Krákulilja | Fritillaria montana Hoppe | Evrópa frá Frakklandi til Úkraínu | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria mughlae Tekşen & Aytaç. | Mugla hérað Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria muraiana Ohwi | Shikoku í Japan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria mutabilis Kamari | Grikkland | ||
Fritillaria obliqua Ker Gawl. | Grikkland | |||
Fritillaria ojaiensis Davidson | stundum talin til Fritillaria affinis (Schult. & Schult.f.) Sealy | Kalifornía | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria olgae Vved. | Tajikistan, Uzbekistan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria olivieri Baker | Íran | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria oranensis Pomel | Norður Afríka | ||
Kjóalilja | Fritillaria orientalis Adam | Kákasus, Turkey, suður og suðaustur Evrópa | ||
Gaukalilja | Fritillaria pallidiflora Schrenk | Kazakhstan, Kyrgyzstan, Xinjiang | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria pelinaea Kamari | Pelinon fjalli, Grikklandi | ||
Arnarlilja | Fritillaria persica L. | Miðausturlönd | ||
Snípulilja | Fritillaria pinardii Boiss. | Miðausturlönd | ||
Fritillaria pinetorum Boiss. | Kalifornía | |||
Fritillaria pluriflora Torr. ex Benth. | Kalifornía | |||
Fálkalilja | Fritillaria pontica Wahlenb. | Grikkland, Tyrkland, Balkan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria przewalskii Maxim. | Kína | ||
Glóbrystingslilja | Fritillaria pudica (Pursh) Spreng. | Vestur USA og Breska Kólumbía | ||
Kríulilja | Fritillaria purdyi Eastw. | Óregon, Kalifornía | ||
Þrastarlilja | Fritillaria pyrenaica L. | Pyreneafjöll í Frakklandi og Spáni | ||
Haukalilja | Fritillaria raddeana Regel | Turkmenistan, Íran, Kashmir | ||
Fritillaria recurva Benth. | Oregon, Kalifornía, Nevada | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria regelii Losinsk. | Tajikistan | ||
Fritillaria reuteri Boiss. | Tyrkland, Íran | |||
Fritillaria rhodia A.Hansen | Rodhos eyja í Grikklandi | |||
Fritillaria rhodocanakis Orph. ex Baker | Idhra eyja (Hydra) í Grikklandi | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria rixii Zaharof | Grikkland | ||
Álkulilja | Fritillaria ruthenica Wikst. | Hvítarússlandi, Úkraína, Rússlandi, Kazakhstan | ||
Fritillaria serpenticola (Rix) Teksen & Aytaç | Eskisehir og Antalya héröð í Tyrkland | |||
Þernulilja | Fritillaria sewerzowii Regel | Mið Asía | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria shikokiana Naruh. | Shikoku og Kyushu í Japan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria sibthorpiana (Sm.) Baker | Tyrkland, Symi eyja í Grikklandi | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria sichuanica S.C.Chen | Kína | ||
Fritillaria sinica S.C.Chen | Sichuan | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria skorpili Velen. | Búlgaría | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria sonnikovae Shaulo & Erst | hugsanl. samnefni af Fritillaria acmopetalaBoiss. | Krasnoyarsk í Rússlandi | |
[[File: |120px]] | Fritillaria sororum Jim.Persson & K.Persson | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria spetsiotica Kamari | Grikkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria sporadum Kamari | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria stenanthera Regel | Mið Asía | ||
Fritillaria straussii Bornm. | Tyrkland, Íran | |||
Fritillaria striata Eastw. | Kalifornía | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria stribrnyi Velen. | Búlgaría, Evrópuhluta Tyrklands | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria taipaiensis P.Y.Li | Kína | ||
Fritillaria thunbergii Miq. | syn. Fritillaria verticillata Willd. var. thunbergii Baker | Tar Bagatai fjöllum í Xinjiang og Kazakhstan | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria tokushimensis Akasawa, Katayama och T.Naito | syn. Fritillaria × tokushimensis Akasawa, Katayama och T.Naito | Shikoku í Japan | |
[[File: |120px]] | Fritillaria tortifolia X.Z.Duan & X.J.Zheng | Xinjiang | ||
Svölulilja | Fritillaria tubiformis Gren. & Godr. | Alparnir í Frakklandi og Ítalíu | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria unibracteata P.K.Hsiao & K.C.Hsia | Kína | ||
[[File: |120px]] | Lóulilja | Fritillaria ussuriensis Maxim. | Kórea, Primorye, norðaustur Kína | |
Tildrulilja | Fritillaria uva-vulpis Rix | Íran, Írak, Tyrkland | ||
Máfalilja | Fritillaria verticillata Willd. | Japan, Kórea, Mongólía, Xinjiang, Kazakhstan, Altay Krai | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria viridea Kellogg | Kalifornía | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria viridiflora Post | Tyrkland | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria walujewii Regel | Xinjiang, Kazakhstan, Kyrgyzstan | ||
Fritillaria whittallii Baker | Tyrkland | |||
[[File: |120px]] | Fritillaria yuminensis X.Z.Duan | Xinjiang | ||
[[File: |120px]] | Fritillaria yuzhongensis G.D.Yu & Y.S.Zhou | Kína |
Áður taldar með;
breytaAllnokkrar tegundir tilheyrðu áður Fritillaria en eftirfarandi tegundir tilheyra nú öðrum ættkvíslum; Calochortus, Disporum, Erythronium, Eucomis, Lilium, Notholirion. .
- Fritillaria autumnalis , nú nefnd Eucomis autumnalis
- Fritillaria barbata, nú nefnd Calochortus barbatus
- Fritillaria biflora Sessé & Moc 1894 ekki Lindl. 1834, nú nefnd Calochortus barbatus
- Fritillaria cantoniensis, nú nefnd Disporum cantoniense
- Fritillaria cuprea, nú nefnd Calochortus barbatus
- Fritillaria flavida, nú nefnd Lilium nanum var. flavidum
- Fritillaria gardneriana, nú nefnd Lilium nanum var. nanum
- Fritillaria hookeri, nú nefnd Notholirion macrophyllum
- Fritillaria longifolia Hill 1768 ekki Steven ex Ledeb. 1852, nú nefnd Eucomis autumnalis
- Fritillaria lophophora, nú nefnd Lilium lophophorum
- Fritillaria macrophylla, nú nefnd Notholirion macrophyllum
- Fritillaria multiscapoidea, nú nefnd Erythronium multiscapoideum
- Fritillaria nana, nú nefnd Eucomis regia
- Fritillaria oxypetala, nú nefnd Nomocharis oxypetala
- Fritillaria punctata, nú nefnd Eucomis comosa
- Fritillaria purpurea, nú nefnd Calochortus purpureus
- Fritillaria regia, nú nefnd Eucomis regia
- Fritillaria souliei, nú nefnd Lilium souliei
- Fritillaria stracheyi, nú nefnd Lilium nanum
- Fritillaria thomsoniana, nú nefnd Notholirion thomsonianum
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 http://apps.kew.org/wcsp/namedetail.do?name_id=306481[óvirkur tengill]
- ↑ 2,0 2,1 Garðblómabókin útg. 1995 eftir Hólmfríði A Sigurðardóttir
- ↑ Kew World Checklist of Selected Plant Families[óvirkur tengill]
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 1. nóvember 2014. Sótt 22. maí 2015.
- ↑ Field Guide to Edible Wild Plants eftir Bradford Angier
- ↑ http://www.sgr.fi/susa/91/stahlbergsvanberg.pdf
- ↑ http://linnaeus.nrm.se/flora/mono/lilia/friti/fritmel.html