Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2006
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2006 var haldið í Þýskalandi dagana 9. júní til 9. júlí. Heimsmeistaramótið var það 18. í röðinni, en þau eru haldin á fjögurra ára fresti.
Leikið var í borgunum Berlín, Dortmund, Frankfurt, Gelsenkirchen, Hamburg, Hannover, Kaiserslautern, Köln, Leipzig, München, Nürnberg og Stuttgart.
Þjóðverjar fengu réttinn til að halda mótið árið 2000. 31 þjóðir tóku þátt á mótinu, með þjóðverjum, en þetta var í annað skiptið sem þessi keppni var haldin í Þýskalandi (fyrsta skiptið var árið 1974 sem vestur-Þýskaland).
Ítalir urðu heimsmeistarar í fjórða sinn eftir sigur á Frökkum í úrslitum. Gestgjafar keppninnar, þjóðverjar höfnuðu í þriðja sæti og portúgalar í því fjórða.
Val á gestgjöfum
breytaÁkvörðunin um keppnisstað var tekin á þingi FIFA í Zürich þann 6. júlí árið 2000. Fimm lönd höfðu falast eftir að halda keppnina, en þremur dögum fyrir fundinn drógu Brasilíumenn boð sitt til baka. Þá stóðu eftir Þýskaland, England, Suður-Afríka og Marokkó. Þjóðverjar hlutu flest atkvæði í fyrstu umferð, tíu talsins. Suður-Afríka fékk sex, England fimm en Marokkó rak lestina með tvö atkvæði. Þar sem enginn umsækjanda hafði náð hreinum meirihluta var kosið að nýju milli þriggja efstu.
Í annarri umferðinni voru Þjóðverjar og Suður-Afríkumenn jafnir með ellefu atkvæði en Englendingar hlutu tvö. Í lokaumferðinni fengu Þjóðverjar tólf atkvæði á móti ellefu, þar sem einn fulltrúi sat hjá. Þýskaland var því valið gestgjafi HM 2006.
Í kjölfar kosningarinnar braust út mikil óánægja þar sem fulltrúi Nýja-Sjálands reyndist hafa setið hjá í lokakosningunni þrátt fyrir skýr fyrirmæli frá Eyjaálfusambandinu um að styðja Suður-Afríku fremur en Þýskaland. Það hefði þýtt að löndin hefðu endað jöfn og Sepp Blatter verið látinn ráða úrslitum, en hann var talinn hliðhollur Suður-Afríkumönnum. Í kjölfarið var ákveðið að endurskoða val gestgjafa á HM í framtíðinni.
Þátttökulið
breyta32 þjóðir mættu til leiks frá sex heimsálfum.
Knattspyrnuvellir
breyta- Allianz Arena - [[München[[
Byggður: 2005 Heildarfjöldi: 66.016 Heildarfjöldi í heimsmeistarakeppninni: 52.782 Heimalið: 1860 München og Bayern München
- Veltens Arena - Gelsenkirchen
Byggður: 2001 Heildarfjöldi: 53.804 Heildarfjöldi í heimsmeistarakeppninni: 43.920 Heimalið: Schalke 04
- Waldstadion - Frankfurt
Byggður: 2005 Heildarfjöldi: 48.132 Heildarfjöldi í heimsmeistarakeppninni: 38.437 Heimalið: Eintracht Frankfurt
- Westfalenstadion - Dortmund
Byggður: 1974 Heildarfjöldi: 69.982 Heildarfjöldi í heimsmeistarakeppninni: 50.000 Heimalið: Borussia Dortmund
- AOL Arena - Hamburg
- Zentralstadion - Leipzig
- Frankenstadion - Nürnberg
- RheinEnergieStadion - Köln
- Fritz-Walter-Stadion - Kaiserslautern
- AWD Arena - Hannover
- Gottlieb-Daimler-Stadion - Stuttgart
- Ólympíuleikvangurinn - Berlín
Keppnin
breytaRiðlakeppnin
breytaKeppt var í átta riðlum með fjórum liðum í hverjum, þar sem tvö efstu komust áfram í 16-liða úrslit.
A riðill
breytaÞýskaland sigraði Kosta Ríka 4:2 í opnunarleik keppninnar og var það hæsta markaskor í opnunarleik í sögunni. Ekvador hafi tryggt sér annað sætið í riðlinum á eftir heimsmeisturum Þjóðverja fyrir lokaumferðina.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Þýskaland | 3 | 3 | 0 | 0 | 8 | 2 | +6 | 9 | |
2 | Ekvador | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 3 | +2 | 6 | |
3 | Pólland | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 4 | -2 | 3 | |
4 | Kosta Ríka | 3 | 0 | 0 | 3 | 3 | 9 | -6 | 0 |
9. júní 2006 | |||
Þýskaland | 4-2 | Kosta Ríka | Allianz Arena, München Áhorfendur: 66.000 Dómari: Horacio Elizondo |
Lahm 6, Klose 17, 61, Frings 87 | Wanchope 12, 73 |
9. júní 2006 | |||
Pólland | 0-2 | Ekvador | Arena AufSchalke, Gelsenkirchen Áhorfendur: 52.000 Dómari: Toru Kamikawa |
Tenorio 24, Delgado 80 |
14. júní 2006 | |||
Þýskaland | 1-0 | Pólland | Westfalenstadion, Dortmund Áhorfendur: 65.000 Dómari: Luis Medina Cantalejo |
Neuville 90+1 |
15. júní 2006 | |||
Ekvador | 3-0 | Kosta Ríka | Volksparkstadion, Hamburg Áhorfendur: 65.000 Dómari: Coffi Codjia |
C. Tenorio 8, Delgado 54, Kaviedes 90+2 |
20. júní 2006 | |||
Þýskaland | 3-0 | Ekvador | Ólympíuleikvangurinn, Berlín Áhorfendur: 72.000 Dómari: Valentin Ivanov |
Klose 4, 44, Podolski 57 |
15. júní 2006 | |||
Pólland | 2-1 | Kosta Ríka | Niedersachsenstadion, Hanover Áhorfendur: 43.000 Dómari: Shamsul Maidin |
Bosacki 33, 65 | Gómez 25 |
B riðill
breytaEnglendingar og Svíar unnu nauma sigra á Paragvæ og skildu Suður-Ameríkuliðið þar með eftir. Svíar náðu 2:2 jafntefli gegn Englendingum í lokaleiknum, en Norðurlandaþjóðin hafði ekki tapað fyrir enska liðinu í 38 ár.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Englandi | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 2 | +3 | 7 | |
2 | Svíþjóð | 3 | 1 | 2 | 0 | 3 | 2 | +1 | 5 | |
3 | Paragvæ | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
4 | Trínidad og Tóbagó | 3 | 0 | 1 | 2 | 0 | 4 | -4 | 1 |
10. júní 2006 | |||
England | 1-0 | Paragvæ | Commerzbank-Arena, Frankfurt Áhorfendur: 48.000 Dómari: Marco Rodríguez |
Gamarra 4 (sjálfsm.) |
10. júní 2006 | |||
Trínidad og Tóbagó | 0-0 | Svíþjóð | Westfalenstadion, Dortmund Áhorfendur: 62.959 Dómari: Shamsul Maidin |
15. júní 2006 | |||
England | 2-0 | Trínidad og Tóbagó | Frankenstadion, Nürnberg Áhorfendur: 41.000 Dómari: Toru Kamikawa |
Crouch 83, Gerrard 90+1 |
15. júní 2006 | |||
Svíþjóð | 1-0 | Paragvæ | Ólympíuleikvangurinn, Berlín Áhorfendur: 72.000 Dómari: Ľuboš Micheľ |
Ljungberg 89 |
20. júní 2006 | |||
Svíþjóð | 2-2 | England | RheinEnergieStadion, Köln Áhorfendur: 45.000 Dómari: Massimo Busacca |
Allbäck 51, Larsson 90 | J. Cole 34, Gerrard 85 |
20. júní 2006 | |||
Paragvæ | 2-0 | Trínidad og Tóbagó | Fritz-Walter-Stadion, Kaiserslautern Áhorfendur: 46.000 Dómari: Roberto Rosetti |
Sancho 25 (sjálfsm.), Cuevas 86 |
C riðill
breytaRiðillinn var af mörgum talinn sá sterkasti á mótinu. Argentína og Holland höfðu þó bæði tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum fyrir lokaumferðina. Markalaust jafntefli í viðureign liðanna í lokaleiknum gaf Argentínu toppsætið á hagstæðari markatölu eftir stórsigur liðsins á Serbum og Svartfellingum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Argentína | 3 | 2 | 1 | 0 | 8 | 1 | +7 | 7 | |
2 | Holland | 3 | 2 | 1 | 0 | 3 | 1 | +2 | 7 | |
3 | Fílabeinsströndin | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 | 6 | -1 | 3 | |
4 | Serbía og Svartfjallaland | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 10 | -8 | 0 |
10. júní 2006 | |||
Argentína | 2-1 | Fílabeinsströndin | Volksparkstadion, Hamburg Áhorfendur: 49.480 Dómari: Frank De Bleeckere |
Crespo 24, Saviola 38 | Drogba 82 |
11. júní 2006 | |||
Serbía og Svartfjallaland | 0-1 | Holland | Zentralstadion, Leipzig Áhorfendur: 43.000 Dómari: Markus Merk |
Robben 18 |
16. júní 2006 | |||
Argentína | 6-0 | Serbía og Svartfjallaland | Arena AufSchalke, Gelsenkirchen Áhorfendur: 52.000 Dómari: Roberto Rosetti |
Rodríguez 6, 41, Cambiasso 31, Crespo 78, Tevez 84, Messi 88 |
16. júní 2006 | |||
Holland | 2-1 | Fílabeinsströndin | Gottlieb-Daimler-Stadion, Stuttgart Áhorfendur: 52.000 Dómari: Óscar Ruiz |
Van Persie 23, Van Nistelrooy 27 | B. Koné 38 |
21. júní 2006 | |||
Holland | 0-0 | Argentína | Waldstadion, Frankfurt Áhorfendur: 48.000 Dómari: Luis Medina Cantalejo |
16. júní 2006 | |||
Fílabeinsströndin | 3-2 | Serbía og Svartfjallaland | Allianz Arena, München Áhorfendur: 66.000 Dómari: Marco Rodríguez |
Dindane 37, 67, Kalou 86 | Žigić 10, Ilić 20 |
D riðill
breytaTaugarnar voru þandar fyrir leik Angóla gegn gömlu nýlenduherrunum frá Portúgal. Evrópubúarnir höfðu betur og unnu alla þrjá leiki sína í riðlinum. Mexíkó fylgdi þeim eftir í 16-liða úrslitin.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Portúgal | 3 | 3 | 0 | 0 | 5 | 1 | +4 | 9 | |
2 | Mexíkó | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 3 | +1 | 4 | |
3 | Íran | 3 | 0 | 2 | 1 | 1 | 2 | -1 | 2 | |
4 | Angóla | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 6 | -4 | 1 |
10. júní 2006 | |||
Mexíkó | 3-1 | Íran | Frankenstadion, Nürnberg Áhorfendur: 41.000 Dómari: Roberto Rosetti |
Bravo 28, 76, Sinha 79 | Golmohammadi 36 |
11. júní 2006 | |||
Angóla | 0-1 | Portúgal | RheinEnergieStadion, Köln Áhorfendur: 45.000 Dómari: Jorge Larrionda |
Pauleta 4 |
16. júní 2006 | |||
Angóla | 0-0 | Mexíkó | Niedersachsenstadion, Hanover Áhorfendur: 43.000 Dómari: Shamsul Maidin |
17. júní 2006 | |||
Portúgal | 2-0 | Íran | Waldstadion, Frankfurt Áhorfendur: 48.000 Dómari: Éric Poulat |
Deco 63, Ronaldo 80 |
21. júní 2006 | |||
Portúgal | 2-1 | Mexíkó | Arena AufSchalke, Gelsenkirchen Áhorfendur: 52.000 Dómari: Ľuboš Micheľ |
Maniche 6, Simão 24 | Fonseca 29 |
21. júní 2006 | |||
Angóla | 1-1 | Íran | Zentralstadion, Leipzig Áhorfendur: 38.000 Dómari: Mark Shield |
Amado 60 | Bakhtiarizadeh 75 |
E riðill
breytaÞrjú rauð spjöld fóru á loft í jafnteflisleik Bandaríkjanna og Ítalíu. Það var eina stig Bandaríkjanna í keppninni en einu töpuðu stig Ítala sem enduðu á toppnum. Gana fylgdi liði Ítalíu í 16-liða úrslitin.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Ítalía | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 1 | +4 | 7 | |
2 | Gana | 3 | 2 | 0 | 1 | 4 | 3 | +1 | 6 | |
3 | Tékkland | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 4 | -1 | 3 | |
4 | Bandaríkin | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 6 | -4 | 1 |
12. júní 2006 | |||
Bandaríkin | 0-3 | Tékkland | Arena AufSchalke, Gelsenkirchen Áhorfendur: 52.000 Dómari: Carlos Amarilla |
Koller 5, Rosický 36, 76 |
12. júní 2006 | |||
Ítalía | 2-0 | Gana | Niedersachsenstadion, Hanover Áhorfendur: 52.000 Dómari: Carlos Amarilla |
Pirlo 40, Iaquinta 83 |
17. júní 2006 | |||
Tékkland | 0-2 | Gana | RheinEnergieStadion, Köln Áhorfendur: 45.000 Dómari: Horacio Elizondo |
Gyan 2, Muntari 82 |
17. júní 2006 | |||
Ítalía | 1-1 | Bandaríkin | Fritz-Walter-Stadion, Kaiserslautern Áhorfendur: 46.000 Dómari: Jorge Larrionda |
Gilardino 22 | Zaccardo 27 |
22. júní 2006 | |||
Tékkland | 0-2 | Ítalía | Volksparkstadion, Hamburg Áhorfendur: 50.000 Dómari: Benito Archundia |
Materazzi 26, Inzaghi 87 |
22. júní 2006 | |||
Gana | 2-1 | Bandaríkin | EasyCredit-Stadion, Nürnberg Áhorfendur: 41.000 Dómari: Markus Merk |
Draman 22, Appiah 45+2 | Dempsey 43 |
F riðill
breytaÁstralir mættu á ný á HM eftir 32 ára hlé og komu verulega á óvart með sigri á Japö num og jafntefli gegn Króötum, sem fleytti þeim í annað sæti riðilsins. Brasilíumenn höfðu lítið fyrir að ná toppsætinu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 3 | 0 | 0 | 7 | 1 | +6 | 9 | |
2 | Ástralía | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 | 5 | 0 | 4 | |
3 | Króatía | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
4 | Japan | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 7 | -5 | 1 |
12. júní 2006 | |||
Ástralía | 3-1 | Japan | Fritz-Walter-Stadion, Kaiserslautern Áhorfendur: 46.000 Dómari: Essam Abd El Fatah |
Cahill 84, 89, Aloisi 90+2 | Nakamura 26 |
13. júní 2006 | |||
Brasilía | 1-0 | Króatía | Ólympíuleikvangurinn, Berlín Áhorfendur: 72.000 Dómari: Benito Archundia |
Kaká 44 |
18. júní 2006 | |||
Króatía | 0-0 | Japan | Frankenstadion, Nürnberg Áhorfendur: 41.000 Dómari: Frank De Bleeckere |
18. júní 2006 | |||
Brasilía | 2-0 | Króatía | Allianz Arena, München Áhorfendur: 66.000 Dómari: Markus Merk |
Adriano 49, Fred 90 |
22. júní 2006 | |||
Brasilía | 4-1 | Japan | Westfalenstadion, Dortmund Áhorfendur: 65.000 Dómari: Éric Poulat |
Ronaldo 45+1, 81, Juninho 53, Gilberto 59 | Tamada 34 |
22. júní 2006 | |||
Króatía | 2-2 | Ástralía | Gottlieb-Daimler-Stadion, Stuttgart Áhorfendur: 52.000 Dómari: Graham Poll |
Srna 2, Kovač 56 | Moore 38, Kewell 79 |
G riðill
breytaSviss fékk ekki á sig mark á heimsmeistaramótinu og sigraði í riðlinum. Frakkar tryggðu sér annað sætið með sigri á Tógó í lokaleiknum eftir tvö jafntefli.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Sviss | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 0 | +4 | 7 | |
2 | Frakkland | 3 | 1 | 2 | 0 | 3 | 1 | +2 | 5 | |
3 | Suður-Kórea | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 4 | -1 | 4 | |
4 | Tógó | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 6 | -5 | 0 |
13. júní 2006 | |||
Suður-Kórea | 2-1 | Tógó | Waldstadion, Frankfurt Áhorfendur: 48.000 Dómari: Graham Poll |
Lee Chun-soo 54, Ahn Jung-hwan 72 | Kader 31 |
13. júní 2006 | |||
Frakkland | 0-0 | Sviss | Gottlieb-Daimler-Stadion, Stuttgart Áhorfendur: 52.000 Dómari: Valentin Ivanov |
18. júní 2006 | |||
Frakkland | 1-1 | Suður-Kórea | Zentralstadion, Leipzig Áhorfendur: 43.000 Dómari: Benito Archundia |
Henry 9 | Park Ji-sung 81 |
19. júní 2006 | |||
Tógó | 0-2 | Sviss | Westfalenstadion, Dortmund Áhorfendur: 65.000 Dómari: Carlos Amarilla |
Frei 16, Barnetta 88 |
19. júní 2006 | |||
Tógó | 0-2 | Frakkland | RheinEnergieStadion, Köln Áhorfendur: 45.000 Dómari: Jorge Larrionda |
Vieira 55, Henry 61 |
23. júní 2006 | |||
Sviss | 2-0 | Suður-Kórea | Niedersachsenstadion, Hanover Áhorfendur: 43.000 Dómari: Horacio Elizondo |
Senderos 23, Frei 77 |
H riðill
breytaYfirburðir Spánverja í riðlinum voru miklir. Þrátt fyrir stórt tap í fyrsta leik fylgdu Úkraínumenn þeim eftir í útsláttarkeppnina.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Spánn | 3 | 3 | 0 | 0 | 8 | 1 | +7 | 9 | |
2 | Úkraína | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 4 | +1 | 6 | |
3 | Túnis | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 | 6 | -3 | 1 | |
4 | Sádi-Arabía | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 7 | -5 | 1 |
14. júní 2006 | |||
Spánn | 4-0 | Úkraína | Zentralstadion, Leipzig Áhorfendur: 43.000 Dómari: Massimo Busacca |
Alonso 13, Villa 17, 48, Torres 81 |
14. júní 2006 | |||
Túnis | 2-2 | Sádi-Arabía | Allianz Arena, München Áhorfendur: 66.000 Dómari: Mark Shield |
Jaziri 23, Jaïdi 90+2 | Al-Qahtani 57, Al-Jaber 84 |
14. júní 2006 | |||
Úkraína | 4-0 | Sádi-Arabía | Volksparkstadion, Hamburg Áhorfendur: 50.000 Dómari: Graham Poll |
Rusol 4, Rebrov 36, Shevchenko 46, Kalynychenko 84 |
19. júní 2006 | |||
Túnis | 1-3 | Spánn | Gottlieb-Daimler-Stadion, Stuttgart Áhorfendur: 52.000 Dómari: Carlos Simon |
Mnari 8 | Raúl 71, Torres 76, 90+1 |
23. júní 2006 | |||
Spánn | 1-0 | Sádi-Arabía | Fritz-Walter-Stadion, Kaiserslautern Áhorfendur: 46.000 Dómari: Coffi Codjia |
Juanito 36 |
23. júní 2006 | |||
Úkraína | 1-0 | Túnis | Ólympíuleikvangurinn, Berlín Áhorfendur: 72.000 Dómari: Carlos Amarilla |
Shevchenko 70 |
Útsláttarkeppnin
breytaTvö efstu liðin úr hverjum forriðli fóru áfram í 16-liða úrslit sem leikin voru með útsláttarfyrirkomulagi.
16-liða úrslit
breytaTvö þýsk mörk á fyrstu tólf mínútunum gerðu út um HM-drauma Svía. Argentínumenn þurftu framlengingu til að leggja Mexíkó að velli. Aukaspyrnumark frá David Beckham kom Englendingum í fjórðungsúrslitin. Gríðarleg harka einkenndi sigurleik Portúgala á Hollendingum, þar sem sextán gul spjöld og fjögur rauð fóru á loft, nýtt met í sögu HM.
Francesco Totti skoraði úr vítaspyrnu á sjöundu mínútu uppbótartíma í leik gegn Áströlum sem sagður var sá leiðinlegasti í sögu keppninnar. Svisslendingar settu óheppilegt met þegar þeir urðu fyrsta liðið til að mistakast að skora í vítakeppni í viðureign sinni við Úkraínu. Brasilía átti ekki í vandræðum með að sigra Gana. Tveimur árum síðar staðhæfði þýska blaðið Der Spiegel að úrslit leiksins kunni að hafa tengst asísku veðmálasvindli. Spánverjar komust yfir á móti Frökkum sem svöruðu með þremur mörkum.
24. júní 2006 | |||
Þýskaland | 2-0 | Svíþjóð | Allianz Arena, München Áhorfendur: 66.000 Dómari: Carlos Simon, Brasilíu |
Podolski 4, 12 |
24. júní 2006 | |||
Argentína | 2-1 (e.framl.) | Mexíkó | Zentralstadion, Leipzig Áhorfendur: 43.000 Dómari: Massimo Busacca, Sviss |
Crespo 10, Rodríguez 98 | Márquez 6 |
25. júní 2006 | |||
England | 1-0 | Ekvador | Gottlieb-Daimler-Stadion, Stuttgart Áhorfendur: 52.000 Dómari: Frank De Bleeckere, Belgíu |
Beckham 60 |
25. júní 2006 | |||
Portúgal | 1-0 | Holland | Frankenstadion, Nürnberg Áhorfendur: 41.000 Dómari: Valentin Ivanov, Rússlandi |
Maniche 23 |
26. júní 2006 | |||
Ítalía | 1-0 | Ástralía | Fritz-Walter leikvangurinn, Kaiserslautern Áhorfendur: 46.000 Dómari: Luis Medina Cantalejo, Spáni |
Totti 90+5 (vítasp.) |
26. júní 2006 | |||
Úkraína | 0-0 (3-0 e.vítake.) | Sviss | RheinEnergieStadion, Köln Áhorfendur: 45.000 Dómari: Benito Archundia, Mexíkó |
27. júní 2006 | |||
Brasilía | 3:0 | Gana | Westfalenstadion, Dortmund Áhorfendur: 65.000 Dómari: Ľuboš Micheľ, Slóvakíu |
Ronaldo 5, Adriano 45+1, Zé Roberto 84 |
27. júní 2006 | |||
Spánn | 1-3 | Frakkland | Niedersachsenstadion, Hanover Áhorfendur: 43.000 Dómari: Roberto Rosetti, Ítalíu |
Villa 28 (vítasp.) | Ribéry 41, Vieira 83, Zidane 90+2 |
Fjórðungsúrslit
breytaHvorki Þjóðverjar né Argentínumenn höfðu tapað vítaspyrnukeppni áður en grípa þurfti til hennar í lok viðureignar liðanna, þar sem heimamenn reyndust skotvissari. Ítalir áttu ekki neinum vandræðum með úkraínska liðið í sinni viðureign. Portúgalir slógu Englendinga úr leik í vítaspyrnukeppni þar sem þrjár spyrnur Englendinga fóru í súginn. Brasilíska liðið náði aðeins einu skoti á mark Frakka í lokaleik fjórðungsúrslitanna þar sem mark frá Thierry Henry skildi að liðin.
30. júní 2006 | |||
Þýskaland | 1-1 (5-3 e.vítake.) | Argentína | Ólympíuleikvangurinn, Berlín Áhorfendur: 72.000 Dómari: Ľuboš Micheľ, Slóvakíu |
Klose 80 | Ayala 49 |
30. júní 2006 | |||
Ítalía | 3-0 | Úkraína | Volksparkstadion, Hamborg Áhorfendur: 50.000 Dómari: Frank De Bleeckere, Belgíu |
Zambrotta 6, Toni 59, 60 |
1. júlí 2006 | |||
England | 0-0 (1-3 e.vítake.) | Portúgal | Arena AufSchalke, Gelsenkirchen Áhorfendur: 52.000 Dómari: Horacio Elizondo, Argentínu |
1. júlí 2006 | |||
Brasilía | 0-1 | Frakkland | Waldstadion, Frankfurt Áhorfendur: 48.000 Dómari: Luis Medina Cantalejo, Spáni |
Henry 57 |
Undanúrslit
breytaÍ fjórða sinn í sögunni voru öll liðin í undanúrslitum evrópsk. Það gerðist áður árin 1934, 1966 og 1982. Leikur heimamanna og Ítala stefndi í vítaspyrnukeppni þar sem markalaust var fram á 118. mínútu en þá skoruðu bláklæddir tvívegis. Vítaspyrnumark frá Zinidine Zidane í fyrri hálfleik réð úrslitum í viðureign Portúgala og Frakka.
4. júlí 2006 | |||
Þýskaland | 0-2 (e.framl.) | Ítalía | Westfalenstadion, Dortmund Áhorfendur: 65.000 Dómari: Benito Archundia, Mexíkó |
Grosso 119, Del Piero 120+1 |
5. júlí 2006 | |||
Portúgal | 0-1 | Frakkland | Allianz Arena, München Áhorfendur: 66.000 Dómari: Jorge Larrionda, Úrúgvæ |
Zidane 33 (vítasp.) |
Bronsleikur
breytaBastian Schweinsteiger skoraði tvívegis í 3:1 sigri heimamanna á Portúgal. Gestgjafarnir komust í 3:0 áður en Portúgölum tókst að klóra í bakkann og koma þar með í veg fyrir að Oliver Kahn héldi hreinu í lokaleik sínum fyrir landsliðið.
8. júlí 2006 | |||
Þýskaland | 3-1 | Portúgal | Gottlieb-Daimler-Stadion, Stuttgart Áhorfendur: 52.000 Dómari: Toru Kamikawa, Japan |
Schweinsteiger 56, 78, Petit 60 (sjálfsm.) | Nuno Gomes 88 |
Úrslitaleikur
breytaBæði lið skoruðu á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Zinedine Zidane skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu. Hann átti þó eftir að koma við sögu á annan hátt en hann fékk rautt spjald í lok framlengingar eftir að hafa skallað Marco Materazzi í bringuna. Grípa þurfti til vítaspyrnukeppni þar sem Ítalir skoruðu úr öllum fimm spyrnum sínum en David Trezeguet átti sláarskot fyrir Frakka.
9. júlí 2006 | |||
Ítalía | 1-1 (6-4 e.vítake.) | Frakkland | Ólympíuleikvangurinn, Berlín Áhorfendur: 69.000 Dómari: Horacio Elizondo, Argentínu |
Materazzi 19 | Zidane 7 (vítasp.) |
Markahæstu leikmenn
breytaMiroslav Klose hreppti gullskó FIFA með fimm mörk skoruð. Alls voru 147 mörk skoruð af 110 leikmönnum, þar af voru fjögur sjálfsmörk.
- 5 mörk
- 3 mörk