Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1966

Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1966 eða HM 1966 var haldið í Englandi dagana 11. júlí til 30. júlí. Þetta var áttunda heimsmeistarakeppnin. Heimamenn urðu heimsmeistarar og urðu þar með þriðju gestgjafarnir ásamt Úrúgvæ og Ítalíu til að ná þeim árangri. Aldrei áður höfðu svo margir áhorfendur mætt á leiki heimsmeistaramóts að meðaltali og var það met ekki slegið fyrr en á HM 1994.

The Queen presents the 1966 World Cup to England Captain, Bobby Moore. (7936243534).jpg

Val á gestgjöfumBreyta

Þrjú lönd föluðust eftir að halda keppnina: England, Spánn og Vestur-Þýskaland. Þegar kom að FIFA-þinginu 1960 drógu Spánverjar sig til baka. Kosið var á milli hinna tveggja og hlutu Englendingar 34 atkvæði gegn 27 atkvæðum Þjóðverja.

UndankeppniBreyta

 
Frímerki í tilefni af HM 1966.

Gestgjafar Englands og heimsmeistarar Brasilíumanna fengu sjálfkrafa sæti. Önnur 72 lið hugðust keppa um lausu sætin 14. Norður-Kórea þurfti einungis að vinna Ástralíu í tveimur leikjum til að komast í sína fyrstu úrslitakeppni, en önnur lið sem áttu að keppa í Asíu- og Eyjaálfukeppninni drógu sig í hlé. Engin óvænt úrslit urðu í Ameríkukeppnunum, þótt Síle hafi þurft aukaleik til að slá Ekvador úr keppni.

Íslendingar skráðu sig til leiks og drógust í riðil með Vestur-Þjóðverjum, Svíum og Kýpverjum. Líkt og fjórum árum fyrr hætti Ísland við keppni, en Þjóðverjar komust áfram. Portúgal komst í úrslitakeppnina á kostanað Tékkóslóvakíu, silfurliðsins frá HM 1962. Norður-Írar með George Best í broddi fylkingar veittu Svisslendingum harða keppni, en gerðu óvænt jafntefli gegn Albönum í lokaleik og þar með var HM-draumurinn úti. Spánn og Írland þurftu oddaleik til að skera úr um hvort liðið kæmist til Englands og höfðu Spánverjar betur. Asíuríkið Sýrland átti að vera þriðja liðið í riðlinum en dró sig úr keppni.

Sniðganga AfríkuríkjaBreyta

Fulltrúar knattspyrnusambanda í Afríku voru afar ósáttir við að heimsálfunni væri ekki tryggt neitt öruggt sæti í úrslitakeppninni, sem og að Suður-Afríkumönnum hefði verið veitt aðild að FIFA þrátt fyrir kynþáttaaðskilnaðarstefnuna í landinu. Ákváðu ríki álfunnar því að sniðganga mótið. FIFA féllst á að vísa Suður-Afríku á dyr en allt kom fyrir ekki. Frá og með HM 1970 var Afríku tryggt sæti. Þrátt fyrir sniðgönguna var metfjöldi þjóða sem tók þátt í undankeppninni.

LukkudýrBreyta

World Cup Willie var fyrsta lukkudýr HM-sögunnar. Það var teiknimyndaljón í treyju með breska fánanum og áletruninni football yfir brjóstinu að sparka í bolta. Var þetta eitt fyrsta dæmið um slíkt lukkudýr í tengslum við íþróttakeppni.

ÞátttökuliðBreyta

Sextán þjóðir mættu til leiks frá fjórum heimsálfum.

LeikvangarBreyta

Átta vellir voru notaður á HM og var enginn þeirra nýr eða sérbyggður fyrir keppnina. Þannig var Wembley-leikvangurinn yngstur, byggður árið 1923. Flytja þurfti viðureign Úrúgvæ og Frakklands frá Wembley þar sem leikvangurinn var upptekinn fyrir hundaveðhlaup á keppnisdeginum. Wembley hýsti flesta leikina, níu í allt, þar af allar viðureignir heimamanna.

London Birmingham
Wembley White City Stadium Villa Park
Áhorfendur:98,600 Áhorfendur:76,567 Áhorfendur:52,000
     
Liverpool Manchester
Goodison Park Old Trafford
Áhorfendur:50,151 Áhorfendur:58,000
   
Sheffield Sunderland Middlesbrough
Hillsborough Stadium Roker Park Ayresome Park
Áhorfendur:42,730 Áhorfendur:40,310 Áhorfendur:40,000
     

KeppninBreyta

RiðlakeppninBreyta

Keppt var í fjórum riðlum með fjórum liðum í hverjum.

Riðill 1Breyta

Eitt einkenni HM 1966 var að þátttökuliðin léku flest mun varfærnari leikaðferð og lögðu meiri áherslu á agaðan varnarleik en tíðkast hafði í fyrri keppnum. Það sást greinilega í riðli gestgjafanna. Englendingar fóru auðveldlega upp úr riðlinum án þess að fá á sig mark. Úrúgvæ fylgdi þeim í fjórðungsúrslitin.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.hlutf Stig
1   England 3 2 1 0 4 0 - 5
2   Úrúgvæ 3 1 2 0 2 1 2,00 4
3   Mexíkó 3 0 2 1 1 3 0,33 2
4   Frakkland 3 0 1 2 2 5 0,40 1

11. júlí - Wembley, London

  •   England 0 : 0   Úrúgvæ

13. júlí - Wembley, London

  •   Frakkland 1 : 1   Mexíkó

15. júlí - White City Stadium, London

  •   Úrúgvæ 2 : 1   Frakkland

16. júlí - Wembley, London

  •   England 2 : 0   Mexíkó

19. júlí - Wembley, London

  •   Mexíkó 0 : 0   Úrúgvæ

20. júlí - Wembley, London

  •   England 2 : 0   Frakkland

Riðill 2Breyta

Vestur-Þjóðverjar og Argentínumenn höfðu lítið fyrir að komast í fjórðungsúrslitin. FIFA áminnti þó argentínska liðið fyrir grófan leik, einkum í viðureigninni gegn Vestur-Þýskalandi. Sigur Þjóðverja á Svisslendingum, 5:0, reyndist sá stærsti í keppninni.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.hlutf Stig
1   Vestur-Þýskaland 3 2 1 0 7 1 7,00 5
2   Argentína 3 2 1 0 4 1 4,00 5
3   Spánn 3 1 0 2 4 5 0,80 2
4   Sviss 3 0 0 3 1 9 0,11 0

12. júlí - Hillsborough Stadium, Sheffield

  •   Vestur-Þýskaland 5 : 0   Sviss

13. júlí - Villa Park, Birmingham

  •   Argentína 2 : 1   Spánn

15. júlí - Hillsborough Stadium, Sheffield

  •   Spánn 2 : 1   Sviss

16. júlí - Villa Park, Birmingham

  •   Argentína 0 : 0   Vestur-Þýskaland

19. júlí - Hillsborough Stadium, Sheffield

  •   Argentína 2 : 0   Sviss

20. júlí - Villa Park, Birmingham

  •   Vestur-Þýskaland 2 : 1   Spánn

Riðill 3Breyta

Brasilíumenn mættu til leiks sem tvöfaldir heimsmeistarar með Garrincha og Pelé, báða í fullu fjöri. Velgengnin reyndist þó tvíeggjað sverð. Öfugt við fyrri keppnir fóru stjórnarmenn í brasilíska knattspyrnusambandinu að hlutast til um valið á liðinu og gerð var krafa til að öll helstu félög landsins ættu fulltrúa. Ómarkviss undirbúningur og leikmannahópur með of mörgum miðlungsmönnum og mönnum sem komnir voru af léttasta skeiði reyndist taka sinn toll. Brasilíumenn féllu úr keppni eftir að hafa tapað fyrir bæði Ungverjum og spútnikliði Portúgala sem mætti til leiks á sitt fyrsta heimsmeistaramót. Markahrókurinn Eusébio skoraði tvívegis í lokaleiknum gegn Brasilíumönnum.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.hlutf Stig
1   Portúgal 3 3 0 0 9 2 4,50 6
2   Ungverjaland 3 2 0 1 7 5 1,40 4
3   Brasilía 3 1 0 2 4 6 0,67 2
4   Búlgaría 3 0 0 3 1 8 0,13 0

12. júlí - Goodison Park, Liverpool

  •   Brasilía 2 : 0   Búlgaría

13. júlí - Old Trafford, Manchester

  •   Portúgal 3 : 1   Ungverjaland

15. júlí - Goodison Park, Liverpool

  •   Ungverjaland 3 : 1   Brasilía

16. júlí - Old Trafford, Manchester

  •   Portúgal 3 : 0   Búlgaría

19. júlí - Goodison Park, Liverpool

  •   Portúgal 3 : 1   Brasilía

20. júlí - Old Trafford, Manchester

  •   Ungverjaland 3 : 1   Búlgaría

Riðill 4Breyta

Einhver óvæntustu úrslit knattspyrnusögunnar sáu dagsins ljós þegar Norður-Kóreumenn fóru áfram á kostnað Ítala eftir 1:0 sigur. Norður-Kórea varð þannig fyrsta liðið utan Evrópu og Suður-Ameríku til að komast upp úr riðlakeppninni. Tuttugu ár áttu eftir að líða uns Marokkó lék sama leik á HM 1986. Sovétmenn unnu alla leiki sína í riðlinum og hlutu toppsætið.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.hlutf Stig
1   Sovétríkin 3 3 0 0 9 2 4,50 6
2   Norður-Kórea 3 1 1 1 2 4 0,50 3
3   Ítalía 3 1 0 2 2 2 1,00 2
4   Síle 3 0 1 2 2 5 0,40 1

12. júlí - Ayresome Park, Middlesbrough

  •   Sovétríkin 3 : 0   Norður Kórea

13. júlí - Roker Park, Sunderland

  •   Ítalía 2 : 0   Síle

15. júlí - Ayresome Park, Middlesbrough

  •   Síle 1 : 1   Norður Kórea

16. júlí - Roker Park, Sunderland

  •   Sovétríkin 1 : 0   Ítalía

19. júlí - Ayresome Park, Middlesbrough

  •   Norður Kórea 1 : 0   Ítalía

20. júlí - Roker Park, Sunderland

  •   Sovétríkin 2 : 1   Síle

FjórðungsúrslitBreyta

Einhver magnaðasta viðureign í sögu HM leit dagsins ljós á Goodison Park þar sem Portúgalir lentu 0:3 undir en unnu að lokum spútniklið Norður-Kóreu 5:3. Vestur-Þjóðverjar unnu Úrúgvæ sannfærandi eftir að Suður-Ameríkuliðið missti tvo leikmenn af velli. Dómarinn þurfti einnig að grípa til brottvísunar í leik Englands og Argentínu. Antonio Rattín var rekinn af velli en vegna tungumálaörðugleika reyndist dómaranum erfitt að gera honum það skiljanlegt. Í kjölfarið kviknaði sú hugmynd að útbúa gul og rauð spjöld til að nota í milliríkjaleikjum. Sovétmenn voru svo fjórða liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.

23. júlí - Goodison Park, Liverpool

  •   Portúgal 5 : 3   Norður Kórea

23. júlí - Hillsborough Stadium, Sheffield

  •   Vestur-Þýskaland 4 : 0   Úrúgvæ

23. júlí - Roker Park, Sunderland

  •   Sovétríkin 2 : 1   Ungverjaland

23. júlí - Wembley, London

  •   England 1 : 0   Argentína

UndanúrslitBreyta

Öll undanúrslitaliðin voru frá Evrópu. Viðureignunum var víxlað frá því sem ætlað var til þess að gestgjafarnir léku á Wembley. Báðar viðureignir fóru 2:1.

25. júlí - Goodison Park, Liverpool

  •   Vestur-Þýskaland 2 : 1   Sovétríkin

26. júlí - Wembley, London

  •   England 2 : 1   Portúgal

BronsleikurBreyta

Eusébio skoraði sitt níunda mark í keppninni og var langmarkahæstur. Portúgal hlaut bronsverðlaunin, sem var besti árangur nýliða í keppninni frá árinu 1934.

28. júlí - Wembley, London, áh. 87.696

  •   Portúgal 2 : 1   Sovétríkin

ÚrslitaleikurBreyta

Vestur-Þjóðverjar jöfnuðu í blálokin af venjulegum leiktíma, 2:2 svo grípa þurfti til framlengingar. Englendingar náðu forystunni með umdeildu marki Geoff Hurst, en töldu margir að boltinn hefði í raun ekki farið yfir marklínuna. Hurst fullkomnaði svo þrennu sína í blálokin og er enn í dag eini maðurinn sem skorað hefur þrjú mörk í úrslitaleik.

29. júlí - Wembley, London, áh. 96.924

  •   England 4 : 2   Vestur-Þýskaland (e.framl.)

Markahæstu leikmennBreyta

Eusébio var langmarkahæsti maður mótsins með níu mörk. Alls skoruðu 47 leikmenn samtals 89 mörk á mótinu, þar af tvö sjálfsmörk.

9 mörk

6 mörk

4 mörk

3 mörk