Suðvesturkjördæmi
Suðvesturkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það er fjölmennasta kjördæmið og mun hafa fjórtán sæti á Alþingi eftir næstu alþingiskosningar, þar af tvö jöfnunarsæti. Í kjördæminu eru öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins utan Reykjavíkur sem áður voru hluti af Reykjaneskjördæmi. Það var búið til með nýrri kjördæmaskipan árið 2000, en fyrst var kosið samkvæmt þeirri skipan í Alþingiskosningum 2003. Kjördæmið er stundum kallað Kraginn vegna þess hvernig það umlykur Reykjavík.
Þingmenn
|
|
---|---|
Mannfjöldi | 107.283 (2024) |
Sveitarfélög | 6 |
Kjósendur
|
|
Kjörsókn | 81,1% (2021) |
Núverandi þingmenn | |
Upphaflega var ákveðið að ellefu þingsæti skyldu fylgja kjördæminu, níu kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti. Í fyrstu kosningunum þar sem notast var við nýju kjördæmaskipunina (2003) voru tvöfalt fleiri kjósendur að baki hverju þingsæti í Suðvesturkjördæmi en voru í Norðvesturkjördæmi og því virkjaðist ákvæði stjórnarskrár um að færa þingsæti á milli kjördæma til að jafna muninn. Í kosningunum 2007 var kjördæmissætum í Suðvesturkjördæmi því fjölgað um eitt á kostnað Norðvesturkjördæmis. Sama staða kom upp í kosningunum 2009 og því var annað kjördæmissæti flutt á milli þessara sömu kjördæma fyrir kosningarnar 2013. Þetta gerðist svo í þriðja sinn í kosningunum 2021 og aftur fluttist kjördæmissæti frá Norðvesturkjördæmi til Suðvesturkjördæmis fyrir kosningarnar 2024.
Frá upptöku núverandi kjördæmaskipunar hefur Suðvesturkjördæmi verið sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins sem hefur sex sinnum haft fyrsta þingmann þess en Samfylkingin einu sinni.
Sveitarfélög
breytaÍ kjördæminu eru eftirfarandi sveitarfélög (íbúafjöldi 2021 í sviga):
- Kópavogur (39.335)
- Hafnarfjörður (30.616)
- Garðabær (19.088)
- Mosfellsbær (13.403)
- Seltjarnarnes (4.572)
- Kjósarhreppur (269)
Landfræðilega skiptist kjördæmið í fjóra aðgreinda búta þar sem Kjósarhreppur og Seltjarnarnes eiga ekki mörk að öðrum sveitarfélögum kjördæmisins auk þess sem Krýsuvíkurland Hafnarfjarðar liggur ekki að landi annarra sveitarfélaga í kjördæminu.
Kosningatölfræði
breytaKosningar | Kjósendur á kjörskrá |
Breyting | Greidd atkvæði |
Kjörsókn | Utankjörfundar- atkvæði |
Þingsæti | Kjósendur á hvert þingsæti |
Vægi[1] | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Fjöldi | Hlutfall greiddra | ||||||||
2003 | 48.842 | á ekki við | 43.246 | 88,5% | 3.979 | 9,2% | 11 | 4.440 | 76% |
2007 | 54.584 | 5.742 | 45.989 | 84,3% | 5.211 | 11,3% | 12 | 4.549 | 77% |
2009 | 58.202 | 3.618 | 50.315 | 86,4% | 5.624 | 11,2% | 12 | 4.850 | 75% |
2013 | 63.125 | 4.923 | 52.048 | 82,5% | 8.493 | 16,3% | 13 | 4.856 | 78% |
2016 | 68.240 | 5.115 | 54.667 | 80,1% | 8.496 | 15,5% | 13 | 5.249 | 75% |
2017 | 69.544 | 1.304 | 57.255 | 82,3% | 10.923 | 19,1% | 13 | 5.350 | 74% |
2021 | 73.729 | 4.185 | 59.820 | 81,1% | 15.184 | 25,4% | 13 | 5.671 | 71% |
2024 | 79.052 | 5.323 | - | - | - | - | 14 | 5.647 | 75% |
[1] Vægi atkvæða í Suðvesturkjördæmi miðað við vægi atkvæða á landsvísu. | |||||||||
Heimild: Hagstofa Íslands |