Sigmar Guðmundsson

íslenskur stjórnmálamaður og fyrrum fjölmiðlamaður

Sigmar Guðmundsson (f. 7. apríl 1969) er alþingismaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Hann starfaði um árabil í fjölmiðlum en var kjörinn á þing í alþingiskosningunum 2021.

Sigmar Guðmundsson (SGuðm)
Alþingismaður
frá  kjördæmi    þingflokkur
2021  Suðvestur  Viðreisn
Persónulegar upplýsingar
Fæddur7. apríl 1969 (1969-04-07) (55 ára)
Akranes
StjórnmálaflokkurViðreisn
MakiJúlíana Einarsdóttir
Börn5
Æviágrip á vef Alþingis

Á menntaskólaárum tók Sigmar þátt í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi (Morfís) fyrir hönd Fjölbrautaskólans í Garðabæ og var valinn ræðumaður Íslands árin 1988 og 1990. Fjölmiðlaferil sinn hóf hann í útvarpi á X-inu og Aðalstöðinni, en hefur frá miðbiki tíunda áratugsins að mestu unnið á RÚV fyrir utan tveggja ára vistar á Stöð 2 um aldamótin.[1] Innan veggja RÚV starfaði Sigmar við ýmsa dagskrárgerð, til að mynda sem blaðamaður í Kastljósi og spyrill í Gettu Betur árin 2006-2008 og í Útsvari árin 2007-2017 (ásamt Þóru Arnórsdóttur). Hann sá um þættina Okkar á milli á RÚV og Morgunútvarp Rásar 2.

Eftir 30 ár í fjölmiðlum og þar af 23 ár á RÚV ákvað Sigmar að söðla um og bjóða sig fram til Alþingis fyrir hönd Viðreisnar árið 2021. [2]

Tilvísanir

breyta
  1. „Skaphundur sem er hættur að móðga fólk“. K100. Sótt 10. apríl 2020.
  2. „Öfgalaus maður sem vill samfélaginu vel“ Vísir, skoðað 27/5 2021
   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.