Gunnar Birgisson
Gunnar Ingi Birgisson (fæddur 30. september 1947 í Reykjavík; d. 14. júní 2021) var alþingismaður, bæjarstjóri Kópavogs og bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Gunnar Ingi Birgisson | |||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Alþingismaður | |||||||||||||
| |||||||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||||||
Fæddur | 30. september 1947 Reykjavík | ||||||||||||
Látinn | 14. júní 2021 (73 ára) | ||||||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Nám
breytaGunnar tók stúdentspróf frá MR 1972 og lauk prófi í verkfræði frá HÍ 1977. Hann fór til Edinborgar og útskrifaðist með M.Sc.-próf í byggingaverkfræði frá Heriot-Watt University árið 1978. Hann lauk doktorsprófi í jarðvegsverkfræði frá University of Missouri í Bandaríkjunum 1983.
Stjórnmálaferill
breytaGunnar var formaður bæjarráðs Kópavogs frá 1990 til 2005 þegar hann tók við embætti bæjarstjóra. Hann var alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi og síðar Suðvesturkjördæmi frá 1999 til 2006 þegar hann vék af þingi vegna bæjarstjórastarfa í Kópavogi árið 2005 og Sigurrós Þorgrímsdóttir tók sæti hans árið 2006. Gunnar var bæjarstjóri í Kópavogi til 2009. Gunnar var ráðinn bæjarstjóri Fjallabyggðar í janúar 2015 og gegndi því starfi til 2019. Hann gegndi einnig tímabundið starfi sveitarstjóra Skaftárhrepps árið 2020.
Heimildir
breyta- „Alþingi - Æviágrip: Gunnar Birgisson“. Sótt júní 2007.
Tenglar
breyta- Vefur Gunnars Birgissonar Geymt 22 júlí 2011 í Wayback Machine
Fyrirrennari: Hansína Á. Björgvinsdóttir |
|
Eftirmaður: Gunnsteinn Sigurðsson | |||
Fyrirrennari: Sigurður Valur Ásbjarnarson |
|
Eftirmaður: Elías Pétursson |