Siv Friðleifsdóttir
Siv Friðleifsdóttir (f. í Ósló 10. ágúst 1962), skírð Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir, er fyrrum alþingismaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Siv er hálf-norsk.
Siv Friðleifsdóttir (SF) | |
Siv Friðleifsdóttir | |
Fæðingardagur: | 10. ágúst 1962 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Ósló |
6. þingmaður Suðvesturkjördæmis | |
Flokkur: | Framsóknarflokkurinn |
Nefndir: | Allsherjar- og menntamálanefnd, Íslandsdeild Norðurlandaráðs |
Þingsetutímabil | |
1995-2003 | í Reykn. fyrir Framsfl. ✽ |
2003-2007 | í Suðvest. fyrir Framsfl. ✽ |
2007-2009 | í Suðvest. fyrir Framsfl. |
2009-2013 | í Suðvest. fyrir Framsfl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2004-2006 | Formaður félagsmálanefndar |
1999-2004 | Umhverfisráðherra |
2006-2007 | Heilbrigðisráðherra |
2007-2009 | Þingflokksformaður |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Siv sat á Alþingi frá árinu 1995 til 2013; fyrst fyrir Reykjaneskjördæmi 1995-2003 og fyrir Suðvesturkjördæmi frá 2003. Hún var umhverfisráðherra 1999-2004 og heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra 2006-2007. Siv var þingflokksformaður Framsóknarflokksins 2007-2009.
Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1982 og BS-prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1985. Siv starfaði hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og Sjúkraþjálfun Reykjavíkur áður en hún settist á þing.
Siv var bæjarfulltrúi Neslistans á Seltjarnarnesi á árunum 1990-1998 og varð fyrst kvenna formaður Sambands ungra framsóknarmanna árið 1990 og gegndi formennsku í tvö ár, til 1992.
Tenglar
breyta- Heimasíða Sivjar Geymt 5 febrúar 2007 í Wayback Machine
- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
- Siv Friðleifsdóttir; grein í DV 2002
- Viðtal við Siv Friðleifsdóttur Geymt 10 mars 2007 í Wayback Machine, í tímaritinu Reykjavík Grapevine
Fyrirrennari: Guðmundur Bjarnason |
|
Eftirmaður: Sigríður Anna Þórðardóttir | |||
Fyrirrennari: Jón Kristjánsson |
|
Eftirmaður: Guðlaugur Þór Þórðarson |