Karlsverðlaunin

friðarverðlaun í Evrópu

Karlsverðlaunin (þýska: Der Karlspreis) er friðarverðlaun sem veitt eru árlega í þýsku borginni Aachen. Karlsverðlaunin eru friðarverðlaun sem veitt eru fólki sem skarað hefur framúr í þágu friðar í Evrópu. Stofnað var til verðlaunanna í keisaraborginni Aachen í Þýskalandi 1950 og heita þau eftir Karlamagnúsi, en Aachen var keisarasetur hans.

Bill Clinton tekur við Karlsverðlaununum árið 2000

Veiting verðlaunanna

breyta

Verðlaunin eru veitt á uppstigningardegi ár hvert og er ekki endilega tengd einum einstaklingi, heldur getur hópur manna eða jafnvel dauðir hlutir hlotið verðlaunin. Verðlaunaafhendingin fer fram í krýningarsal ráðhússins og er það borgarstjórinn í Aachen sem þau veitir. Verðlaunin hafa ekki verið veitt hvert ár. Þannig voru þau ekki veitt 1956, 1962, 1965, 1968, 1971, 1974, 1975, 1980, 1983, 1985 og 2021. Árin 1988 og 2004 hlutu tveir aðilar verðlaunin.

Verðlaunahafar

breyta
Ár Verðlaunahafi Ath.
1950 Richard Nikolaus Coudenhove-Kalergi Austurrískur stjórnmálamaður, einn af stofnendum ES
1951 Hendrik Brugmans Hollenskur stjórnmálamaður, einn af stofnendum ES
1952 Alcide de Gasperi Ítalskur stjórnmálamaður, einn af stofnendum ES
1953 Jean Monnet Franskur framkvæmdamaður, einn af stofnendum ES
1954 Konrad Adenauer Kanslari Vestur-Þýskalands
1955 Winston Churchill Fyrrum forsætisráðherra Bretlands
1957 Paul-Henri Spaak Belgískur stjórnmálamaður
1958 Robert Schuman Forsætisráðherra Frakklands
1959 George C. Marshall Bandarískur stjórnmálamaður, framkvæmdaraðili Marshalláætlunarinnar
1960 Joseph Bech Stjórnmálamaður frá Lúxemborg, einn af stofnendum ES
1961 Walter Hallstein Þýskur stjórnmálamaður
1963 Edward Heath Forsætisráðherra Bretlands
1964 Antonio Segni Ítalskur stjórnmálamaður
1966 Jens Otto Krag Danskur stjórnmálamaður
1967 Joseph Luns Utanríkisráðherra Hollands
1969 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
1970 François Seydoux de Clausonne Franskur diplómati
1972 Roy Jenkins Breskur stjórnmálamaður
1973 Salvador de Madariaga Spænskur diplómati
1976 Leo Tindemans Forsætisráðherra Hollands
1977 Walter Scheel Forseti Vestur-Þýskalands
1978 Konstantinos Karamanlis Forsætisráðherra Grikklands
1979 Emilio Colombo Ítalskur stjórnmálamaður, forseti Evrópuþingsins
1981 Simone Veil Frönsk stjórnmálakona
1982 Jóhann Karl Spánarkonungur
1984 Karl Carstens Forseti Vestur-Þýskalands
1986 Íbúar Lúxemborgar
1987 Henry Kissinger Utanríkisráðherra Bandaríkjanna
1988 François Mitterrand Forseti Frakklands
1988 Helmut Kohl Kanslari Þýskalands
1989 Bróðir Roger Munkur og stofnandi nýrrar reglu
1990 Gyula Horn Forsætisráðherra Ungverjalands
1991 Václav Havel Forseti Tékklands
1992 Jacques Delors Stjórnmálamaður ES
1993 Felipe González Forsætisráðherra Spánar
1994 Gro Harlem Brundtland Forsætisráðherra Noregs
1995 Franz Vranitzky Kanslari Austurríkis
1996 Beatrix Drottning Hollands
1997 Roman Herzog Forseti Þýskalands
1998 Bronisław Geremek Utanríkisráðherra Póllands
1999 Tony Blair Forsætisráðherra Bretlands
2000 Bill Clinton Forseti Bandaríkjanna
2001 György Konrád Ungverskur rithöfundur
2002 Evran Gjaldmiðill ES
2003 Valéry Giscard d’Estaing Fyrrum forseti Frakklands
2004 Jóhannes Páll II Páfi
2004 Pat Cox Írskur stjórnmálamaður ES
2005 Carlo Azeglio Ciampi Forseti Ítalíu
2006 Jean-Claude Juncker Forsætisráðherra Lúxemborgar
2007 Javier Solana Fyrrum aðalritari NATO og stjórnmálamaður ES
2008 Angela Merkel Kanslari Þýskalands
2009 Andrea Riccardi Ítalskur guðfræðingur
2010 Donald Tusk Forsætisráðherra Póllands
2011 Jean-Claude Trichet Stjórnarformaður Seðlabanka Evrópu
2012 Wolfgang Schäuble Fjármálaráðherra Þýskalands
2013 Dalia Grybauskaitė Forseti Litháen
2014 Herman Van Rompuy Forseti evrópska ráðsins
2015 Martin Schulz Forseti Evrópuþingsins
2016 Frans Páfi
2017 Timothy Garton Ash Breskur sagnfræðingur
2018 Emmanuel Macron Forseti Frakklands
2019 António Guterres Aðalritari Sameinuðu þjóðanna
2020 Klaus Werner Iohannis Forseti Rúmeníu
2022 Svjatlana Tsíkhanoúskaja, María Kalesníkava, Veraníka Tsepkalo Stjórnarandstæðingar í Hvíta-Rússlandi
2023 Volodymyr Zelenskyj Forseti Úkraínu, og úkraínsku þjóðarinnar
2024 Pinchas Goldschmidt og samfélag Gyðinga í Evrópu

Heimildir

breyta

Fyrirmynd greinarinnar var „Karlspreis“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt apríl 2010.