Gettu betur

spurningakeppni íslenskra framhaldsskóla og sjónvarpsþáttur

Gettu betur er spurningakeppni íslenskra framhaldsskóla sem Ríkisútvarpið stendur fyrir árlega. Hver framhaldsskóli getur sent eitt lið í keppnina, sem skipað er þremur nemendum við skólann. Undankeppni fer fram í útvarpi og að henni lokinni halda átta lið áfram í útsláttarkeppni í sjónvarpinu.

Gettu betur
TegundSpurningaþáttur
ÞróunAndrés Indriðason
LeikstjóriHelgi Jóhannesson
KynnirJón Gústafsson & Þorgeir Ástvaldsson (1986)
Hermann Gunnarsson (1987)
Vernharður Linnet (1988-1989)
Steinunn Sigurðardóttir (1990)
Stefán Jón Hafstein (1991-1994)
Ómar Ragnarsson (1995)
Davíð Þór Jónsson (1996-1998)
Logi Bergmann Eiðsson (1999-2005)
Sigmar Guðmundsson (2006-2008)
Eva María Jónsdóttir (2009-2010)
Edda Hermannsdóttir (2011-2013)
Björn Bragi Arnarsson (2014-2018)
Kristjana Arnarsdóttir (2019-2023)
Kristinn Óli Haraldsson (2024-)
Höfundur stefsMagnús Kjartansson
Framleiðsla
FramleiðandiAndrés Indriðason (1991–2012); Elín Sveinsdóttir (2013–)
StaðsetningRÚV, Reykjavík, Íslandi
Lengd þáttarRúmlega 60 mínútur
Útsending
Upprunaleg sjónvarpsstöðRÚV
Sýnt1986 –
Tenglar
Vefsíða

Saga keppninnar

breyta

Keppnin var fyrst haldin árið 1986 og hefur farið fram árlega síðan þá. Keppnin hefur verið einn vinsælasti dagskrárliður Ríkisútvarpsins frá upphafi. Umsjónarmaður keppninnar frá 1991 til ársins 2012 var Andrés Indriðason og á eftir honum tók Elín Sveinsdóttir við því hlutverki. Núverandi umsjónarmaður keppninnar er Ragnar Eyþórsson.

Forkeppnin hefst í janúar ár hvert og fer fram í útvarpi. Að tveimur umferðum loknum eru átta lið eftir og heldur keppnin áfram í sjónvarpssal. Árið 2009 var metár í sögu Gettu betur. Þá tók alls 31 skóli þátt og hafa þeir aldrei verið fleiri.

Alls hafa ellefu skólar unnið keppnina og er Menntaskólinn í Reykjavík sá sigursælasti. Næst á eftir koma Menntaskólinn á Akureyri og Kvennaskólinn í Reykjavík með þrjá sigra hvor. Því næst eru Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verzlunarskóli Íslands með tvo sigra hvor. Eru þetta einu skólarnir sem hafa unnið keppnina oftar en einu sinni.

Spyrill stendur fyrir miðju og ber upp spurningarnar. Oft er starf spyrils í höndum einhvers þjóðþekkts einstaklings. Dómarinn semur spurningarnar og dæmir svörin. Frá upphafi hefur stigavörður setið á vinstri hönd dómara og talið stigin. Fyrir keppnina árið 2012 var ákveðið að leggja niður stigavarðarembættið og hafa í stað þess tvo dómara. Árið 2013 var ákvörðun tekin um að kynjakvóti skyldi settur og tók hann í gildi árið 2015.

Fyrir keppnina 2020 varð sérkeppni sem nefndist Gettu Betur - Stjörnustríð. Þetta gaf góða raun og var endurtekið árið eftir fyrir sjónvarpskeppnina.

Gettu betur fór ekki varhluta af Covid-19 faraldrinum. Allt stefndi í að úrslitin 2020 yrðu haldin án áhorfenda, en svo fór að hvort lið fékk að hafa nokkra í salnum. Útvarpshluti keppninnar 2021 fór ekki fram á Markúsartorgi, eins og venjan hefur verið árin á undan, heldur í hljóðveri 12. Vegna fjöldatakmarkanna var þessi hluti keppninnar áhorfendalaus.

Yfirlit

breyta
Menntaskólinn við HamrahlíðMenntaskólinn í ReykjavíkVerzlunarskóli ÍslandsMenntaskólinn í ReykjavíkKvennaskólinn í ReykjavíkFjölbrautaskólinn í GarðabæKvennaskólinn í ReykjavíkMenntaskólinn í ReykjavíkMenntaskólinn við HamrahlíðMenntaskólinn í ReykjavíkKvennaskólinn í ReykjavíkMenntaskólinn í ReykjavíkMenntaskólinn á AkureyriBorgarholtsskóliVerzlunarskóli ÍslandsMenntaskólinn í ReykjavíkMenntaskólinn á AkureyriMenntaskólinn við SundMenntaskólinn í KópavogiMenntaskólinn í ReykjavíkFjölbrautaskólinn í BreiðholtiFjölbrautarskóli Suðurlands
Röð Ár Spyrill Dómari Stigavörður Sigurvegari Annað sæti Lokatölur
1 1986 Jón Gústafsson & Þorgeir Ástvaldsson Steinar J. Lúðvíksson Halldór Friðrik Þorsteinsson & Jón Gunnar Jónsson Fjölbrautaskóli Suðurlands Flensborgarskólinn í Hafnarfirði 43-41
2 1987 Vernharður Linnet (forkeppni),
Hermann Gunnarsson & Elísabet Sveinsdóttir
Steinar J. Lúðvíksson &
Sæmundur Guðvinsson
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Menntaskólinn við Sund 54-53
3 1988 Vernharður Linnet &
Kristín Pálsdóttir
Páll Lýðsson Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Sund 37-28
4 1989 Vernharður Linnet Páll Lýðsson Jón Atli Jónasson & Oddný Eir Ævarsdóttir;
Atli Rafn Sigurðarson & Þórdís Eyvör Valdimarsdóttir
Menntaskólinn í Kópavogi Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 32-24
5 1990 Steinunn Sigurðardóttir Sonja B. Jónsdóttir &
Magdalena Schram (til skiptis)
Jón Atli Jónasson & Oddný Eir Ævarsdóttir Menntaskólinn við Sund Verzlunarskóli Íslands 39-18
6 1991 Stefán Jón Hafstein Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Oddný Eir Ævarsdóttir Menntaskólinn á Akureyri Flensborgarskólinn í Hafnarfirði 29-15
7 1992 Sigurður Þór Salvarsson (forkeppni),
Stefán Jón Hafstein
Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Menntaskólinn á Akureyri Verkmenntaskólinn á Akureyri 29-21
8 1993 Álfheiður Ingadóttir Sólveig Samúelsdóttir Menntaskólinn í Reykjavík Verzlunarskóli Íslands 30-26
9 1994 Stefán Jón Hafstein Ólafur Bjarni Guðnason Menntaskólinn í Reykjavík Verzlunarskóli Íslands 36-24
10 1995 Ómar Ragnarsson Ólafur Bjarni Guðnason Menntaskólinn í Reykjavík Verzlunarskóli Íslands 39-32
11 1996 Davíð Þór Jónsson Helgi Ólafsson Menntaskólinn í Reykjavík Flensborgarskólinn í Hafnarfirði 34-17
12 1997 Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Katrín Jakobsdóttir Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð
13 1998 Gunnsteinn Ólafsson Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð 32-29
14 1999 Logi Bergmann Eiðsson Illugi Jökulsson Þóra Arnórsdóttir Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð 26-24
15 2000 Ólína Þorvarðardóttir Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð 32-24
16 2001 Ármann Jakobsson Menntaskólinn í Reykjavík Borgarholtsskóli 37-36 (bráðabani)
17 2002 Eggert Þór Bernharðsson Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Sund 22-18
18 2003 Sveinn H. Guðmarsson Svanhildur Hólm Valsdóttir Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Sund 35-22
19 2004 Stefán Pálsson Steinunn Vala Sigfúsdóttir Verzlunarskóli Íslands Borgarholtsskóli 23-21 (bráðabani)
20 2005 Steinunn Vala Sigfúsdóttir & Sólveig Samúelsdóttir Borgarholtsskóli Menntaskólinn á Akureyri 26-23
21 2006 Sigmar Guðmundsson Anna Kristín Jónsdóttir Steinunn Vala Sigfúsdóttir Menntaskólinn á Akureyri Verzlunarskóli Íslands 34-22
22 2007 Davíð Þór Jónsson Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Kópavogi 29-27 (bráðabani)
23 2008 Páll Ásgeir Ásgeirsson Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn á Akureyri 28-26 (bráðabani)
24 2009 Eva María Jónsdóttir Davíð Þór Jónsson Ásgeir Erlendsson Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð 28-25
25 2010 Örn Úlfar Sævarsson Menntaskólinn í Reykjavík Verzlunarskóli Íslands 30-28
26 2011 Edda Hermannsdóttir Marteinn Sindri Jónsson Kvennaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Reykjavík 22-21
27 2012 Örn Úlfar Sævarsson &
Þórhildur Ólafsdóttir
[a] Menntaskólinn í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík 23-22
28 2013 Atli Freyr Steinþórsson &
Þórhildur Ólafsdóttir
Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð 32-27
29 2014 Björn Bragi Arnarsson Margrét Erla Maack &
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Menntaskólinn við Hamrahlíð Borgarholtsskóli 27-18
30 2015 Menntaskólinn í Reykjavík Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 41-18
31 2016 Bryndís Björgvinsdóttir & Steinþór Helgi Arnsteinsson Menntaskólinn í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík 40-13
32 2017 Kvennaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð 35-31
33 2018 Bryndís Björgvinsdóttir, Vilhelm Anton Jónsson & Sævar Helgi Bragason Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Kvennaskólinn í Reykjavík 34-24
34 2019 Kristjana Arnarsdóttir Vilhelm Anton Jónsson, Ingileif Friðriksdóttir & Sævar Helgi Bragason Kvennaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Reykjavík 30-29
35 2020 Menntaskólinn í Reykjavík Borgarholtsskóli 24-12
36 2021 Laufey Haraldsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson & Sævar Helgi Bragason Verzlunarskóli Íslands Kvennaskólinn í Reykjavík 31-17
37 2022 Menntaskólinn í Reykjavík Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 31-26
38 2023 Laufey Haraldsdóttir & Jóhann Alfreð Kristinsson Menntaskólinn í Reykjavík Fjölbrautaskóli Suðurlands 36-25
39 2024 Kristinn Óli Haraldsson[1] Helga Margrét Höskuldsdóttir & Vilhjálmur Bragason Menntaskólinn við Hamrahlíð Menntaskólinn í Reykjavík 32-24
  1. Árið 2012 var embætti stigavarðar lagt niður og hafa síðan þá verið tveir spurningahöfundar og dómarar.

Besti árangur einstakra skóla

breyta

Sjá einnig

breyta

Tenglar

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. Signýjardóttir, Ástrós (21. desember 2023). „Kristjana hættir sem spyrill í Gettu betur - RÚV.is“. RÚV. Sótt 4. febrúar 2024.