Steinunn Sigurðardóttir (rithöfundur)

íslenskur rithöfundur og ljóðskáld

Steinunn Sigurðardóttir (26. ágúst 1950) er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Hún hlaut m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1995 fyrir skáldsögu sína Hjartastaður. Foreldrar hennar eru Sigurður Pálsson og Anna Margrét Kolbeinsdóttir.

Steinunn útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík 1968 og lauk heimspeki- og sálfræðinámi við University College í Dyflinni 1972. Hún gaf út sína fyrstu ljóðabók aðeins 19 ára gömul. Bækur hennar hafa verið þýddar á fjölda tungumála. Frönsk kvikmynd byggð á sögu hennar Tímaþjófnum kom út árið 1999.

Steinunn er nú búsett á Selfossi og í Berlín.

Ritverk

breyta

Barnabækur

breyta
  • Frænkuturninn (1998)

Íslenskar þýðingar

breyta
  • Listamaður niður stiga
  • Svarti prinsinn (1992)
  • Það varð hundurinn sem varð undir

Leikrit

breyta
  • Líkamlegt samband í norðurbænum (1982)
  • Bleikar slaufur (1985)

Ljóð

breyta
  • Sífellur (1969)
  • Þar og þá (1971)
  • Verksummerki (1979)
  • Kartöfluprinsessan (1987)
  • Kúaskítur og norðurljós (1991)
  • Hugástir (1999)
  • Ljóðasafn: frá Sífellum til Hugásta (2004)
  • Ástarljóð af landi (2007)
  • Af ljóði ertu komin (2016)
  • Að ljóði munt þú verða (2018)
  • Dimmumót (2019)

Smásögur

breyta
  • Sögur til næsta bæjar (1981)
  • Skáldsögur (1983)
  • Ástin fiskanna (1993)
  • Hundrað dyr í golunni (2002)

Skáldsögur

breyta
  • Tímaþjófurinn (1986)
  • Síðasta orðið (1990)
  • Hjartastaður (1995)
  • Hanami: sagan af Hálfdani Fergussyni (1997)
  • Jöklaleikhúsið (2001)
  • Sólskinshestur (2005)
  • Góði Elskhuginn (2009)
  • JóJó (2011)
  • Fyrir Lísu (2012)
  • Gæðakonur (2014)

Ævisögur og endurminningar

breyta
  • Ein á forsetavakt : dagar í lífi Vigdísar Finnbogadóttur (1988)
  • Heiða - fjalldalabóndinn (2016)

Tengt efni

breyta

Tenglar

breyta