Andrés Indriðason
Andrés Indriðason (7. ágúst 1941 í Reykjavík - 10. júlí 2020) var íslenskur barna- og unglingabókahöfundur og dagskrárgerðarmaður.[1]
Æska og menntun
breytaForeldrar hans voru Indriði Jóhannsson lögregluþjónn og Jóna Kristófersdóttir. Andrés stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi árið 1963. Hann stundaði síðar nám í ensku við Háskóla Íslands. Hann stundaði nám í kvikmyndagerð í Danmörku á árunum 1965-1966.
Störf
breytaAndrés starfaði sem enskukennari á árunum 1963-1965 og sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Þegar Sjónvarpið var stofnað árið 1965 hóf Andrés vinnu þar við dagskrágerð og starfaði þar til 1985. Eftir það helgaði Andrés sig aðallega ritstörfum. Bækur hans hafa verið gefnar út í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og Danmörku. Andrés var upphafsmaður þáttanna Gettu betur, sem eru eitt vinsælasta sjónvarpsefni RÚV frá upphafi.
Ritverk
breytaBarna-og unglingabækur
breyta- Lyklabarn (1979)
- Polli er ekkert blávatn (1981)
- Viltu byrja með mér (1982)
- Fjórtán bráðum fimmtán (1983)
- Töff týpa á föstu (1984)
- Bara stælar (1985)
- Elsku barn (1985)
- Þar var skræpa (1985)
- Enga stæla (1986)
- Með stjörnur í augum (1986)
- Stjörnustælar (1987)
- Upp á æru og trú (1987)
- Alveg milljón (1988)
- Ég veit hvað ég vil (1988)
- Sólarsaga (1989)
- Sprelligosar (1989)
- Manndómur (1990)
- Mundu mig ég man þig (1990)
- Bestu vinir (1991)
- Allt í besta lagi (1992)
- Tröll eru bestu skinn (1993)
- Bara okkar á milli (1994)
- Bara við tvö (1994)
- Líf í tuskunum (1994)
- Gallagripir (1995)
- ævintýralegt samband (1997)
- Eins og skugginn (1998)
- Jólasveinninn minn (2006)
Sviðsverk
breyta- Köttur út í mýri - var sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 1974.
- Aldrei er friður - sett upp hjá Leikfélagi Kópavogs árið 1981
Útvarpsleikrit
breyta- Elísabet - útvarpsleikhúsið 1974
- Fitubolla - útvarpsleikhúsið 1980
- Appelsínur - útvarpsleikhúsið 1982
- Fiðrildi - útvarpsleikhúsið 1982
- Draumaströndin - útvarpsleikhúsið 1984
- Fimmtudagskvöld - útvarpsleikhúsið 1984
- Greta Garbo fær hlutverk - útvarpsleikhúsið 1985
- Lögtak - útvarpsleikhúsið 1987
- Næturgestur - útvarpsleikhúsið 1987
- Sæluheimar - útvarpsleikhúsið 1988
- Maðkur í mysunni - útvarpsleikhúsið 1988
- Aldrei að víkja - útvarpsleikhúsið 1989
- Harðjaxlinn - útvarpsleikhúsið 1989
- Allt í sómanum - útvarpsleikhúsið 1991
- Ilmur - útvarpsleikhúsið 1993
- Allt hefur sinn tíma - útvarpsleikhúsið 1997
Kvikmyndahandrit og sjónvarpshandrit
breyta- Veiðiferðin (1980)
- Þessi blessuð börn (sjónvarpsleikrit 1984)
- Það var skræpa (sjónvarpsmynd eftir samnefndri lestrarbók, 1993)
- Líf í tuskunum
- Undir björtum himni
Heimildir
breyta- ↑ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir (11. júlí 2020). „Andrés Indriðason látinn“. Vísir.is. Sótt 11. júlí 2020.