Sveinn H. Guðmarsson
Sveinn H. Guðmarsson (fæddur 1974) er íslenskur fjölmiðlamaður og núverandi upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Hann er með BA-próf í guðfræði frá Háskóla Íslands og MSc í alþjóðastjórnmálum frá Edinborgarháskóla.
Sveinn var dómari í Gettu betur árið 2003, en var áður í sigurliði Menntaskólans í Reykjavík í sömu keppni árin 1993 og 1994. Hann var inspector scholae (formaður nemendafélags) MR veturinn 1993-1994. Þá leiddi hann lista Vöku í kosningum til Stúdentaráðs 1995.
Hann hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2 og í Sjónvarpinu, við blaðamennsku á Fréttablaðinu, sem fréttamaður á Stöð 2, ritstjóri Iceland Review og flugtímarisins Atlantica. Hann starfaði sem fréttaritari RÚV í Lundúnum til ársins 2009 og árið 2010 starfaði Sveinn sem upplýsingafulltrúi Unicef í Jemen. Hann var fréttamaður á RÚV þar til hann hóf störf sem upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni í lok árs 2016. Árið 2018 var hann ráðinn upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.
Á Rás 2 var Sveinn meðal annars umsjónarmaður hinnar árvissu Spurningakeppni fjölmiðlanna. Þá hefur hann sinnt dómargæslu og samið spurningar fyrir sjónvarpsþáttinn Útsvar á RÚV.
Sveinn býr á Seltjarnarnesi þar sem hann er uppalinn.