Menntaskólinn í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi, skammstafað MK, er íslenskur menntaskóli, staðsettur við Digranesveg í Kópavogi. Skólinn var settur í fyrsta sinn 22. september 1973 af Ingólfi A. Þorkelssyni, skólameistara 1973-1993. Í skólanum eru um 1300 nemendur, og skiptist skólinn í þrjár megindeildir, bóknáms-, matvæla- og ferðamálasvið. Skólameistari Menntaskólans í Kópsvogi er Guðríður Eldey Arnardóttir en hún tók við starfinu árið 2019 af Margréti Friðriksdóttur sem sinnti starfinu frá 1993 til 2019.
Skólastjóri | Guðríður Eldey Arnardóttir |
---|---|
Nemendafélag | NMK |
Staðsetning | Digranesvegi 51, 200 Kópavogur |
Gælunöfn | MK |
Gælunöfn nemenda | Mkóngar |
Heimasíða | mk.is |
Saga
breytaMenntaskólinn í Kópavogi var settur í fyrsta sinn 22. september 1973 af Ingólfi A. Þorkelssyni, skólameistara. Í fyrstu fór starfsemi skólans fram í viðbyggingu við Kópavogsskóla og voru nemendur alls 125 talsins í sex bekkjardeildum en kennt var eftir bekkjarkerfi. Árið 1982 var kennslukerfinu breytt og tekið upp svokallað kjarnakerfi sem var millileið milli bekkjakerfis og áfangakerfis og MK varð því menntaskóli með fjölbrautarsniði. Menntaskólinn í Kópavogi var til húsa í Kópavogsskóla fyrstu tíu árin en árið 1983 var starfsemi hans flutt í Víghólaskóla, það húsnæði er enn er notað og merkt sem A- álma, N- álma og S- álma. Árið 1996 reis glæsilegt verknámshús fyrir hótel- og matvælagreinar. Árið 2002 var tekin sú ákvörðun að rífa N-álmu skólans og byggja í hennar stað nýtt tveggja hæða bóknámshús auk sérbúinnar kennsluaðstöðu fyrir sérdeild skólans. Á 30 ára afmæli skólans 2003 var ný norðurálma tekin í notkun.
Félagslíf
breytaFramkvæmdaráð NMK
breytaFramkvæmdaráðið eða stjórn NMK sér um að félagslífið í MK sé sem best. Framkvæmdaráðið er skipað formanni nemendaráðs, varaformanni eða ritara, gjaldkera, margmiðlunarstjóra og nýnemafulltrúa. Stjórnin sér til þess að nefndirnar innan nemendafélagsins standi undir sínu og að það sé alltaf eitthvað um að vera í félagslífi skólans.
NMK var sett á fætur á sama tíma og skólinn sjálfur eða síðan 1973 og á þeim tíma hafa margri nemendur sinnt hlutverki formanns NMK
2020 - 2021, Egill Orri Elvarsson
2019 - 2020, Sigrún Júlía Ólafsdóttir
2018 - 2019, Snorri Sævar Konráðsson
2017 - 2018, Hrafn Ágúst Björnsson
2016 - 2017, Guðlaugur Þór Ingvason
2015 - 2016, Hilma Sól Friðriksdóttir
2014 - 2015, Arnar Örn Ingólfsson
2013 - 2014, Metúsalem Björnsson
2012 - 2013, Ólafur Ásgeir Jónsson
2011 - 2012, María Skúladóttir
2010 - 2011, Ómar Þór Arnarsson
2009 - 2010, Helga Rún Jónsdóttir
2008 - 2009, Sólrún Sigvaldadóttir
2007 - 2008, Unnar Freyr Jónsson
2006 - 2007, Hjörtur Atli Guðmunds. Geirdal
2005 - 2006, Hlynur Björnsson
2004 - 2005, William Óðinn Lefever
2003 - 2004, Ragnar Þorvarðarson
2002 - 2003, Sigmar Ingi Sigurðsson
2001 - 2002, Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir
2000 - 2001, Frosti Ólafsson
1999 - 2000, Pétur Ólafsson haustönn 1999 og Þorsteinn Valur Thorarensen vorönn 2000
1998 - 1999, Vignir Rafn Valþórsson
1997 - 1998, Bergur Sigfússon
1996 – 1997, Gissur Páll Gissurarson
1995 – 1996, Friðjón Fannar Hermansson
1994 – 1995, Snorri Freyr Dónaldsson
1993 – 1994, Hjalti Már Þórisson
1992 – 1993, Bjarni Þór Eyvindsson
1991 – 1992, Heimir Örn Herbertsson
1990 – 1991, Sveinn Sigurðsson
1989 – 1990, Páll Magnússon
1988 – 1989, Líf Bergþórsdóttir
1987 – 1988, Flosi Eiríksson
1986 – 1987, Haukur Guðmundsson
1985 – 1986, Jón Kristinn Snæhólm
1984 – 1985, Arnar Már Ólafsson
1983 – 1984, Sveinn Gíslason
1982 – 1983, Hulda Björnsdóttir
1981 – 1982, Arinbjörn V. Clausen
1980 - 1981, Andrés Pétursson
1979 – 1980, Hannes Þorsteinsson
1978 - 1979, Vilmar Pétursson
1977 – 1978, Kjartan Árnason
1976 – 1977, Ásgeir Friðgeirsson
1975 – 1976, Hafsteinn Karlsson
1974 – 1975, Tryggvi Felixson
1973 – 1974, Tryggvi M. Þórðarson
Sauðkindin
breytaLeikfélag NMK ber heitið Sauðkindin og sér um að setja upp leikrit ár hvert. Sauðkindin sér einnig um að halda spunanámskeið sem er upphitun fyrir Leiktu Betur, leikhússportkeppni framhaldsskólanna. Allir geta tekið þátt í spunanámskeiðum og áheyrnarprufur fyrir leikritið eru í lok haustannar. Á síðastliðnum árum hafa mörg velheppnuð verk verið sett upp, þar á meðal söngleikurinn Mamma Mia!, Börn mánans og Skítt með‘ða. Veturinn 1998–1999 var Fönkóperan Grettir sýnd í Félagsheimili Kópavogs og fóru Ágústa Eva Erlendsdóttir og Edgar Smári Atlason með aðalhlutverkin.
Tónlistarnefnd
breytaTónlistarnefnd NMK sér um að halda lagasmíðakeppni MK og MK Urpið sem er einn vinsælasti viðburður skólaársins. Það er söngkeppni skólans og sigurvegari keppninngar tekur þátt í söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd MK. Stjörnur eins og Emilíana Torrini og Þórey Heiðdal hafa borið sigur úr býtum.
Skemmtinefnd
breytaSkemmtinefnd sér um að halda skemmtileg böll til að lífga upp á félagslífið. Á hverri önn eru haldin 2-3 stór böll á vegum nemendafélagsins, fyrsta ballið er busaballið sem er haldið í lok busavígslunnar, einnig er haldið þemaball í tenglsum við tyllidagana á haustönn. Í byrjun vorannarinnar er Myrkramessan. Á vorönn er stærsta ballið árshátíðin en henni fylgir hátíðarmatur með kennurum og starfsmönnum skólans þar sem allir mæta í sínu fínasta pússi.
Listafj⅝elag
breytaListafjelag NMK sér um að halda ostakvöld og ýmis skemmtanir fyrir nemendur MK. Ostakvöld eru haldin í MK þar sem nemendur hittast, fá sér osta, snakk, gos og nammi og taka þátt, eða fylgjast með dagskránni. Ostakvöld eru haldin allt að einu sinni í mánuði og dagskráin er alltaf fjölbreytt. Það vinsælasta er stand-up grínistar, hljómsveitir og trúbadorar, pytturinn, speed-date og margt margt fleira.
Ritnefnd
breytaRitnefnd NMK sér um að gera skólablöðin fyrir NMK, ásamt því að sjá um leikskrá fyrir leikrit og fleiri minni tímarit. Sinfjötli er stórt skólablað sem kemur út á lok skólaársins.
Íþróttanefnd
breytaÍþróttanefnd MK eða ÍMK sér um að halda MK-deildina sem er skipulagt fótboltamót innan skólans. Þar skipa nemendur jaft sem kennarar sér í lið og keppa um sigursætið. ÍMK sér líka um að halda ýmis íþróttaviðburði eins og Street-Ball mót og hjólabrettaklúbb.
Askur og Embla
breytaAskur og Embla sér um Gettu betur ,Morfís og næstum allt sem tengist gáfum eða mælskulist.
Tyllidagar
breytaTyllidagar eru þemadagar MK-inga sem haldnir eru á haustönn. Tekið er tveggja daga frí frá skólanum til þess að gera ýmislegt annað skemmtilegt til þess að brjóta upp hið hversdagslega skólalíf.
BEMKÍGÁFER
breyta1993 var BEMKÍGÁF (Bekkjakeppni MK í gáfumannaleik) fyrst haldið að frumkvæði Jóhannes Birgis Jenssonar, spurningakeppni milli bekkja. Hún er enn við lýði og er árlegur atburður. Sama ár var tölvuleikjaklúbbur stofnaður, á þessum tíma var engin nettenging í skólanum og tölvukostur flestra heimavið mun verri en í skólanum. Þar sátu margir við um helgar og spiluðu tölvuleiki í tölvuverinu fram eftir nóttu, þökk sé liðsemi húsvarðar og tölvukennara.
MORMÍK
breytaHaustið 2004 var MORMÍK (Mælsku- og rökræðukeppni Menntaskólans í Kópavogi) fyrst haldin að frumkvæði Jóns Inga Stefánssonar, þáverandi forseta málfundafélags MK.
Gettu betur
breytaMenntaskólinn í Kópavogi hefur einu sinni unnið sigur í Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, árið 1989. Árin 2004 til 2006 skipuðu Jón Ingi Stefánsson og Víðir Smári Petersen liðið. Árið 2004 var liðsfélagi þeirra Egill Óskarsson, en árin 2005–2006 slóst Eiríkur Knudsson í hópinn. Leikárin 2007 og 2008 skipuðu liðið Andri Þorvarðarson, Eiríkur Knudsson og Ingvi Þór Sæmundsson. Árið 2009 skipuðu liðið Ingvi Þór Sæmundsson, Bjarni Þór Sigurbjörnsson og Unnur Hólmfríður Brjánsdóttir.
1994
breytaMK tapaði gegn Verzlunarskólanum í síðari útvarpsumferðinni. Liðið skipuðu Bjarni Benjamínsson, Snorri Freyr Dónaldsson og Jóhannes Birgir Jensson.
1995
breytaMK fékk flest stig allra skóla í hraðaspurningum í útvarpskeppninni og vann báðar viðureignir þar örugglega. MK tapaði gegn Verzlunarskólanum í fyrsta leik átta-liða úrslita í sjónvarpinu eftir bráðabana. Viðureignin fór fram í Smáranum og athygli vakti að áður en keppni hófst tilkynnti dómarinn að reglum hefði verið breytt og pass yrði nú tekið sem endanlegt svar. Þrjú stig töpuðust í hraðaspurningunum sökum þessara reglubreytingar sem kom flatt upp á óviðbúin liðin. Liðið skipuðu Bjarni Benjamínsson, Snorri Freyr Dónaldsson og Jóhannes Birgir Jensson.
2004
breytaMK hóf keppni gegn Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, Hornafirði. Lauk viðureigninni með sigri MK-inga, 25-19. Í annarri umferð keppninnar það ár keppti liðið gegn Fjölbrautaskóla Suðurnesja og vann stórsigur 32-8. Lið MK var þar með komið í 8-liða úrslitin í Sjónvarpinu í fyrsta skipti síðan 2000. Þar drógust drengirnir gegn Borgarholtsskóla, og fór sú viðureign fram þann 11. mars 2004. Lið MK beið þar lægri hlut, 32-18.
2005
breytaMannabreytingar urðu á MK-liðinu veturinn 2004-5, Egill Óskarsson var hættur, en í hans stað kom nýneminn Eiríkur Knudsson, sem áður hafði keppt fyrir hönd Snælandsskóla í GetKó, spurningakeppni félagsmiðstöðvanna í Kópavogi.
MK hóf keppni gegn Kvennó, og endaði keppnin með sigri MK-inga, 17-12. Því næst var röðin komin að liði FB, en sú viðureign endaði með sigri MK, 22-14. MK var þar með komið í 8-liða úrslit annað árið í röð. Lið MK dróst gegn liði Verzlunarskóla Íslands, og fór keppnin fram þann 16. febrúar 2005. Leikar enduðu svo að Verzlunarskólinn sigraði, 19-15.
2007
breytaMannabreytingar urðu aftur á MK-liðinu veturinn 2006–2007; Víðir Smári Petersen og Jón Ingi Stefánsson voru báðir hættir, en við af þeim tóku Andri Þorvarðarson og Ingvi Þór Sæmundsson, sem áður höfðu verið varamenn. Tóku þeir Víðir og Jón Ingi þá við þjálfun liðsins.
MK hóf keppni gegn Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og vann sigur, 20-8. Í annarri umferð mætti skólinn Menntaskólanum Hraðbraut, og endaði sú viðureign með sigri MK, 23-19. Liðið komst þá í sjónvarpskeppnina (þ.e. 8-liða úrslit) og tókst lið MK þar á við lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Lið MK sigraði þar með 27 stigum gegn 17. Því næst var röðin komin að liði Menntaskólans við Hamrahlíð, en sú viðureign endaði með sigri MK, 33-31, eftir bráðabana. Lið MK mætti svo liði Menntaskólans í Reykjavík í úrslitum þar sem MR sigraði með 29 stigum gegn 27 eftir bráðabana.
2021
breytaLiðið samanstendur af 3 keppendur, þeir eru Jason Máni Guðmundsson, Egill Orri Elvarsson og Gunnheiður Guðmundssdóttir. MK hóf keppni gegn Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, MK bar sigur af hólmi en stigin enduðu 22-8 MK í vil.
MK drógst gegn Borgarholtsskóla í 16 liða úrslitum og byrjaði keppnin æsispennandi en staðan eftir hraðaspurningar var 6-6. Bjölluspurningarnar voru ekki minna spennandi en eftir 6 bjölluspurningar var staðan 12-12. Það var var svo eftir það sem MK tók forystuna og endaði keppnin með sigri MK 22-14 og MK komust í sjónvarpið í fyrsta sinn síðan 2013. MK drógst gegn Kvennaskólanum í Reykjavík. Kvennó bar sigur úr bítum 21-15 og því MK úr leik.
Tenglar
breyta- MK.is – Vefsíða Menntaskólans í Kópavogi
- NMK.is – Vefsíða NMK, Nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi Geymt 30 ágúst 2018 í Wayback Machine
Fyrri: Menntaskólinn í Reykjavík |
|
Næsti: Menntaskólinn við Sund |