Alþýðubandalagið

(Endurbeint frá Alþýðubandalag)

Alþýðubandalagið var Íslenskur stjórnmálaflokkur sem að var formlega stofnaður 4. apríl 1956 sem kosningasamtök en 1. nóvember 1968 sem stjórnmálaflokkur. Flokkurinn sameinaðist þremur öðrum flokkum í Samfylkinguna árið 1999 og lagðist flokkurinn því niður. Þrír þingmenn flokksins ákváðu þá að stofna sinn eigin flokk, Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.

Alþýðubandalagið
Fylgi 14,3% (1995)
Stofnár 1956
Lagt niður 1999
Gekk í Samfylkingin

Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
sósíalismi og félagshyggja

Kjarninn í samtökunum voru Málfundafélag jafnaðarmanna, sem skildi við Alþýðuflokkinn, og fylgdi Hannibal Valdimarssyni og Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn undir forystu Einars Olgeirssonar. Þjóðvarnarflokkurinn, undir forystu Gils Guðmundssonar, gekk til liðs við Alþýðubandalagið árið 1963. Flokkurinn bauð fram lista í öllum alþingiskosningum og bæjarstjórnarkosningum frá árinu 1967. Alþýðubandalagið var fyrst gert að formlegum stjórnmálaflokki á landsfundi 1.-3. nóvember 1968, og var þá undir forystu Ragnars Arnalds. Það leiddi til þess að tveir af forystumönnum flokksins, Hannibal Valdimarsson og Björn Jónsson, sögðu sig úr flokknum og stofnuðu Samtök frjálslyndra og vinstri manna haustið 1969. Hannibal og fylgismenn hans höfðu boðið fram í Alþingiskosningunum 1967 undir merkjum I-lista meðan flestir Alþýðubandalagsmenn skipuðu G-lista. Dagblaðið Þjóðviljinn var málgagn flokksins frá stofnun flokksins þar til að það hætti að koma út 1992.

Formenn Alþýðubandalagsins

breyta

Varaformenn

breyta

Stjórnarþátttaka

breyta

Alþýðubandalagið tók þátt í sex samsteypustjórnum frá 1956 til 1991:

  1. Fjórða ríkisstjórn Hermanns Jónassonar 1956-1958 (ásamt „HræðslubandalagiFramsóknarflokks og Alþýðuflokks)
    Lúðvík Jósepsson (sjávarútvegsráðherra), Hannibal Valdimarsson (félagsmálaráðherra)
  2. Fyrsta ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar 1971-1974 (ásamt Framsóknarflokki, Alþýðuflokki og Samtökum frjálslyndra og vinstri manna)
    Lúðvík Jósepsson (sjávarútvegsráðherra), Magnús Kjartansson (heilbrigðis- og iðnaðarráðherra)
  3. Önnur ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar 1978-1979 (ásamt Framsóknarflokki og Alþýðuflokki)
    Hjörleifur Guttormsson (iðnaðarráðherra), Ragnar Arnalds (menntamála- og samgönguráðherra), Svavar Gestsson (viðskiptaráðherra)
  4. Ríkisstjórn Gunnars Thoroddssen 1980-1983 (ásamt hluta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokki)
    Hjörleifur Guttormsson (iðnaðarráðherra), Ragnar Arnalds (fjármálaráðherra), Svavar Gestsson (heilbrigðis- og félagsmálaráðherra)
  5. Önnur ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1988-1989 (ásamt Framsóknarflokki og Alþýðuflokki)
    Ólafur Ragnar Grímsson (fjármálaráðherra), Svavar Gestsson (menntamálaráðherra), Steingrímur J. Sigfússon (samgöngu- og landbúnaðarráðherra)
  6. Þriðja ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1989-1991 (ásamt Framsóknarflokki, Alþýðuflokki og Borgaraflokki)
    Ólafur Ragnar Grímsson (fjármálaráðherra), Svavar Gestsson (menntamálaráðherra), Steingrímur J. Sigfússon (samgöngu- og landbúnaðarráðherra)

Tenglar

breyta

Kjörfylgi

breyta
Alþingiskosningar
Kosningar % atkvæða þingsæti
1956 19,2 8
1959 (júní) 15,3 7
1959 (október) 16,0 10
1963 16,0 9
1967 17,6 10
1971 17,1 10
1974 18,3 11
1978 22,9 14
1979 19,7 11
1983 17,3 10
1987 13,3 8
1991 14,4 9
19951 14,3 9
1 Alþýðubandalag og óháðir
Sveitarstjórnarkosningar
Kosningar % atkvæða fulltrúar
1958 ? ?
1962 ? ?
1966 ? ?
1970 ? ?
1974 14,6 37
1978 22,5 59
1982 16,4 52
1986 17,8 57
1990 9,3 32
1994 8,1 44
1998 0,3 7