Alþingiskosningar 1971
Alþingiskosningar 1971 voru kosningar til Alþingis sem fóru fram 13. júní 1971. Kosningaþátttaka var 90,4%. Þau stórtíðindi urðu að Viðreisnarstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks féll eftir tólf ára setu með þriggja þingmanna mun. Alþýðuflokkurinn fékk mikinn skell og missti þriðjung þingmanna sinna.
Í þessum kosningum buðu fram Samtök frjálslyndra og vinstri manna, klofningsframboð Hannibals Valdimarssonar vegna andstöðu við að Alþýðubandalaginu yrði breytt úr kosningabandalagi í stjórnmálaflokk. Samtökin fengu fimm þingmenn.
Framboðsflokkurinn, háðframboð ungs fólks sem gerði grín að hinum framboðunum og lagði fram stefnumál sem voru út í hött, fékk um 2% fylgi á landsvísu en það bauð fram í þremur kjördæmum. Eitt af slagorðum framboðsins var „jarðgöng í hvern hrepp!“. Meðal frambjóðenda voru Gunnlaugur Ástgeirsson, bróðir Kristínar Ástgeirsdóttur sem síðar sat á þingi fyrir Kvennalistann, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, síðar þingkona fyrir Þjóðvaka og Samfylkinguna, og Jörmundur Ingi Hansen, síðar allsherjargoði.
Stjórnarmyndun
breytaSamtök frjálslyndra og vinstri manna þóttu vera sigurvegarar kosninganna. Eftir mánaðar þóf tókst að mynda ríkisstjórn Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Samtakanna undir forsæti Ólafs Jóhannessonar, formanns Framsóknarflokksins. Stjórnin hafði tveggja þingmanna meirihluta og tók við völdum 14. júlí. Stjórnin tókst á við útfærslu landhelginnar í 50 mílur og erfiðleika í efnahagsmálum. Vestmannaeyjagosið 1973 bætti ekki úr skák. Verðbólga fór af stað og þegar grípa þurfti til erfiðra aðgerða í efnahagsmálum drógu Hannibal og þrír aðrir þingmenn Samtakanna stuðning sinn við ríkisstjórnina til baka. 8. maí 1974 baðst Ólafur Jóhannesson lausnar fyrir ráðuneyti sitt.
Niðurstöður
breytaNiðurstöður kosninganna voru þessar:
Flokkur | Formenn | Atkvæði | % | +/- | Þingmenn | +/- | |
Alþýðuflokkurinn | Gylfi Þ. Gíslason | 11,020 | 10.5 | -5,2 | 6 | -3 | |
Framsókn | Ólafur Jóhannesson | 26,645 | 25.3 | -2,8 | 17 | -1 | |
Sjálfstæðisflokkurinn | Jóhann Hafstein | 38,170 | 36.2 | -1,3 | 22 | -1 | |
Alþýðubandalagið | Ragnar Arnalds | 18,055 | 17.1 | -0,5 | 10 | ||
Samtök frjálslyndra og vinstri manna | Hannibal Valdimarsson | 9,395 | 8.9 | 5 | |||
Framboðsflokkurinn | 2,110 | 2.0 | 0 | ||||
Alls | 105,395 | 100 | 60 |
Forseti Alþingis var kjörinn Eysteinn Jónsson, Framsóknarflokki.
Heimildir
breytaTenglar
breytaFyrir: Alþingiskosningar 1967 |
Alþingiskosningar | Eftir: Alþingiskosningar 1974 |