Ha? (sjónvarpsþáttur)
Sjónvarpsþátturinn Ha? er spurninga- og skemmtiþáttur sem hóf göngu sína á Skjá einum snemma árs 2011. Þátturinn sker sig nokkuð úr hefðbundnum íslenskum spurningaþáttum í sjónvarpi að því leyti að stig keppenda eru algjört aukaatriði, en höfuðáherslan er á skemmtanaþáttinn.
Ha? | |
---|---|
Tegund | spurningaþáttur |
Kynnir | Jóhann G. Jóhannsson |
Upprunaland | Ísland |
Frummál | íslenska |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | Skjár Einn |
Tenglar | |
Vefsíða |
Skipulag þáttarins
breytaHa? er undir sterkum áhrifum frá breskum spurningaþáttum á borð við Never mind the Buzzcocks, A Question of Sport, Have I got News for You? og Q.I. Uppbygging allra þessara þátta er keimlík: spyrill og þáttarstjórnandi situr í miðjunni og hefur keppnislið til beggja handa, sem skipuð eru föstum keppanda og einum eða tveimur gestum, sem eru nýir í hverri viku. Afþreyingargildið er í fyrirrúmi og keppast þátttakendur frekar við að slá á létta strengi en að hala inn stig.
Ha? er ekki fyrsti þáttur þessarar gerðar í íslensku sjónvarpi. Þátturinn Þetta helst var sýndur um nokkurra ára skeið á RÚV, en honum svipað mjög til Have I got News for You?
Hver þáttur af Ha? skiptist upp í þrjú hólf. Í fyrsta hólfi eru einkum spurningar og þrautir sem tengjast nýlegum fréttum dagblaðanna og efni sem finna má á samskiptavefnum Facebook. Í öðru hólfi er leitað mjög í smiðju bresku Q.I.-þáttanna og spurt spurninga um sérviskuleg efni, þar sem oftar en ekki er leitast við að leiðrétta almenn sannindi. Í þriðja hólfi fer mikið fyrir skoplegum myndböndum af YouTube og þáttarstjórnandi og föstu keppendurnir söngla kunn dægurlög í lið sem fenginn er að láni úr Never mind the Buzzcocks.
Stjórnendur og gestir
breytaJóhann G. Jóhannsson leikari er spyrill og þáttarstjórnandi í Ha?. Fastagestirnir í fyrstu þáttaröð voru Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona og Sólmundur Hólm Sólmundarson skemmtikraftur. Þegar sýningar á annarri þáttaröð hófust í september 2011 var tilkynnt að Sólmundur myndi einn vera í hlutverki fastagests. Í fjórðu þáttaröðinni, vorið 2013, bættist Gunnar Sigurðarson í hópinn sem fastagestur. Aðalhöfundur spurninga er Stefán Pálsson.
Gestir í 1. þáttaröð, vor 2011:
- 1. þáttur, Karl Sigurðsson og Guðmundur Pálsson
- 2. þáttur, Jón Gnarr og Katla Margrét Þorgeirsdóttir
- 3. þáttur, Freyr Eyjólfsson og Halldór Gylfason
- 4. þáttur, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson
- 5. þáttur, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Atli Þór Albertsson
- 6. þáttur, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon
- 7. þáttur, Katrín Jakobsdóttir og Felix Bergsson
- 8. þáttur, Ilmur Kristjánsdóttir og Hallgrímur Ólafsson
- 9. þáttur, Ingólfur Þórarinsson og Hannes Heimir Friðbjarnarson
- 10. þáttur, Andri Freyr Viðarsson og Guðrún Dís Emilsdóttir
- 11. þáttur, Gunnar Hansson og Friðrik Friðriksson
- 12. þáttur, Björn Bragi Arnarsson og Gylfi Ægisson
- 13. þáttur, Hilmar Guðjónsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir
- 14. þáttur, Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson
- 15. þáttur, Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson
Gestir í 2. þáttaröð, haust 2011:
- 1. þáttur, Helga Braga Jónsdóttir, Kjartan Guðjónsson og Árni Pétur Guðjónsson
- 2. þáttur, Björk Jakobsdóttir, Atli Þór Albertsson og Gunnar Sigurðarson
- 3. þáttur, Felix Bergsson, Vilhelm Anton Jónsson og Anna Svava Knútsdóttir
- 4. þáttur, Hermann Gunnarsson, Edda Björgvinsdóttir og Gylfi Ægisson
- 5. þáttur, Hafdís Huld Þrastardóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson og Ágúst Bent Sigbertsson
- 6. þáttur, Sverrir Þór Sverrisson, Hjörvar Hafliðason og Egill Einarsson
- 7. þáttur, Gunnar Helgason, Ásmundur Helgason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
- 8. þáttur, Hjálmar Hjálmarsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson
- 9. þáttur, Sigurður Björn Blöndal, Heiða Kristín Helgadóttir og Jón Gnarr
- 10. þáttur, Björn Bragi Arnarsson, Auðunn Blöndal og Pétur Jóhann Sigfússon
- 11. þáttur, Gunnar Hansson, Þóra Sigurðardóttir og Björgvin Franz Gíslason
- 12. þáttur, Helgi Seljan, Freyr Eyjólfsson og Guðrún Dís Emilsdóttir
- 13. þáttur, Karl Sigurðsson, Guðmundur Pálsson og Birgitta Haukdal
- 14. þáttur, Jakob Frímann Magnússon, Davíð Þór Jónsson og Steinn Ármann Magnússon
Gestir í 3. þáttaröð, vor 2012:
- 1. þáttur, upprifjunarþáttur - brot af því besta
- 2. þáttur, Sigurður Eggertsson, Einar Örn Jónsson og Sigurður Sveinsson
- 3. þáttur, Bergur Ebbi Benediktsson, Auður Haralds og Halldór Halldórsson
- 4. þáttur, Hannes Óli Ágústsson, Aðalbjörg Árnadóttir og Óskar Jónasson
- 5. þáttur, Jón Jónsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Friðrik Dór Jónsson
- 6. þáttur, Gísli Einarsson, Logi Bergmann Eiðsson og Gísli Marteinn Baldursson
- 7. þáttur, Saga Garðarsdóttir, Gunnar Hansson og Friðrik Friðriksson
- 8. þáttur, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Atli Þór Albertsson og Pétur Örn Guðmundsson
- 9. þáttur, Ari Eldjárn, Jóhann Alfreð Kristinsson og Dóra Jóhannsdóttir
- 10. þáttur, Sverrir Þór Sverrisson, Gunnar Sigurðsson og Vilhelm Anton Jónsson
- 11. þáttur, Björk Jakobsdóttir, Ari Matthíasson og Felix Bergsson
- 12. þáttur, Guðjón Davíð Karlsson, Vignir Rafn Valþórsson og Stefán Karl Stefánsson
Gestir í 4. þáttaröð, vor 2013:
- 1. þáttur, Páll Óskar Hjálmtýsson og Friðrika Hjördís Geirsdóttir
- 2. þáttur, Kristján Guy Burgess og Örn Úlfar Sævarsson
- 4. þáttur, Kjartan Guðjónsson og Árni Pétur Guðjónsson
- 4. þáttur, Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson
- 5. þáttur, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Saga Garðarsdóttir
- 6. þáttur, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Ólafur Jóhannesson
- 7. þáttur, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir
- 8. þáttur, Sveinn Waage og Úlfar Linnet
- 9. þáttur, Gísli Rúnar Jónsson og Laddi
- 10. þáttur, Helga Braga Jónsdóttir og Ari Eldjárn
- 11. þáttur, Eva María Jónsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson