Birgitta Haukdal
Íslensk söngkona
Birgitta Haukdal Brynjarsdóttir (f. 28. júlí 1979 á Húsavík), er íslensk söngkona og fyrrum meðlimur popphljómsveitarinnar Írafár. Birgitta keppti fyrir hönd Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2003 með lagið „Open Your Heart“ og lenti í 8. sæti.
Birgitta Haukdal | |
---|---|
Fædd | Birgitta Haukdal Brynjarsdóttir 28. júlí 1979 Húsavík, Ísland |
Störf |
|
Tónlistarferill | |
Ár virk | 1999–í dag |
Hljóðfæri | Rödd |
Áður meðlimur í | Írafár |
Birgitta Haukdal hefur tekið þátt í ýmsum leikritum og tónleikum. Hún byrjaði feril sinn í áheyrnarprufu fyrir ABBA-sýningu sem stóð yfir í þrjú ár. Þá hefur hún meðal annars leikið Sandy í leikritinu Grease. Birgitta lék Geddu gulrót í leikritinu Ávaxtakarfan árin 2005 og 2012. Árið 2015 gaf hún út sína fyrstu barnabók Lára lærir að hjóla, og hefur í kjölfarið gefið út margar bækur um Láru. Frá árinu 2022 hefur hún verið dómari í Idol á Stöð 2.