Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2009
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2009 var 54. Eurovisionkeppnin. Hún var haldin 12. - 16. maí 2009 í Olympic Indoor Arena í Moskvu í Rússlandi.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2009 | |
---|---|
Dagsetningar | |
Undanúrslit 1 | 12. maí 2009 |
Undanúrslit 2 | 14. maí 2009 |
Úrslit | 16. maí 2009 |
Umsjón | |
Vettvangur | Olimpijskij Arena Moskva, Rússland |
Kynnar |
|
Framkvæmdastjóri | Svante Stockselius |
Sjónvarpsstöð | Pervyj kanal (C1R) |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 42 |
Frumraun landa | Engin |
Endurkomur landa | |
Taka ekki þátt | |
Kosning | |
Kosningakerfi | Hvert land gefur sett af 12, 10, 8–1 stigum til tíu laga. |
Sigurvegari | Noregur Alexander Rybak |
Sigurlag | „Fairytale“ |
Sigurvegari keppninnar var norðmaðurinn Alexander Rybak og lagið hans Fairytale,sem fékk 387 en það er 95 stigum meira en nokkurt lag hefur fengið í keppninni (áður áttu hinir finnsku Lordi metið sem var 292 stig frá árinu 2006). Ísland fékk annað sætið sem er besti árangur landsins, Aserbaídsjan fékk það þriðja, Tyrkland fjórða og Bretland náði 5. sætinu en það er besti árangur Breta síðan árið 2002.
Eftir mikla gagnrýni á atkvæðagreiðslukerfinu frá árinu 2007 var aftur ákveðið að hafa starfandi dómnefnd sem starfaði með símakosningunni í undankeppnunum. 42 lönd tóku þátt að þessu sinni; Slóvakía tilkynnti um endurkomu sína í keppnina á meðan San Marínó hætti í keppninni vegna fjárhagsvandræða. Lettland og Georgía tilkynntu að þau myndu ekki taka þátt en það var seinna tilkynnt að þau myndu samt sem áður taka þátt. Samt sem áður tók Georgía ekki þátt eftir að EBU hafnaði því lagi sem þeir höfðu valið.
Leikvangurinn
breytaKeppnin var haldin í Rússlandi eftir sigur þeirra árið 2008 í keppninni í Belgrad, Serbíu með lagi Dima Bilan, Believe. Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, sagði að keppnin yrði haldin í Moskvu.
Stöð 1 lagði til að keppnin yrði haldin í Olypmic Indoor Arena í Moskvu og fór þessi tillaga fyrir samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) og staðfesti tillöguna þann 13. september 2008. Upp kom orðrómur um að það þyrfti að breyta byggingunni mikið en þess þurfti ekki, byggingin tekur 25 þúsund manns í sæti.
Stöð 1 sem sýndi frá keppninni kynnti undir-lógó keppninnar þetta árið þann 30. janúar 2009. Það var byggt á Fantasíu-fugli, sem getur verið notaður í mörgum litum. Eins og fyrri ár var það kynnt með aðal-lógói keppninnar. 2009 var fyrst árið síðan 2001 sem keppnin hafði ekkert slagorð.
Sviðið var hannað af John Casey, hönnuði frá New York, og var byggt á þemanu um nútímalegt Rússland. Casey, sem hafði áður hannað sviðið árið 1997 í Dublin, hafði einnig tekið þátt í að hanna fyrir keppnirnar árið 1994 og 1995.
Póstkortin (stutt myndbrot á milli atriða) voru svona:
- Ungfrú heimur 2008, Ksenia Sukhinova birtist;
- Hópur frægra bygginga, minnisvarða og landslag frá viðkomandi landi var sýndur eins og á blaðsíðu í þrívíddarbók;
- Shukhinova birtist aftur með hatt með því sem hafði komið á undan (ásamt mismunandi hárgreiðslu í hvert sinn) og í bol með litum landsins. Hægra megin birtist lógó keppninnar með nafni landsins.
- Að lokum kom frasi á rússnesku og enska þýðingin var fyrir neðan (t.d. Spasibo og Takk fyrir).
Þátttakendur
breytaSamkvæmt lista yfir þátttakenudr frá EBU, höfðu 42 lönd staðfest þátttöku sína þetta árið, m.a. Slóvakía sem sneri aftur til keppni eftir 11 ára fjarveru.
Georgía tilkynnti upphaflega þáttöku sína en hætti við vegna mótmæla í Suður-Ossetia árið 2008 gegn stefnum stjórnar Rússlands, en ákvað seinna að taka þátt, en ákvörðunin var innblásin af sigur þeirra í Junior söngvakeppni evrópskra sjónvarpssstöða 2008, og að Rússland hafi gefið þeim 12 stig í þeirri keppni. Landið hætti endanlega við þátttöku vegna þess að lagið þeirra innihélt pólitískar ádeilur.
Upp kom orðrómur um að San Marínó og Mónakó ætluðu að snúa aftur til að keppa. San Marínó ætlaði sér upphaflega ekki að taka þátt vegna slæms gengis árið áður en þurfti að lokum að draga sig úr keppni vegna fjárhagsvandræða.
Lattneska sjónvarpsstöðin sem sýnir frá keppninni þar í landi (LTV), hafði tilkynnt um það þann 17. desember 2008 að landið myndi ekki taka þátt þetta árið, þremur dögum eftir að lönd áttu að staðfesta þátttöku sína. Þetta kom upp vegna 2,8 milljóna evru skulda LTV, sem hindraði það að þeir gætu borgað þátttökugjaldið. LTV staðfesti að þeir hefðu látið EBU vita að fjarvera Letta byggðist eingöngu á fjárhagsvandræðum. LTV átti síðan umræður við EBU til að reyna að finna lausn svo að landið gæti keppt. Þann 20. desember 2008 tilkynnti LTV að Lettland tæki ekki þátt og að EBU og Stöð 1 hefðu verið sammála um að sekta landið ekki um að hafa dregið sig úr keppni of seint. LTV tilkynnti einnig um að landið myndi vera með í keppninni árið 2010. Það var hins vegar tilkynnt um að Lettland tæki þátt í keppni þessa árs, þann 12. janúar 2009.
Land | Lag | Íslensk þýðing | Flytjandi | Tugumál |
---|---|---|---|---|
Albanía | Carry me in your dreams | Berðu mig í draumum þínum | Kejsi Tola | Enska |
Andorra | La teva decisió | Ákvörðun þín | Susanne Georgi | Katalónska og enska |
Armenía | Jan Jan | Kærinn minn | Inga & Anush | Enska og armenska |
Aserbaídsjan | Always | Alltaf | AySel og Arash | Enska |
Belgía | Copycat | Eftirherma | Patrick Ouchène | Enska |
Bosnía og Hersegóvína | Bistra voda | Hreint vatn | Regina | Bosníska |
Bretland | My time | Minn tími | Jade Ewen | Enska |
Búlgaría | Illusion | Blekking | Krassimir Avramov | Enska |
Danmörk | Believe again | Trúa aftur | Niels Brinck | Enska |
Eistland | Rändajad | Ferðamenn | Urban Symphony | Eistneska |
Finnland | Lose control | Missa stjórn | Waldo's People | Enska |
Frakkland | Et s'il fallait le faire | Ef það ætti að gera | Patricia Kaas | Franska |
Grikkland | This is our night | Þetta er okkar nótt | Sakis Rouvas | Enska |
Holland | Shine | Ljómi | De Toppers | Enska |
Hvíta-Rússland | Eyes that never lie | Augu sem ljúga aldrei | Petr Elfimov | Enska |
Írland | Et cetera | Og svo framvegis | Sinéad Mulvey og Black Daisy | Enska |
Ísland | Is it true? | Er það satt? | Jóhanna | Enska |
Ísrael | There must be another way | Það hlýtur að vera önnur leið | Noa og Mira Awad | Enska, hebreska og arabíska |
Króatía | Lijepa Tena | Fallega Tena | Igor Cukrov og Andrea Šušnjara | Króatíska |
Kýpur | Firefly | Eldfluga | Christina Metaxa | Enska |
Lettland | Probka | Umferðaröngþveiti | Intars Busulis | Rússneska |
Litháen | Love | Ást | Sasha Son | Enska og rússneska |
Makedónía | Nešto što kje ostane | Það sem mun haldast | Next time | Makedónska |
Malta | What if we? | Hvað ef við? | Chiara | Enska |
Moldova | Hora din Moldova | Dans frá Moldova | Nelly Ciobanu | Rúmenska og enska |
Noregur | Fairytale | Ævintýri | Alexander Rybak | Enska |
Pólland | I don't wanna leave | Ég vil ekki fara | Lidia Kopania | Enska |
Portúgal | Todas as ruas do amor | Allar götur ástarinnar | Flor-de-Lis | Portúgalska |
Rúmenía | The Balkan girls | Stelpurnar frá Balkanskaganum | Elena Gheorghe | Enska |
Rússland | Mamo | Mamma | Anastasija Prikhodko | Rússneska og úkraínska |
Serbía | Cipela | Skór | Marko Kon og Milaan | Serbíska |
Slóvakía | Leť tmou | Fljúgum gegnum myrkrið | Kamil Mikulčík og Nela Pocisková | Slóvakíska |
Slóvenía | Love Symphony | Ástar-sinfónía | Quartissimo og Martina Majerle | Enska og slóvenska |
Spánn | La noche es para mí | Kvöldið er mitt | Soraya Arnelas | Spænska og enska |
Svartfjallaland | Just get out of my life | Farðu úr lífi mínu | Andrea Demirović | Enska |
Sviss | The highest heights | Hæstu hæðirnar | Lovebugs | Enska |
Svíþjóð | La Voix | Röddin | Malena Ernman | Enska og franska |
Tékkland | Aven romale | - | Gipsy.cz | Enska |
Tyrkland | Düm tek tek | - | Hadise | Enska |
Úkraína | Be my Valentine! (Anti-crisis girl) | Vertu elskhuginn minn! | Svetlana Loboda | Enska |
Ungverjaland | Dance with me | Dansaðu við mig | Zoli Ádok | Enska |
Þýskaland | Miss Kiss Kiss Bang | - | Alex Swings! Oscar Sings! | Enska |
Hvert land valdi sitt lag í gegnum sitt eigið kerfi. Sum lönd völdu sitt lag gegnum innri val, þar sem stöðin valdi bæði lögin og flytjendurna, á meðan aðrir héldu keppnir þar sem almenningur valdi lagið, flytjandann eða bæði. Árið 2009 höfðu tvö lönd valið keppanda sem hafði keppt áður. Þeir sem sneru aftur voru Chiara sem keppti fyrir Möltu árin 1998 og 2005, og Sakis Rouvas sem keppti fyrir Grikkland 2004. Friðrik Ómar, meðlimur í Eurobandinu sem keppti fyrir Íslands hönd árið 2008, söng bakraddir að þessu sinni.
Snið
breytaUndankeppnin
breytaUndankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpstöðva 2009 voru tvær undankeppnir haldnar 12. og 14. maí árið 2009. 37 lönd tóku þátt í undankeppnunum tveimur. 21 lönd úr undankeppunum tveimur komust áfram á úrslitakvöld keppninnar.
Fyrri undanúrslit
breytaRöð | Land | Flytjandi | Lag | Sæti | Stig |
---|---|---|---|---|---|
1 | Svartfjallaland | Andrea Demirović | Just get out of my life | 11 | 44 |
2 | Tékkland | Gipsy.cz | Aven romale | 18 | 0 |
3 | Belgía | Patrick Ouchène | Copycat | 17 | 1 |
4 | Hvíta-Rússland | Petr Elfimov | Eyes that never lie | 13 | 25 |
5 | Svíþjóð | Malena Ernman | La voix | 4 | 105 |
6 | Armenía | Inga og Anush | Nor par (Jan jan) | 5 | 99 |
7 | Andorra | Susanne Georgi | La teva decisió | 15 | 8 |
8 | Sviss | Lovebugs | The highest heights | 14 | 15 |
9 | Tyrkland | Hadise | Düm tek tek | 2 | 172 |
10 | Ísrael | Noa og Mira Awad | There must be another way | 7 | 75 |
11 | Búlgaría | Krassimir Avramov | Illusion | 16 | 7 |
12 | Ísland | Yohanna | Is it true? | 1 | 174 |
13 | Makedónía | Next time | Nešto što kje ostane | 10 | 45 |
14 | Rúmenía | Elena Gheorghe | The Balkan girls | 9 | 67 |
15 | Finnland | Waldo's People | Lose control | 12 | 42 |
16 | Portúgal | Flor-de-Lis | Todas as ruas do amor | 8 | 70 |
17 | Malta | Chiara | What if we? | 6 | 86 |
18 | Bosnía og Hersegóvína | Regina | Bistra voda | 3 | 125 |
Seinni undanúrslit
breytaRöð | Land | Flytjandi | Lag | Sæti | Stig |
---|---|---|---|---|---|
1 | Króatía | Igor Cukrov og Andrea Šušnjara | Lipeja Tena | 13 | 33 |
2 | Írland | Sinéad Mulvey og Black Daisy | Et cetera | 11 | 52 |
3 | Lettland | Intars Busulis | Probka | 19 | 7 |
4 | Serbía | Marko Kon og Milaan | Cipela | 10 | 60 |
5 | Pólland | Lidia Kopania | I don't wanna leave | 12 | 43 |
6 | Noregur | Alexander Rybak | Fairytale | 1 | 201 |
7 | Kýpur | Christina Metaxa | Firefly | 14 | 32 |
8 | Slóvakía | Kamil Mikulčík og Nela Pocisková | Leť tmou | 18 | 8 |
9 | Danmörk | Niels Brinck | Believe again | 8 | 69 |
10 | Slóvenía | Quartissimo og Martina Majerle | Love symphony | 16 | 14 |
11 | Ungverjaland | Zoli Ádok | Dance with me | 15 | 16 |
12 | Aserbaídsjan | AySel og Arash | Always | 2 | 180 |
13 | Grikkland | Sakis Rouvas | This is our night | 4 | 110 |
14 | Litháen | Sasha Son | Love | 9 | 66 |
15 | Moldova | Nelly Ciobanu | Hora din Moldova | 5 | 106 |
16 | Albanía | Kejsi Tola | Carry me in your dreams | 7 | 73 |
17 | Úkraína | Svetlana Loboda | Be my Valentine! (Anti-crisis girl) | 6 | 80 |
18 | Eistland | Urban Symphony | Rändajad | 3 | 115 |
19 | Holland | De Toppers | Shine | 17 | 11 |
Niðurstöður
breytaFyrri undanúrslit
breytaSeinni undanúrslit
breytaÚrslitakeppnin
breytaÚrslitakeppnin fór fram þann 16. mars 2009 í Olympic Indoor Arena í Moskvu, Rússlandi en undankeppnirnar tvær voru haldnar 12. og 14. maí. 37 lönd tóku þátt í undankeppnunum en stóru löndin fjögur (Frakkland, Þýskaland, Spánn, Bretland) og gestgjafinn fóru í úrslitin. Til viðbótar við löndin sem komust sjálfkrafa í úrslitin, voru einnig í úrslitum tíu lönd úr hvorri undankeppni, svo alls kepptu 25 atriði á úrslitakvöldinu.
Úrslit
breytaRöð | Land | Flytjandi | Lag | Sæti | Stig |
---|---|---|---|---|---|
1 | Litháen | Sasha Son | Love | 23 | 23 |
2 | Ísrael | Noa og Mira Awad | There must be another way | 16 | 53 |
3 | Frakkland | Patricia Kaas | Et s'il fallait le faire | 8 | 107 |
4 | Svíþjóð | Malena Ernman | La voix | 21 | 35 |
5 | Króatía | Igor Cukrov og Andrea Šušnjara | Lipeja Tena | 18 | 45 |
6 | Portúgal | Flor-de-Lis | Todas as ruas do amor | 15 | 57 |
7 | Ísland | Yohanna | Is it true? | 2 | 218 |
8 | Grikkland | Sakis Rouvas | This is our night | 7 | 120 |
9 | Armenía | Inga og Anush | Nor par (Jan jan) | 10 | 92 |
10 | Rússland | Anastasija Prikhodko | Mamo | 11 | 91 |
11 | Aserbaídsjan | AySel og Arash | Always | 3 | 207 |
12 | Bosnía og Hersegóvína | Regina | Bistra voda | 9 | 106 |
13 | Moldova | Nelly Ciobanu | Hora din Moldova | 14 | 69 |
14 | Malta | Chiara | What if we? | 22 | 31 |
15 | Eistland | Urban Symphony | Rändajad | 6 | 129 |
16 | Danmörk | Niels Brinck | Believe again | 13 | 74 |
17 | Þýskaland | Alex Swings! Oscar Sings! | Miss Kiss Kiss Bang | 20 | 35 |
18 | Tyrkland | Hadise | Düm tek tek | 4 | 177 |
19 | Albanía | Kejsi Tola | Carry me in your dreams | 17 | 48 |
20 | Noregur | Alexander Rybak | Fairytale | 1 | 387 |
21 | Úkraína | Svetlana Loboda | Be my Valentine! (Anti-crisis girl) | 12 | 76 |
22 | Rúmenía | Elena Gheorghe | The Balkan girls | 19 | 40 |
23 | Bretland | Jade Ewen | My time | 5 | 173 |
24 | Finnland | Waldo's People | Lose control | 25 | 22 |
25 | Spánn | Soraya Arnelas | La noche es para mí | 23 | 23 |