Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1990
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1990 var í 14. sinn sem mótið var haldið. Þetta árið var það í Ítalíu frá 8. til 29. Júní. 116 landslið tóku þátt, útsláttarkeppnin byrjaði í April 1988. 22 lið komust áfram í riðlinum, einnig komst Ítalía áfram þar sem að þeir voru að halda keppnina og einnig komst verjandi bikarsins Argentína. Vestur þýskaland vann HM 1990, þriðja skiptið sem þeir unnu HM. Þeir unnu Argentínu 1-0 í úrslitaleik. Italía endaði í 3 sæti, og England í fjórða, bæði liðin töpuðu í vítaspyrnukeppni. HM 1990 er talið vera eitt slakasta HM fyrr og síðar. Það var aðeins skorað 2.21 mörk í leik að meðaltali – stendur þetta met ennþá – og einnig voru gefin 16 rauð spjöld sem er einnig met. Topp Markaskorari og besti leikmaðurinn á HM var Salvatore schillaci sem er frá Ítalíu. Efnilegasti leikmaðurinn var Robert Prosinečki frá júgóslavíu.
Val á gestgjöfum
breytaÁtta Evrópuþjóðir: Austurríki, England, Frakkland, Grikkland, Ítalía, Júgóslavía, Sovétríkin og Vestur-Þýskaland, auk Íran frá Asíu lýstu áhuga sínum á að halda HM 1990. Þegar kom að ákvörðun á FIFA-þinginu 1984 höfðu þau öll nema Ítalía og Sovétríkin dregið umsókn sína til baka. Ítalir höfðu betur í kosningu með 11 atkvæðum gegn 5. Ítalir urðu þar með önnur þjóðin á eftir Mexíkó til að fá úthlutað HM öðru sinni.
Undankeppni
breyta114 lið skráðu sig til keppni auk gestgjafanna og ríkjandi heimsmeistara sem fengu sjálfkrafa sæti í úrslitum. Tveimur sterkum knattspyrnuþjóðum var vikið úr keppni. Mexíkó var meinuð þátttaka fyrir að hafa teflt fram of gömlum leikmönnum í unglingalandsliði. Mexíkóar töldu margir refsinguna óhóflega og hafa þann helsta tilgang að tryggja Bandaríkjamönnum sæti í úrslitakeppninni til að undirbúa þá undir gestgjafahlutverkið fjórum árum síðar. Hitt liðið sem sæta mátti keppnisbanni var Síle, en markvörður landsliðs þeirra varð uppvís að því í undankeppnisleik gegn Brasilíu að sviðsetja alvarleg meiðsli sín eftir að flugeldi var kastað nærri honum.
Frökkum mistókst að komast í úrslitakeppnina og sama gilti um Pólverja í fyrsta sinn síðan á HM 1970. Kólumbía varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í úrslitunum eftir sigur í umspili gegn Ísraelum, sem raunar höfðu tekið þátt í Eyjaálfuforkeppninni.
Þátttökulið
breyta24 þjóðir mættu til leiks frá fimm heimsálfum.
Leikvangar
breytaMílanó | Róm | Tórínó | Napólí |
---|---|---|---|
San Siro | Stadio Olimpico | Stadio delle Alpi | Stadio San Paolo |
Áhorfendur: 74,559 | Áhorfendur: 73,603 | Áhorfendur: 62,628 | Áhorfendur: 59,978 |
Bari | Flórens | Veróna | Údíne |
Stadio San Nicola | Stadio Comunale | Stadio Marc'Antonio Bentegodi | Stadio Friuli |
Áhorfendur: 51,426 | Áhorfendur: 38,971 | Áhorfendur: 35,950 | Áhorfendur: 35,713 |
Cagliari | Bologna | Palermó | Genóa |
Stadio Sant'Elia | Stadio Renato Dall'Ara | Stadio La Favorita | Stadio Luigi Ferraris |
Áhorfendur: 35,238 | Áhorfendur: 34,520 | Áhorfendur: 33,288 | Áhorfendur: 31,823 |
Keppnin
breytaRiðlakeppnin
breytaKeppt var í sex riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit, auk þeirra fjögurra liða í þriðja sæti sem bestum árangri náðu.
Riðill 1
breytaÍtalir unnu riðilinn á fullu húsi stiga. Varamaðurinn Salvatore Schillaci skoraði sigurmark þeirra í fyrsta leiknum, sem jafnframt var aðeins hans annar landsleikur. Schillaci reyndist ein af stjörnum keppninnar. Tékkóslóvakía byrjaði með látum og fylgdi Ítölum upp úr riðlinum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Ítalía | 3 | 3 | 0 | 0 | 4 | 0 | +4 | 6 | |
2 | Tékkóslóvakía | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 | 3 | +3 | 4 | |
3 | Austurríki | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
4 | Bandaríkin | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 8 | -6 | 0 |
9. júní 1990 | |||
Ítalía | 1-0 | Austurríki | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 73.303 Dómari: José Roberto Wright |
Schillaci 78 |
10. júní 1990 | |||
Bandaríkin | 1-5 | Tékkóslóvakía | Stadio Comunale, Flórens Áhorfendur: 33.266 Dómari: Kurt Röthlisberger |
Caligiuri 60 | Skuhravý 26, 78, Bílek 40, Hašek 50, Luhový 90+3 |
14. júní 1990 | |||
Ítalía | 1-0 | Bandaríkin | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 73.423 Dómari: Edgardo Codesal |
Giannini 11 |
15. júní 1990 | |||
Austurríki | 0-1 | Tékkóslóvakía | Stadio Comunale, Flórens Áhorfendur: 38.962 Dómari: George Smith |
Bílek 31 |
19. júní 1990 | |||
Ítalía | 2-0 | Tékkóslóvakía | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 73.303 Dómari: Joël Quiniou |
Schillaci 9, Baggio 78 |
19. júní 1990 | |||
Austurríki | 2-1 | Bandaríkin | Stadio Comunale, Flórens Áhorfendur: 34.857 Dómari: Jamal Al Sharif |
Ogris 49, Rodax 63 | Murray 83 |
Riðill 2
breytaEinhver óvæntustu úrslit í sögu HM litu dagsins ljós í opnunarleiknum þar sem Kamerún vann sigur á heimsmeisturum Argentínumanna. Afríkuliðið hélt sínu striki og endaði á toppi riðilsins þrátt fyrir stórtap í lokaleiknum. Heimsmeistararnir máttu sætta sig við að skríða í 16-liða úrslitin út á þriðja sætið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Kamerún | 3 | 2 | 0 | 1 | 3 | 5 | -2 | 4 | |
2 | Rúmenía | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 3 | +1 | 3 | |
3 | Argentína | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 2 | +1 | 3 | |
4 | Sovétríkin | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 4 | 0 | 2 |
8. júní 1990 | |||
Argentína | 1-0 | Kamerún | San Siro, Mílanó Áhorfendur: 73.780 Dómari: Michel Vautrot |
Omam-Biyik 67 |
9. júní 1990 | |||
Sovétríkin | 0-2 | Rúmenía | Stadio San Nicola, Bari Áhorfendur: 42.907 Dómari: Juan Daniel Cardellino |
Lăcătuș 41, 55 |
13. júní 1990 | |||
Argentína | 2-0 | Sovétríkin | Stadio San Paolo, Napólí Áhorfendur: 55.759 Dómari: Erik Fredriksson |
Troglio 27, Burruchaga 79 |
14. júní 1990 | |||
Kamerún | 2-1 | Rúmenía | Stadio San Nicola, Bari Áhorfendur: 38.687 Dómari: Hernán Silva |
Milla 76, 86 | Balint 88 |
18. júní 1990 | |||
Argentína | 1-1 | Rúmenía | Stadio San Paolo, Napólí Áhorfendur: 52.733 Dómari: Carlos Silva Valente |
Monzón 62 | Balint 68 |
18. júní 1990 | |||
Kamerún | 0-4 | Sovétríkin | Stadio San Nicola, Bari Áhorfendur: 37.307 Dómari: José Roberto Wright |
Protasov 20, Zygmantovich 29, Zavarov 52, Dobrovolski 63 |
Riðill 3
breytaSvíar og Skotar ollu stuðningsmönnum sínum vonbrigðum og sátu eftir. Óþekkt lið Kosta Ríka kom mjög á óvart og náði öðru sætinu á eftir Brasilíumönnum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 3 | 0 | 0 | 4 | 1 | +3 | 6 | |
2 | Kosta Ríka | 3 | 2 | 0 | 1 | 3 | 2 | +1 | 4 | |
3 | Skotland | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
4 | Svíþjóð | 3 | 0 | 0 | 3 | 3 | 6 | -3 | 0 |
10. júní 1990 | |||
Brasilía | 2-1 | Svíþjóð | Stadio Delle Alpi, Tórínó Áhorfendur: 62.628 Dómari: Tullio Lanese |
Careca 67 | Brolin 79 |
11. júní 1990 | |||
Kosta Ríka | 1-0 | Skotland | Stadio Luigi Ferraris, Genúa Áhorfendur: 30.867 Dómari: Juan Carlos Loustau |
Cayasso 49 |
16. júní 1990 | |||
Brasilía | 1-0 | Kosta Ríka | Stadio Delle Alpi, Tórínó Áhorfendur: 58.007 Dómari: Neji Jouini |
Müller 33 |
16. júní 1990 | |||
Svíþjóð | 1-2 | Skotland | Stadio Luigi Ferraris, Genúa Áhorfendur: 31.823 Dómari: Carlos Maciel |
Strömberg 86 | McCall 11, Johnston 81 |
20. júní 1990 | |||
Brasilía | 1-0 | Skotland | Stadio Delle Alpi, Tórínó Áhorfendur: 62.508 Dómari: Helmut Kohl |
Müller 81 |
20. júní 1990 | |||
Svíþjóð | 1-2 | Kosta Ríka | Stadio Luigi Ferraris, Genúa Áhorfendur: 30.223 Dómari: Zoran Petrović |
Ekström 32 | Flores 75, Medford 87 |
Riðill 4
breytaFlest mörkin voru skoruð í 4. riðli og átti slakur varnarleikur Sameinuðu arabísku furstadæmanna þar stóran hlut að máli. Vestur-Þjóðverjar unnu stórsigur á Júgóslövum í fyrsta leiknum, 4:1 og enduðu á toppnum. Kólumbíumenn fylgdu Evrópuþjóðunum í 16-liða úrslit.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Vestur-Þýskaland | 3 | 2 | 1 | 0 | 10 | 3 | +7 | 5 | |
2 | Júgóslavía | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 | 5 | +1 | 4 | |
3 | Kólumbía | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 2 | +1 | 3 | |
4 | Sameinuðu arabísku furstadæmin | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 11 | -9 | 0 |
9. júní 1990 | |||
Sameinuðu arabísku furstadæmin | 0-2 | Kólumbía | Stadio Renato Dall'Ara, Bologna Áhorfendur: 30.791 Dómari: George Courtney |
Redín 50, Valderrama 85 |
10. júní 1990 | |||
Vestur-Þýskaland | 4-1 | Júgóslavía | San Siro, Mílanó Áhorfendur: 74.765 Dómari: Peter Mikkelsen |
Matthäus 28, 64, Klinsmann 39, Völler 70 | Jozić 55 |
14. júní 1990 | |||
Júgóslavía | 1-0 | Kólumbía | Stadio Renato Dall'Ara, Bologna Áhorfendur: 32.257 Dómari: Luigi Agnolin |
Jozić 75 |
15. júní 1990 | |||
Vestur-Þýskaland | 5-1 | Sameinuðu arabísku furstadæmin | San Siro, Mílanó Áhorfendur: 71.169 Dómari: Alexey Spirin |
Völler 35, 75, Klinsmann 37, Matthäus 47, Bein 58 | Ismail 46 |
19. júní 1990 | |||
Vestur-Þýskaland | 1-1 | Kólumbía | San Siro, Mílanó Áhorfendur: 72.510 Dómari: Alan Snoddy |
Littbarski 88 | Rincón 90+3 |
19. júní 1990 | |||
Júgóslavía | 4-1 | Sameinuðu arabísku furstadæmin | Stadio Renato Dall'Ara, Bologna Áhorfendur: 27.833 Dómari: Shizuo Takada |
Sušić 5, Pančev 9, 46, Prosinečki 90+3 | Thani 22 |
Riðill 5
breytaSpánn og Belgía tylltu sér á topp 5. riðils. Úrúgvæ fylgdi þeim í 16-liða úrslit eftir að skora mark á lokamínútunni gegn Suður-Kóreu sem rak lestina.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Spánn | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 2 | +3 | 5 | |
2 | Belgía | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 | 3 | +3 | 4 | |
3 | Úrúgvæ | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 3 | -1 | 3 | |
4 | Suður-Kórea | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 6 | -5 | 0 |
12. júní 1990 | |||
Belgía | 2-0 | Suður Kórea | Stadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna Áhorfendur: 32.790 Dómari: Vincent Mauro |
Degryse 53, De Wolf 64 |
13. júní 1990 | |||
Úrúgvæ | 0-0 | Spánn | Stadio Friuli, Údíne Áhorfendur: 35.713 Dómari: Helmut Kohl |
17. júní 1990 | |||
Belgía | 3-1 | Úrúgvæ | Stadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna Áhorfendur: 33.759 Dómari: Siegfried Kirschen |
Clijsters 15, Scifo 24, Ceulemans 47 | Bengoechea 73 |
17. júní 1990 | |||
Suður Kórea | 1-3 | Úrúgvæ | Stadio Friuli, Údíne Áhorfendur: 32.733 Dómari: Elías Jácome |
Hwangbo Kwan 43 | Míchel 23, 61, 81 |
21. júní 1990 | |||
Belgía | 1-2 | Spánn | Stadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna Áhorfendur: 35.950 Dómari: Juan Carlos Loustau |
Vervoort 29 | Míchel 26, Górriz 38 |
21. júní 1990 | |||
Suður Kórea | 0-1 | Úrúgvæ | Stadio Friuli, Údíne Áhorfendur: 29.039 Dómari: Tullio Lanese |
Fonseca 90+1 |
Riðill 6
breytaMarkaþurrð einkenndi 6. riðilinn. England, Írland og Holland höfðu öll verið saman í riðli á EM 1992 og mættust á ný í riðlakeppninni. Þar sem Holland og Írland luku keppni með sama stigafjölda og markatölu þurfti að varpa hlutkesti um hvort liðið hlyti annað sætið og hvort það þriðja.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | England | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 | 1 | +1 | 4 | |
2 | Írland | 3 | 0 | 3 | 0 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
3 | Holland | 3 | 0 | 3 | 0 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
4 | Egyptaland | 3 | 0 | 2 | 1 | 1 | 2 | -1 | 2 |
11. júní 1990 | |||
England | 1-1 | Írland | Stadio Sant'Elia, Cagliari Áhorfendur: 35.238 Dómari: Aron Schmidhuber |
Lineker 9 | Sheedy 73 |
12. júní 1990 | |||
Holland | 1-1 | Egyptaland | Stadio La Favorita, Palermo Áhorfendur: 33.288 Dómari: Emilio Soriano Aladrén |
Kieft 59 | Abdelghani 83 |
16. júní 1990 | |||
England | 0-0 | Holland | Stadio Sant'Elia, Cagliari Áhorfendur: 35.267 Dómari: Zoran Petrović |
17. júní 1990 | |||
Írland | 0-0 | Egyptaland | Stadio La Favorita, Palermo Áhorfendur: 33.288 Dómari: Marcel van Langenhove |
21. júní 1990 | |||
England | 1-0 | Egyptaland | Stadio Sant'Elia, Cagliari Áhorfendur: 34.959 Dómari: Kurt Röthlisberger |
Wright 58 |
21. júní 1990 | |||
Írland | 1-1 | Holland | Stadio La Favorita, Palermo Áhorfendur: 33.288 Dómari: Michel Vautrot |
Quinn 71 | Gullit 11 |
Útsláttarkeppnin
breytaTvö til þrjú efstu liðin úr hverjum forriðli fóru áfram í 16-liða úrslit sem leikin voru með útsláttarfyrirkomulagi.
16-liða úrslit
breytaMark Claudio Canniggia tíu mínútum fyrir leikslok, eftir sendingu Diego Maradona skildi að Argentínumenn og Brasilíu. Brasilíumenn sökuðu leikmenn Argentínu eftir leikinn um að hafa gefið varnarmanni þeirra sljóvgandi lyf. Leikmennirnir Rudi Völler og Frank Rijkaard voru báðir reknir af velli í sigrði Vestur-Þjóðverja á Hollendingum í miklum hitaleik. Ljót mistök kólumbíska markvarðarins René Higuita komu Kamerún í fjórðungsúrslit, fyrstu Afríkuliða. Írar sem ekki unnu leik í riðlakeppninni héldu sínu striki og komust áfram eftir sigur á Rúmenum í vítaspyrnukeppni. Engu mátti muna að grípa þyrfti til enn einnar vítakeppninnar í leik Englendinga og Belga, en David Platt skoraði sigurmark á lokamínútunni.
23. júní 1990 | |||
Kamerún | 2-1 (e.framl.) | Kólumbía | Stadio San Paolo, Napólí Áhorfendur: 50.026 Dómari: Tullio Lanese, Ítalíu |
Milla 106, 108 | Redín 115 |
23. júní 1990 | |||
Tékkóslóvakía | 4-1 | Kosta Ríka | Stadio San Nicola, Bari Áhorfendur: 47.673 Dómari: Siegfried Kirschen, Austur-Þýskalandi |
Skuhravý 12, 63, 82, Kubík 76 | González 55 |
24. júní 1990 | |||
Brasilía | 0-1 | Argentína | Stadio Delle Alpi, Tórínó Áhorfendur: 61.381 Dómari: Joël Quiniou, Frakklandi |
Caniggia 81 |
24. júní 1990 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-1 | Holland | San Siro, Mílanó Áhorfendur: 74.559 Dómari: Juan Carlos Loustau, Argentínu |
Klinsmann 51, Brehme 85 | R. Koeman 89 (vítasp.) |
25. júní 1990 | |||
Írland | 0-0 (5-4 e.vítake.) | Rúmenía | Stadio Luigi Ferraris, Genúa Áhorfendur: 31.818 Dómari: José Roberto Wright, Brasilíu |
25. júní 1990 | |||
Ítalía | 2-0 | Úrúgvæ | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 73.303 Dómari: George Courtney, Englandi |
Schillaci 65, Serena 83 |
26. júní 1990 | |||
Spánn | 1-2 (e.framl.) | Júgóslavía | Stadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna Áhorfendur: 35.500 Dómari: Aron Schmidhuber, Vestur-Þýskalandi |
Julio Salinas 84 | Stojković 78, 93 |
26. júní 1990 | |||
England | 1-0 (e.framl.) | Belgía | Stadio Renato Dall'Ara, Bologna Áhorfendur: 34.520 Dómari: Peter Mikkelsen, Danmörku |
Platt 119 |
Fjórðungsúrslit
breytaViðureign Argentínu og Júgóslavíu lauk með vítakeppni þar sem Argentínumenn unnu þrátt fyrir að Maradona hefði misnotað sína spyrnu. HM-ævintýri írska landsliðsins lauk með 1:0 tapi gegn heimamönnum Ítala. Þjóðverjar og Englendingar voru tvö síðustu liðin í undanúrslitin, þeir síðarnefndu eftir nauman sigur á Kamerún í framlengingu.
30. júní 1990 | |||
Argentína | 0-0 (3-2 e.vítake.) | Júgóslavía | Stadio Comunale, Flórens Áhorfendur: 38.971 Dómari: Kurt Röthlisberger, Sviss |
30. júní 1990 | |||
Írland | 0-1 | Ítalía | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 73.303 Dómari: Carlos Silva Valente, Portúgal |
Schillaci 38 |
1. júlí 1990 | |||
Tékkóslóvakíska | 0-1 | Vestur-Þýskaland | San Siro, Mílanó Áhorfendur: 73.347 Dómari: Helmut Kohl, Austurríki |
Matthäus 25 (vítasp.) |
1. júlí 1990 | |||
Kamerún | 2-3 (e.framl.) | England | Stadio San Paolo, Napólí Áhorfendur: 55.205 Dómari: Edgardo Codesal, Mexíkó |
Kundé 61 (víasp.), Ekéké 65 | Platt 25, Lineker 83 (vítasp.), 105 (vítasp.) |
Undanúrslit
breytaBáðar undanúrslitaviðureignirnar enduðu með vítakeppni eftir 1:1 jafntefli. Heimamenn og Englendingar máttu bíta í það súra epli að missa af úrslitaleiknum.
3. júlí 1990 | |||
Argentína | 1-1 (4-3 e.vítake.) | Ítalía | Stadio San Paolo, Napólí Áhorfendur: 59.978 Dómari: Michel Vautrot, Frakklandi |
Caniggia 67 | Schillaci 17 |
4. júlí 1990 | |||
Vestur-Þýskaland | 1-1 (4-3 e.vítake.) | England | Stadio delle Alpi, Tórínó Áhorfendur: 62.628 Dómari: José Roberto Wright, Brasilíu |
Brehme 60 | Lineker 88 |
Bronsleikur
breytaÍtalir náðu 3. sætinu eftir sigur á Englendingum. Toto Schillaci tryggði sér markakóngstitilinn með sínu sjötta marki úr vítaspyrnu undir lok leiksins.
7. júlí 1990 | |||
Ítalía | 2-1 | England | Stadio San Nicola, Bari Áhorfendur: 51.426 Dómari: Joël Quiniou, Mexíkó |
Baggio 71, Schillaci 86 | Platt 81 |
Úrslitaleikur
breytaÚrslitaleikur HM 1990 er almennt talinn einn sá lakasti í sögu HM. Þegar um hálftími var eftir af leiknum varð Argentínumaðurinn Pedro Monzon fyrstur allra til að láta reka sig af velli í úrslitum. Argentínumenn sem neyddust til að tefla fram talsvert veiktu liði vegna meiðsla og leikbanna reyndu lítið að sækja en vörðust af mikilli hörku. Þegar fimm mínútur voru eftir var dæmd vítaspyrna fyrir brot á Rudi Völler sem Andreas Brehme nýtti vel. Með sigrinum varð Franz Beckenbauer fyrstur allra til að sigra á HM bæði sem leikmaður og þjálfari.
8. júlí 1990 | |||
Argentína | 0-1 | Vestur-Þýskaland | Ólympíuleikvangurinn, Rómaborg Áhorfendur: 73.603 Dómari: Edgardo Codesal, Frakklandi |
Brehme 85 |
Markahæstu leikmenn
breytaSalvatore Schillaci hreppti gullskó FIFA með sex mörk skoruð. Alls skiptu 75 leikmenn á milli sín 115 mörkum, ekkert þeirra var sjálfsmark.
- 6 mörk
- 5 mörk
- 4 mörk
- 3 mörk