Rúmenska karlalandsliðið í knattspyrnu
Rúmenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur í gegnum árin haft mikilli velgengni að fagna bæði á HM sem og EM. Gullaldar ár Rúmena voru frá 1990-1998, enn á þeim árum tókst þeim að komast á hvert stórmótið á fætur öðru, enda voru þeir með frábært og vel mannað lið á þeim árum, helsta stjarna þeirra á þeim árum var Gheorghe Hagi .
Gælunafn | Tricolorii "Hinir Þrílituðu" | ||
---|---|---|---|
Íþróttasamband | Federația Română de Fotbal "Knattspyrnusamband Rúmeníu" | ||
Álfusamband | UEFA | ||
Þjálfari | Edward Iordănescu | ||
Fyrirliði | Vlad Chiricheș | ||
Leikvangur | Arena Națională | ||
FIFA sæti Hæst Lægst | 48 (20. júlí 2023) 3 (1997) 57 (2011) | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
| |||
Stærsti sigur | |||
Rúmenía 9-0 Finnland (Búkarest, Rúmeníu; 14. Október, 1973) | |||
Mesta tap | |||
Ungverjaland 9-0 Rúmenía (Búdapest, Ungverjaland; 6. Júní, 1948) | |||
Heimsmeistaramót | |||
Keppnir | 7 (fyrst árið [[1930 Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla|]]) | ||
Besti árangur | Fjórðungs úrlsit HM 1994 | ||
Vefsíða | https://www.frf.ro/ |
Saga
breytaRúmenar hafa mikla og sterka knattspyrnu hefð og hafa í gegnum árin alið af sér marga fræga leikmenn enda voru þeir gríðalega sterkir á árunum 1990-1998.
Rúmenía á EM
breytaRúmenar náðu sínum fyrsta góða árangri á EM þegar þeim tókst að komast í 8 liða úrslit á EM 1972. Rúmenar duttu þá úr leik gegn Ungverjum . Næsta evrópumót Rúmena var EM í Frakklandi EM 1984 þá voru kynslóðaskipti og gullaldar liðið var að stíga sín fyrstu skref, og það lið eftir að vera eitt þekktaasta lið rúmena til þessa, í því liði voru meðal annara hin þá efnilegi Gheorghe Hagi. Þeir lentu í erfiðum riðli með Vestur-Þjóðverjum, Portúgal og Spáni. Rúmenar voru neðstir í riðlinum og næst neðstir í mótinu. Þetta var lélegasti árangur Rúmena á EM. Árið 2000 tókst þeim að komast upp úr riðlinum. Á því móti áttu þeir mjög eftirminnilegan leik á móti Englendingum. Leikurinn var sá síðasti í riðlinum og skar úr um hvort liðið færi áfram. Rúmenarnir spiluðu gilmrandi bolta með Gheorghe Hagi fremstan í flokki og unnu 3-2. Í 8 liða úrslitum töpuðu þeir þó gegn gríðarlega sterku liði Ítala .
Rúmenar á HM
breytaRúmenar tilheyra hópi þeirra þjóða sem tók þátt á fyrsta HM í knattspyrnu. Rúmenía er eitt af fjórum löndum evrópu sem tóku þá áhættu að ferðast til Suður-Ameríku til að taka þátt í fyrsta Heimsmeistaramóti landsliða í knattspyrnu karla 1930. Rúmenar unnu sinn fyrsta leik á móti Perú 3-1. Rúmenum tókst þó ekki að komast lengra á þessu á móti, þar sem þeir töpuðu gegn verðandi heimsmeisturunum og heimastrákunum í Úrúgvæ. 1990 voru Rúmenar aftur mættir á HM með gullkynslóðina. Þar tókst þeim að koma sér uppúr riðlinum. Gheorghe Hagi var þá að vaxa úr grasi og smám saman að verða af stórstjörnu enda var hann stundum kallaður "Maradona Karpatafjalla". Rúmenar unnu gegn sterku liði Sovétmanna í opnunarleiknum og komust uppúr riðlinum enn töpuðu svo óvænt í 8 liða úrslitum gegn Írlandi HM 1994 vann Rúmenía gegn Kólumbíu og Bandaríkjunum í riðilinum og komust áfram þrátt fyrir tap á móti Sviss. Rúmenum tókst í næstuumferð að slá út Argentínu 3–2. Ilie Dumitrescu og Gheorghe Hagi voru markaskorar í þeim leik. í áttaliða úrslitum töpuðu þeir frekar óvænt á móti Svíþjóð.Á HM 1998 tókst þeim að komast uppúr riðlinum eftir sigur á móti Englandi(2-1) og Kólumbíu(1-0). Enn í næstu umferð töpuðu þeir gegn sterku liði Króata.
Leikmannahópur
breytaEftirfarandi leikmenn voru útvaldir til að spila gegn Íslandi 8.október 2020, Noregi og Austurríki 11.október og 14.október 2020
Tölfræði uppfærð , 4. okt 2020.
Markmenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
---|---|---|---|---|
Ciprian Tătărușanu | 28. apríl 1986 (33 ára) | 69 | 0 | A.C. Milan |
Costel Pantilimon | 19. júní 1987 (31 ára) | 27 | 0 | Nottingham Forest |
David Lazar | 18. febrúar 1995 (24 ára) | 2 | 0 | Astra Giurgiu |
Varnarmenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
Dragoș Grigore | 8. febrúar 1986 (33 ára) | 38 | 1 | PFC Ludogorets Razgrad |
Alin Toșca | 10. apríl 1984 (35 ára) | 38 | 1 | Gaziantep |
Romario Benzar | 11. nóvember 1984 (34 ára) | 90 | 1 | FCSB |
Nicușor Bancu | 19. júní 1984 (35 ára) | 12 | 3 | U Craiova |
Mihai Bălașa | 13. október 1997 (22 ára) | 6 | 0 | U Craiova |
Sergiu Hanca | 18. seotember 1992 (27 ára) | 7 | 0 | Cracovia |
Mário Camora | 25. Apríl 1996 (23 ára) | 3 | 0 | CFR Cluj |
Andrei Burcă | 18. Maí 1989 30 ára) | 1 | 0 | CFR Cluj |
Miðjumenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
Nicolae Stanciu | 5. júlí 1993 (26 ára) | 73 | 21 | Al Ahli |
Ciprian Deac | 16. febrúar 1986 (31 ára) | 18 | 3 | CFR Cluj |
Răzvan Marin | 23. Maí 1996 (23 ára) | 14 | 1 | Standard Liége |
Ianis Hagi | 22. október 1998 (21 árs) | 11 | 0 | Glasgow Rangers |
Alexandru Mitriță | 2. Ágúst 1995 (25 ára) | 11 | 2 | New York City FC |
Alexandru Crețu | 24. Apríl 19992(28 ára) | 3 | 0 | NK Maribor |
Alexandru Cicâldău | 15. Maí 1997 (22 ára) | 3 | 0 | CS Universitatea Craiova |
Răzvan Marin | 23. Maí 1996 (24 ára) | 21 | 0 | Cagliari |
Sóknarmenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
Claudiu Keșerü | 12. febrúar 1986 (33 ára) | 37 | 13 | PFC Ludogorets Razgrad |
George Pușcaș | 8. Apríl 1996 (24 ára) | 16 | 7 | Reading |
Denis Alibec | 5. Janúar 1991 (29 ára) | 22 | 3 | Kayserispor |
Gabriel Iancu | 15. Apríl 1994 (26 ára) | 1 | 0 | Viitorul Constanța |