Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2002
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2002 var í 17. sinn sem mótið var haldið. Keppnin var haldin í Suður-Kóreu og Japan, þetta var fyrsta HM sem var heldið í Asíu. Þetta var seinasta HM sem var með golden goal regluna, og eina HM sem var haldin í fleirru en einu landi. Brasilía vann keppnina en setti þá met aðð vinna hana 5 sinnum. Þeir tóku Þýskaland 2-0 í lokaleiknum. Þjóðverjar komu svo í 2.sæti Tyrkir í því 3, og Suður-Kórea í því 4. Mikið að skrítnum úrslitum voru í þessari keppni. Það að Frakkar sem voru ríkjandi meistarar komust ekki uppúr riðlinum, enduðu aðeins með 1. stig. Suður-Kórea komust í undanúrslitin með því að vinna Spán, Ítalíu og Portugal á leiðinni. Og að Brasilía unnu keppnina í 5 sinn.
Val á gestgjöfum
breytaÞrjú lönd sóttust eftir að halda keppnuna: Mexíkó, Japan og Suður-Kórea. Í ljósi þess að Mexíkó hafði áður haldið keppnina árin 1970 og 1986 var talið ólíklegt að landið hreppti hnossið, þess í stað háðu Asíulöndin tvö hatramma baráttu um gestgjafahlutverkið. João Havelange, forseti FIFA var talinn á bandi Japana en Lennart Johansson forseti UEFA var á öðru máli. Hann beitti sér fyrir því að löndin tvö tækju saman höndum og héldu mótið í sameiningu. Sameiginlega framboðið vann auðveldlega á þingi FIFA vorið 1996.
Með ákvörðuninni voru ýmis blöð brotin. Þetta yrði fyrsta keppnin í Asíu og sú fyrsta með tvo gestgjafa. Lega landanna gerði það einnig að verkum að evrópskir fótboltaáhugamenn máttu sætta sig við afar óvenjulega leiktíma á mótinu.
Undankeppni
breyta199 lönd skráðu sig til leiks í undankeppninni til að berjast um 29 laus sæti í úrslitunum. Kínverjar nýttu sér fjarveru gestgjafaþjóðanna tveggja í forkeppninni og komust í úrslitin í fyrsta og eina skiptið. Hollendingar misstu af sæti í úrslitakeppninni, lentu á eftir Írum sem komust alla leið eftir sigur á Írönum í umspili. Júgóslavar urðu líka að sitja heima á meðan grannar þeirra Slóvenar komust í sína fyrstu úrslitakeppni. Tyrkland komst áfram í fyrsta sinn frá HM 1954. England og Þýskaland lentu saman í forriðli og þurftu þeir síðarnefndu að fara í gegnum umspil til að tryggja sér farseðilinn til Asíu. Úrúgvæ varð síðasta liðið í úrslitin eftir sigur á Áströlum í tveggja leikja einvígi. Kólumbía var hæsta liðið á styrkleikalista FIFA (4ða sæti) sem ekki komst í úrslitin en Kína (50asta sæti) var það lægsta sem það gerði.
Þátttökulið
breyta24 þjóðir mættu til leiks frá fimm heimsálfum.
Leikvangar
breytaSuður Kórea | |||||
---|---|---|---|---|---|
Daegu | Seoul | Busan | Incheon | Ulsan | |
Daegu World Cup Stadium | Seoul World Cup Stadium | Busan Asiad Stadium | Incheon World Cup Stadium | Ulsan Munsu Football Stadium | |
Áhorfendur: 68.014 | Áhorfendur: 63.961 | Áhorfendur: 55.982 | Áhorfendur: 52.179 | Áhorfendur: 43.550 | |
Suwon | Gwangju | Jeonju | Seogwipo | Daejeon | |
Suwon World Cup Stadium | Gwangju World Cup Stadium | Jeonju World Cup Stadium | Jeju World Cup Stadium | Daejeon World Cup Stadium | |
Áhorfendur: 43.188 | Áhorfendur: 42.880 | Áhorfendur: 42.391 | Áhorfendur: 42.256 | Áhorfendur: 40.407 | |
Japan | |||||
Yokohama | Saitama | Shizuoka | Osaka | Miyagi | |
International Stadium Yokohama | Saitama Stadium | Shizuoka Stadium ECOPA | Nagai Stadium | Miyagi Stadium | |
Áhorfendur: 72.327 | Áhorfendur: 63.000 | Áhorfendur: 50.600 | Áhorfendur: 5.,000 | Áhorfendur: 49.000 | |
Ōita | Niigata | Kashima | Kobe | Sapporo | |
Ōita Stadium | Niigata Stadium | Kashima Stadium | Kobe Wing Stadium | Sapporo Dome | |
Áhorfendur: 43.000 | Áhorfendur: 42.300 | Áhorfendur: 42.000 | Áhorfendur: 42.000 | Áhorfendur: 42.000 | |
Keppnin
breytaRiðlakeppnin
breytaKeppt var í átta riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit.
Riðill A
breytaÓvænt úrslit urðu í opnunarleik heimsmeistaramótsins þegar Senegal, á sínu fyrsta móti, skellti heimsmeisturum Frakka. Þetta var bara byrjunin á hörmungarmóti Frakka sem gerðu næst markalaust jafntefli við Úrúgvæ eftir að hafa misst Thierry Henry af velli með rautt spjald á fyrsta hálftímanum. Til að bæta gráu oná svart töpuðu Frakkar fyrir Dönum, sem unnu riðilinn, í lokaleiknum 2:0. Senegal náði hinu sætinu í 16-liða úrslitunum á kostnað Úrúgvæ en liðið gerðu 3:3 jafntefli í lokaumferðinni þar sem Afríkumennirnir voru 3:0 yfir í hálfleik.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Danmörk | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 2 | +3 | 7 | |
2 | Senegal | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 | 4 | +1 | 5 | |
3 | Úrúgvæ | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 | 5 | -1 | 2 | |
4 | Frakkland | 3 | 0 | 1 | 2 | 0 | 3 | -3 | 1 |
31. maí 2002 | |||
Frakkland | 0-1 | Senegal | Seoul World Cup Stadium, Seoul Áhorfendur: 62.561 Dómari: Ali Bujsaim |
Bouba Diop 30 |
1. júní 2002 | |||
Úrúgvæ | 1-2 | Danmörk | Munsu Football Stadium, Ulsan Áhorfendur: 30.157 Dómari: Saad Mane |
Rodríguez 47 | Tomasson 45, 83 |
6. júní 2002 | |||
Danmörk | 1-1 | Senegal | Daegu World Cup Stadium, Daegu Áhorfendur: 43.500 Dómari: Carlos Batres |
Tomasson 16 | Diao 52 |
6. júní 2002 | |||
Úrúgvæ | 0-0 | Frakkland | Busan Asiad Main Stadium, Busan Áhorfendur: 38.289 Dómari: Felipe Ramos |
11. júní 2002 | |||
Danmörk | 2-0 | Frakkland | Seoul World Cup Stadium, Seoul Áhorfendur: 62.561 Dómari: Ali Bujsaim |
Rommedahl 22, Tomasson 67 |
11. júní 2002 | |||
Senegal | 3-3 | Úrúgvæ | Incheon Munhak Stadium, Incheon Áhorfendur: 48.100 Dómari: Vítor Melo Pereira |
Fadiga 20, Bouba Diop 38 | Morales 46, Forlán 69, Recoba 88 |
Riðill B
breytaÁrangur Evrópuliðanna tveggja í riðlinum var eins og svart og hvítt. Spánverjar unnu alla sína leiki og luku keppni með fullt hús á meðan Slóvenar töpuðu öllum þremur leikjunum. Hin tvö liðin, Paragvæ og Suður-Afríka gerðu jafntefli í upphafsleiknum og fjöldi skoraðra marka réð því að lokum hvor þjóðin kæmist áfram. Þar hafði Paragvæ vinninginn eftir að hafa skorað þrjú mörk á síðasta hálftímanum í lokaleiknum gegn Slóveníu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Spánn | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 4 | +5 | 9 | |
2 | Paragvæ | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 | 6 | 0 | 4 | |
3 | Suður-Afríka | 3 | 1 | 1 | 1 | 5 | 5 | 0 | 4 | |
4 | Slóvenía | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 7 | -5 | 0 |
2. júní 2002 | |||
Paragvæ | 2-2 | Suður-Afríka | Seoul World Cup Stadium, Seoul Áhorfendur: 25.186 Dómari: Ľuboš Micheľ |
Santa Cruz 39, Arce 55 | Mokoena 63, Fortune 90+1 |
2. júní 2002 | |||
Spánn | 3-1 | Slóvenía | Busan Asiad Main Stadium, Busan Áhorfendur: 28.598 Dómari: Mohamed Guezzaz |
Raúl 44, Valerón 74, Hierro 87 | Cimirotič 82 |
7. júní 2002 | |||
Spánn | 3-1 | Paragvæ | Jeonju World Cup Stadium, Jeonju Áhorfendur: 24.000 Dómari: Gamal Al-Ghandour |
Morientes 53, 69, Hierro 83 | Puyol 10 (sjálfsm.) |
8. júní 2002 | |||
Suður-Afríka | 1-0 | Slóvenía | Daegu World Cup Stadium, Daegu Áhorfendur: 47.226 Dómari: Ángel Sánchez |
Nomvethe 4 |
12. júní 2002 | |||
Suður-Afríka | 2-3 | Spánn | Daejeon World Cup Stadium, Daejeon Áhorfendur: 31.024 Dómari: Saad Mane |
McCarthy 31, Radebe 53 | Raúl 4, 56, Mendieta 45+1 |
12. júní 2002 | |||
Paragvæ | 3-1 | Slóvenía | Jeju World Cup Stadium, Seogwipo Áhorfendur: 30.176 Dómari: Felipe Ramos |
Cuevas 65, 84, Campos 73 | Ačimovič 45+1 |
Riðill C
breytaKína reið ekki feitum hesti frá sinni fyrstu lokakeppni. Tapaði öllum leikjunum og skoraði ekki mark. Brasilía var hins vegar annað tveggja liða til að klára sinn riðil á fullu húsi stiga. Jafntefli Kosta Ríka og Tyrklands í annarri umferð þýddi að í lokaleikjunum myndi markatalan ráða því hvort liðanna kæmist áfram. Tyrkir unnu Kínverja 3:0 á meðan Kosta Ríka tapaði með þriggja marka mun fyrir Brasilíu, sem reyndist of mikið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 3 | 0 | 0 | 11 | 3 | +8 | 9 | |
2 | Tyrkland | 3 | 1 | 1 | 1 | 5 | 3 | +2 | 4 | |
3 | Kosta Ríka | 3 | 1 | 1 | 1 | 5 | 6 | -1 | 4 | |
4 | Kína | 3 | 0 | 0 | 3 | 0 | 9 | -9 | 0 |
3. júní 2002 | |||
Brasilía | 2-1 | Tyrkland | Munsu Football Stadium, Ulsan Áhorfendur: 33.842 Dómari: Kim Young-joo |
Ronaldo 50, Rivaldo 87 | Hasan Şaş 45+2 |
4. júní 2002 | |||
Kína | 0-2 | Kosta Ríka | World Cup Stadium, Gwangju Áhorfendur: 27.217 Dómari: Kyros Vassaras |
Gómez 61, Wright 65 |
8. júní 2002 | |||
Brasilía | 4-0 | Kína | Jeju World Cup Stadium, Seogwipo Áhorfendur: 36.750 Dómari: Anders Frisk |
Roberto Carlos 15, Rivaldo 32, Ronaldinho 45, Ronaldo 55 |
9. júní 2002 | |||
Tyrkland | 0-2 | Kosta Ríka | Incheon Munhak Stadium, Incheon Áhorfendur: 42.299 Dómari: Coffi Codjia |
Emre B. 56 | Parks 86 |
13. júní 2002 | |||
Brasilía | 5-2 | Kosta Ríka | Suwon World Cup Stadium, Suwon Áhorfendur: 38.524 Dómari: Gamal Al-Ghandour |
Ronaldo 10, 13, Edmílson 38, Rivaldo 62, Júnior 64 | Wanchope 39, Gómez 56 |
13. júní 2002 | |||
Tyrkland | 3-0 | Kína | Seoul World Cup Stadium, Seoul Áhorfendur: 43.605 Dómari: Óscar Ruiz |
Hasan Şaş 6, Bülent 9, Davala 85 |
Riðill D
breytaHeimamenn byrjuðu vel með sigri á Portúgal í fyrsta leik. Bandaríkin komust í 3:0 móti Portúgölum í hinni viðureigninni en voru næstum búin að missa leikinn niður í jafntefli. Portúgalir virtust vaknaðir til lífsins með stórsigri á Pólverjum á sama tíma og Suður-Kórea og Bandaríkin skildu jöfn. Pólverjar björguðu ærunni með sigri á Bandaríkjunum í lokaumferðinni en enduðu samt á botninum. Suður-Kórea nældi sér í toppsætið og skildi Portúgali eftir með sárt ennið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Suður-Kórea | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 1 | +3 | 7 | |
2 | Bandaríkin | 3 | 1 | 1 | 1 | 5 | 6 | -1 | 4 | |
3 | Portúgal | 3 | 1 | 0 | 2 | 6 | 4 | +2 | 3 | |
4 | Pólland | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 7 | -4 | 3 |
4. júní 2002 | |||
Suður-Kórea | 2-0 | Pólland | Busan Asiad Main Stadium, Busan Áhorfendur: 48.760 Dómari: Óscar Ruiz |
Hwang Sun-hong 26, Yoo Sang-chul 53 |
4. júní 2002 | |||
Bandaríkin | 3-2 | Portúgal | Suwon World Cup Stadium, Suwon Áhorfendur: 37.306 Dómari: Byron Moreno |
O'Brien 4, J. Costa 29 (sjálfsm.), McBride 36 | Beto 39, Agoos 71 (sjálfsm.) |
10. júní 2002 | |||
Suður-Kórea | 1-1 | Bandaríkin | Busan Asiad Main Stadium, Busan Áhorfendur: 60.778 Dómari: Urs Meier |
Ahn Jung-hwan 78 | Mathis 24 |
10. júní 2002 | |||
Pólland | 0-4 | Portúgal | Jeonju World Cup Stadium, Jeonju Áhorfendur: 31.000 Dómari: Hugh Dallas |
Pauleta 14, 65, 77, Rui Costa 88 |
14. júní 2002 | |||
Suður-Kórea | 1-0 | Portúgal | Incheon Munhak Stadium, Incheon Áhorfendur: 50.239 Dómari: Ángel Sánchez |
Park Ji-sung 70 |
14. júní 2002 | |||
Pólland | 3-1 | Bandaríkin | Daejeon World Cup Stadium, Daejeon Áhorfendur: 26.482 Dómari: Lu Jun |
Olisadebe 3, Kryszałowicz 5, Żewłakow 66 | Donovan 83 |
Riðill E
breytaSádi Arabía fékk versta skellinn á mótinu gegn Þjóðverjum í fyrsta leik, 8:0. Sama dag skildu Írar og Kamerúnmenn jafnir. Jöfnunarmark Robbie Keane fyrir Íra í uppbótartíma gegn Þjóðverjum reyndist dýrmætt og þeir fylgdu þýska liðinu áfram í næstu umferð. Sádi Arabar töpuðu öllum sínum leikjum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Þýskaland | 3 | 2 | 1 | 0 | 11 | 1 | +10 | 9 | |
2 | Írland | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 | 2 | +3 | 5 | |
3 | Kamerún | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 3 | -1 | 4 | |
4 | Sádi Arabía | 3 | 0 | 0 | 3 | 0 | 12 | -12 | 0 |
1. júní 2002 | |||
Írland | 0-1 | Kamerún | Niigata Stadium, Niigata Áhorfendur: 33.679 Dómari: Toru Kamikawa |
Holland 52 | M'Boma 39 |
1. júní 2002 | |||
Þýskaland | 0-8 | Sádi Arabía | Sapporo Dome, Sapporo Áhorfendur: 32.218 Dómari: Ubaldo Aquino |
Klose 20, 25, 70, Ballack 40, Jancker 45+1, Linke 73, Bierhoff 84, Schneider 90+1 |
5. júní 2002 | |||
Þýskaland | 1-1 | Írland | Kashima Soccer Stadium, Ibaraki Áhorfendur: 35.854 Dómari: Kim Milton Nielsen |
Klose 19 | Keane 90+2 |
6. júní 2002 | |||
Kamerún | 0-1 | Sádi Arabía | Saitama Stadium, Saitama Áhorfendur: 52.328 Dómari: Terje Hauge |
Eto'o 66 |
11. júní 2002 | |||
Þýskaland | 2-0 | Kamerún | Ecopa Stadium, Shizuoka Áhorfendur: 47.085 Dómari: Antonio López Nieto |
Bode 50, Klose 79 |
11. júní 2002 | |||
Írland | 3-0 | Sádi Arabía | International Stadium Yokohama, Yokohama Áhorfendur: 65.320 Dómari: Falla N'Doye |
Bode 50, Klose 79 |
Riðill F
breytaDauðariðillinn svokallaði vakti mikla eftirvæntingu, ekki hvað síst vegna gamalla væringa Englendinga og Argentínumanna. Argentína byrjaði vel með sigri á Nígeríu á sama tíma og Evrópuþjóðirnar skildu jafnar. Tvö mörk Henke Larsson gerðu HM-vonir Nígeríumanna að engu í annarri umferðinni og vítaspyrna David Beckham tryggði sigur Englands á argentínsku erkifjendunum. Báðum leikjum í lokaumferðinni lauk með jafntefli og Svíar og Englendingar komust því áfram.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Svíþjóð | 3 | 1 | 2 | 0 | 4 | 3 | +1 | 5 | |
2 | England | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 | 1 | +1 | 5 | |
3 | Argentína | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 0 | 4 | |
4 | Nígería | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 3 | -2 | 1 |
2. júní 2002 | |||
Argentína | 1-0 | Nígería | Kashima Soccer Stadium, Ibaraki Áhorfendur: 34.050 Dómari: Gilles Veissière |
Batistuta 63 |
2. júní 2002 | |||
England | 1-1 | Svíþjóð | Saitama Stadium, Saitama Áhorfendur: 52.721 Dómari: Carlos Simon |
Campbell 24 | Alexandersson 59 |
7. júní 2002 | |||
Svíþjóð | 2-1 | Nígería | Kobe Wing Stadium, Kobe Áhorfendur: 36.194 Dómari: René Ortubé |
Larsson 35, 63 | Aghahowa 27 |
7. júní 2002 | |||
England | 1-0 | Argentína | Sapporo Dome, Sapporo Áhorfendur: 35.927 Dómari: Pierluigi Collina |
Beckham 44 |
12. júní 2002 | |||
Svíþjóð | 1-1 | Argentína | Miyagi Stadium, Miyagi Áhorfendur: 45.777 Dómari: Ali Bujsaim |
A. Svensson 59 | Crespo 88 |
12. júní 2002 | |||
England | 0-0 | Nígería | Nagai Stadium, Osaka Áhorfendur: 44.864 Dómari: Brian Hall |
Riðill G
breytaG-riðillinn var talinn einn sá allra erfiðasti og liðin kepptust um að taka stigin hvert af öðru. Nýliðar Ekvador töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum og voru þar með úr leik. Þeir gerðu þó bronsliðinu frá fyrri heimsmeistarakeppni, Króötum, grikk með því að vinna þá í lokaleiknum. Þau úrslit þýddu að Ítalir skriðu áfram eftir að hafa jafnað á móti Mexíkó undir lok leiks en Norður-Ameríkuliðið náði nokkuð óvænt toppsætinu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Mexíkó | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 2 | +2 | 7 | |
2 | Ítalía | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 3 | +1 | 4 | |
3 | Króatía | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 3 | -1 | 3 | |
4 | Ekvador | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 4 | -2 | 3 |
3. júní 2002 | |||
Króatía | 0-1 | Mexíkó | Niigata Big Swan Stadium, Niigata Áhorfendur: 32.239 Dómari: Lu Jun |
Blanco 60 |
3. júní 2002 | |||
Ítalía | 2-0 | Ekvador | Sapporo Dome, Sapporo Áhorfendur: 31.081 Dómari: Brian Hall |
Vieri 7, 27 |
8. júní 2002 | |||
Ítalía | 1-2 | Króatía | Sapporo Dome, Sapporo Áhorfendur: 31.081 Dómari: Brian Hall |
Vieri 55 | Olić 73, Rapaić 76 |
9. júní 2002 | |||
Mexíkó | 2-1 | Ekvador | Miyagi Stadium, Miyagi Áhorfendur: 45.610 Dómari: Mourad Daami |
Borgetti 28, Torrado 57 | Delgado 5 |
13. júní 2002 | |||
Mexíkó | 1-1 | Ítalía | Ōita Big Eye Stadium, Ōita Áhorfendur: 39.291 Dómari: Carlos Simon |
Borgetti 34 | Del Piero 85 |
13. júní 2002 | |||
Ekvador | 1-0 | Króatía | International Stadium Yokohama, Yokohama Áhorfendur: 65.862 Dómari: William Mattus |
Méndez 48 |
Riðill H
breytaJapanir hlutu sitt fyrsta stiga á heimsmeistaramóti með því að gera jafntefli við Belga í fyrsta leik. Fyrir keppnina höfðu japanskir stuðningsmenn haft áhyggjur af því að verða fyrsta gestgjafaliðið í sögunni til að komast ekki upp úr riðlakeppninni, en þær áhyggjur reyndust óþarfar og sigrar í seinni leikjunum tveimur tryggðu liðinu óvænt toppsæti. Jafntefli Belga og Túnisbúa gerði það að verkum belgíska liðið þurfti sigur gegn Rússum í lokaleiknum til að hreppa annað sætið. Belgar unnu 3:2 í fjörugum leik. Túnis lauk keppni án sigurs.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Japan | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 2 | +3 | 7 | |
2 | Belgía | 3 | 1 | 2 | 0 | 6 | 5 | +1 | 5 | |
3 | Rússland | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 4 | 0 | 3 | |
4 | Túnis | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 5 | -4 | 1 |
4. júní 2002 | |||
Japan | 2-2 | Belgía | Saitama Stadium, Saitama Áhorfendur: 55.256 Dómari: William Mattus |
Suzuki 59, Inamoto 67 | Wilmots 57, Van der Heyden 75 |
5. júní 2002 | |||
Rússland | 2-0 | Túnis | Kobe Wing Stadium, Kobe Áhorfendur: 30.957 Dómari: Peter Prendergast |
Titov 59, Karpin 64 |
9. júní 2002 | |||
Japan | 1-0 | Rússland | International Stadium Yokohama, Yokohama Áhorfendur: 66.108 Dómari: Markus Merk |
Inamoto 51 |
10. júní 2002 | |||
Túnis | 1-1 | Belgía | Ōita Big Eye Stadium, Ōita Áhorfendur: 39.700 Dómari: Mark Shield |
Bouzaiene 17 | Wilmots 13 |
14. júní 2002 | |||
Túnis | 0-2 | Japan | Nagai Stadium, Osaka Áhorfendur: 45.213 Dómari: Gilles Veissière |
Morishima 48, H. Nakata 75 |
14. júní 2002 | |||
Belgía | 3-2 | Rússland | Shizuoka Ecopa Stadium, Fukuroi, Shizuoka Áhorfendur: 46.640 Dómari: Kim Milton Nielsen |
Walem 7, Sonck 78, Wilmots 82 | Beschastnykh 52, Sychev 88 |
Útsláttarkeppnin
breytaTvö efstu liðin úr hverjum forriðli fóru áfram í 16-liða úrslit sem leikin voru með útsláttarfyrirkomulagi.
16-liða úrslit
breytaOliver Neuville skaut Þjóðverjum í fjórðungsúrslitin með marki í blálokin. Englendingar áttu ekki í nokkrum vandræðum með Dani. Senegal sló Svía úr leik með gullmarki í framlengingu. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslitin í leik Spánverja og Íra eftir að Robbie Keane jafnaði úr vítaspyrnu á lokamínútunni. Hann skoraði aftur í vítakeppninni en það dugði ekki til fyrir Íra. Bandaríkin unnu Mexíkó í Norður-Ameríkuslagnum og Brasilía lagði Belga síðar sama dag. Gestgjafaþjóðirnar kepptu lokadag 16-liða úrslitanna. Japanir máttu sætta sig við tap fyrir Tyrkjum. Óvæntustu úrslitin litu hins vegar dagsins ljós í leik Suður-Kóreu og Ítalíu þar sem úrslitin réðust með gullmarki.
15. júní 2002 | |||
Þýskaland | 1:0 | Paragvæ | Jeju World Cup leikvangurinn, Seogwipo Áhorfendur: 25.176 Dómari: Carlos Alberto Batres, Gvatemala |
Neuville 88 |
15. júní 2002 | |||
Danmörk | 0:3 | England | Big Swan leikvangurinn, Niigata Áhorfendur: 40.582 Dómari: Markus Merk, Þýskalandi |
Ferdinand 5, Owen 22, Heskey 44 |
16. júní 2002 | |||
Svíþjóð | 1:2 (e.framl.) | Senegal | Big Eye leikvangurinn, Ōita Áhorfendur: 39.747 Dómari: Ubaldo Aquino, Paragvæ |
Larsson 11 | Camara 37, 104 (gullmark) |
16. júní 2002 | |||
Spánn | 1:1 (4:3 e.vítake.) | Írland | Suwon World Cup leikvangurinn, Suwon Áhorfendur: 38.926 Dómari: Anders Frisk, Svíþjóð |
Morientes 8 | Keane 90 (vítasp.) |
17. júní 2002 | |||
Mexíkó | 0:2 | Bandaríkin | Jeonju World Cup leikvangurinn, Jeonju Áhorfendur: 36.380 Dómari: Vítor Melo Pereira, Portúgal |
McBride 8, Donovan 65 |
17. júní 2002 | |||
Brasilía | 2:0 | Belgía | Kobe Wing leikvangurinn, Kobe Áhorfendur: 40.440 Dómari: Peter Prendergast, Jamaíku |
Rivaldo 67, Ronaldo 87 |
18. júní 2002 | |||
Japan | 0:1 | Tyrkland | Miyagi leikvangurinn, Rifu Áhorfendur: 45.666 Dómari: Pierluigi Collina, Ítalíu |
Ümit Davala 12 |
18. júní 2002 | |||
Suður-Kórea | 2:1 | Ítalía | Daejeon World Cup leikvangurinn, Daejeon Áhorfendur: 38.588 Dómari: Byron Moreno, Ekvador |
Seol Ki-hyeon 88, Ahn Jung-hwan 117 (gullmark) | Vieri 18 |
Fjórðungsúrslit
breytaMichael Owen kom Englendingum yfir gegn Brasilíu en aukaspyrnumark frá Ronaldinho skildi að lokum milli liðanna. Michael Ballack skoraði mark Þjóðverja gegn Bandaríkjamönnum sem voru afar ósáttir fyrir að fá ekki vítaspyrnu þegar leikmaður þýska liðsins sló boltann á marklínu. Gullmark kom Tyrkjum áfram á móti Senegal, sem þar með missti af því að verða fyrsta afríska liðið til að komast í undanúrslit. Suður-Kórea hélt áfram að koma á óvart. Spánn skoraði ekkert gilt mark en tvö sem dæmd voru af vegna rangstöðu á umdeildan hátt. Í vítakeppninni skoruðu heimamenn úr öllum spyrnum sínum og urðu fyrsta Asíuþjóðin í undanúrslit.
21. júní 2002 | |||
England | 1:2 | Brasilía | Ecopa leikvangurinn, Shizuoka Áhorfendur: 47.463 Dómari: Felipe Ramos Rizo, Mexíkó |
Owen 23 | Rivaldo 45+2, Ronaldinho 50 |
21. júní 2002 | |||
Þýskaland | 1-0 | Bandaríkin | Munsu Cup leikvangurinn, Ulsan Áhorfendur: 37.337 Dómari: Hugh Dallas, Skotlandi |
Ballack 39 |
22. júní 2002 | |||
Spánn | 0-0 (3:5 e. vítak.) | Suður-Kórea | Gwangju World Cup leikvangurinn, Gwangju Áhorfendur: 42.114 Dómari: Gamal Al-Ghandour, Egyptalandi |
22. júní 2002 | |||
Senegal | 0-1 (e.framl.) | Tyrkland | Nagai leikvangurinn, Osaka Áhorfendur: 44.233 Dómari: Óscar Ruiz, Kólumbíu |
Mansız 94 (gullmark) |
Undanúrslit
breytaMichael Ballack skoraði eina markið í sigri Þjóðverja á heimamönnum í Suður-Kóreu. Það var þó súrsæt tilfinning fyrir leikmanninn sem hafði nælt sér í gult spjald fyrr í leiknum og var því í leikbanni í lokin. Hinum undanúrslitaleiknum lauk líka með 1:0 sigri eftir mark frá Ronaldo.
25. júní 2002 | |||
Suður-Kórea | 0-1 | Þýskaland | Seoul World Cup Stadium, Seoul Áhorfendur: 65.256 Dómari: Urs Meier, Sviss |
Ballack 75 |
26. júní 2002 | |||
Tyrkland | 0:1 | Brasilía | Saitama Stadium, Saitama Áhorfendur: 61.058 Dómari: Kim Milton Nielsen, Danmörku |
Ronaldo 49 |
Bronsleikur
breytaHakan Şükür skráði nafn sitt í sögubækurnar með því að skora eftir 10,8 sekúndur og setja nýtt met. Alls voru fimm mörk skoruð í leiknum, það síðasta í uppbótartíma.
29. júní 2002 | |||
Suður-Kórea | 2-3 | Tyrkland | Daegu World Cup Stadium, Daegu Áhorfendur: 63.483 Dómari: Saad Mane, Kúveit |
Lee Eul-yong 9, Song Chong-gug 90+3 | Şükür 1, İlhan 13, 32 |
Úrslitaleikur
breytaRonaldo skoraði bæði mörk Brasilíu í seinni hálfleik. Þetta var í fyrsta sinn frá HM 1970 sem heimsmeistararnir unnu alla leiki sína.
30. júní 2002 | |||
Þýskaland | 0:2 | Brasilía | Yokohama alþjóðaleikvangurinn, Yokohama Áhorfendur: 69.029 Dómari: Pierluigi Collina, Ítalíu |
Ronaldo 67, 79 |
Markahæstu leikmenn
breytaRonaldo hreppti gullskó FIFA með átta mörk skoruð. Alls voru 161 mark skorað í 64 leikjum, 2,52 mörk á leik að jafnaði.
- 8 mörk
- 5 mörk
- 4 mörk