Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1954
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1954 eða HM 1954 var haldið í Sviss dagana 16. júní til 4. júlí. Þetta var fimmta heimsmeistarakeppnin og urðu Vestur-Þjóðverjar meistarar í fyrsta sinn eftir sigur á Ungverjum. Nærri 5,4 mörk voru skoruð í leikjum mótsins að meðaltali og er það met.
Val á gestgjöfum
breytaÁkvörðunin um að fela Svisslendingum að halda HM var tekin á þingi Alþjóðaknattspyrnusambandsins árið 1946, um leið og Brasilíumönnum var úthlutað HM 1950.
Undankeppni
breytaSviss og Úrúgvæ komust sjálfkrafa í úrslitakeppnina sem gestgjafar og ríkjandi meistarar. Hin 14 sætin skiptust þannig að Norður-Ameríka, Suður-Ameríka og Asíu hlutu eitt sæti hvert og Evrópa þau 11 sem eftir voru (Tyrkland, Ísrael og Eyptaland tóku þátt í Evrópukeppninni). Alls skráðu 37 lið sig til keppni, en að venju drógu nokkur þeirra sig í hlé.
Aðra keppnina í röð tóku Argentínumenn ekki þátt og átti Brasilía greiða leið sem fulltrúi Suður-Ameríku. Suður-Kórea komst í fyrsta sinn í úrslit eftir sigur á Japan og Mexíkó vann Norður-Ameríkukeppnina.
Í Evrópu bar það helst til tíðinda að bronslið Svía frá fyrri keppni féll úr leik fyrir Belgum. Óvæntustu tíðindin voru þó í einvígi Tyrkja og Spánverja. Spánverjar unnu heimaleikinn 4:1 en Tyrkir náðu að knýja fram 1:0 sigur á sínum heimavelli. Þar sem ekki var horft til markatölu þurfti að leika oddaleik á hlutlausum velli, í Rómarborg á Ítalíu. Þeim leik lauk með jafntefli, en Tyrkir komust áfram á hlutkesti.
Þátttökulið
breytaSextán þjóðir mættu til leiks frá fjórum heimsálfum.
|
|
Leikvangar
breytaSex leikvangar í jafnmörgum borgum voru notaðir á mótinu. Flestir leikjanna 26 fóru fram í Basel, sex talsins.
Basel | Bern | Genf |
---|---|---|
St. Jakob Stadium | Wankdorf Stadium (endurnýjaður) |
Charmilles Stadium |
Áhorfendur: 54,800 | Áhorfendur: 64,600 | Áhorfendur: 35,997 |
Lausanne | Lugano | Zürich |
Stade olympique de la Pontaise (endurnýjaður) |
Cornaredo Stadium | Hardturm Stadium |
Áhorfendur: 50,300 | Áhorfendur: 35,800 | Áhorfendur: 34,800 |
Keppnin
breytaRiðlakeppnin
breytaNotast var við óvenjulegt keppnisfyrirkomulag, þar sem liðin voru dregin í fjóra fjögurra liða riðla, en í stað þess að öll liðin í hverjum riðli mættust innbyrðis, lék hvert lið einungis tvær viðureignir.
Riðill 1
breytaBrasilíumenn urðu hlutskarpastir í riðlinum eftir stórsigur á Mexíkó og jafntefli í framlengdum leik gegn Júgóslavíu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 | 1 | +5 | 3 | |
2 | Júgóslavía | 2 | 1 | 1 | 0 | 2 | 1 | +1 | 3 | |
3 | Frakkland | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 | 3 | 0 | 2 | |
4 | Mexíkó | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 | 8 | -6 | 0 |
16. júní 1954 | |||
Brasilía | 5-0 | Mexíkó | Charmilles leikvangurinn, Genf Áhorfendur: 13.470 Dómari: Raymon Wyssling, Sviss |
Baltazar 23, Didi 30, Pinga 34, 43, Julinho 69 |
16. júní 1954 | |||
Júgóslavía | 1-0 | Frakkland | Olympique de la Pontaise, Lausanne Áhorfendur: 16.000 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Milutinović 15 |
19. júní 1954 | |||
Brasilía | 1-1 (e.framl.) | Júgóslavía | Olympique de la Pontaise, Lausanne Áhorfendur: 24.637 Dómari: Charlie Faultless, Skotlandi |
Didi 69 | Zebec 48 |
19. júní 1954 | |||
Frakkland | 3-2 | Mexíkó | Charmilles leikvangurinn, Genf Áhorfendur: 19.000 Dómari: Manuel Asensi, Spáni |
Vincent 19, Cárdenas 46 (sjálfsm.), Kopa 88 (vítasp.) | Lamadrid 54, Tomás Balcázar 85 |
Riðill 2
breytaUngverjar léku sér að Vestur-Þjóðverjum í Basel og unnu 8:3 í ótrúlegum fótboltaleik. Vestur-þýska liðið var í neðri styrkleikaflokki ásamt Suður-Kóreu en komst þó áfram eftir tvo stórsigra á Tyrkjum. Ungverjar settu markamet á HM með sigri sínum á Suður-Kóreu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Ungverjaland | 2 | 2 | 0 | 0 | 17 | 3 | +12 | 4 | |
2 | Vestur-Þýskaland | 2 | 1 | 0 | 1 | 7 | 9 | -2 | 3 | |
3 | Tyrkland | 2 | 1 | 0 | 1 | 8 | 4 | 4 | 2 | |
4 | Suður-Kórea | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 16 | -16 | 0 |
17. júní 1954 | |||
Vestur-Þýskaland | 4-1 | Tyrkland | Wankdorf leikvangurinn, Bern Áhorfendur: 28.000 Dómari: Jose da Costa Vieira, Portúgal |
Schäfer 14, Klodt 52, O. Walter 60, Morlock 84 | Suat 2 |
17. júní 1954 | |||
Ungverjaland | 9-0 | Suður-Kórea | Hardturm leikvangurinn, Zürich Áhorfendur: 13.000 Dómari: Raymond Vincenti, Frakklandi |
Puskás 12, 89, Lantos 18, Kocsis 24, 36, 50, Czibor 59, Palotás 75, 83 |
20. júní 1954 | |||
Ungverjaland | 8-3 | Vestur-Þýskaland | St. Jakob leikvangurinn, Basel Áhorfendur: 56.000 Dómari: William Ling, Englandi |
Kocsis 3, 21, 69, 78, Puskás 17, Hidegkuti 52, 54, J. Tóth 75 | Pfaff 25, Rahn 77, Herrmann 84 |
20. júní 1954 | |||
Tyrkland | 7-0 | Suður-Kórea | Charmilles leikvangurinn, Genf Áhorfendur: 3.541 Dómari: Esteban Marino, Úrúgvæ |
Suat 10, 30, Lefter 24, Burhan 37, 64, 70, Erol 76 |
Aukaleikur
breyta23. júní 1954 | |||
Vestur-Þýskaland | 7-2 | Tyrkland | Hardturm leikvangurinn, Zürich Áhorfendur: 17.000 Dómari: Raymond Vincenti, Frakklandi |
O. Walter 7, Schäfer 12, 79, Morlock 30, 60, 77, F. Walter 62 | Ertan 21, Küçükandonyadis 82 |
Riðill 3
breytaÞriðji riðill reyndist sá ójafnasti í riðlakeppninni. Hlutkesti réði hvort Úrúgvæ eða Austurríki hlyti toppsæti riðilsins. Athygli vakti að þótt keppnisliðum væri heimilað að senda 22 manna leikmannahóp kaus Skotland að senda bara 13 leikmenn til mótsins og olli frammistaða þeirra miklum vonbrigðum. Ekki bætti úr skák að stjórnendur skoska knattspyrnusambandsins misskildu gjörsamlega veðráttuna í Sviss og létu lið sitt spila í þykkum keppnistreyjum úr ull, en miklir hitar voru meðan mótið stóð yfir.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Úrúgvæ | 2 | 2 | 0 | 0 | 9 | 0 | +9 | 4 | |
2 | Austurríki | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 | 0 | +6 | 4 | |
3 | Tékkóslóvakía | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 7 | -7 | 0 | |
4 | Skotland | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 8 | -8 | 0 |
16. júní 1954 | |||
Úrúgvæ | 2-0 | Tékkóslóvakía | Wankdorf leikvangurinn, Bern Áhorfendur: 20.500 Dómari: Arthur Ellis, Englandi |
Míguez 71, Schiaffino 84 |
16. júní 1954 | |||
Austurríki | 1-0 | Skotland | Hardturm leikvangurinn, Zürich Áhorfendur: 25.000 Dómari: Laurent Franken, Belgíu |
Probst 33 |
19. júní 1954 | |||
Úrúgvæ | 7-0 | Skotland | St. Jakob leikvangurinn, Basel Áhorfendur: 34.000 Dómari: Vincenzo Orlandini, Ítalíu |
Borges 17, 47, 57, Míguez 30, 83, Abbadie 54, 85 |
19. júní 1954 | |||
Austurríki | 5-0 | Tékkóslóvakía | Hardturm leikvangurinn, Zürich Áhorfendur: 26.000 Dómari: Vasa Stefanovic, Júgóslavíu |
Stojaspal 3, 65, Probst 4, 21, 24 |
Riðill 4
breytaHeimamenn komust upp úr riðlinum ásamt Englendingum. Þetta var eini riðillinn sem einvörðungu var skipaður Evrópuliðum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | England | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 | 4 | +2 | 3 | |
2 | Sviss | 2 | 1 | 0 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
3 | Ítalía | 2 | 1 | 0 | 1 | 5 | 3 | +2 | 2 | |
4 | Belgía | 2 | 0 | 1 | 1 | 5 | 8 | -5 | 1 |
17. júní 1954 | |||
Sviss | 2-1 | Ítalía | Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne Áhorfendur: 40.749 Dómari: Mario Vianna, Brasilíu |
Ballaman 18, Hügi 78 | Bonipertil 44 |
17. júní 1954 | |||
England | 4-4 (e.framl.) | Belgía | St. Jakob leikvangurinn, Basel Áhorfendur: 14.000 Dómari: Emil Schmetzer, Vestur-Þýskalandi |
Broadis 26, 63, Lofthouse 36, 91 | Anoul 5, 71, Coppensl 67, Dickinson 94 (sjálfsm.) |
20. júní 1954 | |||
Ítalía | 4-1 | Belgía | Cornaredo leikvangurinn, Lugano Áhorfendur: 24.000 Dómari: Carl Erich Steiner, Austurríki |
Pandolfini 41 (vítasp.), Galli 48, Frignani 58, Lorenzi 78 | Anoul 81 |
20. júní 1954 | |||
England | 2-0 | Sviss | Wankdorf leikvangurinn, Bern Áhorfendur: 43.119 Dómari: Istvan Zsolt, Ungverjalandi |
Mullen 43, Wilshaw 69 |
Aukaleikur
breyta23. júní 1954 | |||
Sviss | 4-1 | Ítalía | St. Jakob leikvangurinn, Basel Áhorfendur: 28.655 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Hügi 14, 85, Ballaman 48, Fatton 90 | Nesti 67 |
Fjórðungsúrslit
breytaAldrei hafa fleiri mörk verið skoruð í leik HM en í viðureign Alpaþjóðanna, Austurríkis og Sviss, 12 talsins. Úrúgvæ og Vestur-Þýskaland fylgdu Austurríkismönnum í undanúrslitin. Mest var þó dramatíkin í leik Ungverja og Brasilíumanna í Bern, þar sem þremur leikmönnum var vísað af leikvelli og slagsmál brutust út milli liðanna í búningsklefum að leik loknum.
26. júní 1954 | |||
Austurríki | 7-5 | Sviss | Olympique de la Pontaise, Lausanne Áhorfendur: 30.340 Dómari: Charlie Faultless, Skotlandi |
Wagner 25, 27, 53, Körner 26, 34, Ocwirk 32, Probst 76 | Ballaman 16, 39, Hügi 17, 19, 60 |
26. júní 1954 | |||
Úrúgvæ | 4-2 | England | St. Jakob leikvangurinn, Genf Áhorfendur: 28.000 Dómari: Carl Erich Steiner, Austurríki |
Borges 5, Varela 39, Schiaffino 46, Ambrois 78 | Lofthouse 16, Finney 67 |
27. júní 1954 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-0 | Júgóslavía | Charmilles leikvangurinn, Genf Áhorfendur: 17.000 Dómari: Istvan Zsolt, Ungverjalandi |
Horvat 9 (sjálfsm.), Rahn 85 |
27. júní 1954 | |||
Ungverjaland | 4-2 | Brasilía | Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne Áhorfendur: 45.000 Dómari: Arthur Ellis, Englandi |
Hidegkuti 4, Kocsis 7, 88, Lantos 60 (vítasp.) | Djalma Santos 18 (vítasp.), Julinho 65 |
Undanúrslit
breytaVestur-Þjóðverjar völtuðu yfir Austurríkismenn í Basel og tryggðu sér í fyrsta sinn sæti í úrslitaleik HM. Leikur Úrúgvæ og Ungverjalands var sögulegur og sagður einhver besti knattspyrnuleikur sem sést hefði. Liðin skildu jöfn eftir venjulegan leiktíma, 2:2, þar sem Úrúgvæ átti hörkuskot í stöng undir blálokin. Í framlengingunni reyndust Ungverjar sterkari og komust í úrslitaleik í annað sinn.
30. júní 1954 | |||
Vestur-Þýskaland | 6-1 | Austurríki | St. Jakob leikvangurinn, Basel Áhorfendur: 58.000 Dómari: Vincenzo Orlandini, Ítalíu |
Schäfer 31, Morlock 47, F. Walter 54 (vítasp.), 64 (vítasp.), O. Walter 61, 89 | Probst 51 |
30. júní 1954 | |||
Ungverjaland | 4-2 (e.framl.) | Úrúgvæ | Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne Áhorfendur: 45.000 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Czibor 13, Hidegkuti 46, Kocsis 111, 116 | Hohberg 75, 86 |
Bronsleikur
breytaAusturríkismenn unnu leikinn um þriðja sætið og er það enn í dag besti árangur landsins á HM.
3. júlí 1954 | |||
Austurríki | 3-1 | Úrúgvæ | Hardturm leikvangurinn, Zürich Áhorfendur: 32.000 Dómari: Raymon Wyssling, Sviss |
Stojaspal 16, Cruz 59 (sjálfsm.), Ocwirk 89 | Hohberg 22 |
Úrslitaleikur
breytaFlestir áttu von á ungverskum sigri í úrslitaleiknum gegn Vestur-Þjóðverjum en annað átti eftir að koma á daginn. Ungverska liðið hafði ekki tapað leik í fimm ár og ári fyrr varð það fyrsta liðið utan Bretlandseyja til að sigra Englendinga á Wembley. Leikmenn vestur-þýska liðsins voru flestir hálf-atvinnumenn og var þjálfaranum Sepp Herberger öðrum fremur eignað afrekið.
4. júlí 1954 | |||
Vestur-Þýskaland | 3-2 | Ungverjaland | Wankdorf Stadium, Bern Áhorfendur: 62.500 Dómari: William Ling, Englandi |
Morlock 10, Rahn 18, 84 | Puskás 6, Czibor 8 |
Markahæstu leikmenn
breytaSándor Kocsis frá Ungverjalandi varð markakóngur keppninnar með ellefu mörk. Alls voru 140 mörk skoruð af 63 leikmönnum, fjögur þeirra voru sjálfsmörk.
- 11 mörk
- 6 mörk
- 4 mörk