Oliver Bierhoff
Oliver Bierhoff (1. maí 1968 í Karlsruhe) er þýskur knattspyrnumaður og markaskorari. Hann spilaði 70 landsleiki fyrir Þýskaland og skoraði alls 37 mörk. Hann er fyrsti knattspyrnumaðurinn sem skoraði „gullna markið“ í framlengingu á stórmóti.
Leikferill
breytaOliver Bierhoff fæddist í Karlsruhe en fluttist á unga aldri til Essen. Fimm ára byrjaði hann að æfa með Essener SG 99/06 en 1978 skipti svo yfir í unglingalið Schwarz-Weiss Essen. Þar spilaði hann saman með Jens Lehmann, sem seinna varð landsliðsmarkvörður. Árið 1985 flutti Bierhoff til Krefeld og spilaði með unglingaliði Bayer Uerdingen. Ári síðar komst hann í aðalliðið, en náði sér ekki sem skildi sem sóknarmaður. Hann spilaði næstu árin með ýmsum félögum, svo sem HSV, Borussia Mönchengladbach og Austria Salzburg en það var ekki fyrr en á Ítalíu sem hann sló í gegn. Árið 1991 spilaði hann með Ascoli og skoraði 48 mörk á fjórum leiktíðum. 1995 skipti hann yfir í Udinese Calcio. Á þremur árum skoraði hann 57 mörk og varð eftirsótt stjarna. Ári síðar var hann svo valin í þýska landsliðið og spilaði sinn fyrsta leik gegn Portúgal í febrúar 1996 (sem Þjóðverjar unnu 2:1). Það ár tók hann þátt í sínu fyrsta stórmóti, EM 1996 í Englandi. Í úrslitaleiknum gegn Tékklandi afrekaði hann það að skora fyrsta „gullmarkið“ (Golden Goal) og varð þar með Evrópumeistari. Það var eini meistaratitillinn sem Bierhoff hlaut á ferli sínum. 1998 var hann keyptur til AC Milan og spilaði þar í þrjú ár. Eftir fyrsta árið sitt þar var hann kjörinn knattspyrnumaður ársins í Þýskalandi. Á EM í Hollandi og Belgíu árið 2000 var hann fyrirliði þýska landsliðsins. Eftir það reyndi hann fyrir sér í Frakklandi og lék eitt tímabil með AS Monaco, en sneri aftur til Ítalíu 2002, þar sem hann lék sína síðustu leiktíð fyrir Chievo Verona. Eftir að hafa lagt skóna á hilluna var Bierhoff til skamms tíma knattspyrnuþulur í sjónvarpi. 2004 var hann ráðinn sem framkvæmdastjóri þýska landsliðsins og starfaði sem slíkur í þjálfaratíð Jürgen Klinsmann og Joachim Löw (Jogi Löw).
Félög Bierhoffs
breytaFélag | Ár | Leikir | Mörk |
---|---|---|---|
Bayer Uerdingen | 1986-1988 | 31 | 4 |
Hamburger SV | 1988-1990 | 34 | 6 |
Borussia Mönchengladbach | 1990 | 8 | 0 |
Austria Salzburg | 1990-1991 | 32 | 23 |
Ascoli | 1991-1995 | 117 | 48 |
Udinese | 1995-1998 | 86 | 57 |
AC Milan | 1998-2001 | 91 | 38 |
AS Monaco | 2001-2002 | 18 | 5 |
Chievo Verona | 2002-2003 | 26 | 7 |
Stórmót Bierhoffs
breytaMót | Staður | Árangur |
---|---|---|
EM 1996 | England | Meistari |
HM 1998 | Frakkland | 8 liða úrslit |
EM 2000 | Holland / Belgía | Riðlakeppni |
HM 2002 | Suður-Kórea / Japan | 2. sæti |
Annað markvert
breyta- Oliver Bierhoff er með gráðu í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Hagen.
- 22. júní 2001 kvæntist Bierhoff Clöru Szalantzy. Þau eiga eina dóttur.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Oliver Bierhoff“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt janúar 2010.