Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1966
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1966 eða HM 1966 var haldið í Englandi dagana 11. júlí til 30. júlí. Þetta var áttunda heimsmeistarakeppnin. Heimamenn urðu heimsmeistarar og urðu þar með þriðju gestgjafarnir ásamt Úrúgvæ og Ítalíu til að ná þeim árangri. Aldrei áður höfðu svo margir áhorfendur mætt á leiki heimsmeistaramóts að meðaltali og var það met ekki slegið fyrr en á HM 1994.
Val á gestgjöfum
breytaÞrjú lönd föluðust eftir að halda keppnina: England, Spánn og Vestur-Þýskaland. Þegar kom að FIFA-þinginu 1960 drógu Spánverjar sig til baka. Kosið var á milli hinna tveggja og hlutu Englendingar 34 atkvæði gegn 27 atkvæðum Þjóðverja.
Undankeppni
breytaGestgjafar Englands og heimsmeistarar Brasilíumanna fengu sjálfkrafa sæti. Önnur 72 lið hugðust keppa um lausu sætin 14. Norður-Kórea þurfti einungis að vinna Ástralíu í tveimur leikjum til að komast í sína fyrstu úrslitakeppni, en önnur lið sem áttu að keppa í Asíu- og Eyjaálfukeppninni drógu sig í hlé. Engin óvænt úrslit urðu í Ameríkukeppnunum, þótt Síle hafi þurft aukaleik til að slá Ekvador úr keppni.
Íslendingar skráðu sig til leiks og drógust í riðil með Vestur-Þjóðverjum, Svíum og Kýpverjum. Líkt og fjórum árum fyrr hætti Ísland við keppni, en Þjóðverjar komust áfram. Portúgal komst í úrslitakeppnina á kostnað Tékkóslóvakíu, silfurliðsins frá HM 1962. Norður-Írar með George Best í broddi fylkingar veittu Svisslendingum harða keppni, en gerðu óvænt jafntefli gegn Albönum í lokaleik og þar með var HM-draumurinn úti. Spánn og Írland þurftu oddaleik til að skera úr um hvort liðið kæmist til Englands og höfðu Spánverjar betur. Asíuríkið Sýrland átti að vera þriðja liðið í riðlinum en dró sig úr keppni.
Sniðganga Afríkuríkja
breytaFulltrúar knattspyrnusambanda í Afríku voru afar ósáttir við að heimsálfunni væri ekki tryggt neitt öruggt sæti í úrslitakeppninni, sem og að Suður-Afríkumönnum hefði verið veitt aðild að FIFA þrátt fyrir kynþáttaaðskilnaðarstefnuna í landinu. Ákváðu ríki álfunnar því að sniðganga mótið. FIFA féllst á að vísa Suður-Afríku á dyr en allt kom fyrir ekki. Frá og með HM 1970 var Afríku tryggt sæti. Þrátt fyrir sniðgönguna var metfjöldi þjóða sem tók þátt í undankeppninni.
Lukkudýr
breytaWorld Cup Willie var fyrsta lukkudýr HM-sögunnar. Það var teiknimyndaljón í treyju með breska fánanum og áletruninni football yfir brjóstinu að sparka í bolta. Var þetta eitt fyrsta dæmið um slíkt lukkudýr í tengslum við íþróttakeppni.
Þátttökulið
breytaSextán þjóðir mættu til leiks frá fjórum heimsálfum.
|
Leikvangar
breytaÁtta vellir voru notaður á HM og var enginn þeirra nýr eða sérbyggður fyrir keppnina. Þannig var Wembley-leikvangurinn yngstur, byggður árið 1923. Flytja þurfti viðureign Úrúgvæ og Frakklands frá Wembley þar sem leikvangurinn var upptekinn fyrir hundaveðhlaup á keppnisdeginum. Wembley hýsti flesta leikina, níu í allt, þar af allar viðureignir heimamanna.
London | Birmingham | |
Wembley | White City Stadium | Villa Park |
Áhorfendur:98,600 | Áhorfendur:76,567 | Áhorfendur:52,000 |
Liverpool | Manchester | |
Goodison Park | Old Trafford | |
Áhorfendur:50,151 | Áhorfendur:58,000 | |
Sheffield | Sunderland | Middlesbrough |
Hillsborough Stadium | Roker Park | Ayresome Park |
Áhorfendur:42,730 | Áhorfendur:40,310 | Áhorfendur:40,000 |
Keppnin
breytaRiðlakeppnin
breytaKeppt var í fjórum riðlum með fjórum liðum í hverjum.
Riðill 1
breytaEitt einkenni HM 1966 var að þátttökuliðin léku flest mun varfærnari leikaðferð og lögðu meiri áherslu á agaðan varnarleik en tíðkast hafði í fyrri keppnum. Það sást greinilega í riðli gestgjafanna. Englendingar fóru auðveldlega upp úr riðlinum án þess að fá á sig mark. Úrúgvæ fylgdi þeim í fjórðungsúrslitin.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | England | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 0 | - | 5 | |
2 | Úrúgvæ | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 | 1 | 2,00 | 4 | |
3 | Mexíkó | 3 | 0 | 2 | 1 | 1 | 3 | 0,33 | 2 | |
4 | Frakkland | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 5 | 0,40 | 1 |
11. júlí 1966 | |||
England | 0-0 | Úrúgvæ | Wembley, London Áhorfendur: 87.148 Dómari: Istvan Zsolt, Ungverjalandi |
13. júlí 1966 | |||
Frakkland | 1-1 | Mexíkó | Wembley, London Áhorfendur: 69.237 Dómari: Menachem Ashkenazi, Ísrael |
Hausser 62 | Borja 48 |
15. júlí 1966 | |||
Úrúgvæ | 2-1 | Frakkland | White City leikvangurinn, London Áhorfendur: 45.662 Dómari: Karol Galba, Tékkóslóvakíu |
Rocha 26, Cortés 31 | De Bourgoing 15 (vítasp.) |
16. júlí 1966 | |||
England | 2-0 | Mexíkó | Wembley, London Áhorfendur: 92.570 Dómari: Concetto Lo Bello, Ítalíu |
B. Charlton 37, Hunt 75 |
19. júlí 1966 | |||
Mexíkó | 0-0 | Úrúgvæ | Wembley, London Áhorfendur: 61.112 Dómari: Bertil Lööw, Svíþjóð |
20. júlí 1966 | |||
England | 2-0 | Frakkland | Wembley, London Áhorfendur: 98.270 Dómari: Arturo Yamasaki, Perú |
Hunt 38, 75 |
Riðill 2
breytaVestur-Þjóðverjar og Argentínumenn höfðu lítið fyrir að komast í fjórðungsúrslitin. FIFA áminnti þó argentínska liðið fyrir grófan leik, einkum í viðureigninni gegn Vestur-Þýskalandi. Sigur Þjóðverja á Svisslendingum, 5:0, reyndist sá stærsti í keppninni.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Vestur-Þýskaland | 3 | 2 | 1 | 0 | 7 | 1 | 7,00 | 5 | |
2 | Argentína | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 1 | 4,00 | 5 | |
3 | Spánn | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 5 | 0,80 | 2 | |
4 | Sviss | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 9 | 0,11 | 0 |
12. júlí 1966 | |||
Vestur-Þýskaland | 5-0 | Sviss | Hillsborough Stadium, Sheffield Áhorfendur: 36,127 Dómari: Hugh Phillips, Skotlandi |
Held 16, Haller 21, 77 (vítasp.), Beckenbauer 40, 52 |
13. júlí 1966 | |||
Argentína | 2-1 | Spánn | Villa Park, Birmingham Áhorfendur: 42.738 Dómari: Dimitar Rumenchev, Búlgaríu |
Artime 65, 79 | Pirri 71 |
15. júlí 1966 | |||
Spánn | 2-1 | Sviss | Hillsborough Stadium, Sheffield Áhorfendur: 32.028 Dómari: Konstantin Zečević, Júgóslavíu |
Sanchís 57, Amancio 76 | Quentin 31 |
16. júlí 1966 | |||
Argentína | 0-0 | Vestur-Þýskaland | Villa Park, Birmingham Áhorfendur: 46.587 Dómari: Tofiq Bahramov, Sovétríkjunum |
19. júlí 1966 | |||
Argentína | 2-0 | Sviss | Hillsborough Stadium, Sheffield Áhorfendur: 32.127 Dómari: Joaquim Campos, Portúgal |
Artime 52, Onega 79 |
20. júlí 1966 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-1 | Spánn | Villa Park, Birmingham Áhorfendur: 42.187 Dómari: Armando Marques, Brasilíu |
Emmerich 39, Seeler 84 | Fusté 23 |
Riðill 3
breytaBrasilíumenn mættu til leiks sem tvöfaldir heimsmeistarar með Garrincha og Pelé, báða í fullu fjöri. Velgengnin reyndist þó tvíeggjað sverð. Öfugt við fyrri keppnir fóru stjórnarmenn í brasilíska knattspyrnusambandinu að hlutast til um valið á liðinu og gerð var krafa til að öll helstu félög landsins ættu fulltrúa. Ómarkviss undirbúningur og leikmannahópur með of mörgum miðlungsmönnum og mönnum sem komnir voru af léttasta skeiði reyndist taka sinn toll. Brasilíumenn féllu úr keppni eftir að hafa tapað fyrir bæði Ungverjum og spútnikliði Portúgala sem mætti til leiks á sitt fyrsta heimsmeistaramót. Markahrókurinn Eusébio skoraði tvívegis í lokaleiknum gegn Brasilíumönnum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Portúgal | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 2 | 4,50 | 6 | |
2 | Ungverjaland | 3 | 2 | 0 | 1 | 7 | 5 | 1,40 | 4 | |
3 | Brasilía | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 6 | 0,67 | 2 | |
4 | Búlgaría | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 8 | 0,13 | 0 |
12. júlí 1966 | |||
Brasilía | 2-0 | Búlgaría | Goodison Park, Liverpool Áhorfendur: 47.308 Dómari: Kurt Tschenscher, Vestur-Þýskalandi |
Pelé 15, Garrincha 63 |
13. júlí 1966 | |||
Portúgal | 3-1 | Ungverjaland | Old Trafford, Manchester Áhorfendur: 29.886 Dómari: Leo Callaghan, Wales |
José Augusto 2, 67, Torres 90 | Bene 60 |
15. júlí 1966 | |||
Ungverjaland | 3-1 | Brasilía | Goodison Park, Liverpool Áhorfendur: 16.027 Dómari: Ken Dagnall, Englandi |
Bene 2, Farkas 64, Mészöly 73 (vítasp.) | Tostão 14 |
16. júlí 1966 | |||
Portúgal | 3-0 | Búlgaría | Old Trafford, Manchester Áhorfendur: 16.027 Dómari: José María Codensal, Úrúgvæ |
Vutsov 7 (sjálfsm.), Eusébio 38, Torres 81 |
19. júlí 1966 | |||
Portúgal | 3-1 | Brasilía | Goodison Park, Liverpool Áhorfendur: 16.027 Dómari: George McCabe, Englandi |
António Simões 15, Eusébio 27, 85 | Rildo 73 |
20. júlí 1966 | |||
Ungverjaland | 3-1 | Búlgaría | Old Trafford, Manchester Áhorfendur: 24.129 Dómari: Roberto Goicoechea, , Argentínu |
Davidov 43 (sjálfsm.), Mészöly 45, Bene 54 | Asparuhov 15 |
Riðill 4
breytaEinhver óvæntustu úrslit knattspyrnusögunnar sáu dagsins ljós þegar Norður-Kóreumenn fóru áfram á kostnað Ítala eftir 1:0 sigur. Norður-Kórea varð þannig fyrsta liðið utan Evrópu og Suður-Ameríku til að komast upp úr riðlakeppninni. Tuttugu ár áttu eftir að líða uns Marokkó lék sama leik á HM 1986. Sovétmenn unnu alla leiki sína í riðlinum og hlutu toppsætið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Sovétríkin | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 2 | 4,50 | 6 | |
2 | Norður-Kórea | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 4 | 0,50 | 3 | |
3 | Ítalía | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 2 | 1,00 | 2 | |
4 | Síle | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 5 | 0,40 | 1 |
12. júlí 1966 | |||
Sovétríkin | 3-0 | Norður-Kórea | Ayresome Park, Middlesbrough Áhorfendur: 23.006 Dómari: Juan Gardeazábal Garay, Spáni |
Malofeyev 31, 88, Banishevskiy 33 | Bene 57 |
13. júlí 1966 | |||
Ítalía | 2-0 | Síle | Roker Park, Sunderland Áhorfendur: 27.199 Dómari: Gottfried Dienst, Sviss |
Mazzola 8, Barison 88 |
15. júlí 1966 | |||
Síle | 1-1 | Norður-Kórea | Ayresome Park, Middlesbrough Áhorfendur: 13.792 Dómari: Ali Kandil, Sameinaða Arabalýðveldinu |
Marcos 26 (vítasp.) | Pak Seung-zin 88 |
16. júlí 1966 | |||
Sovétríkin | 1-0 | Ítalía | Roker Park, Sunderland Áhorfendur: 27,793 Dómari: Rudolf Kreitlein, Vestur-Þýskalandi |
Chislenko 57 |
19. júlí 1966 | |||
Norður-Kórea | 1-0 | Ítalía | Ayresome Park, Middlesbrough Áhorfendur: 17.829 Dómari: Pierre Schwinte, Frakklandi |
Pak Doo-ik 42 |
20. júlí 1966 | |||
Sovétríkin | 2-1 | Síle | Roker Park, Sunderland Áhorfendur: 16.027 Dómari: John Adair, Norður-Írlandi |
Porkujan 28, 85 | Marcos 32 |
Fjórðungsúrslit
breytaEinhver magnaðasta viðureign í sögu HM leit dagsins ljós á Goodison Park þar sem Portúgalir lentu 0:3 undir en unnu að lokum spútniklið Norður-Kóreu 5:3. Vestur-Þjóðverjar unnu Úrúgvæ sannfærandi eftir að Suður-Ameríkuliðið missti tvo leikmenn af velli. Dómarinn þurfti einnig að grípa til brottvísunar í leik Englands og Argentínu. Antonio Rattín var rekinn af velli en vegna tungumálaörðugleika reyndist dómaranum erfitt að gera honum það skiljanlegt. Í kjölfarið kviknaði sú hugmynd að útbúa gul og rauð spjöld til að nota í milliríkjaleikjum. Sovétmenn voru svo fjórða liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
23. júlí 1966 | |||
Sovétríkin | 2-1 | Ungverjaland | Roker Park, Sunderland Áhorfendur: 26.844 Dómari: Juan Gardeazábal Garay, Spáni |
Chislenko 5, Porkujan 46 | Bene 57 |
23. júlí 1966 | |||
England | 1-0 | Argentína | Wembley, Lundúnum Áhorfendur: 90.584 Dómari: Rudolf Kreitlein, Vestur-Þýskalandi |
Hurst 78 |
23. júlí 1966 | |||
Vestur-Þýskaland | 4-0 | Úrúgvæ | Hillsborough Stadium, Sheffield Áhorfendur: 40.007 Dómari: Jim Finney, Englandi |
Haller 11, 83, Beckenbauer 70, Seeler 75 |
23. júlí 1966 | |||
Portúgal | 5-3 | Norður-Kórea | Goodison Park, Liverpool Áhorfendur: 40.248 Dómari: Menachem Ashkenazi, Ísrael |
Eusébio 27, 43 (vítasp.), 56, 59 (vítasp.), José Augusto 80 | Pak Seung-zin 1, Li Dong-woon 22, Yang Seung-kook 25 |
Undanúrslit
breytaÖll undanúrslitaliðin voru frá Evrópu. Viðureignunum var víxlað frá því sem ætlað var til þess að gestgjafarnir léku á Wembley. Báðar viðureignir fóru 2:1.
25. júlí 1966 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-1 | Sovétríkin | Goodison Park, Liverpool Áhorfendur: 38.273 Dómari: Concetto Lo Bello, Ítalíu |
Haller 43, Beckenbauer 67 | Porkujan 88 |
26. júlí 1966 | |||
England | 2-1 | Portúgal | Wembley, Lundúnum Áhorfendur: 94.493 Dómari: Pierre Schwinte, Frakklandi |
B. Charlton 30, 80 | Eusébio 82 (vítasp.) |
Bronsleikur
breytaEusébio skoraði sitt níunda mark í keppninni og var langmarkahæstur. Portúgal hlaut bronsverðlaunin, sem var besti árangur nýliða í keppninni frá árinu 1934.
28. júlí 1966 | |||
Portúgal | 2-1 | Sovétríkin | Wembley, Lundúnum Áhorfendur: 87.696 Dómari: Ken Dagnall, Englandi |
Eusébio 12 (vítasp.), Torres 89 | Malofeyev 43 |
Úrslitaleikur
breytaVestur-Þjóðverjar jöfnuðu í blálokin af venjulegum leiktíma, 2:2 svo grípa þurfti til framlengingar. Englendingar náðu forystunni með umdeildu marki Geoff Hurst, en töldu margir að boltinn hefði í raun ekki farið yfir marklínuna. Hurst fullkomnaði svo þrennu sína í blálokin og er enn í dag eini maðurinn sem skorað hefur þrjú mörk í úrslitaleik.
30. júlí 1966 | |||
England | 4-2 (e.framl.) | Vestur-Þýskaland | Wembley, Lundúnum Áhorfendur: 96.924 Dómari: Gottfried Dienst, Sviss |
Hurts 18, 101, 120, Peters 78 | Haller 12, Weber 89 |
Markahæstu leikmenn
breytaEusébio var langmarkahæsti maður mótsins með níu mörk. Alls skoruðu 47 leikmenn samtals 89 mörk á mótinu, þar af tvö sjálfsmörk.
9 mörk
6 mörk
4 mörk
3 mörk