Ungmennafélagið Stjarnan

íþróttafélag í Garðabæ
(Endurbeint frá Stjarnan)

Ungmennafélagið Stjarnan er staðsett í Garðabæ. Félagið var stofnað 30. nóvember 1960 af Séra Braga Friðrikssyni.

Ungmennafélagið Stjarnan
Fullt nafn Ungmennafélagið Stjarnan
Gælunafn/nöfn Stjörnumenn, Silfurskeiðin
Stytt nafn Stjarnan
Stofnað 30. nóvember 1960
Leikvöllur TM-Höllin
Stærð 1200
Stjórnarformaður Sigurður Bjarnason
Knattspyrnustjóri Jökull Ingason Elísabetarson
Heimabúningur
Útibúningur

Félagið teflir fram knattspyrnuliði sem að er í Úrvalsdeild karla og í úrvalsdeild kvenna. Félagið á handknattleikslið í efstu deild í handbolta, bæði kvenna og karla. Í blaki teflir félagið fram liðum í bæði úrvalsdeild karla og kvenna. Í körfuknattleik teflir félagið liðum í bæði úrvaldsdeild karla og kvenna. Auk þess teflir fram félagið fram afar sterkri fimleikadeild, sunddeild og lyftingadeild.

Í knattspyrnu hefur félagið einu sinni orðið Íslandsmeistari í karlaflokki, það var árið 2014, eftir dramatískan sigur á erkifjendunum FH í lokaumferð Íslandsmótsins. Auk þess hefur karlaliðið tvívegis unnið silfurverðlaun í bikarkeppni karla, árin 2012 og 2013. Árið 2014 komst liðið alla leið í síðustu umferð undankeppni UEFA cup. Liðið tapaði í síðustu umferðinni gegn ítalska stórliðinu Internazionale, einnig þekkt sem Inter Milan. Á leiðinni í leikinn gegn Inter Milan vann Stjarnan velska liðið Bangor City, skoska liðið Motherwell og pólska liðið Lech Poznan. Karlaliðið varð einnig heimsfrægt árið 2007 þegar að markafögn liðsins komust í erlenda miðla. Þar léku leikmenn liðsins m.a. eftir laxaveiði, fæðingu, sundkeppni, Rambó og klósetti. Auk þess komst lag stuðningsmannasveitar Stjörnunnar, Silfurskeiðarinnar, í heimsfrægð eftir að íslenska landsliðið komst í átta liða úrslit EM árið 2016. Það kallaðist ,,víkingaklappið". Kvennamegin í knattspyrnunni hefur liðið unnið Íslandsmeistaratitilinn fjórum sinnum og fengið ein silfurverðlaun. Þá hefur kvennaliðið einnig unnið bikarkeppnina þrisvar sinnum.

Í handknattleik hefur karlaliðið unnið bikarmeistaratitilinn þrisvar sinnum en aldrei orðið Íslandsmeistari. Kvennaliðið hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn sjö sinnum og unnið bikarmeistaratitilinn einnig sjö sinnum.

Karlalið körfuknattsleiksdeildar félagsins hefur þrisvar sinnum orðið bikarmeistari en aldrei Íslandsmeistari. Konurnar hafa aldrei unnið meiriháttar titil en leika í efstu deild.

Stúlknaliðið Stjörnunnar í fimleikum hefur orðið Íslandsmeistari nokkrum sinnum, auk þess að hafa orðið Norðurlandameistari og Evrópumeistari. Í Lyftingadeildinni starfað frækið íþróttafólk sem unnið hefur stóra sigra fyrir félagið og slegið mörg Íslandsmet.

Leikmenn meistaraflokks karla í handknattleik

breyta
  • Markmenn
    • 30   Sveinbjörn Pétursson
    • 12   Ólafur Rafn Gíslason
  • Hornamenn
    • 9   Hjálmtýr Alfreðsson
    • 21   Andri Hjartar Grétarsson
    • 22   Starri Friðriksson
  • Skyttur
    • 26   Ólafur Gústafsson
    • 24   Guðmundur Sigurður Guðmundsson
    • 19   Ari Magnús Þorgeirsson
    • 13   Eyþór Magnússon
  • Leikstjórnendur
    • 15   Hrannar Bragi Eyjólfsson
    • 7   Ari Pétursson
    • 8   Stefán Darri Þórsson
  • Línumenn
    • 10   Sverrir Eyjólfsson
    • 11   Garðar Benedikt Sigurjónsson
    • 18   Brynjar Jökull Guðmundsson
  • Þjálfarar og starfsmenn
    • Þjálfari   Einar Jónsson
    • Aðstoðarþjálfari   Jóhann Ingi Guðmundsson
    • Liðstjóri   Rögnvaldur Ágúst Ragnarsson

Leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu

breyta
  • Markmenn
    • 29   Arnar Darri
    • 1   Ingvar Jónsson
    • 25   Sveinn Sigurður Jóhannesson
  • Varnarmenn
    • 2   Jóhann Laxdal
    • 9   Daníel Laxdal (fyrirliði)
    • 21   Baldvin Sturluson
    •   Aron Heiðdal
  • Miðjumenn
    • 7   Atli Jóhannson
    • 4   Jóhann Laxdal
    • 5   Björn Pálsson
    • 10   Halldór Orri Björnsson
    • 14   Birgir Hrafn Birgisson
  • Framherjar
    • 24   Garðar Jóhannson
    •   Ólafur Karl

Tenglar

breyta
  Olís deild karla • Lið í Olís deild karla 2015-2016.  

  Afturelding  •   Akureyri  •   FH  •   Fram  •   Haukar
  Grótta  •   ÍBV  •   ÍR  •   Víkingur  •   Valur

  Besta deild karla • Lið í Besta deild 2024  
  Stjarnan •   FH  •   KR  •   Víkingur  •   Valur  •   KA     Breiðablik  •   ÍA  •  HK  •   Grótta  •   Fylkir  •   Fjölnir
Leiktímabil í efstu deild karla (1918-2024) 

19181919192019211922192319241925192619271928192919301931193219331934193519361937193819391940194119421943194419451946194719481949195019511952195319541955195619571958195919601961196219631964196519661967196819691970197119721973197419751976197719781979198019811982198319841985198619871988198919901991199219931994199519961997199819992000200120022003200420052006200720082009201020112012201320142015201620172018201920202021202220232024

MjólkurbikarinnLengjubikarinnPepsi Max deild
1. deild2. deild3. deild4. deild

----------------------------------------------------------------------------------------------
Mjólkurbikar kvennaLengjubikar kvennaMeistarakeppni kvenna
Úrvalsdeild kvenna1. deild kvenna2. deild kvenna
DeildakerfiðKSÍÍslandshorniðReykjavíkurmótiðFótbolti.net mótið
  Lið í Subway deild karla 2022-2023  

  Grindavík  •   Tindastóll  •   ÍR  •   Keflavík  •   KR  •   Njarðvík  •
  Haukar  •   Breiðablik  •   Stjarnan  •   Höttur  •   Þór Þ.

   Þessi íþróttagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.