Knattspyrnufélag ÍA

Knattspyrnufélag Íþróttabandalags Akraness, skammstafað KFÍA en þekkist í daglegu tali sem ÍA, er knattspyrnufélag starfrækt á Akranesi. Félagið var stofnað 3. febrúar 1946 þegar að Knattspyrnufélag Akranes (KA) og Knattspyrnufélagið Kári stofnuðu Íþróttabandalag Akraness, bandalagið tók við af Íþróttaráði Akraness sem stofnað hafði verið árið 1934.[2]

Knattspyrnufélag ÍA
Fullt nafn Knattspyrnufélag ÍA
Gælunafn/nöfn Skagamenn
Stytt nafn ÍA
Stofnað 1946
Leikvöllur ELKEM-völlurinn
Stærð 1050 sæti, ca. 5550 alls[1]
Stjórnarformaður Eggert Herbertsson
Deild Karlar: Besta deildin
Konur: 1. deild
Heimabúningur
Útibúningur

Karlalið félagsins tók þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti sumarið 1946, liðið hefur allt frá því átt lið í efstu deildum íslandsmóts karla í knattspyrnu. Liðið er eitt það sigursælasta á landinu með 18 Íslandsmeistaratitla, þann fyrsta árið 1951. Þá hefur liðið að auki landað 9 bikarmeistaratitlum og 3 deildarbikartitlum.

Kvennalið ÍA tók þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti árið 1973. Árið 1984 vann liðið sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og fylgdu tveir aðrir titlar árin 1985 og 1987. Liðið hefur að auki unnið 3 bikarmeistaratitla.

1946-1949: Fyrstu árin

breyta
Fyrsti leikurinn - KR 4-1 ÍA

„Það, sem einkenndi aðallega leik þeirra, var þetta. Ódrepandi þol og vilji til að sigra, samfari snerpu og þoli. [...] Mín skoðun er sú, að ef lið Akurnesinga fengi árs þjálfun undir handleiðslu góðs þjálfara, mættu reykvísku fjelögin vara sig.“

— H. Ó. Morgunblaðið (1946)[3]

Sumarið 1946 tók Knattspyrnudeild ÍA þátt í sínu fyrsta íslandsmóti, félagið var fyrst um sinn skammstafað ÍBA en vegna þess að Íþróttabandalag Akureyrar var með sömu skammstöfun var henni fljótt breytt í ÍA. Þetta var 35. íslandsmótið og tóku 5 lið auk Skagamanna þátt. Fyrsti leikur liðsins var upphafsleikur íslandsmótsins gegn tíföldum íslandsmeisturum KR. Leikurinn tapaðist 4-1 en þótti skaga liðið sína fína takta. Liðið endar sitt fyrsta tímabil í fimmta og næst neðsta sæti með 2 stig eftir jafntefli við Víking R. og ÍBA. Allir leikir íslandsmótsins á þessum tíma voru spilaðir á Melavellinum í Reykjavík[4]

Á fyrstu árum og fyrir stofnun ÍA eru aðstæður til knattspyrnuiðkunar litlar sem engar á Akranesi en liðið nýtir sér Langasandinn til æfinga.

 
Fyrsta íslandsmeistaralið ÍA (1951)

Titlar

breyta

Tölfræði leikmanna

breyta

Leikjahæstu leikmenn

breyta

Allir leikir[6]
Tölfræði miðast við lok tímabilsins 2015

Sæti Leikmenn Fæðingarár Leikjafjöldi
1 Pálmi Haraldsson 1974 489
2 Alexander Högnason 1968 452
3 Kári Steinn Reynisson 1974 438
4 Guðjón Sveinsson 1980 413
5 Haraldur Ingólfsson 1970 401
6 Guðjón Þórðarson 1955 392
7 Ólafur Þórðarson 1965 377
8 Karl Þórðarson 1955 366
9 Jón Alfreðsson 1949 365
10 Árni Sveinsson 1956 363

Leikir í A deild[7]
Tölfræði miðast við lok tímabilsins 2015

Sæti Leikmenn Fæðingarár Leikjafjöldi
1-2 Guðjón Þórðarson 1955 213
1-2 Pálmi Haraldsson 1974 213
3 Kári Steinn Reynisson 1974 203
4 Árni Sveinsson 1956 202
5 Jón Alfreðsson 1949 190
6 Haraldur Ingólfsson 1970 189
7-8 Alexander Högnason 1968 185
7-8 Ólafur Þórðarson 1965 185
9 Karl Þórðarson 1955 183
10 Jón Gunnlaugsson 1949 182

Markahæstu leikmenn

breyta

Allir leikir[8]
Tölfræði miðast við lok tímabilsins 2015

Sæti Leikmenn Fæðingarár Mörk
1 Matthías Hallgrímsson 1946 162
2 Hjörtur Hjartarson 1974 137
3 Ríkharður Jónsson 1929 136
4 Haraldur Ingólfsson 1970 110
5 Arnar Gunnlaugsson 1973 107
6-7 Þórður Guðjónsson 1973 105
6-7 Þórður Þórðarson 1930 105
8 Garðar Gunnlaugsson1 1983 98
9 Teitur Þórðarson 1952 95
10 Þórður Jónsson 1934 88

Leikir í A deild[9]
Tölfræði miðast við lok tímabilsins 2015

Sæti Leikmenn Fæðingarár Mörk
1 Matthías Hallgrímsson 1946 76
2 Ríkharður Jónsson 1929 68
3 Haraldur Ingólfsson 1970 59
4 Þórður Þórðarson 1930 52
5 Teitur Þórðarson 1952 51
6 Þórður Jónsson 1934 49
7-8 Arnar Gunnlaugsson 1973 43
7-8 Pétur Pétursson 1959 43
9 Sigþór Ómarsson 1957 39
10 Ingvar Elísson 1941 37

Meistaraflokkur karla

breyta

Núverandi leikmenn

breyta

(Síðast uppfært 11. júlí 2024) Ath: Fánar eru tákn fyrir það þjóðerni sem skráð eru hjá FIFA. Leikmenn gætu haft fleiri en eitt ríkisfang.

Nú. Staða Leikmaður
1   GK Árni Marinó Einarsson
31   GK Dino Hodzic
6   DF Oliver Stefánsson
5   DF Arnleifur Hjörleifsson
4   DF Hlynur Sævar Jónsson
22   DF Árni Salvar Heimisson
23   DF Hilmar Elís Hilmarsson
3   DF Johannes Vall
-   DF Sveinn Svavar Hallgrímsson
66   DF Jón Gísli Eyland
13   DF Erik Tobias Tangen Sandberg
16   MF Rúnar Már Sigurjónsson
8   MF Albert Hafsteinsson
88   MF Arnór Smárason
10   MF Steinar Þorsteinsson
17   MF Ingi Þór Sigurðsson
20   MF Ísak Máni Guðjónsson
14   MF Breki Þór Hermannsson
7   MF Ármann Ingi Finnbogason
19   MF Marko Vardic
-   MF Jóhannes Breki Harðarson
11   FW Hinrik Harðarson
9   FW Viktor Jónsson
-   FW Sigurður Hrannar Þorsteinsson

Meistaraflokkur Kvenna

breyta

Núverandi Leikmenn

breyta

(Síðast uppfært 11. júlí 2024)[10]

Ath: Fánar eru tákn fyrir það þjóðerni sem skráð eru hjá FIFA. Leikmenn gætu haft fleiri en eitt ríkisfang.

Nú. Staða Leikmaður
12   GK Klil Keshwar
1   GK Salka Hrafns Elvarsdóttir
2   Madison Brooke Schwartzenberger
5   Anna Þóra Hannesdóttir
6   Birna Rún Þórólfsdóttir
7   Erla Karítas Jóhannesdóttir
8   Lilja Björg Ólafsdóttir
9   Erna Björt Elíasdóttir
10   Bryndís Rún Þórólfsdóttir
11   Juliane Marie Paoletti
13   Kolfinna Eir Jónsdóttir
14   Dagbjört Líf Guðmundsdóttir
Nú. Staða Leikmaður
15   Marey Edda Helgadóttir
17   Lilja Björk Unnarsdóttir
18   Sunna Rún Sigurðardóttir
21   Ylfa Laxdal Unnarsdóttir
22   Selma Dögg Þorsteinsdóttir
24   Magnea Sindradóttir
25   Bríet Sunna Gunnarsdóttir
27   Elvira Agla Gunnarsdóttir
28   Thelma Björg Rafnkelsdóttir
33   Hugrún Stefnisdóttir
36   Matthea Kristín Watt
53   Vala María Sturludóttir

Titlar

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. KSÍ. Knattspyrnuvellir
  2. Íþróttabandalag Akraness
  3. H. Ó. Morgunblaðið' (1946): 2
  4. KSÍ: A deild 1946
  5. „Íslandsmót - Inkasso-deild karla - 2018“. www.ksi.is. Sótt 15. mars 2021.
  6. Leikmenn mfl. karla frá upphafi
  7. Leikmenn mfl. karla frá upphafi
  8. Leikmenn mfl. karla frá upphafi
  9. Leikmenn mfl. karla frá upphafi
  10. Núverandi leikmenn mfl. kvenna

Heimildaskrá

breyta