Þinur
Þinur (fræðiheiti Abies) er flokkur sígrænna barrtrjáa af þallarætt. Þintegundir eru 48-56 en þær þrjár þintegundir sem mesta útbreiðslu hafa eru síberíuþinur, balsamþinur og fjallaþinur. Þintegundir í vesturhluta Norður-Ameríku eru meðal stórvöxnustu trjáa heims og hafa afar gildan bol. Þinur getur verið hraðvaxta ef skilyrði eru góð. Viður þykir góður til pappírsframleiðslu.
Þinur | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Kóreuþinur (Abies koreana) könglar og lauf
| ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir | ||||||||||||
Sjá texta |
Útbreiðsla
breyta-
Þintegundir í Evrópu
-
Útbreiðsla þins í Norður-Ameríku
-
Útbreiðsla þins í Evrasíu
Lýsing
breytaÞinir þykja falleg tré, hafa mjúkar nálar og ilma vel og eru vinsæl jólatré og garðtré. Þintegundir eru skuggaþolnar í æsku og hafa æskubarr sem nýtir birtu vel en þolir hins vegar ekki vel vind og þurrk. Ungplöntur þins geta því ekki verið á berangri en nálar fullorðinna trjáa eru mun harðgerðari. Þini má greina frá öðrum barrtrjám á barrnálum og könglum. Barrnálar eru festar við greinar á grunni sem líkist lítilli sogskál. Laufin eru útflött og stundum eins og á síberíuþin þá líta þau út fyrir að hafa verið pressuð saman. Á neðra borði laufs eru tvær hvítleitar rákir
Barr
breytaHægt er að greina þin frá öðrum ættkvíslum í þallarætt á einkennandi festingu barrnálanna við greinina; neðst á nálinni er eins og sogskál sem festir nálina við greinina, og þegar það fellur af verður eftir hringlaga ör.
Barrið er áberandi flatt, stundum eins og samanpressað, eins og hjá A. sibirica.
Barrið er með tvær hvítleitar línur að neðan, hvor um sig mynduð af vax-húðuðum loftaugarásum. Hjá flestum tegundum er efra borð barrsins einlitt grænt og glansandi, án loftaugna eða með fáein á endanum, sjáanleg sem hvítleitir deplar. Hinar tegundirnar eru með efra borð barrsins dauflegt, grágrænt eða blágrænt til silfurlitt, þakið breytilegum fjölda loftaugarása, og ekki alltaf heilar. Dæmi um tegund með gljáandi grænt barr er A. alba, og dæmi um tegund með dauflitað vaxborið barr er A. concolor.
Oddurinn á barrinu er yfirleitt meira eða minna sýldur (eins og hjá A. firma), en stundum ávalur eða flatur (eins og hjá A. concolor, A. magnifica) eða hvasst og stingandi (eins og hjá A. bracteata, A. cephalonica, A. holophylla). Barrið á ungum plöntum er yfirleitt hvassara.
Hvernig barrið liggur á sprotanum er mjög breytilegt, hjá nokkrum tegundum er eins og kambur til hvorrar hliðar á sprotanum (A. alba) [1], öðrum er það meira upp svo það er eyða eins og v í laginu ofantil, og á enn öðrum stendur barrið út allstaðar ofantil. Svo er A. pinsapo með barrið jafnt allann hringin um sprotann.
Könglar
breytaÞinir eru frábrugðnir öðrum barrtrjám í því að könglar eru uppréttar sívalningslaga keilur sem leysast sundur þegar þær þroskast og leysa frá sér vænguð fræ. Könglar á þin hanga aldrei eins og á greni þótt þeir séu stórir heldur eru eru uppréttir eins og kerti. Þroskaðir könglar eru vanalega brúnir en ungir könglar geta verið grænir að sumarlagi eða fjólubláir og bláir og stundum mjög dökkir.
Ræktun á Íslandi
breytaEftirfarandi tegundir hafa verið reyndar;[2]
Balsamþinur (A. balsamea), Hvítþinur (A. concolor), Fjallaþinur (A. lasiocarpa), Nordmannsþinur (A. nordmanniana), Silfurþinur (A. amabilis) , Síberíuþinur (A. sibirica), Eyjaþinur (A. sachalinensis), Nálaþinur (A. holophylla), Glæsiþinur (A. fraseri), Stórþinur (A. grandis), Eðalþinur (A. procera), Kóreuþinur (A. koreana) og Hringþinur (A. veitchii).
Af þessum hefur eingöngu fjallaþinur verið ræktaður svo nokkru nemi og eru elstu trén síðan um 1906 (Hallormsstað). Er hann til víða um landið. [3]
Í Vaglaskógi er um hálfs ferkílómetra reitur af Balsamþin sem gróðursettur var árið 1964.
Flokkun
breyta- Section Abies
- Abies alba— Evrópuþinur
- Abies nebrodensis—Sikileyjarþinur
- Abies borisii-regis—Búlgaríuþinur
- Abies cephalonica—Grikkjaþinur
- Abies nordmanniana— Normannsþinur eða Kákasusþinur
- Abies nordmanniana subsp. equi-trojani—"Kazdağı fir", Tyrkneskur þinur
- Abies nordmanniana subsp. bornmülleriana—"Uludağ fir"
- Abies bornmuelleriana eða Abies nordmanniana subsp. bornmülleriana
- Abies pinsapo—Spánarþinur
- Abies pinsapo var. marocana—Marakkóþinur
- Abies numidica—Afríkuþinur
- Abies cilicica—Keiluþinur
- Section Balsamea
- Abies fraseri—Glæsiþinur
- Abies balsamea—Balsamþinur
- Abies balsamea var. phanerolepis
- Abies lasiocarpa— Fjallaþinur
- Abies lasiocarpa var. arizonica—Korkbarkarþinur
- Abies lasiocarpa var. bifolia—Klettafjallaþinur
- Abies sibirica—Síberíuþinur
- Abies sibirica var. semenovii—
- Abies sachalinensis—Eyjaþinur
- Abies koreana—Kóreuþinur
- Abies nephrolepis—Mansjúríuþinur
- Abies veitchii—Hringaþinur
- Abies veitchii var. sikokiana—"Shikoku þinur"
- Section Grandis
- Abies grandis—Stórþinur eða risaþinur
- Abies grandis var. idahoensis—Risaþinur
- Abies concolor— Hvítþinur
- Abies concolor subsp. lowiana—"Low's hvítþinur"
- Abies durangensis—"Durango þinur"
- Abies durangensis var. coahuilensis—"Coahuila þinur"
- Abies flinckii—"Jalisco þinur"
- Abies guatemalensis—Gvatemalaþinur
- Abies hidalgensis
- Abies grandis—Stórþinur eða risaþinur
- Section Momi
- Abies kawakamii—Formósuþinur
- Abies homolepis—Japansþinur
- Abies recurvata—"Min þinur"
- Abies recurvata var. ernestii—"Min þinur"
- Abies ernestii eða Abies recurvata var. ernestii'
- Abies firma—Vætuþinur
- Abies beshanzuensis—"Baishanzu þinur"
- Abies holophylla—Nálaþinur
- Abies chensiensis—"Shensi þinur"
- Abies chensiensis subsp. salouenensis—"Salween þinur"
- Abies pindrow—"Pindrow þinur"
- Abies ziyuanensis—"Ziyuan þinur"
- Abies gamblei
- Section Amabilis
- Section Pseudopicea (Austur Himalajafjöll, hátt yfir sjávarmáli)
- Abies delavayi—"Delavay's þinur"
- Abies delavayi var. nukiangensis—
- Abies delavayi var. motuoensis—
- Abies delavayi subsp. fansipanensis—
- Abies nukiangensis eða Abies delavayi var. nukiangensis
- Abies fabri—Fabersþinur
- Abies fabri subsp. minensis—
- Abies forrestii
- Abies forrestii var. georgei
- Abies forrestii var. chayuensis
- Abies forrestii var. ferreana
- Abies georgei
- Abies faxoniana
- Abies ferreana
- Abies chayuensis
- Abies densa—Bútanþinur
- Abies spectabilis
- Abies fargesii— Hvolfþinur
- Abies fargesii var. faxoniana
- Abies fanjingshanensis—"Fanjingshan þinur"
- Abies yuanbaoshanensis—"Yuanbaoshan þinur"
- Abies squamata—Næfurþinur
- Abies fordei
- Abies chengii
- Abies delavayi—"Delavay's þinur"
- Section Oiamel (Mið Mexíkó, hátt yfir sjó)
- Abies religiosa—Helgiþinur
- Abies vejarii
- Abies hickelii—"Hickels þinur"
- Abies hickelii var. oaxacana—"Oaxaca þinur"
- Section Nobilis (háfjallasvæði vestur-Bandaríkjanna)
- Abies procera—Eðalþinur
- Abies magnifica—Rauðþinur
- Abies magnifica var. shastensis—"Shasta Rauðþinur"
- Section Bracteata (Kaliforníuströnd)
- Section Incertae sedis
- Abies milleri—(Útdauður) fyrri hluta Eósentímabilinu
Aðrar tegundir og blendingar:
breytaHeimildir
breyta- Þintegundir Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins
- Abies at The Gymnosperm Database
- Michael P. FRANKIS CONE COLLECTION: Abies at the Arboretum de Villardebelle—images of cones of selected species
- Þinættkvísl, Abies: svensk taxonomisk artlista
- ↑ Seneta, Włodzimierz (1981). Drzewa i krzewy iglaste (Coniferous trees and shrubs) (pólska) (1st. útgáfa). Warsaw: Państwowe Wydawnictwo Naukowe (PWN). ISBN 978-83-01-01663-0.
- ↑ http://www.lystigardur.akureyri.is/default.aspx?modID=1&id=45&lat=1&l=a Geymt 29 október 2020 í Wayback Machine Lystigarður Akureyrar
- ↑ Haukur Ragnarsson; Baldur Þorsteinsson (1990). Skógræktarbókin. Skógræktarfélag Íslands. bls. 89 - 90.