Abies hickelii
Abies hickelii er barrtré af þinættkvísl. Hann er einlendur í Mexíkó, og þar aðeins í Chiapas, Guerrero, Oaxaca, Puebla, og Veracruz ríkjum.
Abies hickelii | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Abies hickelii.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Abies hickelii Flous & Gaussen | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Abies religiosa subsp. hickelii (Flous & Gaussen) Strandby, K.I.Chr. & M.Sørensen[1][2] |
Lýsing
breytaA. hickelii er sígrænt barrtré, hóflega hratt vaxandi (15-30 cm á ári), og verður að 30 metra hátt. Krónan er þröngt keilulaga, minna regluleg á gömlum trjám. Börkur upphaflega sléttur og grár, þykknar síðar og fær reitalaga munstur. brum egglaga, 5 mm löng og 4 mm á breidd. Sprotar mjóir, rauðbrúnir. Nálar 1.8 til 3.5 cm langar og 1-1.8 mm breiðar, skær ljósgrænar að ofan, að neðan grá-grænar, gleiðhyrnt. Karlkyns könglar stuttir, gulir. Könglar ílangt sívalir, 6-8 cm langir og 2,5 til 3,5 cm á breidd, upphaflega fjólublárir og verða dökkbrúnir við þroska. Fræin ljós brún, 6-7 mm löng, 10 mm löng með ljósbrúnum vængnum.
Undirtegundir
breytaTegundin skiftist í eftirfarandi undirtegundir:[3]
- A. h. hickelii
- A. h. oaxacana
Vistfræði
breytaFjallatré, vex í 2500 til 3000 metra hæð á heittempruðum svæðum, í eldfjallajarðvegi. Svölu og röku loftslagi. Úrkomusamir vetur. Harðgerður að -12°C. "Abies hickelii" vex stundum stakur utan skóga, en vex aðallega í blönduðum skógum með: Pinus montezumae, Pinus pseudostrobus, Pinus ayacahuite, Cupressus lusitanica og runna af ættkvíslunum Vaccinium , Pieris, Ribes, Fuchsia og öðrum.
Tilvísanir
breyta- Conifer Specialist Group 1998. Abies hickelii[óvirkur tengill]. 2006 IUCN Red List of Threatened Species. Downloaded on 10 July 2007.
- ↑ „Abies hickelii in the PlantList“. Afrit af upprunalegu geymt þann 18. apríl 2021. Sótt 10. janúar 2017.
- ↑ „Abies hickelii“. World Checklist of Selected Plant Families.[óvirkur tengill]
- ↑ „Species 2000 & ITIS Catalogue of Life: 2014 Annual Checklist“. Species 2000: Reading, UK. Catalogue of Life. 2014.