Eðalþinur
Abies procera, Eðalþinur,[2] erlendis kallaður noble fir, red fir[2] og Christmastree,[2] er þinur ættaður úr vesturhluta Norður Ameríku, Fossafjöllum og Kyrrahafsstrandfjöllum lengst í norðvestur-Kalifornía og vestur-Oregon og Washington í Bandaríkjunum. Þetta er háfjallategund, kemur yfirleitt fyrir í 300 til 1500 metra hæð, einstöku sinnum upp í trjálínu.
Eðalþinur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Abies procera Rehder | ||||||||||||||
Náttúruleg útbreiðsla Abies procera
| ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Lýsing
breytaAbies procera er stórt sígrænt tré, allt að 40 til 70 metra hátt og með stofnþvermál að 2 metrum, sjaldan 90 metra hátt og 2.7 í stofnþvermál,[3] með mjóa keilulaga krónu. Börkurinn á ungum trjám er sléttur og grár með kvoðublöðrum, og verður rauðbrúnn, hrjúfur og sprunginn á gömlum trjám. Barrið er nálarlaga, 1 til 3.5 sm langt, dökkblágrænt að ofan og að neðan með áberandi loftaugarákum, og með snubbóttum til sýlds enda. Það er í spíral eftir sprotanum, en undið lítillega (s-lögun) til að vera uppsveigt ofan við sprotann. Könglarnir eru uppréttir, 11 til 22 sm langir, með purpuralitað köngulhreistrið nær alveg falið á bak við langar, gulgrænar útstæðar hreisturblöðkurnar; verða brúnar við þroska og sundrast til að losa vængjuð fræin að hausti.
Abies procera er náskyldur Rauðþin (Abies magnifica), sem tekur við honum lengra suðaustur syðst í Oregon og Kaliforníu, eru þeir best greindir á því að barrið er með gróp eftir miðstrengnum ofan á; rauðþinur hefur þetta ekki. Rauðþinur hefur einnig tilhneigingu að vera með gisnara barr, með sprotann vel sýnilegan, þar sem sprotinn er að mestu falinn undir barrinu á eðalþini. Könglar rauðþins eru yfirleitt með styttri stoðblöðkur, nema hjá Abies magnifica var. shastensis; þetta afbrigði er talið af sumum grasafræðingum vera blendingur milli tegundanna.
-
Köngull.
-
Könglar.
-
Barr.
Nytjar
breytaEðalþinur er vinsælt jólatré. Viðurinn er notaður í byggingariðnaði og pappírsframleiðslu.
Tilvísanir
breyta- ↑ Farjon, A. (2013). „Abies procera“. Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. 2013: e.T42296A2970458. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T42296A2970458.en. Sótt 12. nóvember 2021.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 „USDA GRIN Taxonomy“. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. september 2015. Sótt 16. janúar 2017.
- ↑ „Gymnosperm Database - Abies procera“. Sótt 6. september 2013.
Viðbótarlesning
breyta- Conifer Specialist Group (1998). „Abies procera“. Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. 1998. Sótt 12. maí 2006.
Ytri tenglar
breyta- USDA Plants Profile for Abies procera (Eðalþinur) Geymt 3 mars 2016 í Wayback Machine
- Interactive Distribution Map of Abies procera Geymt 30 mars 2014 í Wayback Machine
- Abies procera—Gymnosperm Database
- Jepson Manual Treatment: Abies procera
- ljósmyndir af Abies procera trjám — Arboretum de Villardebelle
- photos of foliage and cones — Arboretum de Villardebelle
- Abies procera — U.C. Photo gallery