Edduverðlaunin 2005
Edduverðlaunin 2005 voru afhending Edduverðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á Hotel Nordica, 13. nóvember 2005. Aðalkynnir kvöldsins var Þorsteinn Guðmundsson. Veitt voru verðlaun í fimmtán flokkum, en flokknum „Klipping og myndataka“ var bætt við frá árinu áður.
Kvikmyndin Voksne mennesker eftir Dag Kára fékk fimm tilnefningar og fjögur verðlaun. Latibær fékk líka fimm tilnefningar en aðeins ein verðlaun, fyrir leikbrúður í flokknum „Útlit myndar“. Silvía Nótt var áberandi á hátíðinni, hlaut verðlaunin fyrir skemmtiþátt ársins og var kosin vinsælasti sjónvarpsmaðurinn í netkosningu. Þetta var í fyrsta skipti sem framlag Íslands til forvals Óskarsins var ekki sú kvikmynd sem valin var besta kvikmyndin.
Tilnefningar og handhafar Edduverðlauna 2005Breyta
Handhafar Edduverðlaunanna í hverjum flokki eru feitletraðir og gulllitaðir.
Leikari/leikkona ársins í aðalhlutverkiBreyta
Leikari/Leikkona | Kvikmynd |
---|---|
Björn Hlynur Haraldsson | Reykjavíkurnætur |
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir | Stelpurnar |
Ilmur Kristjánsdóttir | Stelpurnar |
Nicolas Bro | Voksne mennesker |
Þórunn Clausen | Reykjavíkurnætur |
Leikari/leikkona ársins í aukahlutverkiBreyta
Leikari/leikkona | Kvikmynd |
---|---|
Helgi Björnsson | Strákarnir okkar |
Jón Atli Jónasson | Strákarnir okkar |
Pálmi Gestsson | Áramótaskaupið 2004 |
Víkingur Kristjánsson | Reykjavíkurnætur |
Þorsteinn Bachmann | Strákarnir okkar |
Bíómynd ársinsBreyta
Kvikmynd | Leikstjóri |
---|---|
Voksne mennesker | Dagur Kári |
Strákarnir okkar | Róbert Douglas |
One Point O | Jeff Renfroe og Marteinn Þórsson |
Stuttmynd ársinsBreyta
Stuttmynd | Leikstjóri |
---|---|
Töframaðurinn | Reynir Lyngdal |
Þröng sýn | Guðmundur A. Guðmundsson og Þórgnýr Thoroddsen |
Ég missti næstum vitið | Bjargey Ólafsdóttir |
Leikið sjónvarpsefni ársinsBreyta
Sjónvarpsefni | Sjónvarpsstöð |
---|---|
Latibær | Magnús Scheving |
Stelpurnar | Óskar Jónasson |
Danskeppnin | Egill Eðvarðsson |
Tónlistarmyndband ársinsBreyta
Tónlistamyndband | Hljómsveit | Leikstjóri |
---|---|---|
„Whatever“ | Leaves | Gísli Darri Halldórsson |
„Find what you get“ | Bang Gang | Árni Þór Jónsson |
„Crazy bastard“ ' | 70 mínútur vs. Quarashi | Sam&Gun |
Skemmtiþáttur ársinsBreyta
Skemmtiþáttur | Sjónvarpsstöð |
---|---|
Idol stjörnuleit 2 | Stöð 2 |
Sjáumst með Silvíu Nótt | Skjár 1 |
Það var lagið | Stöð 2 |
Sjónvarpsþáttur ársinsBreyta
Sjónvarpsþáttur | Sjónvarpsstöð |
---|---|
Fólk með Sirrý | Skjár 1 |
Í brennidepli | RÚV |
Sjálfstætt fólk | Stöð 2 |
Einu sinni var... | RÚV |
Útlínur | RÚV |
Handrit ársinsBreyta
Kvikmynd | Handritshöfundur |
---|---|
Africa United | Ólafur Jóhannesson |
Voksne mennesker | Dagur Kári og Rune Schjott |
Latibær | Mark Velenti og Magnús Scheving |
Leikstjóri ársinsBreyta
Leikstjóri | Kvikmynd |
---|---|
Ólafur Jóhannesson | Africa United |
Dagur Kári | Voksne mennesker |
Marteinn Þórsson og Jeff Renfroe | One Point O |
Heimildamynd ársinsBreyta
Heimildamynd | Leikstjóri |
---|---|
Rithöfundur með myndavél | Helga Brekkan |
Ragnar í Smára | Guðný Halldórsdóttir |
Africa United | Ólafur Jóhannesson |
Undir stjörnuhimni | Helgi Felixson og Titti Johnson |
Gargandi snilld | Ari Alexander Ergis Magnússon |
Myndataka og klippingBreyta
Handhafi | Kvikmynd |
---|---|
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir myndatöku í | Gargandi snilld |
Sveinn M. Sveinsson og Ragnar Axelsson fyrir myndatöku í | Heimur kuldans |
Tómas Örn Tómasson fyrir myndatöku í | Latibær |
Útlit myndarBreyta
Handhafi | Kvikmynd |
---|---|
Eggert Ketilsson fyrir leikmynd í | One Point O |
Magnús Scheving og Guðmundur Þór Kárason fyrir brúður í | Latibær |
María Ólafsdóttir og Guðrún Lárusdóttir fyrir búningahönnun í | Latibær |
Hljóð og tónlistBreyta
Handhafi | Kvikmynd |
---|---|
Bradley L. North, Byron Wilson og Ann Scibelli |
One Point O |
Slowblow | Voksne mennesker |
Hallur Ingólfsson | Töframaðurinn |
Heiðursverðlaun ÍKSA 2005Breyta
Nafn |
---|
Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrum menntamálaráðherra, fyrir framlag sitt til stofnunar Kvikmyndasjóðs Íslands árið 1978. |
Vinsælasti sjónvarpsmaður ársinsBreyta
Nafn |
---|
Silvía Nótt |
Framlag Íslands til ÓskarsforvalsBreyta
Kvikmynd | Leikstjóri |
---|---|
Í takt við tímann | Ágúst Guðmundsson |