2. deild karla í knattspyrnu 1964
Leikar í 2. deild karla í knattspyrnu hófust í 10. sinn árið 1964. Leikið var í tveimur landsbyggðarskiptum riðlum.
Suðurriðill
breytaÍ Suðurlandsriðli léku lið: ÍBV, Breiðablik, FH, Haukar og Víkingar.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | Athugasemdir | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ÍBV | 8 | 8 | 0 | 0 | 31 | 16 | +15 | 16 | Í úrslitaleik | |
2 | Breiðablik | 8 | 3 | 1 | 4 | 14 | 17 | -3 | 7 | ||
3 | Víkingur | 8 | 3 | 1 | 4 | 20 | 26 | -6 | 7 | ||
4 | FH | 8 | 2 | 2 | 4 | 21 | 20 | +1 | 6 | ||
5 | Haukar | 8 | 1 | 2 | 5 | 14 | 21 | -7 | 4 |
Norðurriðill
breytaÍ Norðurlandsriðli riðli léku ÍBA, KS og ÍBÍ
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | Athugasemdir | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ÍBA | 4 | 4 | 0 | 0 | 19 | 2 | +17 | 8 | Í umspil | |
2 | ÍBÍ | 4 | 2 | 0 | 2 | 4 | 13 | -9 | 4 | ||
3 | KS | 4 | 0 | 0 | 4 | 4 | 12 | -8 | 0 |
Tindastóll hætti keppni
Úrslit (▼Heim., ►Úti) | |||
KS | 1-4 | 2-3 | |
ÍBA | 4-1 | 8-0 | |
ÍBÍ | 1-0 | 0-3[1] |
Úrslitaleikur
breytaÚrslitaleikurinn var leikinn á milli ÍBA og ÍBV, liðanna sem höfðu bæði unnið riðilinn sinn með fullt hús stiga.
Lið | Úrslit | Lið | ||
---|---|---|---|---|
ÍBA | 2-1 | ÍBV |
Fróðleikur
breyta- Fyrir tímabilið misstu Akureyringar einn sinn besta knattspyrnumann, Jakob Jakobsson, í bílslysi í Erlangen, Þýskalandi þar sem hann var við tannlæknanám. Hann var á leið heim með hjónunum sem hann bjó hjá er húsráðandinn missti stjórn á bifreið sinni og keyrði á vegg. Hann átti aðeins ár eftir af námi sínu og lést 26 ára. Jakob var sonur Jakobs Gíslasonar sem lék knattspyrnu víða og varð m.a. Íslandsmeistari með KR 1927.
Sigurvegarar 2. deildar 1964 |
---|
ÍBA Upp í 1. deild |
Fyrir: 2. deild 1963 |
B-deild | Eftir: 2. deild 1965 |
Heimildir
breyta- ↑ ÍBÍ gaf leikinn