2. deild karla í knattspyrnu 1957

Í þriðja skiptið var leikið í 2. deild karla í knattspyrnu, árið 1957.

Keflavík vann mótið að þessu sinni, en það var eftir langt kærumál gegn ÍBÍ.

Norðurriðill

breyta

Í Norðurlandsriðli lék einungis eitt lið, ÍBÍ, og vann því án keppni. Reiknað var með liðum frá Eyjafirði, Skagafirði, Húsavík, Siglufirði og jafnvel víðar en ekki varð af því, UÍA (Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands) skráði sig til leiks en hætti svo við.

Sæti Félag L U J T Sk Fe Mm Stig Athugasemdir
1 ÍBÍ 0 0 0 0 0 0 +0 0 Í umspil

Suðurriðill

breyta

Í Suðurlandsriðlinum léku 6 lið, ÍBV, Keflavík, Breiðablik, Þróttur, Víkingur og Reynir en Reynisliðið var samsett af leikmönnum úr Sandgerði og af Keflavíkurflugvelli.

Sæti Félag L U J T Sk Fe Mm Stig Athugasemdir
1 Keflavík 5 5 0 0 20 1 +19 10 Í umspil
2 Þróttur 5 4 0 1 14 5 +9 8
3 Reynir 5 3 0 2 17 10 +7 6
4 Víkingur 5 1 1 3 10 10 +0 3
5 ÍBV 4[1] 0 1 3 5 20 -15 1
6 Breiðablik 4[1] 0 0 4 3 23 -20 0

Úrslitaleikur

breyta

Úrslitaleikurinn var leikinn á milli Keflavíkur og ÍBÍ. Leikurinn endaði 1-1 og fól KSÍ Ísfirðingum að sjá um nýjan leik. Þeir gerðu það og settu leikinn á hinn 15. september. Keflvíkingum fannst fyrirvarinn of stuttur og einnig fannst þeim það ósanngjarnt að þurfa að spila á Ísafirði og mættu fyrir vikið ekki til leiks, ekki frekar en dómararnir.

Stjórn ÍBÍ skipaði því dómara, sem gekk inn á völlinn til að flauta leikinn á og svo af og ÍBÍ var dæmdur sigur því Keflvíkingar mættu ekki á tilsettum tíma, en það var héraðsdómstóll ÍBÍ sem dæmdi. Keflvíkingar áfrýjuðu til KSÍ sem ógilti dóm héraðsdómstóls ÍBÍ og gáfu þá útskýringu að láðst hafði að fá staðsetningu leikstaðar og leikdags hjá ÍSÍ, sem ber að gera samkvæmt lögum.

Nýr leikur var settur á en ekki fyrr en næsta sumar, hinn 14. júlí á Melavellinum. Ísfirðingar mættu ekki til leiks og gengu dómarar inn á völlinn og flautuðu leikinn á og síðan af. Ísfirðingar kærðu þetta til ÍSÍ en þeirri kæru var vísað frá. Sagði þar meðal annars:

„Kæran í heild heyrir ekki undir framkvæmdarstjórn ÍSÍ þar sem hún hefur ekki vald til að úrskurða annað en móta- og keppendareglur og áhugamannareglur ÍSÍ, en ekki meint brot á lögum KSÍ eða ÍSÍ“

Keflvíkingar voru því úrskurðaðir sigurvegar 2. deildar. Þeim fannst þó leiðinlegt hvernig málið hafði þróast og sendu bréf til KSÍ þar sem félagið afsalaði sér rétti sínum til að leika í 1. deild karla árið 1958, en KSÍ varð ekki að ósk þeirra.

Fróðleikur

breyta
Sigurvegarar 2. deildar 1957
 
Keflavík
Upp í 1. deild


Fyrir:
2. deild 1956
B-deild Eftir:
2. deild 1958
 
1. deild karla • Lið í 1. deild karla 2024 
 

  Afturelding  •   Fjölnir  •   Grótta  •   Grindavík •  Leiknir  Njarðvík  
  Selfoss  •   Þór  ÍA  •   Þróttur   •   Ægir    •   Vestri

Leiktímabil í 1. deild karla (1955-2024) 

1951 • 1952 • 1953 • •1954•

1955195619571958195919601961196219631964
19651966196719681969197019711972197319741975197619771978197919801981198219831984198519861987198819891990199119921993199419951996199719981999200020012002200320042005200620072008200920102011201220132014201520162017201820202021202220232024



Tengt efni: MjólkurbikarinnLengjubikarinnMeistarakeppni karla
Úrvalsdeild karla1. deild2. deild3. deild4. deild

------------------------------------------------­----------------------------------------------
Mjólkurbikarinn kvennaLengjubikarinnMeistarakeppni kvenna
Úrvalsdeild kvenna1. deild2. deildDeildakerfiðKSÍ


Heimildir

breyta
  1. 1,0 1,1 Úrslit úr leik Breiðabliks og ÍBV eru ókunn, en leikurinn (ef hann var háður) var leikinn eftir að ljóst var hvaða lið vann riðilinn