2. deild karla í knattspyrnu 1961
Leikar í 2. deild karla í knattspyrnu hófust í 7. skiptið árið 1961. Í fyrsta skipti var leikin tvöföld umferð í 2. deild, en sú skipting hafði verið tekin upp árið 1959 í efstu deild.
ÍBÍ og Keflvíkingar léku til úrslita í markaleik, ÍBÍ vann 7-3
A riðill
breytaÍ A riðli léku lið: ÍBÍ, Víkingur, Breiðablik.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | Athugasemdir | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ÍBÍ | 4 | 4 | 0 | 0 | 14 | 4 | +10 | 8 | Í úrslitaleik | |
2 | Víkingur | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 | 7 | -1 | 4 | ||
3 | Breiðablik | 4 | 0 | 0 | 4 | 6 | 15 | -9 | 0 |
Úrslit (▼Heim., ►Úti) | |||
ÍBÍ | 3-0 | 4-3 | |
Víkingur | 0-2 | 3-2 | |
Breiðablik | 1-5 | 0-3 |
B riðill
breytaÍ B riðli léku Reynir, Þróttur og Keflavík
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | Athugasemdir | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Keflavík | 4 | 3 | 0 | 1 | 11 | 8 | +3 | 6 | Í úrslitaleik | |
2 | Þróttur | 4 | 2 | 0 | 2 | 10 | 9 | +1 | 4 | ||
3 | Reynir | 4 | 1 | 0 | 3 | 4 | 8 | -4 | 2 |
Úrslit (▼Heim., ►Úti) | |||
Þróttur | 4-1[1] | 2-5 | |
Reynir | 1-0 | 2-3 | |
Keflavík | 2-4 | 1-0 |
Úrslitaleikur
breytaÚrslitaleikurinn var leikinn á milli Keflavíkur og ÍBÍ. Ísfirðingar skoruðu 7 mörk, Elvar Ingason, Erling Sigurlaugsson og Kristmann Krismannsson skoruðu 2 mörk hver og Jón Ólafur Jónsson eitt. Jón Jóhannsson skoraði tvö og Högni Gunnlaugsson eitt fyrir Keflavík.
Lið | Úrslit | Lið | ||
---|---|---|---|---|
ÍBÍ | 7-3 | Keflavík |
Fróðleikur
breyta- ÍBÍ for loks upp um deild, en þetta var fimmti úrslitaleikurinn sem þeir spiluðu í 2. deild á 6 árum. Þeir féllu beint aftur í 2. deild eftir einungis árs veru í efstu deild.
Sigurvegarar 2. deildar 1961 |
---|
ÍBÍ Upp í 1. deild |
Fyrir: 2. deild 1960 |
B-deild | Eftir: 2. deild 1962 |
Heimildir
breyta- ↑ Tvær samtímaheimildir með dags millibili gefa upp tær mismunandi lokatölur úr þessum leik. Tíminn segir að leikurinn hafi endað 1-4 fyrir Reyni en Alþýðublaðið segir að leikurinn hafi endað 4-0 fyrir Þrótti. Alþýðublaðið gerir leiknum nánari skil auk þess sem það segir frá því að nú verði hreinn úrslitaleikur milli Þróttar og Keflavíkur, sem hefði aldrei orðið raunin hefði Þróttur tapað og einungis verið með einn sigur eftir 3 leiki, en Reynir 2.