2. deild karla í knattspyrnu 1955
Keppni hófst í fyrsta skipti í 2. deild karla í knattspyrnu árið 1955. Fjögur lið tóku þátt í þessu fyrsta móti í 2. deild, lið frá Akureyri (ÍBA), Ísafirði (ÍBÍ), Vestmannaeyjum (ÍBV) og Suðurnesjum (Reynir) en hið síðast nefnda var skipað leikmönnum úr Sandgerði og starfsmönnum Keflavíkurflugvallar.
ÍBA vann þetta fyrsta mót eftir úrslitaleik við Reyni, en leikið var í tveimur riðlum
Norðurriðill
breytaÍ Norðurlandsriðlinum léku lið ÍBA og ÍBÍ.
Lið | Úrslit | Lið | ||
---|---|---|---|---|
ÍBA | 6-1 | ÍBÍ |
Suðurriðill
breytaÍ Suðurlandsriðlinum léku lið ÍBV og Reynis, en Reynisliðið var samsett af leikmönnum úr Sandgerði og af Keflavíkurflugvelli. Leikurinn var spilaður tvisvar, þar sem fyrri leikurinn endaði með 2-2 jafntefli.[1]
Lið | Úrslit | Lið | ||
---|---|---|---|---|
Reynir | 3-0 | ÍBV |
Úrslitaleikur
breytaÚrslitaleikurinn var leikinn hinn 23. ágúst 1955 á milli Suðurnesjaliðsins Reynis og ÍBA. Akureyringar unnu leiknin 2-1 með mörkum frá Ragnari Sigtryggssyni og Baldri Árnasyni, en Vilberg Árnason skoraði fyrir Suðurnesjamenn.
Lið | Úrslit | Lið | ||
---|---|---|---|---|
ÍBA | 2-1 | Reynir |
Fróðleikur
breyta- Eftir úrslitaleikinn bauð KSÍ leikmönnum liðanna í kaffisamsæti þar sem Björgvin Schram, formaður KSÍ, óskaði sigurvegurunum til hamingju með sigurinn. Hann minntist á grip er yrði gefinn sigurliðinu til minja, en hann var ekki tilbúinn og sagði Björgvin að hann yrði sendur Akureyringum.
Heimildir
breyta- ↑ Suðurnes mæta Akureyri í 2. deild. Morgunblaðið, 155. tölublað (13.07.1955), Blaðsíða 2
Fyrir: Engin |
B-deild | Eftir: 2. deild 1956 |